Mjölnir - 06.07.1949, Side 3
MJÖLNIB
S
Kynþáttamisréttið í
Bandaríkjunum
Um það bil einn af hverjum
tíu ibúum Bandaríkjanna er
blökkumaður. Flestir þeirra búa
í Suðurríkjunum. I Mississippi
er t.d. annar hver maður með
svertingjablóð í æðum. í sum-
um Norðurríkjanna búa hins-
vegar ekki nema fáein hundruð
svertingja. í meira en helmingi
ríkjanna hefur þrælahald aldrei
þekkzt. Þrælainnflutningurinn
hófst á seytjándu öld og hélt
álfram alla átjándu og fram á
nítjándu öld. Er borgarastyrj-
öldinni lauk árið 1865 var þræla
hald afnumið með lögum um öll
Bandar'ikin.
Tólf árum áður en borgara-
styrjöldin hófst, heimsótti kunn
ur New York borgari, Olmstead
nað nafni, fyrirmyndar plant-
ekru í Mississippi-ríki. Þar var
stóra og glæsilega íbúðarhús,
um f jórtán hundruð ekrur lands
voru sánar báðmull, hveiti og
ifleiri nytjajurtum, ennfremur
voru þar um tvö hundruð svín
Af þeim hundrað þrjátiu og
fimm þrælum, sem þarna voru,
unnu nærri sjötiu á ökrunum
þrír voru viðgerðarmenn og níu
voru húsþjónar eða hestasvein-
ar. Vinnutími svertingjanna á
sumrin var sextán klst. á dag.
— Um hádegi var gefið stutt
matarhlé, en annars unnið lát-
laust. Svartur verkstjóri gekk á
millli þrælannna á ökrunum,
hvatti þá til að leggja harðara
að sér, smellti með svipuólinni
og lét hana stundum falla léttil.
á herðar einhvers svertingjans.
Hviti umsjónarmaðurinn sagði
Olmstead, að góður agi ríkti á
ibúgarðinum, þó hann hefði nú
reyndar nýl. seit þræl, sem hefði
reynt að reka sig í gegn. „Hann
sagði, að negrar sínir reyndu
ekþi oft til að hlaupast á brott,
iþví þeir vissu, að þeir mundu
næstum áreiðanlega nást alftur..
Um leið og hann saknaði ein-
hvers þrælsins, sleppti hann
hundum á slóð hans.“
Hér fara á eftir nokkrar aug-
lýsingar, sem skáldið Oharles
Dickens fann í amerískum blöð-
um árið 1842:
„Negrakona hefur hlaupist
á brott. Nokkrum dögum áður
en hún strauk, brennimerkti ég
hana á vinstri kinn. Reyndi að
mynda bókstafinn M“.
„Hundrað dollara fundarlaun-
um er heitið fyrir að finna
negra pilt, Pombey .....Brenni-
merktur á vinstri kinn“.
„Fimmtíu dollara fær sá, sem
hefur upp á negranum Jim
Blake. Markaður á bæði eyru“.
★
Þótt aðdáendur Bandaríkj-
anna haldi þvi fram, að Banda-
ríkin séu mesta lýðræðisríki
heimsins, er það þó staðreynd,
að tíundi hluti íbúanna þar býr
við réttleysi og kúgun. Þeirri
kúgun, rangsleitni ‘og öryggis-
leysi, sem svertingjarnir i Suður
ríkjunum eiga við að búa, er
tæplega hægt að líkja við ann-
að en ofsóknirnar gegn Gyðing-
urn í Rússlandi á tímum keisar-
anna og 'i Hitlers-Þýzkalandi, og
hina fasistisku kúgun, sem við-
gegnst á Ifólki af lituðum kyn-
þáttum í Suður-Afríku. Banda-
rísku svertingjarnir verða yfir
leitt að sætta sig við að búa í sér
stökum hverfum í borgunum. I
sumum svertingjahverfum er
hvorki vatn, gas né rafmagn.
