Mjölnir


Mjölnir - 23.06.1948, Page 2

Mjölnir - 23.06.1948, Page 2
— VIKUBLAÐ — Útgefandi: Sósíalistafélag Siglufjarðar Símar 194 og 210 Ritstjóri og ábyrgðarmaður:- Benedikt Sigurðsson Blaðið kemur út alla miðvikudaga. Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10 Siglufjarðarprentsmiðja h. f. Nýsköpunin og föidu innstæðurnar Ríkisstjórnin hefur skýrt frá því, að hún hafi í undirbúningi að kaupa tíu nýja togara. Fögnuður hefur gripið menn. Þessu hefur verið fagnað sem spori í nýsköpunarátt. Menn hafa þótzt komast að raun um, að jafnvel þessa ríkisstjórn sé hægt að knýja til gagnlegra ráðstafana, ef nógu fast væri að henni lagt. Stjórnin yeit, að hvert spor, isem hún stígur í átt til nýsköpunar, dregur úr j óvinsældum hennar. En hún gætir þess að stíga ekki sporið langt. Um leið og hún kaupir tíu nýja togara, selur hún fimmtán úr landi. Nú er eftir að ráðstafa þessum nýju togurum. Hver á að hreppa hnossin? Hvort verður þeim úthlutað til útgerðar bæjar- félaga úti um land og í Reykjavík, eða til auðfélaga eins og Kveldúlfs, Alliance, prívatútgerðarfélags Emils Jónssonar og fé- laga hans í Hafnarfirði og einstaklinga ? Það skyldi þó aldrei vera, að útvegun þessara nýju skipa sé bein afleiðing af því, að einkaútgerðarfélögin þykist ekki græða nóg á gömlu togurunum og hafi þótzt afskipt þegar nýsköpunar- togurunum, sem keyptir voru fyrir tiistilli fyrrverandi stjórnar, var úthlutað, og hafi hún heimtað að fá að selja gömlu togarana og fá nýja togara, sem meira væri hægt að græða á, í þeirra stað. Það er ekki ósennilegt, að nýju togararnir tíu verði eins af- kastamiklir og gömlu togararnir fimmtán, sem fyrirhugað er að selja og sumir hafa þegar verið seldir, og þess vegna ekki víst, að skiptin séu út af fyrir sig mjög slæm. En þess verður þó að gæta, að gömlu togarnir veittu fleira fólki atvinnu. Á Islandi er til f jöldi ágætra togarasjómanna, og stöðugt bætast nýir í hópinn. Togaraútgerð er einn arðvænlegasti atvinnurekstur í landinu. Þessvegna hlýtur það að vera sjálfsögð krafa, að einn nýr togari sé keyptur í staðinn fyrir hvem gamlan, sem seldur er. Þar að auki verður árlega að kaupa nokkra togara til viðbótar, til viðhalds og aukningar flotanum. Eitt af því, sem Sósíalistar komu inn í stefnuskrá nýsköpunarstjórnarinnar, var áætlun um kaupin á nýsköpunartogurunum þrjátíu, sem nú eru flestir komnir, og áframhaldandi stækkun og viðhald togaraflotans. Þá stefnu hefur núverandi stjórn svikið. Það er nokkumveginn óhætt að fullyrða það, að ríkisstjómin hefur ekki allt í einu séð sig um hönd og farið að skammast sín fyrir svikin við nýsköpunina, og þessvegna ráðist í kaup þessara nýju togara. Það sem ráðið hefur þessari ráðstöfun er fyrst og fremst þungi almenningsálitsins, sem heimtar áframhaldandi ný- sköpun, en annað hefur bersýnilega líka komið til greina; óskir gæðinga hennar, auðmanna og auðfélaga, um að fá að selja gömlu togarana og fá nýja togara, sem meira væri hægt að græða á, í þeirra stað. Það mun koma í ljós, þegar farið verður að úthluta þessum nýju togurum, að það verða ekki bæjarútgerðimar, sem fá bróðurpartinn, heldur auðfélög í Reykjavík og Hafnarfirði. Á tæpum þrem vikum hafa borizt umsóknir um nærri