Mjölnir


Mjölnir - 02.06.1948, Qupperneq 4

Mjölnir - 02.06.1948, Qupperneq 4
22. tölublað. 11. árgangur. Miðvikudaginn 2. júní 1948 Verður síldarmálið keyþt á 75—80 kr. í sumar Meðal útvegsmanna og sjó- manna er nú vaknaður abnenn- ur áhugi fyrir því, að mú þegar verði ákveðið fast verð á sumar- síldinni. Gera margir sér vonir vun, að það verði allmiklu hærra í sumar en það var í fyrra. 20. maí b.1. samþykktu úfcvegs- menn í Keflavík ályktun þá, er liér fer á eftir: „Fundur haldinn í Útvegs- bændaíélagi Keflavíkur, fimmtu daginn 20. maí 1948, telur ekki möguleika á því, að búa skip til síldveiða, nema að nú þegar verði ákveðið fast verð á sumar- síld í bræðslu og salt. Ennfremur telur fundurinn alveg óviðunandi, eftir þrjár mislukkaðar síldarvertíðir og lé- lega vetrarvertíð að tap sildar- verksmiðjanna af vinnslu vetrar síldarinnar verði látið liafa áhrif á sumarverðið.“ Verðið á síldinni, sem veiddist í vetur, var kr. 52,00. Kostnaður við liana, sem síldarverksmiðj- urnar urðu að greiða, umfram kostnað við sumarsíld, var um 6 krónur pr. síldarmál. Enn- fremur var vetrarsíldin svo mögur, að lýsismagn á hverju máli var 7—8 kg. minna en úr máli af sumarsíld. Ekkert bend- ir til þess, að markaðir fyrir síldarafurðir hafi versnað síöan í vetur, þegar vetrarsíldarverð- ið var ákveðið, nema síður sé.. . Það virðist því engin fjar- stæða að gera sér vonir um, að verðið á sumarsíldinni verði 75 —80 krónur pr. mál. Vsðgerð á Éþrottavellsnum hafin 1 gær bar byrjað að gera við íþróttavöllinn. Er áformað, að gagnger viðgerð fari nú fram á honum. Verður girðingin lag- færð, völlurinn rakaður og borið afan í hann eftir því sem þurfa þykir. Stökkgryfjan og atrenn- an að henni verður lagfærð, enn- fremur mörkin. Bærinn ber all- kostnað af viðgerðinni, en Iþróttabandalagið sér um fram- kvæmd hennar. Bæjakeppni í frjálsum íþrótt- um milli Isafjarðar og Siglu- fjarðar fer fram í kringum 20. þ.m. Er það í annað skiptið, sem slík keppni fer fram. Hin fyrri var í fyrrasumar. Áttu Isfirð- ingar frumkvæðið að keppnum þessum. Verður keppt í 10 grein um. Undirbúningskeppni hér fer sennilega fram sunnudaginn 13. þ.m. íþróttabandalagið sér um keppnina. Um sama leyti munu ísfirð- ingar keppa hér í knattspyrnu. Kemur flokkur þaðan hingað í boði K.S. Nvjar bækur Nóatún Grænland Blaðamannabókin Sigurvegarinn frá Kastilíu FjöII og fimindi Ormur Rauði, II. bindi Ester Fögur er foldin Af stað burt í f jarlægð Selskinna Hvíldu þig, hvíld er góð Borg leyndardómanna Svikarinn Námur Salómons Allan Quatermann Svarta liljan Heimilisritið o.fl. o.fl. Bókaverzlan Lárusar Þ. J. Blöndal Björgunarskip fyrir Vesffirði Blaðið Skutull á Isafirði segir frá þv'i nýlega, að gerðir hafi verið samningar um smíði á björgunarskipi fyrir Vestfirði. Voru þeir undirritaðir í Reykja- vík 8. apríl s.l. Stærð skipsins er 130 smálestir og á það að verða fullgert eftir 12 m'ánuði. Smíðin var boðin út, og reyndist lægsta tilboð vera frá Frederiks- stad Skibsværft í Danmörku. Er áætlað, að skipið kosti 1,2 millj.. króna. Það er gott til þess að vita, að Vestfirðingar fá nú sitt sér- staka björgunarskip, sem ef- laust verður líka notað til land- helgisgæzlu. En hvenær kemur björgunar- skúta Norðurlands ? K. S.