Þeim er meinaður aðgangur að
flestum helstu menningarstofn-
unum og skemmtistöðum. Sum-
staðar mega þeir ekki ferð-
ast með sömu farartækjum og
hv'itir menn. Annarstaðar er það
leyft, en þá verða svertingjarn-
ir að halda sig áftast í vagnin-
um eða í sérstökum klefum, sem
yfirleitt standa að baki klefum
hvítra manna, hvað hreiniæti og
útbúnað snertir. Aftökur svert-
ingja án dóms og laga eru' enn
ekki úr sögunni. Yfir 2500 svert
ingjar voru drepnir af hvítum
skríl á árunum 1920—1946. —
Aðeins fá af þessum morðmál-
um hafa komið fyrir dómstóla,
og einungis örfáum af morð-
ingjunum verið refsað, og þá
aðeins litillega. Flestir hafa
sloppið við dóm.
Meðalaldur svertingja 1
Bandaríkjunum er 50,52 ár, en
hvítra manna 60,6 ár. Ung-
barnadauði er hérnmbil þrisvar
sinnmn meiri meðal svertingja
en hvítra manna.
1 Bandaríkjunum. er árlega
varið 80,26 dollurum til upp-
eldismála á hverrí nemanda. —
í tíu af Suður-ríkju.num er til-
svarandi tala á hv<jrn svartan
nemanda 17,04 dollarar. Svert-
ingjar eiga erfiðára uppdráttar
á vinnumarkaðinum en hvítir
menn. Það má heita viðtekin
regla, að svertinginn sé „síðast-
ur tekinn og fyrstur rekinn.“
Það er líka hefð, að þeir fái ekki
1 kaup nema 70% af þeirri upp-
hæð, sem hvítur maður mundi
fá fyrir sömu vinnu. Ennfremur
eru þeir yftrleitt látnir vinna
erfiðustu og óhollustu .verkin, í
iðnaðinum t. d. Sumar atvinnu-
greinar mega hinsvegar heita
lokaðar svertingjum, einkum
konum, og verða þvi flestar
þeirra að sætta sig við að vinna
hússtörf eða önnur áþekk störf,
jafnvel þótt þær hefi ágæta
menntun, t. d. háskólapróf.
1 sjö Suðurríkjanna er lagður
á kosningaskattur, þ. e. menn
verða að greiða visua upphæð
árlega til þess að ríjóta þeirra
lýðræðisréttinda að fíi að greiða
atkvæði við almennar kosning-
ar. Skattur þessi er m ismunandi
hár, hæstur í Mississippi, 2 doll-
arar á ári. Óvíða er Ihirt rnn að
innheimta þennan skatt reglu-
lega, og getur hann þá dregist
saman í allháar upphæðir, hirði
menn sjálfir ekki um iað fara og
greiða hann regluilega, og
einnig kemur hann þungt niður
á hinum fátækari mec'al hv'ítu
íbúanna.. , , ■ \
■ ..... . í ^
Þó að skatturinn sé ekki hár,
e.t.v. aðeins nokkrir dollarar,
hlýtur fjölskyldumann, sem
máske hefur aðeins 20 dollara í
laun á mánuði, eða er atvinnu-
lítill eða atvinnulaus, að muna
talsvert um þá upphæð. Enda er
kosningaþátttaka yfirleitt mjög
lítil í Suðurríkjunum. Til dæmis
greiddu aðeins 180 þús. af 1250
þús. atkvæðisbærra ínanna í
Mississippi atkvæði í kosningun-
um 1946. 1 kosningum sem fram
fóru 1944 var kosningaþátt-
takan í Suður-Carolina aðeins
tæp 10%. Fleiri svipuð dæmi
mætti nefna.
★
Ameríski blaðamaðurinn Jolm
Gunther, höfundur bókarinnar
„Inside USA.“ sem er aðalheim-
ild þessarar greinar, tilfærir
dæmi um kynþáttamisréttið og
kynþáttafordómana í Bandaríkj
unum; m.a. segir hann frá því,
er hann hitti dr. Reid, forstöðu-
mann félagsfræðideildar háskól-
ans í Atlanta. „Við eyddum
nokkrum klukkustundum sam-
an. En dr. Reidd gat auðvitað
ekki þegið boð mitt um að
drekka með mér kaffibolla. —
Hann gat ekki einu sinni hitt
mig í hótelherbergi mínu. Hann
lagði bílnum sínum fyrir utan,
gat einhvernveginn komið boð-
um upp til mín, og beið mín á
götunni.“
„Háskólinn í Atlanta saman-
stendur af sjö mismunandi stofn
unum fyrir svertingja. Dr. du
Bois (fyrirrennari Reids. þýð)
segir í einu riti sínu, að frá 1900
til 1925 hafi ekki verið gefið út
neitt rit um svertingja né um
Suðurríkin, sem ekki hafi að
einhverju leyti verið að þakka
háskólanum í Atlanta. Eg átti
nokkur skemmtleg viðtöl við
rektor hans, dr. Rufus E Clem-
ent, og við forseta einanr deild-
'arinnar, dr. Benjamín E. Mays.
