Mjölnir - 12.02.1947, Síða 2
jarposiurinn
MJÖLNIR
— VIKUBLAÐ — . .
Útgefandi :
Sósíalistafélag Siglufjarðar
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Benedikt Sigurðsson
Símar 19'h og 210
Blaðið lcemur út
alla miðvikudaga.
Áskriftargjáld kr. 20,00 árg.
Afgreiðsla Suðurgötu 10.
SiglufjarSarprcnlsmiSja
MAL DAGSIHS
Hin stéttarlega eining verka-
lýðssamtakanna er mál málanna
í dag. Afturhaldsstjórn er sezt
að völdum í landinu og frá
liennar liendi má vamta f jand-
skapar í garð alþýðunnar. —
Kannske verður það í mynd
.beinna ofsókna og þrælalaga á
borð við „genglsskráningarlög-
in“ 1939. Eða þá í mjTid fals-
aðrar vísitölu og annarra slíkra
fínni ráðstafana. Stór hópur
afturhaldsmanna keppir að því
að skapa atvinnuleysi og fátækt,
til þess að betra verði að koma
á kauplækkunum.
Verkamenn hafa allir sömu
hagsmuni í þessum málum, hvar
í flokki, sem þeir standa, og þeir
verða allir að skilja það, að sam-
tök þeirra, verkalýðsfélögin,
verða að vera sem sterkust og
heilsteyptust til vamar og
sóknar fyrir stéttina. Þung
ábyrgð hvflir á hverjum meðlim
stéttasamtaltanna og liver og
einn verður að gera sér ljóst, að
hann verður að miða orð sín og
gerðir við það að efla og styrkja
verkalýðsfélögin. Sá verkamað-
ur, sem lætur blindast til að sá
óánægju og óeiningu í verka-
lýðsfélöguniun, vegna pólitísks
ofstælds, er að svíkja sjálfan
sig og stétt sína. Sá, sem vinnur
að einingu verkalýðsfélaganna
og samhug og samstarfi án til-
lits tfl pólitísks skoðanamuns,
er hinn hyggni, góði verkalýðs-
sinni. Skoðanamunur verka-
manna á pólitík þarf ekki að
hindra samstarf þeirra í verka-
Iýðsfélögummi um kaupgjald og
Önnur liagsmunamál, og má
ekki gera það.
Það er vissulega varlegast nú,
fyrir verkalýðssamtökin, að
vera við öllu b.úin og komi tfl
ofsókna á kjör verkalýðsins,
rjítur iflai farsð, el þau eru
sundurleit, en séu liau heilsteypt
og samhuga mun afturlialdið
fara háðulega hrakför, ef það
hættir sér út í árásir á verka-
lýðinn.
LUMA
L JÓSAPERUR
eru bæði ódýrar og góðar.
Kauóf élag .Siglf irðinga
Matvörudeild
★Frá bæjarstjórn. Fyrir nokkru
kröfðust fulltrúar Sósíalistafl.
fundar í bæjarstjórn, til að ræða
hér vandamál útgerðarinnar. —
Til þess var full ástæða, þar sem
afli hefur verið góður, en bát-
arnir ekki getað losnað við afl-
ann. Engin aðstaða til að salta
fisk og hraðfrystihúsin ekki
starfrækt, milli þeirra og verka-
kvenna kaupdeila, sem illt virð-
ist að leysa.
Bæjarstjórnarfundurinn kaus
f jóra menn til að vinna að lausn
kaupdeilunnar og ennfremur að
því, að söltun á fiski geti hafizt.
Nefndinni tókst að koma á
samningum milli verkakvenna-
félagsins og hraðfrystihússins,
var samið um kr. 1,90 á tímahn
(grunnk.) Áður var kaupið kr.
1,75. Þá skoraði nefndin á
hafnarnefnd að 'láta nú þegar
byggja hið fyrirhugaða geymslu
hús við öldubrjótinn og leigja
það til fisksöltunar. Hafnar-
nefnd hefur nú samþykkt að
byggja húsið og er þá bara
eftir að sjá hvort lagst verður
á þá samþykkt eins og svo
margar aðrar.
Bæjarstjóri er nýkominn úr
sendiför til Reykjavíkur, sem
hann fór til að útvega lán o..fl.
Engin skýrsla hefur bæjar-
stjórn borizt um förina og hefur
þó verið fundur í Allsherjar-
nefnd síðan bæjarstjóri kom. —
Sennilega héfur árangur af för-
inni verið heldur lítill, því síð-
asta tölublað „Neista“ minnist
ekki á hana.
