Mjölnir - 16.03.1949, Side 2
X
----fT>
MfÖLNIR
— VIKUBLAÐj— *
Útgefandi: SÓSlALISTAFÉLAG SIGJLUFJABÐAR
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Siguiðsson
Blaðlð kemur út /alla miðvikudaga >
Askriftargjald kr. 20.00 árg. Afgreiðsla Suðurgötu 10.
! Símar 194 og 210 (
Sigiufjarðarprentsiniðja h/f.
„Sjaldan launa kálfar ofeldi"
Blað Aiþýðuflokksins hér á staðnum, birti fyrir nokkru
síðan grein undir þessari yfirskrift. Tilefni greinarinnar var
það, að fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn hafði, að
dAmi; blaðsins, sýnt Aiþýðuflokknum vanþakklæti. Eíkki skal
farið út í þú sálma að dæma um, hvað hæft var í þessum að-
finnslum, en yfirskriftin yfir greininni hæfir svo yel fyrir verka-
menn að nota um bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins. Flokkinn sem
skreytir sig með nafni, alþýðunnar, og þreytist aldrei á að
sverja og sárt við leggja, að hann vilji hag alþýðunnar sem
beztan.
Hér á Siglufirði eru flestir kjósendur flokksins verkamenn
og millistéttarmenn, alþýðufólk, sem trúað hefur yfirlýsingum
hans um umhyggju fyrir hagsmunum alþýðunnar. Við síðustu
bæjarstjómarkosningár kusu svo margir alþýðumenn, með
flokknum að hann kom að þremur bæjarfulltrúum. Svo fóru
leikar, að þessir þrír bæjarfulltrúar gátu ráðið bæjarstjóra og
náð framkvæmdastjórn bæjarins i sínar hendur. Þessari að-
stöðu halda þeir enn. Nú hefur verlð margra mánaða atvinnu-
leysi hér á Siglufirði, en þrótt fyrir einróma kröfur verka-
mannafélagsins Þróttar, hefur bæjarstjóm Siglufjarðar ekkert
fengizt til að gera i þó átt að bæta eitthvað ofurlítið úr atvinnu-
leysinu. Það skal fúslcga viðurkennt, að bæjarstjóm hefði ekki
getað, þó hún hefði viljað, látið alla verkamenn i bænum hafa
vinnu. Hitt er svo jafn augljóst, að ofurlítið hefði hún getað
úr bætt. Bæjarstjóm hefði vel getað tekið í vinnu 40 til 50
manns, það hefði strax ofurlítið bætt úr, sérstaklega hefði vinn-
unni verið skipt. En eins og atvinnuástand er hér, hefði það
verið sjálfsagt mél, hjólpin að þvi að taka nokkra menn i vinnu,
hefði auðvitað orðið minni, hefði þeirri reglu verið fylgt að
láta pólitísbar skoðanir ráða og taka lítinn kratahóp í vinnuna
og skipta svo ekki um.
Ekkert myndi bæta eins vel úr atvinnuleysinu og það, að
bærinn keypti fisk og saltaði. Smábátamir hér gætu þá allir
stundað róðra, og mikill hópur manna haft af því atvinnu. Þá
væri og mikil vinna í landi við fiskverkunina, en sýnilegt er,
að „alþýðu/vinimir" þrúr, sem kosnir voru á atkvæðum alþýð-
unnar í bæjarstjóm, telja sig engar skyldur hafa í þessu efni.
Verði hér góð tíð og afli, er ekki hægt að búast við, að róðrar-
bátarair geti farið á sjó nemaþriðja eða fjórða hvera dag,
vegna móttökuvandræða á afla. Væri viðstöðulaus móttaka á
fiski, gætu bátamir róið hvern veðurfæran dag. Ef þvi slík
skilyrði yrðu sköpuð í landi, myndu sennilega koma hér á land
fiskur fyrir mörg hundmð þúsund krónum meira en ella. Það
verður enginn aðili hér í bænum, sem kaupir fisk í vor ef
bærinn gerir það ekki. Það verður því varla um deilt, að það er
beinlínis skylda bæjarstjómar að gripa hér inn í. En þessai
skyldu sjá ,„alþýðuvinimir“ þrír ekki. Þeir berja sér á brjóst
og tala um góðan vilja sinn, síðan ekki söguna meir. Svo komai
gömlu íhaldsröksemdirnar, engir peningar til, þó við vildum,
þá er þetta bara ekki hægt.
En skyldi ekki sumum kjósendum Alþýðuflokksins, hafa
dottið í hug við lestur greinarinnar í Neista. Yfirskrift greinar-
innar hæfir bezt hinum þrem pólitísku fcálfum, sem ég og
aðrir sýndum ofmikið traust þegar við kusum þá í bæjarstjóm?
