Mjölnir - 23.06.1948, Page 4
25. tölublað.
11. árgaitgnr.
Mið%ikudag!im 28. júní 1948
17. júní-hátíðahöldin
MADAMA FRAMSOKN BYRSTIR SIG
Hótar að ganga úr vistinni, ef Sjálfstæðis-
flokkurinn bæti ekki ráð sitt!
Þingi ungra Framsóknar-
manna er nú fyrir skömmu lokið
og hefur nokkuð af samþykkt-
um þess og ályktunum verið
birt. í ályktunum þingsins kem-
ur m. a. fram vilji til að segja
upp smánarsamningi þeim, er
m. a. sumir þingmenn Fram-
sóknar stóðu að, um flugstöð
handa Bandaríkjunum í Kefla-
vík.
' Ennfremur er ráðist þar all-
óvægilega að núverandi ríkis-
stjórn. Segir þar m. a. að þótt
náðst hafi nokkrir árangrar,
sem Framsóknarflokkurinn geti
unað sæmilega við, einkum á
sviði landbúnaðarmála ,hafi
samt mörg af stefnumálum
flokksins verið borin fyrir borð
og litilsvirt í stjórnarsamstarf-
inu. Þykist þingið harma það
mjög að brask og hverskonar
fjármálaspilhng þróist nú ó-
hindnað, þrátt fyrir baráttu
Framsóknarmanna gegn sliku!!
Er tekið svo djúpt í árinni, að
sagt er berum orðum, að flokk-
urinn geti ekki haldið stjórnar-
samstarfinu áfram upp iá sömu
spýtur og að undanfömu.
HEIMDELLINGI
SVARAÐ
Einn af Heimdallarpitlunum,
sem nú eru á nokkurskonar
ómagaframfæri hjá Sjálfstæðis-
flokknum við að gefa út blaðið
Siglfirðing, skrifar í blaðið í
gær greinarstúf, undir fyrir-
sögninni „Vindhöggið". Heldur
hann því fram þar, að sósíal-
istar hafi tekið aftur fyrri stað-
hæfingar um dollarainneignir ís-
lenzkra braskara í Bandarikj-
unum. Reynir hann ekki að
finna þessum orðum sínum
neinn stað, enda er það ekki
hægt. Er piltur þessi hérmeð
beðinn um að rökstyðja þessa
staðhæfingu sína í næsta blaði
Siglfirðings.
1 endi greinarinnar kemur
svo önnur rúsína. Þar er því
haldið fram, að innstæðurnar
30. júní 1947 hafi verið gefnar
upp. Hver gaf þær upp? Ætli
eigendurnir hafi talið þær fram
til skatts. Eða ætli þeir hafi
gefið Landsbankanum upplýs-
ingar um þær? Hvað á dreng-
urinn við? Hann verður að tala
skýrara en þetta, ef hann ætlast
til að mark verði tekið á honum.
Þá skal honum ráðlagt að lesa
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
varðandi inneignirnar í Banda-
ríkjunum 30. júní í,fyrra. Þar
segir m.a. svo: „Ríkisstjórnin
hefur gert ítrekaðar tilraunir
til að afla sér upplýsinga um
eigendur þessara inneigna, en
jafnan fengið það svar, að það
gæfu innstæðueigendur ekki,
heldur aðeins upphæðina--“
Vill nú ekki piltungur þessi
velta því fyrir sér þangað til
Þá bendir þingið á þá hættu,
sem af þvl stafi, að „komm-
únistar“ séu í andstöðu við ó-
vinsæla ríkisstjórn!
Það lítur helzt út fyrir, að
maddömu Framsókn sé farin
að þykja Sjálfstæðisflokkurinn
óþægilega ráðríkur á stjórnar-
heimilinu. Nú er bara eftir að
vita, hvort þessar hnútur herpi-
ar til húsbóndans eru nokkuð
annað en marklaust orðagjálfur,
sett fram til þess að reyna aó
hvítþvo sig af syndum hrun-
stjórnarinnar í augum hinna
hiáttvirtu, sem ráða þingsætum í
krafti atkvæðaseðlanna. —
Kannske eru líka sletturnar
bara tilraun hinnar virðingar-
vöndu húsfreyju til að fá dregið
ofurlítið úr ráðríki heimilis-
föðursins, reyna að koma hon-
um í skilning um, að það séu þó
til velsæmistakmörk, sem jafn-
vel hann geti ekki farið út fyrir
án þess að lenda upp á kant við
almenningsálitið. En hinsvegar
sé engin alvara á bak við. —
Úr þessu fæst væntanlega skor-
ið á næstu vikum eða mánuðum.
Siglfirðingur kemur næst út,
hvað þetta þýðir, og þá upp-
lýsa, hvar innstæðurnar voru
gefnar upp?
