Mjölnir - 06.07.1949, Qupperneq 1
Til kaupnda Mjölnis
Gjalddagi blaðsins var 1. júli
— Eru það vinsamleg tilmæli
til kaupenda, sem eltki liafa
greitt áskriftagjald sitt, að þeir
greiði það hið fyrsta.
Afgreiðslan.
Miðvikudagur 6. júlí 1949.
26. tölublað. 12. árgangur.
ti
* ★ ★ IJR BÆNIIIVI ★ ★ *
Hvenær opnast Skarðsvegurinn?
Von er á stórri jarðýtu til að ryðja af veginum
með um næstu helgi. Talsverður snjór á veginum.
Blaðið hafði í morgun tal af
ibæjarstjóra, Gunnari Vagnssyni
til þess að fá fréttir um Skarðs-
veginn. Sagði hann svo frá, að
undanfarnar vikur hefði staðið
í sífelldu stappi með að útvega
ýtur, eina eða fleiri, til að moka
veginn. Vegamálaskrifstofan
hefði talið sig geta treyst á að
fá leigða ýtu, sem Hólabúið á,
eða aðra, sem Búnaðarsamband
Skagafjarðaf á. En nú hefðu
þær vonir brugðizt, þar sem ýt-
urnar hefðu verið teknar til
jarðræktarframkvæmda, — og
flugvallargerðar á Sauðárkróki.
Mikillar óánægju gætir nú hjá
verkamönnum, sem vinna hjá
bænum, yfir þeirri óreglu, sem
er á kaupgreiðslum. Eru margir
verkamenn nú að byrja fjórðu
vinnuvikuna án þess að hafa
fengið greiðsilu, nema hvað sum-
ir hverjir hafa fengið eitthvað
smávegis, hálft vikukaup eða
svo. Nokkrir eiga þó inni kaup
fyrir lengri tíma, svo sem verka
fólk á Hóli, sem ekki hefur
fengið greiðslu í mánuð eða
lengur.
Verzlunarmannafél.
Siglufjarðar gerir
nýjan samning
Verzlunarmannafélag Siglu-
hefur nýlega gert nýjan samn-
ing við vinnuveitendur sína. Pá
afgreiðslustúlkur, samkv. hin-
um nýja samningi 50 króna
grunnkaupshækkun á mánuði,
og ennfremur var því ákvæði
bætt inn í, að stúlkur, sem ekki
hafa verzlunarskólamenntun,
skuli á 6. starfsári hækka upp í
sama launaflokk og þær starfs-
systur þeirra, sem þá menntun
hafa.
Kauphækkun hjá karlmönn-
um er 25 kr. í grunn á mánuði.
Samkvæmt gamla samningn-
um bar fólki, sem slasast við
vinnu, fullt kaup í 7 daga. 1
nýja samningnum er þetta
breytt, þannig að starfsfólk hjá
kaupmönnum fær fullt kaup í
12 daga, en starfsfólk kaupfé-
lagsins í 15 daga.
Sá tímij sem afgreiðslufólki
I morgun, er bæjarstjóri átti
tal við skrifstofu vegamálastj.
um þetta mál, fékk hann þau
svör, að reynt yrði að koma
hingað norður stórri ýtu, sem
vegamálastjórnin hefur umráð
yfir. Kvaðst bæjarstjóri gera
sér vonir um, að hún kæmi með
Goðafosi nú um helgina, og að
hægt yrði að byrja þá undir
eins að ryðja af veginum'.
Mikill snjór er á veginum
enniþá. Hrólfur Ásmundsson,
vegavinnuverkstjóri í Skaga-
firði, fór s.l. föstudag að til-
hlutan vegamálaskrifstofunnar
Þetta ófremdarástand má
ekki viðgangast, og er merki-
legt að bæjarstjóri skuli ekki
hafa lagt málið fyrir þá nefnd
sem á að fjalla um fjárhagsmál
bæjarins, sem sé Alisherjar-
nefnd, en í stað þess tekið á sig
Iþá ábyrgð, að láta þetta dank-
aet svona. Bæjarbúar eiga líka
heimtingu á því að fá að vita,
hvernig fjárhag bæjarins er
fcomið, hvort áliti hans sé nú
þannig háttað hjá lánsstofnun-
um, að hann fái ekki bráða-
birgðalán til reksturs, eða hvort
einhverjar aðrar ástæður liggja
til þess að svona er komið. Er
þeirri áskonm hér með beint til
bæjarstjóra, fyrir hönd margra
bæjárbúa, að hann gefi hið allra
fyrsta upþlýsingar mn, hvernig
hann hefur hugsað sér að ráða
fram úr þessu.
k'ber að vinna í verzlununum
eftir lokunartíma, var með nýja
samningnum styttur úr klukku-
tíma niður í hálftíma.
