Mjölnir - 01.06.1949, Qupperneq 2
2
MJÖLNIB
•”“1
— VIKUBLAÐ —
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SIGLUFJARÐAR
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson
Blaðið kemur út alla miðvikudaga
Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10.
Símar 194 og 210
Siglufjarðarprentsmiðja h/f.
Að fljóta sofandi að feigðarési
Það hefur löngum þótt hættulegur löstur á einstaklingum, að
gera sér ekki grein fyrir aðsteðjandi hættum og gera aldrei
varúðarráðstafanir ef yfir vofa einhver áföll eða vandræði. Því
miður er því þó svo farið um ýmsa einstaklinga að þeir gera aldrei
neinar varúðarráðstafanir gegn fyrirsjáanlegum áföllum, en láta
allt fljóta áfram áhyggjulaust, þar til ógæfan slkellur yfir, —
ógæfa, sem hægt hefði verið að forðast með fyrirhyggjusemi og í .
tíma gerðum varúðarráðstöfunum.
Svo leiður löstur, sem þetta er á einstaklingum, þá er hann
. þó mörgum sinnum leiðari og hættulegri þegar um stjómir heiila
bæjarfélaga er að ræða. En svo virðist sem meirihluti bæjarstjórn-
ar Siglufjarðar starfi eftir reglunni, „vemm áhyggjulausir, látum
allt fljóta áfram án þess að hugsa fyrir framtíðinni." Undanfarin
fjögur ár hefur slldin bmgðist, og þó allir voni að úr því rætist
og síldin fari aftur að veiðast, veit þó engin með vissu að sú von
rætist. Augljóst má því öllum vera, að bær eins og Siglufjörður,
sem byggt hefur alla sína afkomu á s'íldveiðunum, þarf að gera
varúðarráðstafanir til að mæta þvi þunga áfalli, ef síldveiðamar
bregðast áfram.
Bæjarstjórnarmeirihlutinn á Siglufirði virðist þó l'ita öðmvísi
á það mál; útgjöld bæjarins hafa í algem fyrirhyggjuleysi verið
stóraukin, — ekki útgjöld til atvinnuaukningar eða annarra þarf-
legra framkvæmda, heldur eyðslueyrir. Arðbærar, dýrmætar eignir
bæjarins hafa verið, undanfarin ár, arðlausar vegna vanhirðu og
fúnað og ryðgað niður. Þær verklegu framikvæmdir sem bærinn
og höfnin hafa haft með höndum, hafa orðið mikið dýrari en þurft
hefði að vera, hefði eitthvert eftirlit verið haft með þeim. En
eftirlit hefur ekkert verið af hálfu bæjarstjórnar. Erindi sem
bæjarstjóm berast, liggja stundum marga mánuði óafgreidd; —
bæjarstjóri tekur mikilvægar ákvarðanir án þess að bera þær
undir bæjarstjórn; ákvarðanir, sem honum er með öllu óheimilt að
taka, en heyra undir bæjarstjórnina. Skuldir bæjarins og fyrir-
tækja hans vaxa ískyggilega og stórar upphæðir em í vanskilmn,
enda er lánstraust bæjarins farið veg allrar veraldar, og svo
komið að hvorki lánsstofnanir né aðrir þora að trúa Sigluf j.kaupst.
fyrir neinu Haldi svo áfram sem nú gengur, er ekkert annað
sýnilegt en að f járforráðin verði tekin af Sigluf jarðarkaupstað og
ríkisstjórnin skipi hingað ,,jari“ til að segja Siglfirðingum hvar
þeir megi sitja og hvar standa. Aðkomumaðurinn sem hér er
bæjarstjóri óttast það kannske ekki svo mikið, þó svo fari að
Stefán Jóhann eigi eftir að skipa Siglfirðingum húsbónda, enda
hefur bæjarstjórinn miklu meiri áhuga á pólitískri baráttu, en
málefmnn kaupstaðarins og er ólíkt duglegri við flokksstörfin fyrir
kratana, bæði blaðaskrif og annað, heldur en bæjarstjórastörfin.
Hitt er svo annað mál, að bæjarbúar almennt munu hafa á því
nokkuð aðrar skoðanir.
Sjálfsagt mun það algert einsdæmi í landinu, sem hér hefur
átt sér stað í vetur, að flestallir verkamenn bæjarins gengi at-
vinnulausir allan veturinn, en bæjarstjórn geri ekkert, bókstaf-
lega ekkert, til að bæta úr því ástandi, en þetta virðist bæjarstjóri,
floklksbræður hans og haökjur þeirra í bæjarstjórninni, Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn, telja eðlilegt og sjálfsagt.
