Mjölnir - 01.06.1949, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 1. júní 1949.
■(
21. tölublað. 12. árgangor,
Breytingartillöpr Verkamannafél. Þróttar
á kaupgjaldssamningunum
Hér íara á eftir breytingartillögur Verkamannafélagsins Þróttar
á kaupgjaldssamningmn. Hafa tillögur þessar, ásamt greinargerð
fyrir þeim, sem birt er á 3. síðu blaðsins, verið samjjykktar með
samhljóða atkvæðum af stjórn félagsins og trúnaðarmannaráði og
af félagsfundi, sem lialdinn Var hinn 25. !maí s.l. Hefur stjóm fé-
lagsins nú tilkynnt latvinnurekendum þessar lákvarðanir félagsins.
Engar {samningaumleitanir eru íbyrjaðar, en samninganefndin hefur
óskað eftir að þær byrji nú úr mánaðamótunum.
í samninganefnd Þróttar eru jþessir menn: Gimnar Jóhannsson,
Hreiðar Guðnason, Einar Ásgrímsson, Steingrímur Magnússon, Jó-
hannes Sigurðsson,/Gísli HL Elíassón, Mattliías Jóhannsson, Þorvald-
ur Þorleifsson og Óskar Garibaldason. ,
1. grein í verkakaupssamningum
við Síldarverksmiðjur ríkisins um
utanbæjarmenn falli burt.
2. grein. Þar verði sú breyting,
að næturvinnutaxti gildi frá kl. 20
til kl. 7 að morgni.
3. Sé unnin eftirvinna reiknist
kaffit'íminn frá kl. 16 til kl. 16,30.
4. Lágmarkskauptaxti verði sem
hér segir:
a. Almenn dagvinna alla mán-
uði ársins skal vera kr. 3,25.
b. Handlangarar hjá múrurum,
tilsláttarmenn (byrjendur), þróar-
menn, skipavinna, stókerkynding
á kötlrnn og olíukynding á kötlum
og þurrlkurum, lagermenn, vindu-
menn, bílstjórar, holræsahreinsun,
grjótnám, steypuvinna, slippvinna,
svo sem hreinsun, málun, smurn-
ing og setning skipa, mæling í
hrærivél og gæzla hrærivélar og
íshúsvinna við síld kr. 3,50.
c. Kolavinna, salt- og sements-..
vinna, losun síldar og síldarúr-
gangs, beina og fiskúrgangs, loft-
bonm, rafmagnsborun, hjálpar-
menn í jámiðnaði (þ. e. verkamenn
sem vinna til aðstoðar sveinum og
meisturum með jámsmíðaverkfær
um, svo sem hnoðahitarar, viðhald-
arar og ásláttarmenn í eldsmiðj-
um), grjótsprengingar, kynding á
kötlum með skóflum, fullgildir díx-
ilmenn, fagvinna ófaglærðra verka
manna við trésmíði, málun, járn-
smíði, röralagnir, raflagnir, bíla-
viðgerðir, þar með talin ryðhreins-
un, málun bíla, vélgæzla, stjórn
vegavinnuvéla, kranastjóm (stórir
lyftukranar) og vélskóflna; aðstoð
armenn við vélaaðgerðir, kalfökt-
im, kr. 3,70.
d. Fyrir ryðhreinsun með raf-
tæk jum og botnhreinsun skipa inn-
anborðs, hreinsun með vítissóda,
boxa- og katlavinna, þar með talin
öll vinna í þurrkara og sótgöngum,
hreinsun ;og málun lýsistanka að
innan, kr. 4,00.
e. Fyrir möl á bryggju pr. tunnu
kr. 2,65. Fyrir teningsfaðm af
grjóti komið á bryggju kr. 132,00.
5. Mánaðarkaup í 2—6 mánuði
verði reiknað út eftir tímavinnu-
kaupi.
