Mjölnir


Mjölnir - 02.02.1949, Qupperneq 2

Mjölnir - 02.02.1949, Qupperneq 2
M J ö Ii N I R JS I — VIKUBLAÐ — Útgefandi: Sósíalistáfélag Siglufjaröar Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson Blaðiö kemur út alla miövikudaga. Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla, Suðurgötu 10 Símar 194 og 210 Siglufjarðarprentsmiðja h. f. • ' , ij. , ; ? * 'M’S&tejjSMiíáBZh STJðmiUS BÆR Þegar núvxerandi bæjarstjóri var ráðinn hlaut hann 4 at- kvæði Sósíalistarnir 3 greiddu öðrum manni atkvæði, en Sjálf- stæðismenn sátu hjá. Að ráðningu bæjarstjóra stóðu því flokks- menn hans, Alþýðuflokksmennirnir 3 og Framsóknarmaðurinn. — Minnihluti bæjarstjórnar tók þannig ábyrgð á stjórn bæjarins. Sósíalistar vöruðu þá þegar við þessu og bentu á, að hætt væri við, að bærinn missti lánstraust sitt með minnihlutastjórn; — aðstaða bæjarstjóra yrði mjög slæm og öll stjórnin á bænum yrði reikul og tilviljunum háð. Tillaga frá sósíalistum um, að nýjar ikosningar yrðu látnar fram fara var felld með 4 atkv. gegn 3. Sátu Sjálfstæðismenn enn hjá og björguðu krata-framsóknar-sam- steypunni, þannig með hlutleysi sínu. Allar viðvaranir sósíalista létu þessir flokkar, sem voru svo gráðugir í að takast á hendur ábyrgðina á bænum, sem vind um eyru þjóta. Nú hefur reynslan að nokkru skorið úr. Má með sanni segja, að ábyrgð þessara flokka hafi orðið hið mesta ábyrgðarleysi. Engri meginstefnu hefur verið fylgt í stjórn bæjarmálanna, en þess í stað l’átið stjórnast af tilviljanakenndu fálmi og oft smásmugu- legum flokkssjónarmiðum. Kostnaður við starfrækslu bæjarins hefur stórhækkað, og oft er að ýmsu öðru leyti farið gálauslega með fé bæjarins, en sjúkrahúsið, gagnfræðaskólinn og fleiri fram- kvæmdir, sem bæjarbúum var lofað, biða sjálfsagt úrlausnar næstu bæjarstjórnar_ Lánstraust bæjarins í peningatofnunum er líítið; traustið almpnnt á bæjarstjórn er enn minna. Nú er komið fram í febrúarmánuð og ekki er enn farið að semja fjárhagsáætlun fyrir þetta áp. Lögum samkvæmt á þó samningu f járhagsáætlunar að vera lokið fyrir 1. desember. Hvers vegna þetta er ekki gert, skal ósagt látið, en tæpast er hægt að taka alvarlega, að ekki hafi unnist tími til að gera þetta, nema þá að bæjarstjóri og stuðn- ningsmenn hans, sem ábyrgðina bera, hafi svo. mörgum öðrum skyldum að gegn, sem þeir telja sér skyldara að rækja, að bæjar- félagið verði þessvegna að sitja á hakanum. Atvinnuástand er nú alvarlegra hér á Siglufirði en mörg undan farin ár. Verkamannafélagið „Þróttur" tekur það mál til með- ferðar á næsta fundi sínum og verða þaðan að sjálfsögðu gerðar kröfur til bæjarstjórnar. Má bæjarstjórn vel gera sér ljóst, að eins mikil alvara og er á ferðum 1 þessu efni, duga ekki hin venjulegu vinnubrögð. Nokkrar tillögur sósíalista í þessum atvinnumálum hafa verið birtar hér í blaðinu, og mun þeim máilum verða gerð nokkur skil í næstu blöðum. • TILKYINIMG Vegna breyttra verzlunarhátta sjáum vér undirritaðir oss eigi fært að reka lánsviðskipti framvegis. Það