Mjölnir - 14.01.1948, Side 1
i
i
Verkakvennafélagið „Brynja“
gengst fyrir leikfimikennslu. —
Þær félagskonur, er taka vilja
þátt í kennslunni gjöri svo vel
að tilkynna þútttöku frú Björgu
Guðmundsdóttur, Aðalgó'tu 15
fyrir 18. þ.m.
NEFNDIN
Jólagjöf ríkisstjórnarinnar
til launastéttanna
Það var myndarlega af stað
farið hjá ríkisstjórn og Alþingi
með jólagjöfina, sem þessir aðii-
ar sendu launastéttum landsins.
Með einni lagasetningu, sem
drifin var í gegn um þingið á
2—3 dögum voru launastétt-
irnar rændar að minnsta kosti
um 50 millj. kr. af árslaunum
ft sínum, miðað við vísitölu des-
embermánaðar.
Það mátti öllum verkalýð
vera ljóst að með myndun nú-
verandi stjórnar myndu verða
gerðar hatrammar árásir á lífs-
'kjör fólksins í landinu. Til þess
fyrst og fremst var stjórnin
mynduð, enda hefur allt hennar
starf miðað við það að draga úr
atvinnunni í landinu og stöðva
i nýsköpun fyrrverandi stjórnar.
Sú hlið, sem að okkur Siglfirð-
ingum snýr með stöðvun nýsköp
unarframkvæmda, er mjög at-
hyglisverð. Búið var að afgreiða
þrenn lög um byggingu nýrra
verksmiðja hér. Timnuverk-
smiðju ríkisins, niðursuðuverk-
smiðju og lýsisherzlustöð. Öil
þessi lög voru fram borin af þá-
verandi atvinnumálaráðherra,
• Áka Ja'kobssyni. Búið var að
skipa í stjórnir hinna væntan-
Tveir mektarmenn -
tvær iélegar ræður
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson og Stefán Jóhann
Stefánsson, forsætisráðherra,
fluttu báðir ræður í útvarpinu
nú um áramótin. Báðar voru
ræðurnar nauðaómerkilegar. —
Ræða forseta var innihaldslaust
rabb um allt og ekki neitt. Þó
leyndi sér ekki andúðin í garð
verkamanna er hann fór að tala
um háa kaupið og vinnusvik.
Forseti mælti af mikilli samúð
i garð CocaiCola stjórnarinnar
og taldi réttilega núverandi
ríkisstjórn arftaka hennar, bað
hann landsfólkið að vera misk-
unnsamt í dómum um núverandi
ríkisstjórn, hefur sennilega
rennt grun í, að ríkisstjómin
ætti litlum vinsældum að fagna.
Hinn sjálfglaði Stefán flutti
lofgerðarrollu um ríkisstjórnina
og sjálfan sig, helzt taldi hann
ríkisstjórninni til gildis, hve
mikla umhyggju hún bæri fyrir
launþegum, um rök fyrir þessu
fór eins og efni standa til. Það
verður ekki sagt með réttu um
Setefán Jóhann, að honum sé
klígjugjarnt.
legu fyrirtækja og þær allar
teknar til starfa. Búið var að
panta frá útlöndum vélar og
efni í sum þessara fyrirtækja
og samningar stóðu yfir við
banka og gjaideyrisyfirvöld
landsins um fé. Fyrsta verk nú-
verandi ríkisstjórnar var að
eyðileggja allt það sem fyrrver-
andi atvinnumálaráðherra var
búinn að gera í málinu. Stjórn-
irnar voru settar frá og mál-
fengin í hendur aðilum, sem lít-
inn áhuga hafa sýnt í fram-
kvæmd þeirra, enda alit gert af
núverandi sjávarútvegsmálaráð-
herra sem hægt hefur verið til
að draga á langin og torvelda
framkvæmdir. Sýnir þar bezt
um byggingu tunnuverksmiðj-
anna á Siglufirði og Akureyri.
Stjórn þess fyrirtækis hefur
sýnt áhuga á því að fá verk-
smiðjurnar byggðar, en iáð-
heira, sjálfsagt með stuðningi
allrar ríkisstjórnarinnar, hefur
ekkert gert til aðstoðar nefnd-
inni með útvegun lána og gjald-
eyris- og innflutningsleyfa svo
framkvæmdir gætu hafizt.
