Freyr

Årgang

Freyr - 15.08.1979, Side 33

Freyr - 15.08.1979, Side 33
Gott ár hjá Mjólkursamsölunni Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavík var haldinn þriðjudaginn 25. apríl. Fundinn setti og stjórnaði honum vara- formaðurinn, Gunnar Guðbjartsson, í veikindaforföllum stjórnarformanns, Ágústs Þorvaldssonar. Varaformaður gerði grein fyrir störfum stjórnarinnar á árinu, m. a. kom fram, að frestað hefur verið að takaákvörðun um, hvort Mjólkursamsalan hætti þátttöku í Vinnuveitendasambandinu, en ákvörðunar er að vænta á næstunni. Gunnar lagði áherslu á í ræðu sinni að breyta þyrfti reglum um útborgun haustuppbótar á mjólk. Það væri brýnt hagsmunamál fyrir framleiðendur að jafna framleiðsluna sem mest. Nú váeru allt of miklar sveiflur, minnst var mjólkin á svæði Mjólkursamsölunnar í febrúar, 3,3 milljónir lítra, en mest í júlí, 7,0 milljónir lítra. Hækka þyrfti verulega verð til bænda á haustmjólkinni, en lækka að sama skapi verðið á sumarmjólkinni. Forstjóri Mjólkur- samsölunnar, Guðlaugur Björgvinsson, gerði grein fyrir rekstri hennar og reikning- um. Hér á eftir munu nokkur atriði úr ræðu Guðlaugs verða rakin. Innvegin mjólk í þau fjögur mjólkurbú, sem eru á svæði Mjólkursamsölunnar, var 61,3 milljónir lítra á síðastliðnu ári, og er það 4,8% aukning frá fyrra ári. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var tekið á móti 42,0 milljónum lítra. Mjólkurstöðin í Reykjavík fékk 5,3 millj- ónir lítra. Mjólkursamlagið í Búðardal tók á móti 3,1 milljón lítra og mjólkursamlagið í Borgarnesi fékk 10,7 milljónir lítra. Samtals voru seldar 32,1 milljón lítra af nýmjólk eða 52% af innveginni mjólk. Það var samdráttur um 1,4%. Samdráttur varð einnig í sölu á undanrennu. Veruleg aukning var í sölu á jógurt eða um 21%, söluaukning varð á skyri um 5,5% og sala á rjóma var 8,4% meiri árið 1978 en árið á undan. Mjólkurframleiðendur á svæði Mjólkur- samsölunnar voru 1 273 í árslok 1978, þeim hafði fækkað um 22 frá fyrra ári. Nokkrar nýjar afurðir komu á markaðinn á síðastliðnu ári, þar má nefna melónu- og kaffijógurt. Brotið var blað í sögu mjólkur- iðnaðarins, þegar hafin var sala á Floridana appelsínusafaáárinu. En mjög góðsalavará þessum vörum á árinu og salan á appelsínu- safanum skilaði umtalsverðum hagnaði. í árslok voru 232 starfsmenn hjá Mjólkur- samsölunni, þeim hafði fjölgað um 7 á árinu. Rekstur brauð- og ísgerðar gekk mjög vel, og er þetta eitt besta árið síðan hafinn var rekstur á þessum tveimur deildum MS. Fjárfesting var með minna móti, en aðal- fjárfestingin var endurnýjun á átöppunarvél. Rekstrarkostnaður Mjólkursamsölunnar lækkaði hlutfallslega miðað við undan- gengin ár, því hann reyndist vera 6,5% af sölu, en árið 1977 var hann 8,5% af sölu. Heildarvelta MS. á árinu var 7 322 milljónir króna. Fyrningar voru rúmar29 milljónir króna og um 40 milljónir króna voru lagðar í bygg- ingasjóð. Seldar voru mjólkurvörur fyrir 7 109 milljónir króna. Grundvallarverð mjólkur fyrir svæði Mjólkursamsölunnar var kr. 135,20 á hvern lítra, en útborgunarverð aftur á móti kr. 135,48. Á fundinum komu fram tvær tillögur, þar sem lagt var til, að reglur um útborgun haustuppbótar á mjólk yrðu endurskoðaðar og þær greiðslur hækkaðar, þessar tillögur voru samþykktar. UÞL. FREYR 535

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.