Mjölnir - 24.03.1948, Qupperneq 1
Munið aðalfimd Sósíalistiafélaffs
Sigluf jarðar í næstu viku. Nánar
) auglýst síðar.
Netagerðin Höfða-
vík brennur
Síðastliðinn föstudag brann
netagerðin Höfðavík í Reykja-
vík; um 50 snurpunætur brunnu
til kaldra kola, og þar að auki
mikið af nótaefni og öðrum
veiðarfærum, nemur tjónið
gríðar hárri upphæð. Það sem
þó er allra verst er það, að ill-
mögulegt erjiú að fá nætur og
nótaefni erlendis frá. Óbeina
tjó'nið af þessum hryggilega at-
burði getur þv'i orðið óútreikn-
^ anlegt.
Bættar flugsam-
göngur við
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
^ hefur nú tekið upp fastar
flugferðir milli Siglufjarðar og
Akureyrar. Er gert ráð fyrir að
fljúga tvær ferðir hvern virkan
dag þegar. veður leyfir. Verða
ferðir þessar farnar í sambandi
við áætlunarferðirnar milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur, þannig,
að farþegar sem ætla héðan UJ
Reykjavíkur geta farið með flug
vélinni til Akureyrar og þaðan
beint með áætlunarvélinni til
Reykjavíkur og öfugt, þeir sem
I koma frá Reykjavík og ætla til
Siglufjarðar. Er að þessu hin
mesta samgöngubót. Til þessara
ferða eruhafðirGrömman-bátar
cn þeir geta lent bæði á sjó og
landi; eru tveggja hreyfla og
taldir mjög öruggir og sterkir
íiugbátar.
Afgreiðslumaður hér ‘á Siglu-
firði er Jón Kjartansson. —
Þegar flugsamgöngur er orðnar
svo tíðar og reglulegar, ber
brýna nauðsyn til þess að hér
verði komið upp rennibraut
fyrir flugvélar, er það skylda
bæjarstjórnar að taka það mál í
sínar hendur og leysa það á við-
unandi hátt.
Verða mögul. til að reka þorsk-
veiðar við Norðurland í vor?
Á Norðurlandi eru a.m.k. 45
til 50 mótorbátar, stærri en 20
tonna, sem stundað gætu línu-
og togveiðar í vor, ef möguleik-
ar verða til að koma aflanum í
verð. Eins og kunnugt er, verð-
ur ekki sagt með sanni, að hrað-
frystihúsin á Norðurlandi séu
rekin með miklum myndarskap,
heldur þvert á móti. Og sízt af
öllu hafa þau undanfarið miðað
rekstur sinn við hagsmuni út-
gerðarinnar.
Sum hraðfrystihúsin taka
ekki á móti fiski, en stunda
beitufrystingu, kjöt- og mat-
vælageymslu. Önnur taka móti
fiski tíma og tíma en hætta svo
og það kannske þegar verst
gegnir fyrir fiskibátana.
Þetta rekstrarfyrirkomulag
frystihúsanna á Norðurlandi er
þv’i óskiljanlegra, sem það er á
marga vitorði, að frystihúsun-
um er tryggt það hátt verð
fyrir fryst fiskflök, að rekstur-
inn er gróðavænlegur ef vel er
á öllu haldið. Tækju öll hrað-
frystihúsin á móti fiski er það
makið magn, sem þau gætu af-
kastað, en í góðu fiskirii myndu
þau þá hvergi nærri geta unnið
úr afla allra bátanna, til ann-
arra ráða þyrfti þvi einnig að
grípa. Tvö ráð sýnast þá frekast
vera fyrir hendi; annað að salta
fiskinn en hitt að flytja hann
út ísaðann. Um söltunina er það
að segja, að hún er mörgum
vandkvæðum bundin. Óvíða til
hentug salthús og óvíst, að
nægilegur vinnukraftur fáist
a.m.k. á sumum heimastöðvum
bátanna. Þá er allt í óvissu hve-
nær menn losna við saltfiskinn,
en eins og allir vita rýrnar salt-
Adalfundur
Verkakvennafélagsins Brynju
var haldinn síðastl. föstudag í
Suðurgötu 10. — Að lokinni
skýrslu stjórnar fór fram kosn-
ing í trúnaðarstöður félagsins.