★ Dómur fallinn.'Dómur er nú
fallinn í máli rafveitunnar gegn
Nýkomið:
Rauð og hvít dömubelti, plastik.
Kvenbuxur
Sflkisokkar, margir litir
Kjólaefni, (krep) margir litir.
Golftreyjur væntanlegar með
næstu ferð.
Verzlunin TÚNGATA 1
Höjgaard og Schultz. Gerðar-
dómurinn hvað upp úrskurð
sinn nú fyrir nokkrum dögum
og hljóðar hann* á þá leið, að
firmað er sýknað af öllum kröf-
um rafveitunnar, en sjálfum sér
úrskurða hinir þrír gerðardóms-
menn sér 36 þúsund krónur í
ómakslaun. Kostnaður rafveit-
unnar af máli þessu mun að
öðru leyti vera annað eins eða
meira.
★ Hirðuleysi. Eg var á gangi
hér um daginn nú fyrir helgina,
og kom á platningu Óskars
Ilalldórssonar undir Hafnar-
bökkum, var það ófögur sjón,
sem við mér blasti. Platning með
dekki mjög víða niður brotiir.
En þarna rétt við er hús, sem
bærinn á og leigt er út til íbúðar
Eru þarna allmörg böm frá eins
árs til fgrmingaraldurs.
Væri full þörf á því að sú
nefnd, sem þetta heyrir undir,
sem er veganefnd, réði bót á
þessu og það áður en slys
verður að, og /þó nefndin sé
sjaldan kölluð saman til fundar,
þá hefur formaður nefndar-
innar, sem er bæjarstjóri, fullt
vald til framkvæmda á jafn
nauðsynlegu verki sem þessu.
Víðar mun viðhaldi söltunar-
stöðva ábótavant í þessu efni, og
ætti að taka þær allar til við-
gerðar á kostnað eiganda, eins
og heimild er til, ef þeir vilja
ekki gera það sjálfir, og það
áður en eitthvert barnið er
dregið dautt upp úr sjónum af
völdum trassaskapar í þessu
éfni.
Um dáleiðslu
Gylta merkið (Reyfarinn)
Álit hagfræðinganefndarinnar.
Dalalíf
Hjónalíf
Á morgni atómaldar.
Bókaverzl. Lárusar Þ.J. Blöndal
Verkstæði og skrifstofa
Túngötu 40 — Siglufirði.
Sími 126.
★ TEIKNUM: Allskonar byggingar og gerimi áítlanir um fram-
kvæmdir og kostnað.
★ BYGGJUM: íbúðarhús, verzhmarliús, verksmiðjur og tilsvar-
andi mannvirki.
★ FRAMLEIÐUM: Glugga, hurðir og allskonar innréttingar.
★ ÚTVEGUM: Ymiskonar byggingarefni.
Ef þér þUrfið á aðstoð okkar að halda viðvíkjandi framkvæmdum
á komandi vori, þá vinsamlegast talið við okkur hið fyrsta.
, >
Virðingarfyllst
SVEINN & GÍSLI H. F.
NÝJAR BÆKUR
R E G L U R
mn fyrirfram innheimtu útsvara í Sigluf jarðarkaupstað.
1. gr. Sérhver útsvarsgjaldandi í Siglufjarðarkaupstað, sem
gjaldskyldur er við aðalniðurjöfnun, og sem greiddi kr. 200,00 eða
meira í útsvar síðastliðið ár, skal greiða upp 'i útsvar yfirstandandi
árs, 40% af útsvarsupphæð þeirri, er honum bar að greiða næsta
ár á undan, með gjalddögum 1. marz, 1. apríl og 1. júní, 10% af
útsvari síðasta árs hverju sinni.
2. gr. Allar-greiðslur samkvæmt reglum þessum skulu standa.á
heilum eða hálfum tug króna og þannig jafnað á gjalddagana, að
allar greiðslurnar fjórar veroi samtals sem næst 40% af næsta
útsvari á undan.
3. gr. Nú eru greiðslur samkvæmt reglum þessum ekki inntar af
höndum 15 dögum eftir gjalddaga, og skal gjaldþegn þá greiða
dráttarvexti af því, sem ógreitt er, 1% á mánuði eða hluta úr
mánuði, er líður frá gjalddaga, unz greitt er. — Þó verður sá
gjaldþegn ekki krafinn um dráttarvexti, sem greiðir að fullu
framangreind 40% fyrir 10 maí.