Sósíalistar fengu teknar upp á fjárhagsáætlunina í vetur 300
þús. krónur til bátakaupa og útgerðaraukningar 'i bænum. Nefnd
hefur verið skipuð til að gera tillögur um til bæjarstjórnar, hvemig
fé þessu verði varið. Nefndin er nú fyrst að hefja störf svo ef til
vill er ’ofsnemmt að spá nokkru um hennar tillögur, en ýmis
sólarmerki benda til þess að 'kratamir æth sér algerlega að svíkja
þetta mál; hvort sem einhverjar samþykktir verða gerðar í því
eða ekki. En þar sem þetta er alsendis eina ráðstöfunin sem
samþykkt hefur verið í bæjarstjórn, til atvinnuaukningar í bænum^
þá ættu bæjarbúar að fylgjast vel með, hvernig málinu reiðir af.
Það er þegar komið of langt á brautinni, „fljótum sofandi
að feigðarósi“ og mál til komið að bæjarbúar spyrni við fótum og
knýji bæjarstjóm til að framfylgja þessari einu samþykkt sinni
um atvinnuaukningu í bænum. Yfirgnæfandi meirihluti Siglfirðinga
er orðin yfir sig þreyttur á andvaraleysi og ræfilshætti bæjar-
stjómarinnar, og krefst þess að hætt verði við að fljóta sofandi
að feigðarósi.
★ Gagnfræðaskóla Sigjufjarðar
var slitið hinn 28. maí. Skóla-
hald var 'i vetur með svipuðu
sniði og undanfarna vetur. 1
skólanum voru við nám 105
nemendur í þrem bekkjum. 1.
bekkur var tviskiptur. Hæstu
einkunn við gagnfræðapróf
hlaut Björg Arnþórsdóttir, 7,38.
I 2. bekk varð hæstur Ríkharð-
ur Sigurðsson með 8,68, og í 1.
bekk Jóhann S. Jónsson, 9,06,
sem er 1. ágætiseinkunn. Sex
nemendur 3. bekkjar gengu und-
ir landspróf og stóðust það 2.
★ Barnaskóla Siglufjarðar var
slitið hinn 28. maí Að þessu
sinni útskrifuðust 62 böm, þar
af 44 með 1. einkunn. Hæstu
aðaleinkunnirnar við fullnaðar-
próf hlutu Halla Sigurðardóttir
og Kjartan Ólason 8,7, og
Júlíus Eiríksson, sem fékk 8,5;
en hæsta einkunn yfir skólann
hlaut Gígja Gmmlaugsdóttir
6. bekk, 1. ágætiseinkunn 9,2. —
Flest fullnaðarprófsbarnanna
eiga ólolkið sundprófi.
Kvillasemi var með minnsta
móti í skólanum í vetur, þar til
snemma í maí, um það leyti
sem pfóf byrjuðu. Alls sóttu
skólann 397 börn vetur, og var
þeim skipt í 16 deildir. Húsnæði
sikólans er nú orðið of lítið fyrir
starfsemi hans, og fyrirsjáan-
legt, að þrengslin verða enn til-
ifinnanlegri næstu ár, ef 'íbúa-
tala bæjarins stendur í stað
eða fer vaxiandi.
★ Aðalfundur Slysavamarfél.
Siglufjarðar (karladeild) var
haldinn s. 1. sunnudag í Gilda-
skálanm.
í stjórn vom kosnir: Þórarinn
Dúason form. Magnús Vagnss.,
ritari Georg Pálss., gjaldkeri.
Meðstj.: Gunnl. Guðjónss., Vil-
hjálmur Sigurðss. og Jóhann
Jóhannesson.
1 ráði mun vera að koma upp
björgunarsveit fyrir Siglufjörð
og nágrenni, og hressa upp á
slysavarnarstarfsemina á ann-
an hátt, enda þess ekki vanþörf
bar sem allt starf deildarinnar
hefur legið niðri að undanfömu
Verður væntanlega nánar
skýrt frá ýmsum framkvæmd-
um, sem hin nýkjörna stjórn
hefur á prjónunum um eflingu
félagsstarfsins.
★ Veðráttan. Þegar ég skrifaði
seinast í Bæjarpóstinn, leit svo
út, sem snjórinn væri smátt og
smátt að bráðna, rindar, börð og
gnmdir vom að koma upp und-
an snjónum, en sinu blær hv'ildi
yfii', bleikur dauðans blær, —
andstæða grænkunnar, lit l'ifsins
og gróðursins. Og svo seinkaði
útkomu Mjölnis og þá var kom-
in bylur og allt orðið hvítt —
hvitt — hv’itt. Snjór yfir öllu,
ög svo er enn.