tilkynnist því hér með viðskiptavinum vor- um, að frá 25. janúar verður ekkert selt á verk- stæðum vorum öðruvísi en gegn staðgreiðslu, nema sérstakir skriflegir samningar um greiðsl- ur gerðir fyrirfram. Virðingarfylst Siglufirði, 21_ janúar 1949. pr. pr. Sveiim & Gísli h.f. Sveinn Ásmundsson F.h. Trésmiðaverkst. K Sigtryggssonar og í». Stefánssonar K. Sigtryggsson Friðrik Sigtrygsson — Jón Bjömsson Pétur Laxdal HðFUM MðTTOKU A FISKI TIL FRYSTINGAR ÞRIÐJUDAGINN febrúar. — Athygli útvegsmanna skal vakin á því, að vér kaupum elíki holfisk (ýsu og þorsk) undir 55 cm. fengd. HKAÐFKYSTUIÚSIÐ liKÚVINIK II. F. ★ Kringlur — hámarksverð. — Kringlur, eða haldabrauð, hafa verið, og eru enn, eitt aðal kaffibrauð sjómanna og ann- arra þegna þjóðfélagsins. Þær hafa þótt ódýrar og geymast vel, og því þægilegt þar, sem ekki hefur náðst til brauðbúðar nema sjaldan. Einn daginn, sem oftar, kom ég inn í eina af brauðsölubúðunum hér, kemur þá inn gamall maður og spyr hvort fáist kringlur og hvað kosti stykkið. Stúlkan kvað já við, og að þær kostuðu 35 au. stk. Mér var ekki hlátur í hug, en brosti samt við og spurði, hverju þetta sætti og hvort þær væru ekki seldar í kg. tali. Segir iþá stúlkan, að það sé svo dýr vinnan við þær, og þá hafi verið gripið til þess ráðs að selja þær í stykkjatali. Daginn eftir .kem ég inn í sömu búð og kaupi 4 kringlur með sama verði. Eg vigtaði þær til gamans og vógu þær 200 gr., eða ca. 50 gr. hver. Kostar þv’í ktílóið kr. 7,00 Nú vildi ég spyrja: Hver er það, sem verðleggur kringlur og annað í brauðbúðunum ? Er það verðlagseftirlitið, eða eru það framleiðendurnir sjálfir eftir sínu eigin höfði ? Eg vona, að þú spyrjist fyrir um þetta hjá réttum aðilum. Með. þökk fyrir birtinguna. Siglfirðingur.“ ★ Danskar kringlur — Vísi- talan. Vegna bréfs þessa sneri ég mér til eins bakarameistar- ans hér og spurðist fyrir um þetta. Upplýsti hann eftirfar- andi: Verðlagsstjóri ákvað há- marksverð á kringlur kr. 3,20. Brauðgerðir í landinu töldu sig ekki geta framleitt þær fyrir það verð, en fyrir 4—5 kr. töldu þeir sér það fært. Það fékkst ekki. Þessvegna hurfu kringlur áf markaðnum í nokkra mánuði. Þá tóku nokkur brauðgerðarhús upp á því að framleiða kringlur og selja í stykkjatali á 35 au. stk. Þetta var bannað. Þau gerðu því aðra tilraun, blönduðu kringludeig með smjöri, sykri o.fl. og fengu þá loks leyfi til að selja þær — á 35 au. stk. —cá. 7,00 kr. kg. En á sama tíma og verðlags- stjórinn meinar ísl. brauðgerðar húsum að framleiða kringlur, voru að tilhlutan r'ikisstjómar- innar(?) fluttar inn danskar kringlur, og seldar á 9,00 kr. kg. hér. Til neytenda kosta kringlur danskar 9,00 kr. kg. — ísl. 7,00 kr. kg. — en í vísitölunni er reiknað með hámarksverðinu kr. 3,20 kg. . Svona eru búvísindi kratanna. ★ Sextugsafmæli á í dag frú Guðrún Hansdótir Hv.br. 22 „Mjö'lnir" árnar Guðrúnu allra heilla á þessum merkisdegi ★ Afli hefur verið dágóður, er gefið hefur á sjó. Helgi Ásgrims son á mjb. Hjalta fékk um þrjú tonn í fyrradag en