Mjölnir - 05.07.1944, Side 1
«
Kaupendur Mjölnis
Munið að gjaldagi blaðsins var
15. júní s. 1. — Góðfúslega kom-
ið á afgreiðslu blaðsins Suður-
götu 10 og greiðið árgjaldið.
Opið 11—12 f. h. og 4—6 e. h.
Afgreiðslan.
26. töiublað.
7. árgangur
Miðvikudaginn 5. júlí 1944.
Aðalfundur S. I. S
Jónas frá Hriflu og Jón Árnason láta fundinn
samþykkja ályktun og tillögu með árásum á
Sósíalistaflokkinn og verkalýðinn, þar sem flokk-
urinn er borinn tilhæfulausum sökum, og lögð
blessun yfir kauplækkunarkröfur Jónasar. Víða
er mikil gremja yfir þessari misnotkun Fram-
sóknarmanna á aðstöðu sinni í S í S.
----oOo-----
Dagana 22. til 25. júní var
aðalfundur SIS haldinn á Akur-
eyri. Fundinn sátu 85 fulltrúar
frá kaupfélögum víðsvegar unj
landið, tvö félög gengu í sam-
bandið, annað á Patreksfirði,
hitt í Ólafsvík. Skýrslur um
starfsemina undanfarin ár
voru gefnar munnlega og
þegar fulltrúar kvörtuðu yfir
að fá ekki skýrslurnar prent-
aðar eða fjölritaðar sagði Jón
Árnason að það kæmi ekki til
mála því fulltrúar kynnu að mis
nota þær. Umræður urðu nokkr-
ar um starfsemina, en Jón
Árnason og Jónas snéru þeim
strax upp 1 pólitískt þras, réð-
ust með offorsi á Sósíalista-
flokkinn, blöð hans og einstaka
flokksmenn. Eftir að hafa þann
ig komið í veg fyrir ýtarlegar
og gagnlegar umræður um mál
kaupfélaganna og starfsemi
sambandsins létu þeir Jón og
Jónas nokkra vikapilta sína
undir forustu Bernharðs Stef-
ánssonar flytja eftirfarandi á-
lyktun:
„Fundurinn telur ástæðu til
oð vekja athygli samvinnufé-
laganna á því, að Sameiningar-
flokkur alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn hefur:
1) Samþykkt á flokksþingi
sínu 1942 að efna til klofnings-
starfsemi í samvinnufélögum
bænda í þeim tilgangi að skipta
þeim og sambandinu.
2) Ritað og birt fjölmargar
greinar í málgögnum sínum, þar
sem farið er lítilsvirðandi orð-
um bændastétt landsins, ásakað
bændur um, að þeir séu byrði
á þjóðfélaginu, deilt fast á at-
vinnuhætti þeirra, og reynt að
koma óorði á allar helztu fram-
leiðsluvörur sveitanna og toi-
velda sölu þeirra.
3) Beitt öllu flokksafli sínu
á Alþingi í vetur sem leið til
þess.
a) Að fella tillögur um lög
skipaða dýrtíðaruppbót á fram-
leiðsluvörum bænda;
b) Að svifta samvinnufélögin
eignar- og umráðarétti yfir
mjólkuriðju og mjólkursölu
sveitanna*og jafnvel heimta að
beita hreinu eignarnámi;
' Að skipuð yrði af Alþingi
sérstök nefnd með valdi rann-
sóknardómara til þess að kalla
fyrir sig, sem sakborninga
marga af kaupfélagsstjórum
landsins og nokkra af starfs-
mönnum sambandsins í því
skyni, að koma fram ábyrgð á
hendur þeim fyrir tilbúnar sak-
ir.
4) Talið það mjög óviðeigandi
þegar trúnaðarmenn samvinnu-
félaganna hafa í ræðu og riti
varið kaupfélögin og Samband-
ið móti þessum órökstuddu og
ósönnu árásum.
Fyrir því lýsir aðalfundur
Sambands ísl. samvinnufélaga
1944 megnri vanþóknun á fram-
angreindri klofnings- og
skemmdarstarfsemi og skorar
fast á alla sanna samvinnu-
menn að vera vel á verði gagn-
vart hverskonar uridirróðri og
upplausnarstarfsemi frá hendi
þessa stjórnmálaflokks, sem tek
ið hefur upp illvígan áróður
gegn samvinnufélögunum.
Allir sjá að það sem meint
er, er það að Framsóknarflokk
urinn sem er hræddur við vax-
andi fylgi Sósíalistaflokksins í
sveitunum er að reyria að
sverta flokkinn í augurn bænda
og annarra kaupfélagsmanna.
