Mjölnir - 15.11.1950, Qupperneq 2
2
M J Ö L N I E
—VIKUBLAB—
Útgefandi: SÓSÍALtöTAJbÉLAG SíGLUFJARÐAE
Ritstjóri og ái>yrgða£maá«r: BenodUtt Sigurðsson
Blaóið keíauar bí affik mi&vikiuiaga
Askrtftargjald kr. 30,00 ár^ — Afgreiðsla Snðurgötu 10.
Símar 104 og 310
Siglufjarðarprentsmiðja h/f.
Verkalýðsbarátta eða innbyrðis
barátta verkalýðsins?
Eftir nokkra daga hefst 22. þing Aiþýðusambands Islands.
Kosningum til þessa þings er fyrir skömmu lokið. Víðast hvar
voru tveir listar til þessara kosninga, og ikosningabaráttan var
afar hörð. Annar listinn var horinn fram af róttækari hluta
verkalýðsins, og þann lista studdi meirihluti meðlimanna í flest-
um stærstu ,elztu og máttarmestu verkalýðsfélögum landsins.
Hinn listinn var viðast hvar iborinn fram af krötum, Framsókn
og íhaldinu, og skipaður tryggum flokksverkfærum þeirra.
Tveir listar Qg hörð kosningabarátta innan verkalýðsfélag-
anna! Hvað þýðir þetta? Það er merki þess, að uppi séu tvær
stefnur í málum verkalýðsins. Af hverju stafar það? Skiptist
verkalýðurinn í tvo flokka, sem hafa andstæðra hagsmuna að
gæta? Nei. Þessar kosningar hefðu því að réttu lagi átt að
ganga út á það eitt að velja harðfengustu og færustu mennina
til baráttu við auðvaldið, hinn sameiginleiga andstæðing alls
verkalýðs, — að velja þá mennina, sem líklegastir væru til að
standa saman og ná mestum árangri í þvi að auka þann hluta
verðmætanna, sem verkamaðurinn fær af þvi sem hann fram-
leiðir.
Blöðin tóku þátt í kosningabaráttunni, líka Morgunblaðið og
Vísir, blöð auðmannanna á Islandi. En hvað þetta er skrítið!
Auðvaldsblöðin styðja annan aðilann í kosningunum til Alþýðu-
sambandsþings á íslandi! „Þegar Morgunblaðið er á móti okkur,
þá errnn við á réttri leið, en ef það verður með okkur, þá erum
við farnir að svíkja.“ Eitthvað á þessa leið komst Ólafur Friðriks-
son eitt sinn að orði, endur fyrir löngu.
Auðvaldsblöð styðja aldrei neitt nema það, sem er gagnlegt
eiigendum þeirra. Auðvaldið á íslandi á Morgunblaðið og Vísir,
og> kannske Alþýðublaðið og Tímann líka nú orðið.
★
m n m
★ Vinnan hjá Rafveitunni.
sfEírinn
-★ Þann 14. þ.m. átti frú Þur-
íður Hagaiínsdóttir, Laugar-
vegi 16, sjötíu og fimm ára af-
Fyrir nokkrum dögum hitti
mig maður og bað mig að koma
þeirri fyrirspurn á framfæri,
hversvegna ekki væri skipt
vinnunni hjá Rafveitunni. —
Sagði hann, að alltaf væri tölu-
vert að gera hjá þessu fyrir-
tæki, og hefði verið mjög mikil
vinna í allt haust, en að henni
hefðu setið sömu mennirnir
allan tímann, nema þeir, sem
teknir hefðu verið dag og dag.
0|g maður þessi sagði, að sér
virtist sem helzt væru látnir
sitja að þessari vinnu nokkrir
meim nýfluttir í bæinn, þó
gamlir bæjarmenn væru at-
vinnulausir.