Lýsisherzlustöðin er fengin i
hendur stjórn síldarverksmiðja
ríkieins, en formaður þeirrar
stjórnar, Sveinn Ben., er hat-
rammasti andstæðingur þess, að
stöðin verði reist hér og hefur í
tíma og ótíma beitt sér á móti
þessu mikla velferðarmáli al-
þjóðar. Hans skoðun mun vera
sú, að enga lýsisherzlustöð eigi
að byggja, en verði ekki hjá því
komizt, þá má ekki byggja stöð-
ina hér, heldur suður 1 Reykja-
v'ik. Munu flestir sjá hvílík regin
vitleysa það væri að byggja
stöðina þar syðra og þurfa svo
að fiytja allt lýsið í tankskipum
héðan og suður. Mundi með slík-
um ráðstöfunum leggjast allmik
ill aukakostnaður á fyrirtækið,
en sem ekki kæmi til ef stöðin
yrði reist á Siglufirði.
Eg hef mynt á þessi nýsköp-
unarmál sem snerta okkur Sigl-
firðingi, vegna þess að þau sýna
mjög ljóst andstöðu núverandi
ríkisstjórnar við nýsköpunai-
fyrirætianir fyrrverandi stjórn-
ar, og verður ekki önnur álykt-
un af því dregin en sú, að nú-
verandi ríkisstjórn vinni að ráðn
um hug að því að draga úr öll-
um nýsköpunarframkvæmdum,
sem óumdeilanlega mun fyr eða
síðar orsaka atvinnuleysi og
versnandi lífsafkomu fólksins.
Núverandi ríkisstjórn og þing
flokkar hennar hafa talið sig
vera búnir að undirbúa jarðveg-
inn fyrir öðrum og meiri árás-
um. Búið er að stöðva flestar
nýsköpunarframkvæmdir, búið
er að banna að mestu leyti allan
innflutning á byggingarvörum
til landsins svo sjáanlegt er að
allar húsbyggingar til sjávar og
sveita eru að stöðvast. Neitað er
um innflutning á hráefnum til
iðnaðarfyrirtækja landsins. —
Þegar eru fjölda iðnfyrirtækja
í Reykjavík neydd til að segja
upp starfsfólki sínu, vegna vönt-
unar á hráefni til að vinna úr.
Atvinnuleysið meðal íslenzkrar
alþýðu er- á næstu grösum. —
Tími til árásar á lífskjör launa-
stéttanna með lækkun vísitöl-
unnar, án þess að neyzluvörur
almennings lækkuðu, er af ríkis-
stjórn og auðmönnum landsins
| Aukaúthlutun af kaffi og sykri tii verka-
manna, sem vinna við síldarvinnuna
Svohljóðandi símskeyti hefur borizt Verka-
mannafélaginu Þrótti frá Skömmtunarskrifstofu
ríkisins:
„Vér höfum heimilað úthlutunarstjóranum
á Siglufirði að heimila aukaskammt af kaffi og
sykri samkvœmt beiðni yðar í skeyti dagsettu
10. þ.m.“
Verkamenn, sem vinna í síldarverksmiðjun-
um og við síldarlosun geta því fengið auka-
skammt af áðurnefndum vörum og ber að snúa
til bæjarstjórans, sem ákveður hvenær aukaút-
hlutunin fer fram.
nú talin til heppilegasti. Þing-
menn hinna þriggja stjórnar-
flokka samþykktu að hér eftir
sku'li engum, sem tekur laun,
greidd hærri vísitala en 300 stig
hvað svo sem vöruverðið kunni
að vera. Svo langt gengur ó-
svífni og fjandskapur þessara
herra, að bannað er með lögum
að greiða vísitölu á tímavinnu-
kaup eftir sömu reglum og áður
hafði gilt.
Frá því fyrst var farið að
greiða vísitölu á tímakaup verka
fólks, var reiknað út með vísi-
tölu næsta mánaðar á undan,
t. d. í desember reiknað út með
vísitölu nóvembernmnaðar, sem
var 326 stig. Vísitala í desem-
ber var aftur á móti 328 stig,
sem vitanlega átti að greiða 'i
janúar 1948, fyrir allt tíma-
vinnufólk. Verkafólk hefur frá
fyrstu hendi verið óánægt með
þessa ráðstöfun; það hefur vilj-
að fá kaup sitt greitt eftir vísí-
tölu hvers mánaðar eins og það
fóik fær, sem ráðið er upp á
mánaðarkaup yfir árið, en lag-
'færing á þessu misræmi fékkst
ek'ki og því borið við — og það
með töluverðum rétti — að vísi-
talan í hverjum mánuði kæmi
svo seint, að ógerlegt mundi
vera að reikna vísitölu á tíma-
kaup eftir sömu reglu og mán-
aðarkaup ársmanna. Þv'í var
mjög haldið fram að tímavinnu-
fólk mundi engu tapa, því þegar
vörurnar færu að lækka mundi
sú læ-kkun ekki koma fram í
vísitölunni á tímalaun fyrr en
mánuði síðar. Vissule-ga var
þetta rétt að vissu marki og þvi
aðeins að engar ráðstafa-nir
yrðu gerðar af hendi Alþingis
til breytingar á þessu fjTÍrkomu
lagi.