því þrjátíu nýja togara. Til þess að fullnægja eftirspurninni þarf því að kaupa þrefalt fleiri slík skip en ríkisstjórain hefur ákveðið að útvega. Eins og alþjóð er kunnugt, eiga íslenzkir braskar nú stóra sjóði erlendis, sem iþeir hafa flutt þangað fyrir utan öll lög og rétt. Blöð Sósíalistaflokksins hafa þrásinnis lagt að ríkisstjóminni að birta þær upplýsingar, sem hún hefði í höndum um þetta mál, en hún hefur 1 hvert skipti, sem á þetta hefur verið minnzt, sett upp pókerandlit og neitað þvi, að neinar slíkar innstæður væm til. Nú er hinsvegar fengin vissa fyrir því, að við eigum inni er- lendis stórar fjárupphæðir, sem fluttar hafa verið þangað ólög- lega.. Hefur ríkistjórnin birt yfirlýsingu, sem staðfestir það. Það er ekki ósanngjamt að ætlast til að ríkisstjórnin geri ráð- stafanir til þess, að þessar f járupphæðir verði notaðar þjóðinni til gagns, til dæmis til að kaupa fyrir það svo sem tíu nýja togara í viðbót við þessa, sem búið er að panta. Það er heldur ekki enn loku fyrir það skotið, að eitthvað af gjaldeyri, sem þjóðin hefur ekki haft aðgang að fram að þessu, kunni að finnast, ef vandlega er leitað. Einn af „þeim stóru“ í stjórnarherbúðunum, Hermann Jónasson, sem á sæti í Fjárhagsráði, segir í Tímanum hinn 16. þ.m. að hann hafi góðar heimildir fyrir því, að innstæður íslenzkra manna og félaga í enskum bönkum 1947, muni nema milli 10 og 20 milljónum króna. Þjóðin heimtar, að nýsköpuninni verði haldið fram. Hún vill, • Hjónaband. Hinn 19. þ. m. voru gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Jónssyni vígslu- biskupi, ungfrú Elín R. Eyfells (Eyjólfs Eyfells listmálara) og Þór Jóhannsson, Hafnargötu 20 Sighifirði. • Leiðrétting. í síðasta blaði slæddist mn villa, þar sem sagt var frá sölu Elliða. Var sagt, að afli skipsins hefði verið hinn mesti, sem nýsköpunartogari af þessari gerð hefði fengið í einni veiðiferð. — Átti þarna að standa, að afli skipsins hefði verið sá næstmesti, sem slikt skip hefði fengið í einni ferð. • Brak í sjónum. Blaðinu hefur borizt sú fregn, að flugmenn á flugvélum F. I., sem halda uppi flugferðum milli Akureyrar og Siglufjarðar, hafi neitað að lenda hér í fyrrakvöld vegna þess, að spýtnarasl og hvers- kyns brak hefði verið á floti í sjónum hér framan við bryggj- urnar, og gert lendingu ótrygga. Það standa yfir ýmiskonar framkvæmdir hér við höfnina, og er sjálfsagt erfitt að koma í veg fyrir, að eitthvað af braki berist út. En þeir, sem að fram- kvæmdunum standa og stjórna þeim, þurfa að 'hafa það hug- fast, að tré, sem er á floti úti á höfninni, getur veldið stór- skemmdum og ef til vill slysum, Hér kemur svo fyrirspurn til blaðsins: • Amdlegt klakahögg. — Það er nú altalað í bænum, að Sjálf- stæðisflokkurinn ætli að halda hér í sumar uppi atvinnubóta- vinnu, nokkurskonar andlegu klakahöggi, fyrir meðlimi barna deildar flokksins, Heimdalls í Reykjavík. Hefur frétzt, að flokkurinn hafi tekið á leigu alla efstu hæð Verzlunarfélagshúss- ins (sem mun þó vera ýkjur), og eigi klakahöggið að fara þar fram. Sé hinum ungu mönnum ætlað að starfa þar að útgáfu blaðsins „Siglfirðingur,“ sem eigi framvegis að koma út þrisvar í viku. Hafa Heimdallar- piltar sézt spásséra prúðbúnir þrír