Síðustu daga hefur kyngt nið-
ur óhemju snjó svo jarðbönn
em skepnmn. Heyleysið* hrjáir
bóndami. Sauðburður stendui’.
yfir og allir sem til þekkja geta
gert §ér í hugarlund hverjir
erfiðleikar em honum samfara
'i svona harðindum. Og hér í bæ
tefur snjókoman vinnu, — gerir
allt erfiðara, og mönnum finnst
aftur komin vetur. Raunar hefur
hann verið samfelldur og er bú-
inn að stela nærri sex vikum
af okkar stutta sumri. Hvað
stelur hann mörgum í viðbót?
★ Brotnaði þekja. — Og snjór-
inn braut niður þak á nýbyggðu
húsi, sem Páll Guðmundsson,
smiður á við Grundargötu. Er
honum talsvert tjón að þessu,
ekki sízt fyrir það, að hann var
langt kominn með innréttingu
íbúðar 'i því. Fleiri húsþökum
var orðið hætt, en með mokstri
tókst að forðast tjón.
★ Aðalfundur Byggingarfélags
verkamanna. — Athygli félags-
manna í Byggingarfélagi verka-
manna er hér með vakin á. aug-
lýsingu á öðmm stað í blaðinu
'i dag, um aðalfund félagsins. —
Hann verður haldinn á annan
í hvítasunnu kl. 2 e. h. í Suður-
götu 10.
★ Veghefill bæjarins. — Bæj-
arstjóm hefur nú fest kaup á
veghefli og er hann kominn
hingað til bæjarins. Við komu
hans vakna vonir bæjarbúa um,
að göturnar verði ekki jafn illa
yifiirferðar 'i sumar, eftir að
hann er tekin til starfa. En það
þarf auðvitað meira en veghefil
til þess að þær verði góðar.
Flestar em þær orðnar slitnar
niður í púkk, eða þá bara niður
í mold og möl, sem jarðvegurinn
undir er myndaður úr,
aðrar hafa ekki fengið kynni af
ofaníburði, — líkjast helzt illa
ruddum götuslóðum upp til
heiða. En hvernigVæri fyrir bæ-
inn, að fá sér nýjan verkstjóra
fyrst nýr veghefill er kominn?
★ Berklaskoðun. — Frá því hef
ur verið skýrt í Akureyrarblöð-
unum, að almenn berklaskoðun
eigi að fara fram þar 'i bæ í
þessum mánuði. Fyrirkomulag
þessarar skoðimar verður með
líikum hætti og berklaskoðun
sú, sem fram fór í Reykjavík
fyrir nokkrum árum. Slíkar
berklaskoðanir em sterknr þátt-
ur í baráttunni við hinn skæða
sjúkdóm og þyrftu að fara fram
um land allt. — Hvenær kemur
röðin að okkur Siglfirðingum?
Er ekki hægt að gera eitthvað
til að flýta því, að berklaskoðun
allra bæjarbúa verði framkv.
hér?
★ Gestur Fanndal, kaupmaður
auglýsir í blaðinu i dag, að hann
sé byrjaður að senda heim vör-
ur. Hafa ekki heimsendingar á
'á vörum byrjað 1. júní eða fyrr
undanfarin ár? Mig minnir það.
Hvað dvelur Orminn langa í
þetta skipti? Kannske það sé
snjórinn?
♦♦♦♦»»♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Ný skáldsaga:
Jóhannes ór KÖtlum:
Sagan gerist í sveit fyrir aldamótin, í þann mund, er fjöldi
manna flutti búferlum til Vesturheims. Höfuðpersónan er
Ófeigur grallari, kotbóndi og listamaður, höfðingi í skapi og
sérkeimilegur. Hann lifir í uppreisn gegn umhverfi sínu, er
drykkfelldur og kvenhollur mjög, uppivöðslusamur og óstýri-
látur, en vinsæll af alþýðu.
Dauðsmannsey er djörf og stórbrotin skáldsaga; fjörlea
rituð og svo sþennandi, að maður leggur ekki bókina að Mu
jt
frá sér, fyrr en hún er að fullu lesin. D
Jóliannes úr Kötlum kemur hér fram sem nýr, þroskaður
skáldsagnahöfimdur.
Bókamenn hafa beðið með óþreyju eftir nýrri skáldsögi
fra Jóhannesi. Hér er hann kominn með sérkennilega bók, sem
áreiðanlega á eftir að vekja miklar deilur.
Dauðsmannsey er hressandi bók, sem enginn sér eftir að lesa.
AÐALFUNDUR
Byggingafélags verkamanna, Siglufirði, verður lialdinn mánu-
daginn 6. júní (annan hvítasunnddag), kl. 2 e. h. í Suðurgötu 1(
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. ;
Félagsmenn eru hvattir til að f jölmenna.
Stjórnin
TRÉ T E X
(Stærð 4X9 fet).
Verðið er mjög hagstætt. Leitið upplýsinga í
Einco.