Ábyrgðartilfinning þeirra fyrir
sambandinu, sem þeir stjórna
er svo ekki meiri en það að þeir
hika ekki við að nota það opin-
berlega í þágu Framsóknar-
flokksins. Auðvitað er það ekk-
ert nýtt eða ókunnugt hve
herfilega Framsóknarflokkur-
inn misnotar aðstöðu sína í SIS.
Framsöguræða Bernharðs fyrir
þessari ályktun var stórorð og
hin dólgslegasta, enda mun Bern
Framhald á f jórðu síðu.
Allsherjarverkfal!
og götubardagar
I útvarpsfregnum og fregn-
um frá danska blaðafulltrúan-
um í Reykjavík, hefur verið
sagt frá því, að. götubardagar
hafi orðið nýlega í Kaupmanna-
höfn, og hefur undanfarið stað-
ið þar yfir allsherjarverkfall.
Vegna hinna ströngu reglna
Þjóðverja um innivist og dauða
dóma fyrir brot á þeim reglum,
urðu miklir árekstrar milli
verkamanna og Þjóðverja og
stóðu þessar óeirðir yfir í þrjú
kvöld. Sagt hefur verið frá því,
að í þessum bardögum hafi 10
menn verið skotnir og 75 særðir
Vegna þessarar mótspyrnu
verkamanna urðu Þjóðverjar að
stytta umferðabannstímann, en
tóku þá til að fangelsa fjölda
f
EISASPRENGJXIFLUGVÉL
Framliald á fjórðu síðu.
Eins og sagt var frá í fréttum nýlega, gerðu amerískar
risasprengjufhigvélar árás á eina mestu iðnaðarborg
Japans nú fyrir skömmu.
Hér á myndinni sézt vélfræðingur vinna við að festa
lendingarlijólin undir eina slíka risaflugvél. Kallast
þær B.—19 og geta flogið frá New York til Berlínar
með 18 smálestir af sprengjum.
ÉÉJ
I
|
|
|
8
|
1
|
1
|
1
§
1
|
i
I
I
I
1
I
g
I
|
i
1
1
I
1
I
m
1
1
|
Verkamenn í Reýkjavík mót-
mæla hinum háu skatta álö£um
á verkamenn.
Fundur í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún samþykkti nýlega
tillögur um mótmæli gegn
skattaálögum á verkafólk og
um fleiri efni. Þar sem þessar
samþykktir eiga engu síður
erindi til síglfizkrar alþýðu held
ur en Reykvíkinga, birtast þær
hér á eftir:
„Fundur í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún mótmælir hinum
gífurlegu skattaálögum, sem
lagðar hafa verið á verkamenn
á síðastliðnu ári, samtímis því
sem mikill hluti stríðsgróðans
hefur sloppið við skatt, og til-
tölulega lítill hluti skattstofn-
anna notaður til þess að tryggja
framtíðaratvinnu í landinu.
Fundurinn telur nauðsynlegt:
1. Að persónufrádráttur verði
hækkaður svo, að ekki sé lagður
skattur á þurftartekjur.
2. Að útsvör verði ekki lögð
á þurftartekjur og lækkuð að
mun á lágum og miðlungstekj-
um.
3. Að hin sérstöku hlunnindi
gróðafélaga verði afnumin
(varasjóðshlunnindi, takmörk-
un á útsvari).
4. Að gerðar verði ráðstafan-
ir, sem duga, til þess að koma
í veg fyrir skattsvik.“
„Furidur í vmf. Dagsbrún
hvetur alla félagsmenn til að
vinna ötullega að sköpun hvíld-
arheimilis, með því, að leggja
fram fé, eftir efnum og ástæð-
um og með því að gefa nokkura
vinnu við landnámið.
Um leið og fundurinn hvetur
félagsmenn til þátttöku í þessu
starfi, vill hann benda þeim á
hið mikla menningargildi, sem
slíkt hvíldarheimili mun hafa
fyrir verkamenn, er það verður
reist.“
„Verkamannafélagið Dags-
brún mótmælir harðlega úr-
skurði félagsdóms frá 19. maí
s.l. í máli ríkisstjórnarinnar
gegn Alþýðusambandi Islands.
— Fundurinn lítur svo á, að
úrskurður þessi sé ekki aðeins
stéttardómur af frekasta tagi,
heldur einnig fjarri því að eiga
hina minnstu stoð í lögum þeim
sem Félagsdómur á að úrskurða
eftir, og skapi fordæmi yfir-
Framliald á annarri síðu.
Til sölu
áoð 3 kora Honer harmonrka XT , PPT[,, TNT.T
& , , •». Verzl. GEISLINN
með pianoboroi.