Mjölnir


Mjölnir - 21.05.1947, Side 3

Mjölnir - 21.05.1947, Side 3
Amerika á hraðri leið til nazisma Utanríkispólitík Ameríku er sannkölluð stríðsæsingastefna. Útgjöld til liernaðarþarfa eru stóraukin og flugvöllum og flotastöðvum komið upp víðs- vegar um allan heim. Einn lið- ur í þessari g'ifúrlegu hernaðar- áætlun er herstöðvabyggingarn ar í Tyr'klandi og Grikklandi. í Grikklandi situr að völdum afturhaldssöm einræðisstjórn, sem hefur lítinn hluta þjóðar- innar á bak við sig, en stjórnar í skjóli erlendra byssustingja. Alþýðan, meirihluti þjóðarinn- ar, er ofsótt og kvalin, þúsund- um saman hafa beztu synir og dætur þjóðarinnar verið myrt og pyntuð og tugþúsundir sitja í fangelsum fyrir það eitt, að elska þjóð sína og föðurland og vilja lýðfrjálst þjóðskipulag. I stórhópum flýr fólkið til fjalla undan ráns- og drápshöndum lögreglu og ofbeldishópa, sem stjórnin skipuleggur og vopnar, en þegar morðin og glæpirnir, sem þessir hópar fremja, vekja mikið umtal og viðbjóð erlendis, læzt gríska stjórnin hvergi vera viðriðin . Hernaðaryfivöld Aimeríku, Bandar'ikjanna, notfæra sér þetta ástand í landinu út í yztu sösar. Ef stjórnin vill leyfa þeim að byggja herstöðvar, getur hún fengið í Bandaríkjunum nóg fé og vopn, til að halda þjóðinni niðri. Frumvarp um stórfelldar fjárveitingar til Grikklands er nú að komast í gegnum Bandaríkjaþing. Allt afturhald heimsins fagnar þessu fagnar því að nazistastjórnar- farinu í Grikklandi sé bjargað, fagnar því að auðvald Banda- ríkjanna komi upp öflugum her- stöðvum rétt við rússnesku landamærin. Og ekki stendur á stjórn Grikklands, eftir það sem á undan er gengið, skeytir hún lítið um skömm og heiður. Þó slík stjórn verði ber að því fyrir öllum heimi að vera kvisl- ingar, er það ek'ki nema eðlilegt framhald af glæpaferli hennar gagnvart þjóð sinni. í Tyrklandi er mjög aftur- haldssöm stjórn, en meðal al- þýðunnar er sterk frelsishreyf- ing, sem stjórnin óttast mjög. Við þessa afturhaldsstjórn hafa hernaðaryfirvöld Bandaríkj- anna líka samið um herstöðva- byggingar. Stórfelldar fjárveit- ingar til Tyrklands er nú einnig verið að samþykkja á Banda- ríkjaþingi, og frumvarpið um það samferða frumvarpinu um fjárveitinguna til Grikklands. Á sama tíma, sem verið er að ganga frá fjárveitingunum til þessara nazistisku ríkisstjórna, telja bandarísku blöðin, sem auðjöfrarnir ráða yfir, hverja hjálp eftir, sem veitt er til svelt andi þjóða Evrópu, jafnvel þótt það séu samherjar úr styrjöld- inni. Stjórn Francos á Spáni styðja Bandaríkin af öllum mætti, og hindra alla viðleitni frjálslyndra manna til að fá Samband sameinuðu þjóðanna til að gera ráðstafanir gagnvart Spáni. í borgarastyrjöldinni í Kína er íhlutun Bandaríkjanna alveg opinber, þrátt fyrir h'átíðlegar yfirlýsingar Bandaríkjastjóm- ar um hlutleysi i þeim málum. Meðan Kína var í stríðinu við Japan fékk það tiltölulega litla hjálp frá Bandaríkjunum, en eftir að Japan gafst upp og hin afturhaldssama stjórn Kína fór eingöngu að beita herjum sín- um gegn alþýðunni í landinu, gegn