6. Eftirvinna reiknist með 60%
álagi. Helgidags- og næturvinna
reiknist með 100%' álagi. Á alla
vinnu, hvort sem um er að ræða
tímakaup, mánaðarkaup eða akk-
orðsvinnu, skal greiða orlof 4%
svo og full-a dýrtíðarvísitölu.
7. 1 allri dagvinnu skal atvinnu-
rekandi greiða minnst hálf dag-
laun (4 klst. dagv.) sé unnið
skemiir en 4 klst. hvenær sem
vinna hefst. Sé unnið 6 klst. í dag-
vinnu, þar með talinn kaffitími,
greiðist full daglaun.
Kvaðning til vinnu telst liggja
fyrir, ef verkamönnum er ekki til-
kynnt að kveldi á vinnustað af
verkstjóra, að ekki sé ætlazt til að
þeir mæti til vinnu næsta morgun.
Hamli veður eða aðrar óviðráðan-
legar ástæður að dómi verkstjóra
og trúnaðarmanns Þróttar á vinnu
staðnum að morgni, skulu verka-
menn, sem mæta til vinnu, fá
minnst 2 klst. greiddar. Sömu regl
ur skulu gilda ef verkamenn eru
boðaðir til vinnu að heiman frá sér
af verkstjóra eða trúnaðarmanni
hans.
8. Stjórn Verkamannafélagsins
Þróttur er heimilt að velja sér
trúnaðarmenn úr hópi verkamanna
á hverjum vinnustað, samkv. lög-
um mn stéttarfélög og vinnudeilur,
og samkvæmt þeim reglum, sem
gilt hafa á milli stjórnar Þróttar
og vinnuveitenda, þar með taldar
síldarverksmiðjurnar.
Óheimilt er að segja trúnaðar-
manni upp vinnu meðan vinnu er
haldið áfram á þeirri vinnustöð,
sem hann er trúnaðarmaður á.
Verkamönnum er heimilt að
snúa sér til trúnaðarmanns með
hverskonar óskir og kvartanir,
sem hann kemur á framfæri við
vinnuveitanda eða umboðsmenn
hans. Trúnaðarmaður skal í engu
gjalda þess hjá vinnuveitanda, að
hann ber fram kvartanir verka-
manna.
9. Næturvarðmenn, aðrir en
vökumenn á síldarplönum, skulu
hafa kr. 40,00 fyrir 12 stunda vöku
Næturvarðmenn skulu eiga frí
hverja sjöundu nótt, og greiðist
ekki kaup fyrir hana sé hún ekki
unnin, sé hún hinsvegar unnin,
greiðist hún með kr. 80,00 fyrir
12 stunda vöku.
Vökumenn á síldarplönum skulu
hafa kr. 700,00 pr. mánuð miðað.
við 8 stunda vöku.
10. Á laugardag fyrir páska og
hvítasunnu, svo og aðfangadag
jóla og gamlaársdag, skal helgi-
dagskaup greitt eftir kl. 16 sé
vinnu haldið áfram. Sama regla
skal gilda síðasta vetrardag og
dagana fyrir 17. júní og 1. maí.
11. Á föstum vinnustöðum skulu
vinnuveitendur sjá um að lyfja-
kassi sé á staðnum með nauðsyn-
legum lyfjum og umbúðum, svo
og salerni, vatn og vaskur. Á slík-
um vinnustöðmn skulu verkamenn
eiga aðgang að góðu húsnæði, að
dómi trúnaðarmanns Þróttar, til
kaffidrykkju .og geymslu á hlífð-
arfötum og vinnufatnaði.