AÐALFUNÐUR
verður jhaHhm ! Sósíahstafélagi Sigluf jarðar, föstudagtren
18. nmrz. Funduriim heftet kl. 8,30, í Suðurgötu 10.
. .v j 'f ■
DAOSKEÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Skýrela fonnamis og gjaMkera.
3. Kosningar.
in n 0i i
rposturmn
4. öxmur máJ.
STJÓRNIN
★ „Lángförrull“ skrifar: —
„Þegar menn hafa kynnst nýj-
um stöðum og nýju umhverfi,
verður þeim betur ljóst þegar
til átthaganna kemur aftur í
hverju þar er ábótavant. Það er
margt, sem finna má ábótavant
hér í bæ, þegar öðm hefur verið
vanizt annarsstaðar. Eg vil að-
eins nú nefna eitt hér: póstþjón
ustuna. Víðast hvar annars-
staðar, þar sem íbúar em orðnir
2000 eða fleiri og íbæimir farnir
að teygja sig yfir stórt svæði,
þykir sjálfsagt að fólk geti kom
ið toréfi í póst víðar e n í sjálfu
pósthúsdnu.
En svo er það ekki hér. Eftir
því sem ég hef kynnst íbænum
síðan ég kom heim aftur, finnst
nér að vel mætti hafa póstkassa
á tveim stöðum öðrum en póst-
húsinu, t. d. annan út við kaup-
féalgslbakaríið, þar sem er
mjólkUrbúð og mjög fjölfarið,
og hinn suður á Hafnarhæð eða
á gatnamótum Suðurgötu og
Laugavegs. Eyrinni getur vel
dugað kassinn í pósthúsinu.
Þá hef ég veitt því athygli, að
pósthúsið hér er opið skemmri
táma en annarsstaðar tíðkast,
t. d. á Isafirði og Akureyri. Hér
munu nú starfa þrír menn á
pósthúsinu, utan bæjarpósts, og
mun það vera mjög hliðstætt
t. d. við Isafjörð. Mér þætti því
ekki til of mikils ætlast þó af-
greiðslutími hér yrði lengdur úr
5 í 6—7 tíma á dag allt árið. —
Póstþjónustan er opinber stoifn-
un og ætti því að starfa éftir
ákveðnhm reglum t. d. hvað
snertir af greiðslutíma, svo hann
yrði sá sami allsstaðar þar sem
fólksfjöldi er svipaður, o.s.frv.
Póstþjónustan er í þágu al-
mennings, en ekki náðarbrauð,
sem honum hlotnast að njóta af
góðs fyrir tálstilli einhverra og
einhverra yfrpersóna.
Með þökk fyrir birtinguna
Laugförull.“
★ Óþarfa viðkvæmni. — Gunn-
ar Vagnsson, bæjarstjóri fór til
Reykjavíkur fyrir helgina; bað
hann Gísla Sigurðsson að gegna
embættinu í f jarveru sinni, enda
hefur Gísli verið staðgengill
hans áður. Hafa menn litið svo
á, að Gísli gerði þetta ekki utan
við sig. En nú ibregður svo við,
að Gísli neitaði að taka að sér
emibættið. Ihaldspiltur einn hér
I bænum gefur þá skýringu á
þessaii kynlegu neitun Gísla, að
hann hafi óttast að Skíðaborg
myndi næstu daga afhenda bæj-
arstjóra hinn nýuppbyggða
skíðastökkpall.
★ Bæjarpóstur góður. — Eg sá
að þú varst að stinga upp á því,
á dögunum við Sjálfstæðisflokk-
ixm að hann setti tvö langstrik
yfir fyrsta stafixm í nafni sínu.
Mér fannst þetta áægt uppá-
stunga en datt þá önnur í hug,
sem ég tel betri. Eg vildi leggja
til við flokkinn að hann breytti
nefni sínu, — kallaði sig Sjálf-
stæðislyddur, með tilliti til af-
stöðu flokksins í sjálfstæðismál-
irni þjóðarinnar. Þá vildi ég
leggja til að fiokkurirm skrif-
aði sitt nýja nafn með upphafs-
stöfum; setti tvö langstrik yfir
fyrsta stafinn í nafninu, en tvö
þverstrik yfir síðara ellið 'í nafn-
inu, þannig: $JÁLFSTÆÐIS-
£YDDUR — Liti nafnið þá vel
út, og færi vel á því að skamm-
stafa flokksnafnið þannig: $.£.
★ Árshátíð Þröttar var haldin
s.l. laugardag í Bíó.
Var skemmtunin mjög fjöl-
sótt og fór prýðilega vel fram.
Á borðum var ágætur matur,
skemmtiskráin ágæt í flestum
atriðum.