kommúnistum ,sósíaldemo krötum og öllum frjálslyndum mönnum, þá tvöfalda Banda- ríkjamenn hjálp sína til Kína. Um áramótin 1945—’46 hétu þeir Molotoff og Byrnes því, að stjórnir þeirra skyldu ekki blanda sér í innanlandsmál Kína og rússneskar og banda- rískar hersveitir skyldu kallað- ar heim sem fyrst. Molotoff stóð við sitt loforð, og brott- flutningi rússneskra hersveita var lokið í maíbyrjun 1946. En Bandaríkjahersveitirnar eru ekki farnar enn, og Bandaríkja- menn byggja flugvelli og aðrar herstöðvar víðsvegar um Kína, stjórnin þar fær að nota þá í bili, en komi til styrjaldar, eiga I 15. tbl. Mjölnis, er út kom 30. apríl s.l., birtist grein, er nefnist „Aðalfundur K. F. S.“. Greinin er undirrituð ,,K. F. S,- félagi“. Þar sem stjórn K.F.S. telur grein þessa hvatvíslega tilraun til að skaða hag félagsins og gera það tortryggilegt í augum viðskiptamanna, ef einhver tæki mark á greininni, vill stjórnin taka fram eftirfarandi: í þessari Mjölnisgrein segir svo um reikninga K.F.S. og skýrslu stjórnar: — „Skýrslur um starfsemi félagsins s.l. ár voru óglöggar og sumpart vill- andi, enda aðallega raup og sjálfshól stjórnar og fram- kvæmdastjóra. Rekstur félagsins hefur gengið illa á árinu, hagnaður 100 til 110 þúsund krónur, að visu málað upp í ca. 180 þús. krónur, en það er algerlega vill- andi, eftir því sem næst verður komist, t. d. er talinn ca. 50 þús. kr. halli frá árunum 1944 og 1945, en fyrrverandi félags-. stjórn taldi engan halla á þess- um árum, meira að segja hagn- að árið 1944. Hér skýtur því ærið mikið skökku við.“ Um þessar fullyrðingar grein- arhöfundar vill stjórn K.F.S., taka fram eftirfarandi: Reikningar félagsnis fyrir 1944 eins og fyrrverandi stjórn gekk frá þeim voru aldrei sam- þyk'ktir af löglegum aðalfundi. Það var ekki fyrr en 1 byrjun árs 1946, að tölulegar niður- stöður reikninga félagsins fyrir 1944 voru samþ., eftir að reikn- ingarnir höfðu verið endurskoð- aðir og leiðréttir. Sýndu þeir 66.551,56 kr. halla, en ekki hagnað, eins og greinarhöfundur fullyrðir. Bandaríkjamenn herstöðvamar. Bandaríkin hafa ein hernáms- stjórnina í Japan. Stjórn þeirra er miðuð við að hindra allar frjálslyndar hreyfingar meðal fólksins, en styrkja afturhalds- öflin sem mest, og búa þannig um sig í landinu, að Bandaríkja- auðvaldið geti grætt þar fé og Bandaríkin hafi góða hernaðar- lega aðstöðu síðar meir. Með lánveitingum hafa Bandaríkjamenn náð tangar- haldi á stjórnum margra ríkja, þ.á.m. stjórn Bretlands og gegn um peningavald sitt marka þeir að meiru og minna leyti, utan- ríkisstefnu Bretlands nú, and- staða gegn þessum undirlægju- hætti við Bandaríkin er mjög mikil í Bretlandi og fer andúðin gegn honum vaxandi. Engum fær dulist, að það sem auðvald Bandaríkjanna stefnir að er heimsyfirráð. Það er sama stefnan og hjá hinum þýzku heimsvaldasinnum. Bandaríkin skulu vera „Herraþjóð“ en aðrar þjóðir Skör lægra settar Um reikninga ársins 1945 er það að segja, að þeir voru end- urskoðaðir og samþykktir á aðalfundi 1946, athugasemda- laust og sýndu niðurstöður