Loks skal svo tekin upp orð-
rétt spurning, sem auðsjáanlega
vefst illilega fyrir sakleysingj-
anum, sem ekki hefur enn
fengið neina innsýn í vinnu-
brögð húsbænda sinna. Þarf
hún engrar skýringa við: ■
„Það væri annars fróðlegt að
vita, hvaða hagnað „braskar-
arnir“ hafa af þvi að eyða fé í
utanfarir til að fela dollara"!!!
Síldveiðin að hef jast
(Frajnhald af 1. síðu).
veiddist í fyrradag var 12%, en
þeirrar, sem komið var með í
gær 11,8%. Talsverð áta var í
síldinni, aðallega ljósáta, en þó
varð rauðátu einnig greinilega
vart. — Nokkur stormur var á
miðunum, og hvergi fugl að sjá.
Sildarverksmiðjan Rauðka er
nú tilbúin til að taka á móti
síld til vinnslu. í vor og vetur
hafa verið sett olíukyndingar-
tæki á þurrkara og ketil hennar.
Síldarverksmiðjur ríkisins eru
einnig að verða tilbúnar til
vinnslu. Olíukynding hefur verið
sett upp í aðalketilstöð þeirra.
Samkvæmt fréttum, sem
blaðinu hafa borizt, munu hlut-
fallslega fleiri hringnætur verða
notaðar við síldveiðarnar í
sumar en verið hefur undan-
farin sumur.
Mörg skip eru nú að búa sig
á síldveiðar. Mun mikill hluti af
þeim skipum friá höfnum norðan
lands, sem ætla að stunda síld-
veiðar í sumar fara út næstu
daga. Nýjustu fregnir herma, að
vélskipið Eyfirðingur frá Akur-
eyri hafi fengið 700 mál síldar.
Hátíðahöldin 17. júní fóru
fram með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Hófust þau með
skrúðgöngu barna frá Hafnar-
bryggjunni til kirkjunnar. Þar
fór fram guðsþjónusta, predik-
aði sóknarpresturinn, sr. Óskar
J. Þorláksson.
Kl. 2 hófust svo aðalhátíða-
höldin á íþróttavellinum og setti
Jón Skaftason stud. jur. þau,
en Jóhann Jóhannsson skóla-
stjóri flutti aðal'hátíðaræðuna.
Síðan hófust 'íþróttasýningar.
Fór fram reiptog milli bílstjóra
af bílastöðvunum, og sigraði
sveit B.S.S. Þá fór fram poka-
hlaup, og varð Arnold Bjarna-
son sigurvegari. Handknatt
leikskeppni fór fram milli
kvæntra og ókvæntra K.S.-inga.
Unnu hinir ókvæntu. Keppt var
i fleiri greinum. I vatnsfötu-
hlaupi sigraði Björn Guðmunds-
son, í eggjahlaupi Arnold
Bjamason og í blindhlaupi Har-
aldur Sveinsson. Bílstjórar og
verzlunarmenn kepptu i nagla-
boðhlaupi, og unnu hinir fyrr-
nefndu. Tvær sveitir úr K.S.
kepptu í knattspyrnu.
Kl. 5 voru ókeypis kvikmynda
sýningar fyrir börn í báðum
kvikmyndahúsunum og um
kvöldið dansleikir á Hótel Höfn
og í Nýja Bíó.
Merki voru seld á götunum
allan daginn.
Knattspyrnufélag Siglufjarð-
ar sá um hátíðahöldin ásamt
þriggja manna nefnd, sem bæj-
arstjórn tilnefndi. Er þetta í 17.
skiptið, sem K.S. sér um há-
tíðahöld hér 17. júní.
Kalt var í veðri, og dró það
nokkuð úr aðsókn að hátíða-
höldunum.
Bæjakeppni
(Framhald af 3. síðu).
óskandi, að hún geti farið fram
á hverju ári. Siglfirzkir íþrótta-
menn hafa eflaust margt getað
lært af keppinautum s'ínum þótt
stigafjöldin hafi orðið meiri hjá
þeim.
Hafi hinir ísfirzku íþrótta-
menn beztu þakkir fyrir kom-
una og allir þátttakendur þess-
aar keppni þökk fyrir góðan og
drengilegan leik.
Oregið í happdrætti
N.F.LI.
I happdrætti Heilsuhælissjóðs
Náttúrulækningafélags Islands
komu upp þessi númer:
1. Skodabifreið.....nr. 49604
2. Málv. e. Kjarval — 31475
3. ísskiápur, enskur — 49096
4. do. amerískur .... — 46891
5. Þvottavél ....... — 37389
6. Hrærivél ........ — 12482
7. Strauvél ........ — 22597
8. Rafha-eldavél .... — 40108
9. Stáleldhúsborð .. — 26750
10. Flugf. til Akeyrar — 3799
10. Flugferð til Akureyrar
37995
Vinninganna sé vitjað til
Bjöns L. Jónssonar, Mánagötu
13, Reykjavík, sími 3884.
Daglegar flugferðir (ef veður leyfir)
til Reykjavíkur. — Einnig idaglega tvær ferðir til Alnireyrar.