Báðir eru þeir miklir hæfileika-
menn, — mér fannst dr. Mays
ekki standa að baki neinum
öðrmn manni, sem ég hef hitt í
Suðurríkjunum, — og báðir eru
þeir að sjálfsögðu fyrirmenn í
háttum, ekki síður en þeir eru
fróðir. Mig langaði ákaflega til
að endurgjalda gestrisni þeirra.
En í Atlanta var mér það ekki
mögulegt, þvi ég gat ekki boðið
þeim með mér á neinn opinberan
stað.“
Eg minntist áðan á dr. Mays.
Fyrir nokkru þurfti Arnall, fyrr
verandi ríkisstjóri, að rita hon-
um opinbert bréf. (Arnall er
meðal frjálslyndustu manna í
Suðurríkjunum). Hann var í
stökustu vandræðum. Vitanlega
mátti hann ekki ávarpa dr.
Mays með „Mister“ (herra) eða
„Doktor.“. Hvítum manni leyf-
ist ekki að ávarpa svertingja á
þann hátt í Suðurríkjunum. —
Loks réð hann fram úr þessu
máli á þann hátt að kalla dr.
Mays blátt áfram „Benjamírí*!
Dr. du Bois, sem er höfuð-
skörungur á sínu sviði, og að
sínu leyti sambærilegur við
Shaw eða Einstein, segir frá.því
í ritaðri frásögn, að sér hafi
ekki verið leyfður aðgángur að
almenningsbókasafni Atlanta.
Dr. du Böis er doktor 'í heims-
speki frá Harward-háskóla, en
stundaði einnig nám 'i háskól-
um í Berlín og hefur þrjá aðra
doktorstitla.
Bg spurði eitt sinn ungan,
greindan og fremur frjálslynd-
an stjórnmálamenn um persónu
lega alfstöðu hans til svertingja,
og leitaðist þá við að fá nákvæm
lega fram, hvað hann rnundi
gera eða ekki gera við tilteknar
aðstæður. Mundi hann vilja mat-
ast með svertingja? „Guð minn
góður, nei“! Hitta svertingja á
heimili hans. „Ekki undir nein-
um kringumstæðum. Eg mundi
ekki telja mér það fært. Það
gæti komist upp.“ Fara í veizlu,
sem haldinn væri til heiðurs t.d.
Paul Robeson, „Slíkt gæti ekki
gerzt hér, en ef það væri í Néw
York, mundi ég kannske fara,
ef mikill mannfjöldi væri og
enginn þekkti mig.“ Taka í
hönd svertingja? „Eg tók í hönd
á svertingja 1 fyrra 'i Portland,
Oregon, í fyrsta skipti á alri æfi
minni.“ Sofa hjá laglegri svert-
ing j astúlku ? V andræðalegt
svar.
★
Þrátt fyrir það ,að svertingj-
ar Bandaríkjanna eiga enn við
hræðilegt misréti að búa, hafa
kjör þelrra skánað verulega
síðan á dögum þrælahaldsins.
Þátttaka og frammistaða
svartra hermanna í heims-
styrjöldinni síðari varð til þess
að auka svertingjunum sjálfs-
traust, kjark og siðferðislegan
styrk í baráttunni fyrir jafn-
rétti við hvíta menn. I hernum
nutu þeir jafnréttis á við 'hina
hvítu stríðsbræður sína, og voru
almennt viðurkenndir sem jafn-
okar þeirra á sviði hermennsk-
unnar. Áróðurinn móti ofsókn-
um Þjóðverja og Japana gegn
einstökum þjóðum og kynþátt-
um varð öflug hjálp í baráttu
þeirra sjálfra og allra frjáls-
iyndra afla í landinu fyrir út-
rýmingu kynþáttaofsóknanna í
heimalandinu. Járntjald kynþ.-
misréttisins var rofið í fjölda
samtaka og félaga. Til dæmis
komu baptista-klerkar, hv'itir
og svartir, í fyrsta sinn saman
á sameiginlega perstastefnu í
Georgiu fyrir ekki alllöngu síð-
an. Átta svertingjar voru kjörn-
ir meðlimir frægs amerísks
læknafélags 1946, og tveir tekn-
ir upp í samtök dómara. (Amer-
ican Bar Association). Fleiri
svipuð dæmi mætti telja.