Ennfremur náðist samkomu-
lag um breytingu lokunartíma
sölubúða, afgreiðslufólki í hag,
og mun það samkomulag aðeins
bíða samþykktar bæjarstjórnar
til þess að öðlast fuillnaðargildi,
en er þó komið til framkvæmda
í verzlununum.
Eru þá taldar helztu breyt-
ingar á samningnum.
Þá mun verzlunarmannafé-
lagið einnig hafa lokið að mestu
eða öllu leyti samningsgerð við
brauð- og mjólkurbúðir bæjar-
ins. Verður væntanlega sagt frá
þeim samningum í næsta blaði.
I samninganefnd Verzlunar-
mannafélags Siglufjarðar voru
þeir Níls ísaksson, Erlendur
Pálsson, Sigurður Árnason,
Eldjárn Magnússon og Óli Geir
Þorgeirsson.
til að athuga veginn, og sendi
þá bæjarstjóri mann héðan úr
bænrnn, Ásgeir Gunnarsson,
upp á Skarð lífca. Að áliti þeirra
félaga var þá svo mikill snjór á
veginum, að áhöld voni um,
hvort hann væri meiri eða minni
en þegar byrjað var að moka í
fyrra.
Fréttist hvergi
af síld
Engar fréttir berast af síld
ennþá. Sildveiðiskipin, sem út
eru komin, hafa mörg undan-
farin dægur verið að leita að
síld um alit veiðisvæðið og
hvergi orðið vör. Áta sést varla
eða alls ekki, og tæplega fugl að
sjá úti á miðunum. — Talið er
að um 30 skip séu komin á veið-
ar.
E L L I Ð I
fcom hingað kl. hálf tólf í gær-
kvöldi eftir 14 daga veiðar, og
lagði af stað áleiðis til Þýzka-
lands kl. hálf tvö. Er gert ráð
fyrir, að hann selji n.k. mánu-
dag, hinn 11. þ.m., senniílega í
Cuxhaven.
„Brynja" gerir
Verkakvennaféalgið Brynja
hélt fund í fyrrakvöld. Til um-
ræðu var árangur viðræðna
samningan. fél. við fulltrúa
atvinnurekenda. Höfðu atvinnu-
rekendur boðið félaginu 10%
kauþhækkun á öllum töxtum
félagsins nema grófsöltun, —
á hana var boðin 15% hækkun.
Var samþykkt á fundinum með
öllum atkvæðum að ganga að
þessu tilboði.
Erindreki A.S.I., Jón Hjálm-
arsson, mætti á fundinum og
skýrði frá afstöðu stjórnar ASÍ
til kaupgjaldsmálanna.
SUNNUKðRINN
frá ísafirði
hélt tvo hljómleika hinn 30.
f. m. — Söngstjóri kórsins er
Jónas Tómasson, tónskáld. Ein-
söngvarar voru frú Sigrún
Magnúsdóttir, frú Jóhanna
Joihnsen, Jón H. Finnbjarnarson
og Sigurður Jónsson.
Fyrri hljómleikarnir voru
kirkjuhljómleikar, en hinir síð-
7ari voru almehnir og voru haldn
ir í'Bíó. Var söngnum vel tekið,
og þurfti kórinn að endurtaka
mörg lög og syngja auka'lög.
★ Dánardægur. — Að morgni
hins 4. þ. m. lézt að heimili sinu
Suðurgötu 8, hér í bæ, Guðlaug-
ur Sigurðsson, skósmíðameist-
ari. Guðlaugur sál. var nálægt
75 ára að aldri.
★ Dánardægur. — Aðfaranótt
þriðjudags 5. þ. m. lézt 1 Sjúkra-
húsi Sigiufjarðar, Helgi frá
iSkútu. Helgi hafði um nokkuð
langan tíma dvalið á Sjúkra-
húsinu. — Þessara mætu manna
verður síðar minnst hér í blað-
inu.
★ Siglufjarðarbíó (Alþýðuhús)
— hefur nú aftur byrjað kvik-
myndasýningar. Ættu meðlimir
verkalýðsfélaganna að sækja vel
sýningar þess.
★ Hjónaband. — Þann 25. júní
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Sigríður Laufey Guð-
mundsdóttir, stúdent frá Siglu-
firði og stud. með. Daníel Daníel
son frá Bjargshóli í Miðfirði.
★ Hjónaefni. — Þann 25, júní
s. 1. opinberuðu trúlofim s'ina
ungfrú Ester Jóhannsdóttir,
Vetrarbraut 10, og Skarphéðin
Guðmundsson, Lindargötu 11.
Mjölnir árnar þessu fólki
allra heilla.
★ Umsóknir um námsvist í
Gagnfræðaskóla Siglufjarðar.—
Pormaður skólanefndar, Ragn-
ar Guðjónsson, hefur beðið blað
ið að koma'því á framfæri við
væntanlega nemendur Gagn-
fræðaskólans, að hann taki á
móti umsóknum um námsvist
í forföllum skólastjóra.