4. gr. Nú er sýnt, að tekjur gjaldanda samkvæmt skattframtali,
hafi verið a.m.k. 30% minni en árið áður, og skal þá lækka greiðslur
hans samkvæmt reglum þessum hlutfallslega, ef hann krefst þess.
5. gr. Kaupgreiðendum ber skylda til að halda eftir af kaupi
starfsmanna til útsvarsgreiðslna samkvæmt þessum reglum, á
sama hátt og með sömu viðurlögum og gilda um almenna útsvars-
innheimtu, með þeim breytingum, sem leiðir af ákvæðum 2. gr.
— Kaupgreiðendum er og skylt að halda eftir útsvarsgreiðslum
greiðsluskyldra fastra starfsmanna, sem þeir hafa greitt fyrir
útsvar árið áður, án þess að tilkynna þurfi þeim sérstaklega, á
annan hátt en með birtingu þessara reglna.
6. gr. Nú verður ljóst eftir aðalniðurjöfnun, að greiðslur sam-
kvæmt reglum þessum nema hærri f járhæð en álagt útsvar, og skal
þá endurgreiða það, sem ofgreitt hefir verið með % % vöxtum
fyrir hvern mánuð eða hluta úr mánuði, sem upphæðin hefur
verið í vörzlum bæjarsjóðs, eftir rétta gjalddaga.
7. gr. Að lokinni aðalniðurjöfnun skal dregið frá útsvarsupphæð
hvers gjaldþegns, þar sem hann átti að vera búinn að greiða eftir
i eglum þessum, og jafna þv'i, sem eftir verður, á lögákveðna
gjalddaga, að viðlögðum gildandi sektarákvæðum og dráttar-
vöxtum. — Það sem vangreitt kann að vera samkvæmt reglunum,
má innheimta þegar í stað hjá kaupgreiðanda eða á hvern annan
löglegan hátt, og ber að greiða af því dráttarvexti frá gjalddögum
samkvæmt reglum þessum.
8. gr. Lögtak má gera fyrir vangreiddum útsvarsgreiðslum sam-
kvæmt reglum þessum, eftir þeim ákvæðum, sem gilda um lögtak
fyrir vangoldnum opinberum gjöldum.
9. gr. Bæjarstjórn auglýsir reglur þessar í blöðum bæjarins, en
aðrar tilkynningar eða auglýsingar þarf ekki að birta gjaldendpm
eða kaupgeiðendum.
Reglur þessar, sem eru settar af bæjarstjórn Siglufjarðar sam-
kvæmt 28. gr. laga nr. 66 frá 1945, birtast hérmeð öllum þeim til
eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
Bæjarstjórinn í Siglufirði 12. febr. 1947.
GUNNAR VAGNSSON
TILKYNNIIVIG
Búsettum körlum og konum í Siglufirði, sem hafa orðið 16 ára
fyrir síðustu áramót, en ekki fyrir áramótin hafa náð 67 ára aldri,
ber að greiða á bæjarfógetaskrifstofuna í Siglufírði nú þegar, sem
fyrri greiðslu í almannatryggingasjóði 1947, sem hér segir:
Körlum, kvæntum og ókvæntum, 200 krónur, ógiftum konum
150 krónur, og er þá gjald fyrir tryggingarskírteini, 30 kr. með-
talið.
Vanskil geta varðað réttindamissi til bóta eftir ákvæðum laga
almannatrygginga.
Siglfirðingar! Gætið þess, vegna yðar sjálfra og aðstandenda
yðar að hafa tryggingu yðar jafnan í lagi. Sjúkdómar og slys geta
skjótt að borið og er þá nokkur líkn að hafa trygginguna í lagi,
ekki sízt fyrir aðstandendurna. Ekki fellur heldur skyldan niður
til greiðslu iðgjalda, þótt tryggingin sé svo trössuð, að engar bætur
fáist, svo að um er að gera fyrir hvern gjaldanda að greiða í gjald-
daga. (Árlega í janúar fyrri greiðslu og á manntalsþingi síðari
greiðslu.)
ATVINNUREKENDUM er skylt að greiða í þessum mánuði um-
rædd gjöld þeirra, er hjá þeim vinna, enda mega draga þau frá
vinnukaupinu.
ATVINNUREKENDUR! Jafnt stofnanir sem einstaklingar. Þér
getið orðið skaðabótaskyldir um stórar upphæðir, ef þér standið
ekki skilvíslega eftir tryggingalögunum skil á gjöldum þeirra, er
hjá yður vinna.
Skrifstofu Siglufjarðar, 30. jan. 1947.
GUÐM. HANNESSON