Sé um vinnu fyrir utan bæixm
að ræða á starfssvæði Þróttar,
Skulu vinnuveitendur hafa hús-
næði fyrir verkamenn til að drekka
kaffi og matast í. I skýlunum
skulu vera borð og bekkir og Skal
þess gætt af verkstjóra, að þau
séu hrein og þrifaleg, ennfremur
skulu vera þar hitimartæki. Verði
verkamenn fyrir tjóni, missi hlífð-
arfata o. fl. er orsakast af bruna
á vinnustaðnum, Skal það bætt
eftir mati. Samnnigsaðilar eru
sammála um að vinna að því við
alþingi og ríkisstjórn, að sam-
þykkt verði ný og fullkomin lög-
gjöf um öryggi verkamanna við
vinnu og útbúnað vinnutækja og
verksmiðja.
12. Atvinnurekendum er óheim-
ilt að taika útlending í vinnu, sem
ikki erbúsettur í bænum nema með
leyfi verkamannafél. Þróttar, enda
hafi viðkomandi maður vinnurétt-
indi. Undir þetta ákvæði fellur öll
vinna við ís og snjóflutning um
borð í erlenda fiskibáta og skip,
flutningur á beitu, afgreiðsla og
flutningur á hverskonar vörum til
og frá bátum og Skipum, öðrum
en nauðsynlegum matvælum til
skipshafna.
Öll vinna af erlendum mönnum
við affermingu skipa er óheimil.
13. Lækki gengi 'íslenzkrar krónu
hækki kaupið sem þv'í nemur.
„VerkfalliniT í Berlín að Ijúka
Verkfallið var felt við alls-
herjaratkvæðagreiðslu í félagi
jámhrautarstarfsmanna, * en
kratalýður og skemmdarverka-
menn í þjónustu bandarísku
hernámsstjórnarinnar í Vestur-
Berlín boðuðu til þess samt!
Yfirstjóm neðanjarðarjárn-
brautanna er á hernámssvæði
Sovétríkjanna. Hafa starfs-
mönnum þeirra verið greidd
laun í austurmörkum, en þeim
starfsmönnum, sem bjuggu á
hernámssvæðum Vesturveld-
anna voru veittar sérstakar í-
vilnanir af hálfu brautarstjóm-
arinnar og tilkynnt var, að frá
og með 1. júní fengju þeir greitt
kaup í vesturmörkiun.
Klíka sósíaldemó'krata í fé-
laginu krafðist samt sem áður
allsherjaratkvæðagreiðslu innan
þess um verkfall til að knýja
fram kaupgreiðslu' í vestur-
mörkum þegar í stað. Var verk-
Sósíalistar!
Munið að koma á skrifstof-
una til að greiða flokksgjöld
ykkar og blöðin. Látið ekki
starfsmann flokksins þurfa pð Bergmál, Hjartaáshm, öíl ný-
ómaka sig heim til ykkar til að komin.
innheimta þessi gjöld.. .
j bókaVerzun l. blöndal
Nýjar bækur
Skeyti til Garcia
Launsonurinn
Ást sveitastúlkunnar
Útlagaerjur
Tvennar ástir
Bankaránið
Afmælisdagabókin með stjömu-
spám ;
Víðsjá, Heimilisritið, Stjörnur,
Heimsend-
ingar
vara eru byr jaðar aftur
Hringið í síma462.
Gestur Fanndal
S9GLFIR0INGAR!
Notið hinar beinu
flugferðir
vorar til og frá Reykjavík.
ÖIÁNUDAGA
MIÐVIKUDAGA og
LAUGARDAGA
Afgreiðslu í Siglufirði asnast
Víkingxrr h.f., Aðalgötu 21,
sími 251.
LOFTLEIÐIR H. F.
Nýja Bíó
Miðvikudag kl. 9:
I Fómfús ást
Fimmtudag kl. 9:
TOPPER
Föstudag kl. 9:
Fórnfús ást
Laugardag kl. 9:
Skautadrottningin
Annan í Hvítasunnu kl. 3:
FIESTA, stórfögur litmjTid
Kl. 5:
TOPPER
Kl. 9:
BLIKA A LOFTI
með Ingrid Bergman
Krakkar!
Duglegan krakka vantar nú
þegar til að bera Mjölni til kaup-
enda 1 Skriðuhverfi.