Kosning fór þannig:
Form. Ásta Ólafsdóttir
Varaform. Halld. Eiríksdóttir
Ritari: Ólína Hjálmarsdóttir
Gjaldk. Guðr. Sigurhjartar,
Meðstj. Rósam. Eyjólfsdóttir
Kauptaxtanefnd:
Ásta Magnúsdóttir
Stefania Guðmundsdóttir
Rósa Guðjónsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir
Auk stjórnar og kauptaxta-
nefndar í trúnaðarmannaráð:
Sigríður Sigurðardóttir
Guðný Guðnadóttir
Voru allar sjálfkjörnar.
1 félaginu voru rétt um 300
konur. Ársgjald er kr. 40,00. —
Eignir félagsins eru samtals um
52 þúsirnd krónur. Eignaukning
á árinu var um kr, 19,500,00.
Fundarsókn á árinu hefur verið
góð og starfsemi félagsins á
ýmsan hátt með mestu prýði.
Á fundinum var kosin 1. mai-
nefnd, sem gert er ráð fyrir að
starfi með nefndum frá öðrum
verkalýðsfélögum í bænum.
fiskur mjög mikið við langa
geymslu. Flestir bátar eru líka
þannig stæðir fjárhagslega, að
þeim kemur mjög illa að bíða
með afla sinn óseldan lengi, því
bankarnir lána ekki út á aflann
nema nokkurn hluta andvirðis
hans.
Hin leiðin að flytja fiskinn út
ísaðann, er að mörgu leyti æski-
legri, en til þess að það geti tek-
izt verða útgerðarmenn fiskibát-
anna að bindast samtökum um
útvegun flutningaskipa og af-
greiðslu þeirra á móttökuhöfn-
unum, svo flutningarnir gætu
gengið sem greiðlegast. Útgerð-
armenn í Vestmannaeyjum hafa
farið þessa leið í vetur og notið
til þess nokkurrar aðstoðar rík-
isstjórnarinnar. Hefur i'ikis-
stjórnin tekið þátt í áhættunni
af flutningum með ailt að 25
aurum á kíló fiskjar. Líklegt
má teljast, að Norðlendingar
fengju sömu aðstoð, ef þeir
leggðu í að skipuleggja útflutn-
ing á afla sínum ísuðum á sama
HVERJU ÆTLAR NEISTI NB AB UÚGA?
í hausnum á síðasta Neista
var dálítil klausa, þar sem les-
endum blaðsins er tilkynnt, að
í næsta blaði komi grein um
kosningu í stjórn Verkamanna-
félagsins Árvakur á Eskifirði,
þar sem kommúnistar séu í
minnihluta.
Það er ekki gott að segja, til
hvaða ósanninda bleðsnepillinn
ætlar nú að grípa. Hingað til
hafa allir, sem hafa viljað varð-
veita einingu innan Alþýðusam-
bandsins heitið kommúnistar á
máli kratanna. Og í stjórn Ár-
vaks eru nú, eins og mörg ár að
undanförnu ákveðnir einingar-
sinnar.
I næst síðasta blaði' Mjölnis
birtist skeyti, sem meirihluti
stjórnar Árvaks sendi út til þess
að mótmæla fréttafölsun Alþ.bl.
varöandi stjórnarkjör í Árvaki.
Segir þar m.a.: „Stjórnin mun
hér eftir sem hingað til berjast
fyrir bættum kjörum félags-
manna og styður af alefli ein-
ingaröflin innan Alþýðusam-
bandsins, en fordæmir sundr-
ungaröfl A]þýðubl.klíkunnar.“
Menn bíða þess með eftir-
væntingu, að Neisti komi út
næst til þess að sjá hvaða lygi
blaðið muni nú grípa til, til þess
að sanna, að ,,kommúnistar“
séu „algerlega áhrifalausir" í
stjórn Árvaks.
MJÖLNISSÖFNUNIN
Blaðið hefur áður birt áraugurinn af Mjtílnissöfnuninni
og var þá sagt, að liún hefði numið . kr. 10.105,00
En við þetta bættist þar á eftir .. — 250,00
Alis nemur því söfnunin............ — 10.355,00
Enn á ný viil blaðið þakka þessar glæsilegu undirtektir
siglfirzkmr alþýðu og telur þær sem vott um vaxjandi fylgi
við hinn liáleita og göfuga málstað sósíalismans.