FLUGFÉLAG ISLANDS
Skrifstofa Norðurgötu 4 — Sími 31
LÁGMARKSKADPTAXTI
Verkamannafélagsms Þróttar, Siglufirði í júní 1948 og áfram
að óbreyttri liinni lögbundnu vísitölu, sem er 300 stig.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
Almenn dagvinna (280) 8,40 13,44 16,80
Handlangarar hjá múrurum (2,90) 8,70 13,92 17,40
Grjótnám — Þróarvinna — Hol- ræsahreinsun (2,95) 8,85 14,16 17,70
Gerfismiðir — Lagermenn — Skipa- vinna — Vindumenn og Dixil- menn, byrjendur (3,‘00) 9,00 14,40 18,00
Stókerkynding — Lemping iá kolum — Olíukynding og bílaakstur (310) 9,30 14,88 18,60
-Vinna við kol salt og sement, — Losun síldarúrgangs úr skipum og vinna með loftborum. — Hand- kynding á kötlum — Fullgildir Díxilmenn (3,30) 9,90 15,84 19,80
Boxa og katlavinna (3,67) 11,01 17,62 22,02
Unglingataxti 14 til 16 ára (2,15) .... 6,45 10,32 12,90
Mánaðarkaup í 2 til 6 mánuði (553,78) ..... 1661,34
Mánaðarkaup 'i 6 mánuði eða lengur (520,00) . 1560,00
Mánaðarkaup þróarmanna (582,88) ............. 1748,64
Mánaðarkaup gerfismiða, lagermanna og vindu-
manna (592,76) .............................. 1778,28
Mánaðarkaup manna með kr. 3,10 í grunn (613,00) 1839,00
Mánaðarkaup manna með kr. 3,30 í grunn (650,00) 1950,00 i
Mánaðarkaup vökumanna, þar með taldar helgi-
dagsnætur (640,00) .......................... 1920,00
Siglufirði, 21. júní 1948
STJÓRN VERKAMANNAFÉLACrSINS ÞRÓTTAR
Nýjar bækur
Ormur Rauði II. bindi
Fjöll og fimindi
Grænland, eftir G. Þ. • •..
Selskinna
Nóatún
Jane Eyre
Katrín Karlotta
Af stað burt í f jarlægð
Sigurvegarinn frá Kastilíu
Fögur er foldin
Hjartaásinn, Bergmál
Borg leyndardómanna
Hjá sjóræningjum
Blóð og ást
Percy hinn ósigrandi IV.
Bókaverzlun
Lárusar Þ. J. Blöndal
Öskiljanleg og víta-
verð framkoma
(Framliald af 1. síðu).
ar hefur sent framkvæmda-
stjóranum bréf, um þessar
nýju ráðstafanir hans ,og óskað
eftir því, að hann afturkallaði
fyrri ákvarðanir sínar í þessu
máli. Framkvæmdastjórinn hef-
ur þegar svarað með bréfi,
dags. 18. þ.m. og neitað að
verða við tilmælum Þróttar.
Lætur hann þess um leið getið,
að „vinnuþörf verksmiðjanna
sé fullnægt í bráð og því verði
ekki fjölgað í eftirvinnu”. Bréf
þetta er í marga staði lærdóms-
ríkt fyrir verkamennina, sem
VINNAN
6. tbl. er nýkomin út, fjöl-
breytt og vönduð að efni og frá-
gangi. (
Helzta efni: Jón Rafnsson:
Einingin ofar öllu. H.K. Lax-
ness: Einíngin, auður verka-
mannsins; Stefán Ögmundsson:
1. maí varð mikill sigur fyrir
einingarstefnu alþýðusamtak-
anna; MálarasveinafélagReykja
víkur 20 ára; Astrid Vík-Skaft-
fells: Lifandi skuggar, smásaga;
Guðgeir Jónsson: Einingin er
afl; Ingimar Júlíusson, B'íldu-
dal: Stétt og réttindi; Hermann \
Guðmundsson: Verndum ein-
ingu alþýðusamtakanna; Bréf
til þriggja manna á Akranesi;
Gegn atvinnuleysinu, kvæði eftir
Viilhjálm frá Skíálholti og Ingólf
Jónsson frá Prestbakka; Sam-
bandstíðindi, kaupgjaldstíðindi
o.fl. Forsíðumynd frá Kerlinga-
fjöllum tekin af Þorst. Jósefs-
syni.
hjá þessu fyrirtæki vinna. Til
dæmis kemur það skýrt fram,
að það er ekki verið að taka
tillit til þarfa verkamannanna
fyrir vinnu, heldur eingöngu
látin ráða þörf verksmiðjanna
f yrir vinnuaflið.
Mál þetta er að sjálfsögðu
ekki úr sögunni og litla kynn-
ingu hljóta þessir góðu for-
stjórar að hafa af samtökum ^
siglfirzkra verkamanna, fyrst
þeir leyfa sér annað eins og
þetta.
G. Jóh.