Einnig kemur til með að vanta
krakka til að bera Mjölni og
Þjóðviljann út í nokkrum öðr-
um hverfum.
Komið og talið við afgreiðslu
Mjölnis í Suðurgötu 10.
Vinnið ykkur inn peninga
sjálf .með hægu móti.
fallið fellt með yfirgnJefandj
meirihluta atkvæða, en kLatarn-
ir boðuðu engu að síðjjur til
verkfalls hinn 20. mai, œ. e. 10
dögum áður en greiðshlihiar í
vesturmörkum áttu að kloma til
framkvæmda! Tóku þei,r á sitt
vald brautarstöðvar á hemáms-
hlutrnn vesturveldanna og unnu
ýmis skemmdarverk á bnautun-
um. Brautarlögregla frá Sovét-
hernámssvæðinu kom þá á vett-
vang og tók flestar stöðvamar
á sitt vald. Vopnuðust kratar
þá og gerðu árásir á lögregluna
á ýmsum brautarstöðvum, en
lögregla Vesturveldanna horfði
á og hafðist ekki að, fyrr en 24.
maí, er henni var fyrirskipað
að ta-ka við gæzlu stöðvanna.
Hafa kratar og óaldarlýður sá,
er ásamt þeim stóð fyrir óeirð-
unum og skemmdarverkunum,
haft hægt um sig síðan.
Blöð á hemámssvæði Sovét-
ríkjanna í Berlín fullyrða, að
„verikfall“ þetta, sem stofnað er
til í trássi við féLagssamtök jám
brautarstarfsmanna, í þeim til-
gangi að knýja fram launa-
greiðslur í vesturmörkum, ein-
um 10 dögum áður en tilkynnt
hafði verið, að þær ættu að
hefjast, sé gert að undirlagi
bandarísku- hemámsstjómarinn
ar. Bandarísku herforingjamir
og þýzkir hægrikratar, sem eins
og flokksbræður þeirra í öðrum
löndum em auðmjúk handbendi
og þý Bandaríkjamanna, vilja
allt til þess vinna, að egna til
óeirða og skapa þar með ástand,
sem torveldar samkomulag um
Þýzkaland á utanríkisráðherra-
fundinum í París.
Samkvæmt tilkynningu þeirri,
er áður getur, eiga greiðslur í
vesturmörkum að hef jast í dag,
og er því þess að vænta, að
þessu sérkennilega „verkfalli"
ljúki í dag eða næstu daga.
V erkalýðsleiðtogar
myrtir
Fyrrverandi form. Alþýðu-
sambands Malakkaskaga, A.
Ganapathy, var hengdur í fang-
elsi í Kuala Lumpur 4. maí s.l.
Ganapathy var Jndverji, og er
hann fyrsti Indverjinn, _ sem
brezka sósíaldemokratastjómin
og yfirböðull he^har á Maíakka-
skaga, Malcolm Mac ^ Donald,
myrða samkvæmt núgiidandi
lögum á skaganum. Hefur morð
hans vakið feikna gTemju i_ Ind-
landi, svo að indverska stjórmn
hefur ökki séð sér annað fært
en að senda Bretum mótmæla-
orðsendingu vegna aftökunnar.
Ganapathy var dæmdur til
i dauða 15. marz s.l. fyrir að hafa
haft 1 fórum sínum skammbyssu
og sex skot.
"Veeransenan, sem tók sæti
Ganapathys í stjóm Alþýðu-
sambands Malakkaskaga í vet-
ur, þegar hann var handtekinn,
var fyrir nokíkru skotinn af
Ghurka-herdeild, er hann reyndi
að flýja úr skæruliðabúðum í
frumskógi í malajaríkinu Negri
Sembilan yfir landamærin til
Kína.
Alþjóðasamband verkalyðsins
hefur sent S.Þ. og brezku stjóm
inni harðorð mótmæli út af báð-
um þessum morðum.