Þeir mörgu alþýðumeim utau Sósíalistafélags Siglu-
fjarðar, sem töldu ástæðu til að styrlija Mjölnir fjárliags-
lega við þessa söfnun og eru þar með þátttakendur í áfram-
Iialdandi útgáfu blaðsins, ættu iiú að taka það til alvarlegrar
athugunar, livort þátttaka þeirra í baráttu sósíalista fyrir
málstað alþýðunnar og fidlkomnu þjóðfrelsi ætti ekki að
verða eimþá meiri. Eða m.ö.o. hvort ekki sé réttast að þeir
gerist félagsmenn Sósíalistafélags Sigluf jarðar.
Með það í huga, hve siglfirzk alþýða brást vel við
áskoruninni mn að tryggja fjárliagsatkomu Mjölnis, viljum
vér skora á hana að auka verulega félagsmannatal Sósíal-
istafélags Siglufjarðar.
Aðalfundur félagsms verður haldinn í næstu viku. Hug-
leiðið þessa áskormi fram að aðalfundinum.
ÚTGÁFUSTJÓRNIN
12. tölublað. 11. árgangur.
Miðvikudaginn 24. marz 1948
hátt. Sjálfsagt væri að aífla sér
vitneskju um reynslu Vest-
mannaeyinga í þessum efnum
og mætti eflaust eitthvað af
henni læra.
Tilgangurinn með þvi að
minnast á þetta mál er sá, að
hvetja útgerðarmannasamtökin
á Norðurlandi til að taka það til
athugunar sem fyrst. Og rann-
saka hvaða leiðir kunna að vera
til að koma bátaflotanum á
línu- og togveiðar í vor.
Eæði er héá um að ræða
mildð hagsmunamál fyrir út-
gerðina sjálfa og sjómennina.
I-á er það og engu síðu mikið
hagsmunamál fyrir verkafólk í
landi og bæjar-og sveitafélögin.
Að síðustu getur hér verið um
mikla gjaldeyrisöflun að ræða,
sem öll þjóðin hefur gott af.
Það er tæpast neinnar for-
ystu að vænta í þessu efni, af
ríkisstjórn, eða sveita- og bæj-
arstjórnum, heldur hljóta út-
gerðarmannasamtökin að hafa
forgöngu ef eitthvað á að gera,
og þar sem nú er svo áhðið
vetrar, er allur dráttur á, að
hafist sé handa mjög varhuga-
verður. "
Skipi hlekkist á
Flutningaskipið „Hel“, sem
SR hafa á leigu, og undanfarið
hefur flutt hingað bræðslusíld
frá Reykjavik, lagði af stað
norður, með sildarfarm s.l.
fimmtudag. Þegar skipið kom
noltkuð norður fyrir Akranes
var sjógangur mikill og kast-
aðist síldin til í lestunum og
kom mikill halli á skipið. Ægir
var sendur til að aðstoða skipið
og sigldi það í fylgd með hon-
um til baka til Reykjavíkur. —
Liggur „Hel“ þar ennþá og er
ekkert farið að róta við farm-
inum og verður líklega ekki gert
fyrr en eftir páska. Þessi farm-
ur í „Hel“ er síðasti farmurinn
að sunnan.
Skemmtun
verksm.mannaSR’46
★ Síðastliðið laugardagskvöld
héldu verkamenn, sem vinna í
SR’46, veizlufagnað með borð-
haldi að Hótel Siglunes. Pétur
Baldvinsson stjórnaði skemmt-
uninni, bauð hann starfsmenn
verksmiðjunnar og gesti þeirra
velkomna og lýsti skemmtiatrið-
um. Undir borðum flutti Jóhann
G. Möller ræðu. Fluttur var út-
varpsþáttur SR’46; lesin
skemmtiþáttur og f jórar ungar
stúlkur skemmtu með söng og
gítarleik. Mikið var sungið undir
borðum. Að lokum var svo dans-
að til kl. 2 e. m. Skemmtisam-
koman fór í alla staði vel fram
og var verkamönnum í SR’46 til
sóma.