til fjórir saman um götur bæjarins, spekingslegir á svip, þungt hugsandi um landsins hag og nauðsynjar. Segja sumir að hræðsla við barnaverndarnefnd muni ráða því, að þeir fari svo margir saman, en aðrir, að þeir teilji sér ekki sæma annan félags skap. Nú er ég ekki með þessu að amast neitt við þessum ungu mönnum né blaðaútgáfu Sjálf- stæðisflokksins, þótt mér reynd- ar finnist sex blöð vikulega af Mogganum og Vísi nægilegur vikuskammtur af andlegu létt- meti. Auðvitað má Sjálfstæðis- flokkurinn eyða fé sínu 1 hvað sem honum sýnist, og hví skyldi Heimdellingum vera ofgott að dunda við að láta prenta eftir sér vitleysuna, ef þeir liafa gam- an af því, og einhver vill kosta þá til þess. — Mig langaði bara til að spyrjast fyrir um, hvort einhver hæfa væri fyrir þessum orðrómi um að „Siglfirðingi“ væri ætlað að koma út þrisvar í viku. Blaðalesandi. Jú, einhver hæfa mun vera fyrir þessu. Blaðið hefur frétt, að „Siglfirðingur" muni eiga að koma út þrisvar 'i viku yfir aðal- síldveiðitímann. Þó skal það tek- ið fram, að það hefur ekki feng- ið staðfestingu á þeim orðrómi frá aðstandendum ,Siglfirðings.‘ TILKYNNIIMG TIL SILDARSALTENDA Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld á þessu sumri, þurfa samkvæmt 8. grein laga nr. 74 frá 1934 að sækja um leyfi til Síldarútvegs- nefndar. Saltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða. 2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar. 3. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni. 4. Hve margt síldverkunarfólk vinnur á stöðinni. 5. Eigi umsækjendur tunnur ög salt, þá hve mikið Umsóknir þurfa að berast nefndinni fyrir 25. þ.m. Nauðsynlegt er, að þeir saltendur, sem óska að fá keyptar tómar tunnur og salt frá Síldarút- vegsnefnd, sendi pantanir til skrifstofu nefndar- innar á Siglufirði nú þegar. SÍLDARÚTVEGSNEFND Frá Gagnfræðaskólanum 1 fjarveru minni nm tveggja mánaða skeið, tekur formaður skólanefndar, Eagníir Ouðjónsson, Laugaveg 16, á móti rnnsókn- um í 1. bekk Gagnfræðaskólans. — Skólinn verður settur í Iok septembermánaðar. JÖHANN JÓHANNSSON að a.m.k. 30 nýjum toguram verði bætt við þá, sem fengnir eru. Hún vill ennfremur, að komið verði upp lýsisherzlustöð, áburðar- verksmiðju, sementsverksmiðju og tunnuverksihiðju, svo einungis fátt eitt sé talið af þeim verkefnum, sem bíða óleyst, og núv. stjórn hefur svikist um framkvæmdir í eða jafnvel komið í veg fyrir. Ailt eru þetta mál, sem nýsköpunarstjórnin hafði á stefnu- skrá sinni að framkvæma, en' Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn hafa nú svikið og hlaupið á brott frá. Sósíalistaflokkurinn heldur nú einn allra stjórnmálaflokkanna upp merki nýsköpunarinnar, ásamt framfarasinnuðum mönnum úr öllum flokkum. Hér eftir sem hingað til mun hann standa í fylkingarbrjósti fyrir framfaraöflunum. Og fylgi þjóðin fast á eftir, er sigurinn vís, þrátt fyrir jrfirstandandi, tímabundið óstjórn- artímabil í landinu. NfJABIÖ Miðv.d. kl.9: Hótel Casablanca Fimmtud. kl. 9: Stríðsglæpam. Föstud. kl. 9: Da(kota Laugard. kl. 9: Stríðsglæpam. Sunnud. kl. 3: Hótel Casablanca Kl. 5: Á skíðum K1 .9: Báðar \nldu eiga liann Litmynd — Hækkað verð

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.