Björn Skarp- héðinsson á trillubátmnn Björgu fékk um tvö tonn sama dag. ★ Lögin um lágmarksverð á fiski hrotín? Hrímnir hefur aug- lýst að hann kaupi ekki smá- fisk fyrir neðan vissa stærð, Nú er lágmarksverðið miðað við ail an fisk. Þessi ákvörðun Hrímnis virðist þvi vera tilraun til að fara í kringum lagaákvæðið um lágmarksverðið, og með því gera sinn hlut betri, en hlut fiskseljanda verri. Ekkert ann- að hraðfrystihús hefur áður gripið til þessara ráðstafana, svo vitað sé. S K R A yfirmenní trúnaðarstöðum „Þróttar“ Stjórn: Form.: Gunnar Jóhannsson; varaform.: Jóhannes Sigurðs- son; ritari: Hreiðar Guðnason; gjaldkeri: Þórodaur Guðmunds- son; meðstj.: Gísli H. Elíasson. Varastjórn: Ritari: Tómas Sigurðsson, Norðurgötu 19, gjaldkeri: Óskar Garibaldason, meðstj.: Páll Ás- grímsson. Trúnaiðarm.mð, auk istjómar: Guðjón Þórarinsson, Óskar Garibaldason, Þórhallur Björns- son, Jóhann G. Möller, Jón Jó- 'hannsson, Norðurg., Jónas Björnsson, Steingrimur Magnús son, Jóhann* Malmquist, Maron Björnsson, Páll Ásgrímsson, Guðmundur Konráðsson, Krist- inn Guðmundsson, Hallur Gari- baldason, Kristján Sigurðsson, Jónas Stefánsson. , Varamenn í trúnaðarmannaráð: Gunnar Guðbrandsson, Þor- valdur Þorleifsson, Njáll Sig- urðsson, Konráð Konráðsson, Erlendur Jónsson, Anton Ingi- marsson, Guðlaugur Sigurðsson, Jörgen Hólm, Heiðdal Jónsson, Arnór Sigurðsson, Mikael Þór- arinsson, Kristinn Jóakimsson. Endurskoðendur: Karl Dúason, Kristmar Ólafs- son. Varaendurskoðendur: Óskar Guðlaugsson, Bjarki Árnason. 1 húsnefnd Alþýðuhússins: Þóroddur Guðmundsson, Jó- hann G. Möller, Þórhallur Björnsson, Kristján Sigurðsson, Jóhann Guðjónsson. Varamenn í húsnefnd: Páll Ásgrímsson, Steinn Skarphéðinsson. Fræðslunefnd: Benedikt Sigurðsson, Jón Jó- hannsson, Norðurg., Einar Al- bertsson, Hlöðver Sigurðsson, Gísli Sigurðsson. Varamenn í fræðslunefnd: Jóhannes Hjálmarsson, Júlíus Júlíusson. Stjóm Hjálparsjóð „Þróttar“: Þóroddur Guðmundsson, Guð- jón Þórarinsson, Kristján Sig- urðsson. Varamenn í stjóm Hjálpar- sjóðs: Gunnar Jóhannsson, Jóhannes Sigurðsson. KRAKKAR! komið á miðAÚkudögum og selj Mjölni. , .. HÁ SÖLULAUN Verkakvennafélagið Brynja heldur aðalfund sinn n. k. þriðju Jdag. ; . , AUGLYSING Öll skattaframtöl verða að hafa borizt skatta- nefnd í síðasta lagi 10. febrúar n.k. Nefndin verður mönnum til aðstoðar við út- fyllingu skýrslanna í bæjarþingsalnum fram að þeim tíma, á þriðjudögum, miðvikudögum og laugardögum frá kl. 4—6 e.h. Siglufirði, 26. janúar 1949. F. h. Skattanefndar: GUNNAR VAGNSSON ATVINULEYSISSKRANING Samkvæmit samþykt bæjarstjómarfundar frá 31. jan. 1949 fer fram atvinnuleysisskráning dagana 3. 4. og 5. febr. n.k. (fimtu- dag, föstudag, og laugardag). Skráningin fer fram á skrifstofu Þróttar SuðurgÖtu 10 og stend- ur yfir frá kl. 10 —12 og 1 — 6 alla dagana. Nauðsynlegt er, að allir þeir, sem atvinnulausir em láti skrá sig. Siglufirði, 1. febrúar 1949. ) . ■ "' i .■ Bæjarstjórixm,

x

Mjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.