Mér þykir rétt að minnast á
þetta hér, og tel, að rétt sé, að
vinnu hjá Rafveitunni verði
skipt milli verkamanna í bæn-
um, þ.e.a.s. verði um einhverja
vinnu að ráði að ræða. Og hefði
auðvitað verið rétt að gera
þetta strax í haust. Hinsvegar
þykir mér trúlegt, að vinna
þessi fari að minnka þegar
fönn er ikomin.
mæli. Þuríður er vestfirzk,
prýðisvel greind og vel látin af
öllum, sem hafa kynnst henni.
★ Hjónaband. S.l. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Guðrún Albertsdóttir og
Rögnvaldur Rögnvaldsson, bíl.
stjóri, Hafnargötu 20.
★ Veðurfarið undanfarið hefur
verið með bezta móti, logn og
stillur, þiðviðri dag eftir dag.
Fannst mönnum sem oft vati
mildara og hlýrra en oft var;
sumar. Hefur þetta blíðviðri
staðið síðan um miðjan októ
ber og var að mestu orðið snjc
laust í fjöllum. Skarðvegurini
var orðinn mikils til auður og
var í vikunni sem leið rutt af
honum þeim snjó, sem á hon-
um lá, svo umferð um hann
opnaðist. Það stóð samt ekki
lengi, því á föstudag í s.l. viku
fór að fenna og tepptist veg-
urinn þá um leið. Mun þetta í
fyrsta sinn í sögu vegarins,
sem hann er opinn bílaumferð
[ svo seint á ári.
TILKYNNING
TIL VERZLANA
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á tilkynningu Verðlags-
stjórans nr. 13/1949, sem er svohljóðandi:
„Viðskiptanefndin hefir ákveðið, að verzlanir megi ekki
hafa vörur á boðstólum, nema þær geti gert verðlags-
eftirlitinu fulla grein fyrir hvaðan varan er keypt.“
Brot á þessari tilkynningu verður litið á sem venjuelgt verð-
lagsbrot og tafarlaust kært.
Reykjavík, 7/11., 1950.
VERÐGÆZLUSTJÓRINN
★ Aðalfundur Æskulýðsfylk-
ingarinnar, fél. imgra sósíal-
ista var haldinn 2. nóv. s.l.
Stjórn fél. skipa nú: Form.
M. Albertsson, varaform.: Val-
gerður Jóhannesdóttir, ritari:
Eberg Elefsen; gjaldkeri:
Guðrún Gunnars, meðstj. Júlíus
Júlíusson, Helgi Vilhjálmsson
og Kristján Rögnvaldsson. Þá
var einnig kosið í varastjórn,
fulltrúaráð og endurskoðend-
ur. Bráðlega verður haldinn
fundin- í Æ.F.S. og þá skipu-
lagt vetrarstarfið. Eru félagar
beðnir um að mæta vel, þegar
fimdur verður auglýstur.
TILKYNNING nr. 48/1950
Ákveðið hefur verið nýtt hámarksverð á blautsápu sem
hér segir:
Heildsöluverð án söluskatts ........ kr. 6,02 pr. kg.
Heildsöluverð með söluskatti .......... — 6,20 pr. kg.
Smásöluverð án söluskatts .......... — 7,35 pr. kg.
Smásöluverð með söluskatti .......... — 7,50 pr. kg.
Reykjavjk, 3. nóv. 1950.
Nei, þetta er ekki eins skrítið og það kemur hlægilega fyrir
sjónir. Hér á íslandi hefur gerzt sama sagan og í öllum öðrum
auðvaldsríkjum heims. Verkalýðurinn er klofinn. Auðvaldið hefur
keypt upp mútuþæga, værukæra og veiklundaða verkalýðsleið-
toga og beitir þeim, og þeim hluta verkalýðsins, sem þeim tekst
að ljúga og blekkja til fylgis við sig með blöðum sínum og
áróðursvélum, gegn allri alþýðu í landinu.
bk
Meðan verkalýðsstétt í auðvaldslandi er veikburða, berst
auðvaldið gegn henni hatramlega og grímulaust, shr. baráttuna
í nýlendunum nú á dögum og baráttu islenzks verkalýðs eftir
aldamótin síðustu. Þá sóttist auðvaldið ekki eftir samstarfi við
verkalýðinn. Þá var myndaður á Islandi verikalýðsflokkur, gamli
Alþýðuflokkurinn .Þá barðist Morgunblaðið gegn honum og hann
var á réttri leið.