★ Óafgreitt mál. — I s. 1. viku
nýjan samning
Brynja sagði upp samningum
hinn 15. júní s. 1., og áttu þeir
að renna út um miðjan yfir-
standandi mánuð. — Hinn nýji
samningur var undirritaður í
gær. Er taxtinn samkvæmt hon-
um auglýstur annarstaðar í blað
inu 1 dag.
Skógrækt Vestfirð-
ingafélagsins
Að undanförnu hefur Vest-
firðingafélagið hér unnið að
skógrækt á Saurbæjarásnum
hér handan f jarðarins, á þriggja
hektara svæði, sem það hefur
fengið umráð yfir til þeirrar
starfsemi. Hafa meðlimir félags
ins unnið að því i sjálfboða-
vinnu um helgar og á kvöldin
að girða af tvo þriðju hluta
svæðisins og gróðursetja þar
tæplega 500 trjáplöntur. Var
þessu verki lokið fyrir fáum
dögum.
Er hér um lofsvert nytja-
starf að ræða, og væri óskandi
að sem flest félagssamtök í
bænum tækju sér þetta for-
dæmi Vestfirðingafélagsins til
eftírbreytni. ,
skýrðu blöðin frá því, að Sjó-
manna- og gestaheimili Sigm-
f jarðar hati tengið að gjöf mjög
verðmætar og hentugar bygg-
ingarlóðir undir hið nýja Sjo-
mannaheimili, sem í ráði er að
reisa á næstu árum. Voru það
einstaklingar, sem þessa höfð-
inglegu gjöf færðu.
Þetta minnti á það, að verka-
lýðsfélögin hér í bæ hafa sótt
um lóð undir hið væntanlega
verkalýðshús, en bæjarstjóm
hefur enn ekki séð sér fært að
afgreiða það mál endanlega. —
Það hús, sem verkalýðsíélögin
ætla sér að reisa hér, á að verða
aðalsamkomuhús bæjarins, og
þá vitanlega búið öilum þeim
nýt'ízku tækj.um og húsbúnaði,
sem sl'ikum húsum tilheyrir. —
Undirbúningur að þessari hús-_
byggingu er enn ekki hafinn,’
nema hvað húsbyggingasjóður
er efldur með ákveðnu framlagi
félagsmanna, en önnur fjársöfn-
un ekki komin á laggir ennþá.
Er ekki að efa, að sá dráttur,
sem orðinn er á afgreiðslu lóða-
málsins, hefur tafið fyrir og tor-
veldað allan undirbúning, og
verði enn dráttur á afgreiðslu
þessa máls mun það tefja mjög
fyrir að skipulegur undirbún-
ingur geti hafizt, svo sem þörf
er á.
Verkalýðsfélögin þurfa enn
að knýja á bæjarstjórn að af-
greiða þetta mál, og 'að hún láti
að óskum þeirra. Skortur á not-
hæfu samkomuhúsi hér í bæ,
segir æ meir til sín, og lætur nú
nærri að ókieift sé, vegna ýmis-
konar samninga, á milli eigenda
samkomuhúsanna, að fá þau
leigð fyrir samkomur og
skemmtanir, sem .kki eru að
einhverju leyti á þeirra vegum.
Stórt og veglegt samkomuhús
í eign verkalýðsfélaganna, hús,
sem yrði um leið þeirra aðal-
bækistöð og félagsheimili, og
samkomuhús bæjarbúa, það er
engu síður nauðsynlegt okkar
bæ, en Sjómanna- og gestaheim-
ili, og tel ég að starfsemi þess-
ara tveggja húsa þyrfti á engan
hátt að stangast á. Þau eru
bæði bráðnauðsynleg.
★ Fénaður á ferli. — Bæjar-
búar hafa veitt þvi athygli, —
eða athygli þeirra á leiðinlegar.
hátt verið vakin á þvi, að sauð-
fé gengur óhindrað um bæinn,
brýst inn á gróandi bletti fólku
eyðileggur trjágróður og blóm í
görðum og annað þess háttar.
Einnig sézt nautpeningur tíðum
á rölti um götur bæjarins, að
ekki sé nú talað um hænsnin,
sem smjúga undan farartækjum
á götunum. Fjöldi manns hefur
beðið blaðið fyrir þá fyrirspurn
til hlutaðeigenda, hvort ekki séu
enn í gildi reglur, sem banna að
iáta kvikfénað ganga lausa í
í bænum.
★ Andlát. — Frú Ólína Björna-
dóttir, Hlíðarveg 3, lézt í gær-
kvöldi að heimili sínu, eftir
langvarandi vanheilsu.
Gerist áskrifendur
að bókum Máls og menningar.
Umboðsmaður
KRISTMAR ÓLAFSSON
Simi 270
Bœrinn borgar ekki úí