þeirra 34.820,14 kr. halla. Við reikninga árshis 1946 er því lýst yfir af endurskoðend- um, að þeir hafi ekkert við þá að athuga, og aðalfundur samþ. þá athugasemdalaust. Niður- stöður þeirra sýndu 179.918,63 kr. hagnað. Það er þv’í augljóst mál, að greinarhöfundur fer hér með vísvitandi ósannindi, að því er virðist í þeim eina tilgangi að gera reikninga félagsns tor- tryggilega. Til að sýna lesendum hversu óprúttinn þessi greinarhöf- undur er, skulu hér aðeins nefnd tvö dæmi. Greinarhöf- undur segir, að aðalfundur K.F.S. hafi verið haldinn 28. marz s.l., en aðalfundur félags- ins var haldinn 11. apríl s.l. Ennfremur segir höfundurinn, að á aðalfundi K.F.S. hafi „fé- lagsmaður óskað skýringa hjá félagsstjórn á því, að félagið hefði ékki notað sér tilboð, sem því hefði borizt um að selja hlutabréf sín í Söltunarfélagi Kaupfélagsins h. f. fyrir sexfalt verð.“ Á aðalfundi K.F.S. kom engin sl'ík fyrirspurn fram. Þessi fyrirspurn var hinsvegar fram- borin á aðalfundi 1. deildar K.F.S. Rithöfundur, sem sýnir slíkt hirðuleysi um atriði, er litlu máli skipta, honum er trúandi til að rangfæra og snúa öfugt þeim hlutum, sem meiru varða. Má einnig segja, að svo sé um flest í umræddi Mjölnisgrein. Svívirðingar höfundar í garð stjórnar K.F.S. hirðum við eigi að hrekja, þar eð þær breyta e.igu um hag kaupfélagsins. Siglufirði, 5. maí 1947 1 stjórn K.F.S.: Jóhann Þorvaldsson Hjörl. Magnússon Kristján Sigurðsson Sigrún 'Kristinsdóttir Har. Gunnlaugsson H. Kristinsson Atlis. Ritstjóri Mjölnis hefur verið svo vingjarnlegur að sýna mér ofanritaða „Athugasemd“ stjórnar K.F.S. Eg kæri mig ékki um að svara þessari at- hugasemd miklu, yfirlæti og- sjálfshól dæmir sig jafnan sjálft. Hinum þungu, en um leið rökstuddu ásökunum mínum treystir kaupfélagsstjórnin sér ekki til að hnekkja, í stað þess endurtekur hún raup sitt um sjálfa sig. Þá reynir kaupfélags- stjórnin að gera sér mat úr, að 'i grein minni hafði misritast mánaðardagur sá, sem aðalfund ur félagsins var haldinn, og segir rangt með farið, að félags maður hafi spurzt fyrir um til- boðin í söltunarfélagshlutabréf- in á aðalfundi félagsins, sú spurning hafi verið borin fram á aðalfundi einnar félagsdeild- arinnar. Á hvorum fundinum félagsmaður bar fram þessa spurningu s'kiptir litlu máli, hitt skiptir meira máli, hvernig fé- lagsstjórnin svarar spurning- unni. Kaupfélagsstjórnin skrifar bréf og tilkynnir að tvö félög í Reykjavík — sem bæði eru und- ir stjórn Framsóknarmanna — hafi boðizt til að kaupa hluta- bréf K.F.S. í Söltunarfélagi kaupfélagsins h. f„ að nafnverði 75 þús. kr. fyrir kr. 450.000,00. Kaupfélagsstjórnin te'kur ekki þessu tilboði, en samþykkir að leggja niður Söltunarfélag kaup félagsins h. f„ en af kunnugum er talið að með þeirri ráðstöfun muni hluthafar aðeins fá greitt nafnverð bréfa sinna, eða litlu ,meira. Ef tilboð Framsóknar- forkólfanna í Reykjavík hafa verið raunverulega meint, hef- ur því stjórn K. F. S. haft af kaupfélaginu 375 þúsund krón- ur. Eg og aðrir félagsmenn, sem erum þannig féflettir um