- ingar! Þeir K.S.-ingar, sem vilja fá aukaskammt fyrir íþróttaklæðn- aði gefi sig fram við formann félagsins, Tórnas Jóliannsson. fyrir n.k. sunnudag. NIJA-BIÓ Þriðjudaginn kl. 9: Á skíðum Miðvikudaginn kl. 9: Villihesturinn Reykur Fimmtudaginn kl. 9: Villihesturinn Reykur Föstudaginn kl. 9: Stigamannaforingmn Laugardaginn kl. 9: Á skiðum Breytuig á kaupgjaldssamningi Verka- mannafél. Þróttar og S. R. Stjórn og samninganefnd Verkamannafé- lagsins Þróttar á Siglufirði og stjórn Síldar- verksmiðja ríkisins, Siglufirði, hafa samið um það í dag, a ðgera eftirfarandi breyt- ingar á kaupgjaldssamningi milli nefndra aðila, dags 30. júlí 1947, um vinnu hjá Síldar- verksmiðjum ríkisins á Siglufirði: 1. Samningurinn gildir frá 1. júní 1948 til 15. september 1948 og framlengist um einn mánuð í senn, miðað við 15. hvers mánaðar, sé honum ekki sagt upp af öðr- um hvorum aðilja fyrir 15. dag næsta mánaðar áður en hann á að f alla úr gildi, en samningurinn gildir þó eigi skemur en til og með 15. september 1948. 2. Við 5. grein a. lið. Liðurinn orðist svo: Almenn dagvinna fyrir alla mánuði árs- ins...............kr. 2,80 3. Við 5. grein e. lið. Liðurinn orðist svo: Vindumenn, gerfismiðir og lagermenn kr. 3,00. 4. Við 5. grein h. lið. Liðurinn orðist svo: Stókerkynding á kötlum, kynding á þurk- ofnum, lempun á kolum, olíukynding og bíla-akstur...............kr. 3,10 5. 7. grein 1. og 2. lína. Liðurinn orðist svo: Mánaðarkaup í 2—6 mánuði (almenn dagvinna) ................kr. 553,78 Mánaðarkaup í 6 mánuði eða meira (al- menn dagvinna).............kr. 520,00 Siglufirði, 28. maí 1948 Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins: \ Sveinn Benediktsson Eri. Þorsteinsson Jón Kjartansson < Stjórn og samninganöfnd Verkamannafélagsins Þróttur: í Gunnar Jóliannsson Hreiðar Guðnason Jónas Stefánsson < L Jóhannes Sigurðsson Steingrímur Magnússon Gísli Elíasson < SIGUIFJBR8UR (Framhald af 1. siöu) núverandi ríkisstjórn hefur stöðvað ýmsar stórframkvæmd- ir, sem Áki var búinn að ákveða hér, eins og lýsisherzlustöð og niðursuðuverksmiðju, og ef til hina stóru, nýtízku tunnuverk- smiðju ríkisins, sem hér er ákveðið að reisa. Þá er Siglfirð- ingum bannað að byggja gagn- fræðaskólann, sem þó er byrjað á og nauðsyn er að fá sem allra fyrst. Siglufjarðarkaupstaður á nú síldarverksmiðjuna Rauðku, er hann rekur fyrir eigin reikning, einhverja beztu síldarverksmiðj- una 'á landinu. A'fkastar verk- smiðjan 8—10 þúsund málum á sólarhring. Kaupstaðurinn á einnig togarann Elliða og rékur hann. Þá hefur kaupstaðurinn keypt báðar jarðirnar, sem hann stendur á, Hvanneyri og Höfn. Nú er byrjað á miklum framkvæmdum við innri höfn- ina, enda er þar nú úr brýnni þörf að bæta. Fyrir liggur að byggja nýtt sjúkrahús, gagn- fræðaskóla og síðast en ekki s'ízt að