Freyr - 01.08.1992, Blaðsíða 21
15.-16.’92
FREYR 581
Ráðunautafundur 1992
Notkun ómsjár
f leiðbeiningastarfi
Ólafur G. Vagnsson, Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Á árinu 1991 voru keyptar sex ómsjár til notkunar í leiðbeiningarstarfi. Voru það
fjárrœktarfélög, búnaðarsambönd o.fl. sem stóðu fyrir kaupunum en Framieiðnisjóður
landbúnaðarins styrkti þessi kaup verulega. Yfirleitt eru tœkin í umsjá héraðsráðu-
nauta viðkomandi búnaðarsambanda. Dagana 9. og 10. september sl. haust var
haldið námskeið fyrir héraðsráðunauta í sauðfjárdómum og var þá einnig kennd
notkun ómsjárinnar.
Ólafur Vagnsson.
Höfðu menn þar tækifæri til þess
að framkvæma mælingu á lifandi
lömbum en síðan var þeim slátrað
daginn eftir, skrokkarnir teknir
sundur á mælingastað þannig að
menn gátu séð hvernig þeir raun-
verulega litu út.
Ég ætla hér að skýra út í örfáum
orðum hvernig staðið var að notk-
un þessa tækis hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar. Við líflambaval
á undanförnum árum hefur nær
eingöngu það verklega verið við-
haft að bændur hafa verið heim-
sóttir oft í tengslum við úrtöku
sláturfjár og líflambavalið hefur
nær eingöngu snúist um lambhrút-
ana. Sami háttur var viðhafður nú
nema hvað nú hafði ómsjáin bæst í
farangurinn auk málbandsins og
tommustokksins. Fjöldi lamba
sem var skoðaður var mjög mis-
jafn, allt frá 5-10 á litlum búum og
upp í 40-50 á þeim stærstu. Yfirleitt
voru bændur búnir að taka álitleg-
ustu lömbin frá, valin eftir ætt,
vænleika og gerð og oft voru lömb
tilkomin við sæðingu stór hluti
hópsins. Ef ég var einn á ferð hafði
ég þann háttinn á að byrja á mæl-
ingum með ómsjánni og stiga að-
eins um það bil helming lambhrút-
Frh. á bls. 580.
1. tafla. Mœlingar með ómsjá. Synir sœðingahrúta 1991,
einl.-tvíl.
Faðir Nafn Nr. Fjöldi sona Þungi kg Vöövi mm Fita mm Stig samt.
Hyrndir:
Illugi 82845 34 46,1 24,4 3,4 64,1
Máni 83916 26 44,7 22,2 4,0 64,1
Freyr 84884 59 46,5 22,7 3,8 63,4
Prúður 84897 65 48,1 23,9 3,3 63,5
Lopi 84917 73 48,4 24,6 3,9 63,4
Kokkur 85870 113 47,5 25,2 3,9 65,2
Hnykill 85886 25 46,1 24,8 3,4 64,3
Vísir 85918 40 48,5 23,5 3,9 62,4
Svoli 86889 63 47.7 24,9 3,5 64,3
Krákur 87920 84 46,3 24,8 3,8 64,8
Kollóttir:
Skalli 81873 16 47,4 22,9 4,4 62,6
Hlunkur 83893 36 48,2 22,1 4,0 63,0
Hlíðar 84860 16 47,2 23,5 3,4 62,3
Broddi 85892 56 46,2 22,6 4,0 64,0
Pjónn 86915 10 45,1 24,0 2,8 61,9