Með hinum nýju dýrtíðarráð-
stöfunum núverandi ríkisstjórn-
ar og flokka hennar á Alþin-gi,
hafa öll þessi loforð verið svikin.
Nú fá verkamenn hér á Siglu-
firði (ef þessi lög halda, hvað
þetta ákvæði snertir) ekki
nema kr. 8,10 á tímann í dag-
vinnu í janúar, í stað kr. 8,86
sem þeim ber. Af hverjum ein-
asta klukkutíma, sem verkamað
ur vinnur nú í dagvinnu fyrir
lágmarkskauptaxta, er hann
rændur um kr. 0,76 í dagv., e-n
a)f hverjum eftirvinnutíma kr.
1,22.1 vinnu við af-greiðslu á síld !
úr skipum, átti kaupið í janúar
að vera í dagvinnu 10.82 —
með vísitölu 328 — en ef reikn-
að er með vísitölu 300 verður
það kr. 9,90 og er lækkunin kr.
0,92 á tímann. Eftirvinna við
sömu vinnu átti að vera kr.
17,32 á klst., en verður kr. 15,84
og mismunurinn verður kr. 1,48.
Helgidaga- og næturvinna átti
að vera kr. 21,64 en verður kr.
19,80 og mismunurinn kr. 1,84.
Alþ.samb. Islands mótmælti
þessU ráni á hendur tímavinnu-
fólki og fór fram á við Vinnu-
Miðvikudaginn 14, janúar 1918
2. tölublað. 11. árgangur.
52 ára afmæii
átti Otto Jörgensea síinstjóri
í gær.
Mjölnir óskar þessuin mæta
manni til hamingju með afmæl-
ið.
Kaupum nýjar og notaðar
B/EKUR
Bókasafn Siglufjarðar
veitendafélag íslands, að með
samkomulagi beggja aðila yrði
úr þessu bætt og í janúar yrði
tímavinna reiknuð út með vísi-
tölu 328, eins og samningar
verkalýðsfélaganna ákváðu. —
Þessu neitaði Vinnuveitendafél.
með öllu og lét hið „hlutlausa"
ríkisútvarp birta fyrirskipun til
allra atvinnurekenda í landinu,
um að þeim sé bannað að greiða
hærri vísitölu á kaup i janúar
1948, en 300 stig. Ekki vantar
nú lýðræðið í þeim herbúðum.
Með þessari tilkynningu Vinnu-
veitendafélags íslands, svíkur
það öll fyrri loforð um þetta
atriði og styður ríkisstjórnina
með ráð og dáð í ránsherferð
hennar á hendur launastéttum
landsins.
Alþýðusamband íslands hefur
nú skotið þessu máli til Félags-
dóms og er búizt við úrskurði
um þetta mál í næstu viku. Það
væri freistandi að ræða frekar
ráðstafanir ríkisstjórnar og Al-
þingis ’i dýrtíðarmálunum, t. d.
um allar ,,lækkunar“-tilkynning
arnar, en í sem fæstum orðum
sagt er þar um að ræða hinar
-herfilegustu blekkingar. T.d.
lækfca erlendar vörur ekki um
einn einasta eyri, heldur þvert á
móti eru mi-klar líkur til að þær
hækki, og lækkun á innlendum
vörum er sáralítil.
E-g hef að nokkni rætt um
ránsherferð núverandi rikisstj.
á hendur launastéttum landsins
og hef ég þó ekki drepið á nema
lítið eitt, þvi af miklu er að
taka. Eg þykist þess fullviss að
samtök 1-aunastéttanna muni,
þegar tími vmnst til, taka þessi
mál til rækilegrar yfirvegunar,
og að sjálfsögðu gera sínar gagn
ráðstafanir. Það er gamall og
góður siður að gjalda gjöf með
gjöf. Nú hefur núverandi ríkis-
stjórn og stuðningsflokkar henn
ar á Alþingi sent íslenzkri al-
þýðu sýna jóla- og nýársgjöf,
og að sjálfsögðu mun verkalýð-
urinn fýlgja gam-alli venju og
gjalda fyrir sig þe-gar tími og
tækifæri gefst.
G. Jóh.