stækka raforkuverið við Skeiðsfoss um helming, auk margra aimarra framkvæmda. En nú hafa verið þrjú síldar- leysisár, sem haf a komið illa við Siglufjörð. Nú situr ríkisstjórn, sem er kaupstaðnum mjög fjandsamleg og svo illa hefur tekist til heima fyrir, að 1 bæj- arstjórn er enginn lábyrgur meirihluti og bæjarstjórinn lífs- reynslulaus unghngur, sem er ráðinn er í starfið af pólitísk- um ástæðum. I augnablikinu, má því segja, að útlitið sé ekki sem bezt. Ekki er þó nein ástæða til svartsýni, og oft áður hafa Siglfirðingar mætt þvi sem verra er. Árið 1875 fórust tvö hákarlaskip með allri áhöfn, Draupnir og Hreggviður. Árin 1869 og 1882 voru mikil ísaár. Lág ís við land annað árið þar Fásótt fimfeika- sýning Helgi Sveinsson sýndi fim- leikaflokk sinn í Bíóhúsinu síð- asta laugardagskvöld. Eg kalla hann flokkinn hans Helga, því að án hans væri flokkurinn sennilega ekki til. Helgi hefir síðan ég fluttist til Siglufjarðar kennt K.S.-ing- um fimleika á hverjum vetri og síðasta vetur báðum félögunum og aldrei tekið fullt gjald fyrir | og suma vetur alveg endur- gjaldslaust. Kunna þeir félagar okkar illa að meta gott og óeigingjarnt starf, er ekki voru í þessum 60 manna hóp, er sýninguna sótti. Einnig mættu bæjarbúar meta það, að þessir piltar hafa verið 150 til 180 frístundum í vetur til heilbrigðra leikja í góð- ^ um hóp, sér til gagns og ánægju, en sem enginn getur sagt um í hvað hefðu farið ef kennslunni í fimleikum væri ekki haldið uppi. Þarna, í að taka upp sem mest af frístundum ungdómsins og verja þeim á heilbrigðan og þroskandi hátt á meðan hann er að mótast, er mesta uppeldis- gildi iþróttanna fólgið. Siglfirðingar! Yfirvegið og ^ metið þennan þátt, þá mun ykkur ekki dyljast að hann ber að viðurkenna með því að sækja sýningar þær, er íþróttamenn og skólar efna til. Flokknum og Helga færi ég þakkir fyrir sýninguna, er tókst vel og var þeim er sáu, til ánægju og flokknum og kennara hans til sóma. Vonandi líður ekki svo annar * vetur, að ég ekki geti tekið þátt í æfingum ykkar, og hygg ég gott til að komast aftur í glaðan hóp. Haldið hópinn, hefjið merkið hátt, þótt á móti blási, og haldið ótrauðir áfram, því að í starfinu er ykkar styrkur fólginn og sig- urinn unninn. Þ. Konráðsson. Sá sem gleymdi regnhlíf í Suðurgötu 10 s.l. haust er beðinn að vitja liennar á skrifstofu Sósíalistafélagsins hið fyrsta. til 17. viku sumars, en hitt árið þar til í 18. viku. Mörg fleiri voru ísaárin, með aflaleysi og siglingateppu og fylgdi slíkri árás bjargarleysi óg sjúkdómar, ’ en þrátt fyrir allt, hefur þó Siglufjörður haldið áfram að vaxa, og raunar við hvert áfall risið upp aftur stæltari og fram sæknari. Hafið bregst ekki, nema um stundarsakir og fólkið er þrekmikið og kjarngott. Siglufjörður á framtíðina fyrir sér, þó um stund sé afla- leysi og valdhafar landsins hon- | um f jandsamlegir. Og þó handa- skol verði í stjórn innri mála, munu Siglfirðingar læra af reynslunni og bæta úr því.

x

Mjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.