Eftirtektarvert er, að allir eða
því nær allir þeir svertingjar,
sem drepnir hafa verið án dóms
og laga (lynched) síðán í stylj-
aldarlok, hafa verið fyrrverandi
hermenn, sem hafa sett sig upp
á móti misréttinu, þrjóskast við
að viðurkenna forréttindi hinna
hvítu.
Hins er einnig að gæta, að
eftir því, sem barátta hinna
frjálslyndari afla fyrir jafn-
rétti hefur harnað, halfa kúg-
unaröflin færst í aukana. Hin
fasistísak yfirstétt Suðurríkj-
anna, sem arðrænir og kúgar
svertingjana miskunarlaust, —
fyrirmælum um samskipti
elur stöðugt á hatri og óvild
milli hvítra manna og svartra,
enda á hún alilt sitt undir því,
að undirstéttin, hinn fátæki, ó-
upplýsti hvíti og svarti múg,ur,
sé sundraður en ekki sameinað-
ur. Hvort sókn svertingjanna til
meira frelsis brotnar á múr kyn-
þáttahatursins, sem yfirstéttin
keppist nú við að hlaða í skörðin
á, er ekki útséð um. Ku-klux-
klan og aðrar áþekkar fasista
og glæpamannaklíkur vaða nú
uppi 'i Suðurríkjunum. Yfirstétt
Suðurríkjanna bauð Svertingja-
og Gyðingahataranum Thur-
mond fram við forsetakjörið-í
fyrra, og klauf með því Demó-
kratalflokkinn, vegna þess að
Truman forseti hafði gefið kosn
ingaloforð um lítilfjörlegar rétt
arbætUr svertingjunum til
handa. Hert er á reglum og
hvítra manna og svartra. Ný
alda svertingjaofsókna flæðir
nú um Suðurríkin.
Það er ekki hægt að fullyrða
neitt um, hver úrslitin verða.
En 'eitt er víst; að varanleg
lausn á kynþáttavandamálinu í
Bandaríkjunum fæst ekki fyrr
en þau afturhaldsöfl, sem nú
ráða þar lögum og lofum, hafa
verið kveðin niður og lýðræðis-
legt fyrirkomulag verið tekið
upp.
Kynþáttaofsóknirnar, starf-
semi óamerísku nefhdarinnar,
kommúnistaofsóknirnar, hin
gegndarlausa auðdrottnun, —
stríðsæsingarnar, dek-rið við aft-
urhald og fasistísk öfl um alian
heim, forheimskunarstarfsemin,
sem er rekin gegpum útvarps-
stöðvar, megnið af blaðakosti
Bandaríkjanna og Hlollywood-
kvikmyndaframleiðsluna, — allt
eru þptta hlutar af sama fyrir-
brigðinu, angar á því krabba-
meini auðhyggju og fasisma
sem þjóðlíf Bandaríkjanna er
heltekið áf. Þótt einn anginn sé
numinn burt, stoðar það l’itið.
Hann vex óðara aftur, eða ann-
ar í hans stað. Eina lækningin
sem ,stoðar, er að skera allt
meinið burt.
Nýjar bækur:
Strandvörðurimi (Skáldsaga).
Beztu ár ævinnar
íslenzkt sjómannaalmannak ’49.
Íslenzk-Enslk orðabók
Ensk-íslenzk orðabók
Ásgrímur Jónsson, listmálari *
Á lieimsenda köldiun
eftir Evelyn Stefánsson.
BÓKAV. L. BLÖNDAL
Oðun trjágarða
Þeir sem vilja fá úðaða hús-
garða sína, með vamarlyfi gegn
skordýrum, ættu að láta mig
vita sem fyrst.
JÓHANN MALMQUIST
Hólaveg 21