Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1992, Síða 26

Freyr - 01.08.1992, Síða 26
586 FREYR 15.-16.’92 Vetrarrœktun gúrkna Niðurstöður Noregsferðar 28.3. - 1.4. 1992 Garðar R. Árnason Vaxtarlýsing er algeng við rœktun blóma að vetri, bœði hér á landi og erlendis. Hins vegar hefur slík vetrarrœktun verið mjög fátíð við rœktun grœnmetis, þegar sjálft plöntuuppeldið er undanskilið. Eins og kunnugt er, þá er birtan mjög takmörkuð hér á landi að vetri, þannig að gúrkur gefa engar tekjur af sér í a.m.k. 4 mánuði á ári. Sú mikla fjárfesting sem liggur í gróðurhúsunum nýtist því tiltölulega illa og því mjög áhugavert að kanna hvort unnt sé að nýta húsin betur með lengri uppskerutíma. Síðastliðna þrjá vetur hafa verið í gangi tilraunir í Noregi með vetrar- ræktun gúrkna við vaxtarlýsingu. Niðurstöður tilraunanna voru mjög jákvæðar, þannig að allmarg- ir norskir gúrkuframleiðendur hafa tekið upp þessa ræktunarað- ferð og sumir hverjir beitt henni í tvö ár. Miðað við þær jákvæðu fregnir sem við höfum haft af þess- ari nýju ræktunaraðferð, er mikill áhugi hjá ýmsum aðilum hér á landi að kanna þetta nánar. Ákveðið var því að fara til Noregs í lok mars og kynna sér þetta betur, að miklu leyti vegna hvatningar frá Sölufélagi garðyrkjumanna. Auk mín var einn garðyrkjubóndi ásamt maka með í förinni. Auk tilraunastöðvarinnar að Særheim, heimsóttum við fjórar gúrkustöðv- ar og tvær tómatastöðvar í ná- grenni Stavangurs á Sv-ströndinni og í Lier, rétt sunnan við Osló. Hér á eftir er ætlunin að gefa yfirlit yfir helstu niðurstöður ferðarinnar. Ég vil ennfremur nota tækifærið og þakka Sölufélagi garðyrkjumanna og Búnaðarfélagi íslands veittan ferðastuðning. 1. Millibil plantna og uppbinding. Algengast var í þeim stöðvum sem við heimsóttum að vera með 2,5 plöntur á m: í vetrarræktun- inni, sem er talsvert þéttara en að sumri (1,6-2,0). Samkvæmt til- raununum á Særheim, dró veru- Garðar R. Árnason. lega úr uppskerunni þegar fjöldi plantna á m2 í vetrarræktun var undir 2,0. Þeir sem stóðu að tilraununum mæltu eindregið með því að leggja plönturnar niður, í stað þess að toppa plönturnar og taka niður sprota (þ.e. „regnhlífaraðferðin"). Ástæðan var sögð sú, að við „regn- hlífaraðferðina“ verður megin blaðmassinn efst á plöntunum þannig að birtan nær mun verr niður með plöntunum, sem veldur örri blaðgulnun neðri blaðanna. Með niðurlagningaraðferðinni eru bara tekin stofnaldin. Öll aldin eru fjarlægð á neðstu 50 cm, en þar fyrir ofan er miðað við að taka eitt aldin út frá hverri blaðöxl. Komi fleiri en eitt aldin pr. blaðöxl eru þau grisjuð þannig að bara eitt sitji eftir, ennfremur eru öll vansköpuð aldin fjarlægð eins fljótt og kostur er. Almennt var miðað við að lág- markshæð upp í víra þyrfti að vera a.m.k. 3 metrar. Á þeim stöðvum sem við heimsóttum, voru plönt- urnar ekki lagðar niður á grind eða bönd, heldur beint niður á beðin. Helsta vandamálið þegar of lágt er upp í víra er að neðstu aldinin eru of neðarlega á plöntunum, þannig að þau lenda á jörðu þegar lagt er niður. Eins og kunnugt er, eru slík aldin léleg söluvara þar sem þau litast ójafnt, verða ljós á þeirri hlið sem liggurájörðinni. Pó svoað3m væru upp í víra, voru menn ekki alveg lausir við þetta vandamál. Til að komast hjá þessu vandamáli, gripu margir til þess ráðs að toppa plönturnar. Plönturnar voru þá látnar síga það langt niður að neðsta aldinið var rétt yfir beðun- um og plöntutopparnir síðan klipnir af. Sprotinn sem vex bráð- lega út frá efstu blaðöxlinni er síð- an vafinn upp og látinn mynda nýjan toppsprota. Einn þeirra garðyrkjubænda, sem heimsóttir voru, toppaði plönturnar á þennan hátt einu sinni (5 vikum eftir út- plöntun) þó svo að 4 m væru upp í víra, því að hann taldi að aldinin fylltu sig betur. Annar garðyrkju- bóndi var bara með 2,60 m upp í víra og ætlun hans var að láta

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.