Gunnar Jóhannsson, form.
Þróttar flutti snjallt ávarp, —
þrjár ungar stúíkur sungu og
léku á gítara; Jóhann Malm-
qvist flutti frumort kvæði til
Þróttar, Jón Jóhannsson las
upp smásögu, þá var útvarps-
þáttur, gamanvísur vom sungn-
ar og að lokum var dansað.
Ásta Ólafsdóttir formaður
Brynju flutti ávarp.
★ Aðalfimdur Frjálsfþróttafé-
lagsins var haldinn um síðustu
helgi. í stjóm vom kosnir:
Form. Arthur Sumarliðason,
ritari. Guðm. Ámason, gjald-
keri Stefán Friðbjamarson, —
meðstj.: Hreinn Sumarliðason
og Haraldur Pálsson.
Varastjórn: Gunnar Jóhanns-
son, Sigurður Jónasson, María
Jóakimsdóttir.
Endurskoðendur:
Júlíus Júlíusson og Vilhjálmur
Sigurðsson. — Félagið hélt
skemmtifund s.l. sunnudags-
kvöld.
★ Aðalfundur. Félagið „Berkia-
vöm“ heldur aðalfund sinni n.k.
sunnudag 20. marz kl. 4,30 e.h.
í Suðurgötu 10. Félagsfólk ætti
að fjöhnenna og mæta stund-
vislega.
★ Merldsafmæli. Þann 13. þ.m.
átti Sigmundur Sigurðsson
Eyrargötu 14 hér í bæ 75 ára
afmæli.
Mjödnir ámar hqnum heilla í
tilefni þessa afmælis.
★ Athygli sósíalista er hér með„
vakin á augl. á öðrum stað í
blaðinu um aðalfimd sósíalista-
félagsins. Á fundinum verður
tekið á móti nýjum félögum.
Ættu þeir, sem hafa í huga að
gerast meðlimir iflokksins að
gera það á þessum fundi.
Efiing Sósíalistaflokksins er
nú orðið eitt af þýðingarmestu
verkefnum alþýðunnar. Með
eflingu hans skapar hún sér
sterkt vopn í baráttimni við
innlenda stéttaníðinga, land-
ráðamenn og svikara, en þeir
em nú orðið allsráðandi í for-
ystuliði stjómarfl. þriggja.
Efling Sósíalistaflokksins þýð
ir efld andstaða, aukin barátta
gegn landsölumönnum og yfir-
stéttarþjónum.
★ Þjóðvöm 5. og 6. tölblöð eru
komin og fást í Aðalbúðinni og
afgr. Mjölnis.
1 6. tbl. em m.a. þessar grein-
ar: Rekum flóttann, Iselnding-
ar; Var Noregur neyddur til að
hverfa frá hlutleysi?; Þegar
réttur er litli fingur er 031
hendin í hættu; Hugleiðingar
um hervamarbandalag, það,
sem hneykslaði útvarpsráð, — '
kafli úr erindi frú Aðalbjargar
Sigurðardóttur „Um daginn og
veginn" þ. 28. febr. s.l, •
Fleiri smágreinar em í blað-
inu m.a. grein rnn „nokkur
hundruð" manna sérfræðingafl.
sem Bandaríkin senda hingað
bráðum til að vinna að stækkun
Keflavíkurflugvailarins.
Kaupið og lesið „Þjóðvöm".
Nýja Bíó: Söngur frelsisins
Ensk kvikmynd með hinn heims
fræga söngvara Paul Robeson
í aðalhlutverkinu.
Kvikmyndin er gerð eftir
sögu sem hefst kringum 1700 á
eynni Casanga, skammt undan
vesturströnd Afríku.
Segir hún frá flótta drottn-
ingamiðja eins, sem ekki gat
þolað harðýðgi móður sinnar.
Lenti hann síðan 'i höndum
þrælasala..
Afkomendur hans höfðu um
tvær aldir verið í Englandi,
fyrst sem þrælar en síðan frjáls-
ir en fátækir verkamenn.
Myndin sýnir John Zinga,
hafnarverkamann, einn af niðj-
unum.
Hann er fátækur, en hefur
dásamlega söngrödd.
Myndin sýnir hvemig rödd
hans verður til þess að vekja at-
hygli á honum, gera hann fræg-
an.
En þráin til átthaganna í Cas-
anga; þráin til frelsisins knýr
hann til að afneita glæsilegu
tilboði, en í þess stað að fara til
eyjarinnar og kynnast lífskjör-
um ættstofns síns.
Söguefnið snertir frelsisbar-
áttu svertingjans, — og Paul
„Rebeson syngur söng ifrelsis-
ins“ inn í hversmans eyra.
Skíðasleðarnir
komuir
AÐALBIJÐIN H. F.