stórfé, hljótum að heimta skýr- ingar á þessu athæfi. Þá gengur kaupfélagsstjórn- in fram hjá að svara þeirri ásökun, að þeir hafi selt heild- sala gamlar vörur frá félaginu með svo lágu verði, að hann hafi strax getað selt þær kaup- mönnum fyrir rúmlega fimm- falt verð. Þessi tvö mál skipta miklu fyrir félagsmenn, hvern- ig kaupfélagsstjórnin hagaði sér í þeim er ekki hennar einka- mál, heldur mál ok'kar allra fé- lagsmannanna. Vöruúthlutun- ina og afgreiðslu 'i félagsbúðun- um vill félagsstjórnin ekki ræða það eru þó mál, sem mikið er talað um af öllum félagsmönn- um og varðar þá alla. Útúrsnún inga og raup ætti kaupfélags- Vfjdu ekki útvarps umræður. í nokkra daga hefur danska útvarpsráðið og stjórnmála- flokkarnir samið um, hvernig ‘kosningabaráttunni yrði hagað i útvarpinu. Síðustu vikuna fyrir kjördag var svo hverjum flokki úthlutað einu kvöldi þannig, að „Retsforbundet" byrjaði, en Sosíaldemókratar enduðu. Auk þess héfir útvarps- ráðið boðið flokkunum hálfa klukkustund í viðbót hvert kvöld til 24. marz, en með þvi skilyrði, að þeir skiptu þeim tíma milli sín sjálfir. Til mála kom þá, að hver flokkur fengi ifimm mínútur, eða þá að 2 eða 3 flokkar skiptu hverju kvöldi. Vafalaust hefðu þessar um- ræður orðið mjög athyglisverð- ar, en af þeim getur þó ekkert orðið. Málið hefir strandað á ákafri mótspyrnu afturhaldsafl anna í Ríkisþinginu. íhaldsmenn kröfðust þess skilyrðislaust, að Berlinske Tidende og National- tidende og sennilega einnig Poli- ti'ken fengju að ráðstafa þessum hálft'ima, en flokkar þeir, sem gengið hafa að kröfum prentara og geta gefið út blöð sín, fengju þar hvergi nærri að koma. Eins og gefur að skilja var ógjörn- ingur að ganga að þessu, enda yrði þetta brot á lögum um hlutleysi útvarpsins. Auk þess hlaut prentaraverk- Tallið fyrst og fremst að varða Ritstjórasambandið, og það lagði aldrei fram neinar já- kvæðar tillögur í málinu. — Bæði kommúnistar og sósíal- demókratar lýstu yfir því, að þeir væru fúsir til þess að ta'ka tillit til þeirra erfiðleika, sem íhaldsmenn og radikalir ættu við að etja og láta þeim í té lengri umræðutíma. En fulltrúar íhaldsmanna neituðu að ræða þetta tilboð. Það, sem þeir vildu var aðeins, að blöð þeirra fengju að ráða ein yfir þessari hálfu klukkustund, en fengist það ekki, þá mætti ekki nota þennan t'ima til kosningaundirbúnings. Ef það er ékki þrjóska á hæzta stigi,- sem hefir ráðið þessari afstöðu íhaldsmanna, þá hlýtur tilgangur þeirra að vera sá, að þjóðin skoði þá framvegis sem píslarvotta, þrautpýnda af ímyndaðri skerðingu málfrelsis. Sannleikurinn er nefnilega sá, að hefðu þeir gengið að þessu tilboði útvarpsráðsins, hefði þeim verið ómögulegt að reka áfram þennan lága áróður, að þeir væru sviptir málfrelsi. Eftir „Land og Folk“ stjórnin að spara sér, og hætta þeim vana að stökkva upp á nef sér ef fundið er að störfum hennar, og helzt ætti hún að reyna að bæta úr, þegar komið er með réttmætar aðfinnslur. KFS-félagi Framhald á 2. síðu. Athugasemd

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.