Þegar verkalýðshreyfing er orðin svo þroskuð og öflug, að
auðvaldinu þýðir ekki lengur að reyna að hamla á móti henni með
beinum kúgunarráðstöfimum, grípur það til hinna gömlu, algildu
aðferðar sinnar: að rífa samtökin niður iimanfrá með aðstoð
uéninga sinna. Þetta er það, sem gerst hefur hér á landi sem
annarstaðar í auðvaldsheimimnn. Auðvaldið hefur keypt upp alla
foringja Alþýðuflokksins með bitlingum og gert þá sér auðsveip
og þæg verkfæri. Síðan leggur það þeim fé til lygaáróðurs og
blekkinga (sbr. f járreiður Alþýðubl. nú). svo og efnið í hann.
Með þessari aðferð tekst því ætíð að blekkja nokkum hluta
verkamanna til baráttu gegn sínum eigin hagsmUnum,gerast
s’nir eigin böðlar.
Þegar þannig er komið, skapast grundvöllur fyrir nýjan
★ Verkalýðsfélögin Þróttur og
Brynja hafi haldið tvo skemmti
fundi á þessimi vetri. Hefur
þar verið spiluð skiptivist og
dansað á eftir. Félögin hafa í
hyggju að halda þessum
skemmtifundum uppi í vetur á
hálfs mánaðar fresti. Gefa
þessir tveir fundir, sem búnir
eru, tilefni til að áíita, að þessi
starfsemi félaganna eigi vin-
sældmn að fagna.
★ Maður slasast. Fyrir nokkr-
um dögum varð Hafliði Jóns-
son, Laugaveg 8, fyrir því slysi
að falla niður í þró SRN. Var
hann vaktmaður þar og var á
vaktgöngu, þegar slysið vildi
txL Ekki er vitað hversu mikil
meiðsli hans eru, en hann hef-
ur legið þungt haldinn og var
um tíma talið tvísýnt um líf
hans. Hafliði er gamall Sigl-
firðingur og öllum að góðu
kunnur.
★ Merkisafmæli. Frú Ingibjörg
Jónsdóttir, kona Andrésar Haf-
liðasonar átti sextugsafmæli
þann 12. þ.m. — Bjöm G.
Bjömsson, verkamaður, Eyrar-
götu 3b átti sexfíu og fimm ára
afmæli þann 12. þ.m.
FJÁRHAGSRÁB
♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦■♦■♦■♦♦♦■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
TILkYNIMING
til húsavátryggjenda utan Reykjavíkur
frá Brunabótafélagi fslands.
Bmnabótafélagið hefur ákveðið að heimila húsavátryggjend-
um að hækka vátryggingarverð húsa sinna um 30% — þrjátíu
af hundraði — vegna hækkunar á byggingarkostnaði, sem stafar
af gengisfellingu krónunnar.
Nánari upplýsingar fást hjá umboðsmönnum félagsins og
aðalskrifstofu.
Brunabótafélag íslands.
IB 0 9
til sölu eða leigu. — Allar upplýsingar
gefur
EINAR ÓLAFSSON, Hliðarveg 3
verkalýðsflokk. Hér á landi er sá flokkur Sósíalistaflokkurinn,
fyrir löngu orðinn til, og vaxinn flokki svikaranna langt yfir höfuð.
Hvað gerir auðvaldið, þegar þannig er komið ? Jú, það gengur
sjálft fram og tekur beinan þátt í „baráttu verkalýðsins" við
hlið Júdasanna, sem það hefur keypt. Og þá höfum við það
ástand, sem hér ríkir 1 dag.
Þetta er það ástand, sem fjöldi verkamanna skilur, og allir
þeir, sem hafa látið ánetjast Alþýðuflokknum, en em heiðar-
legir, ættu að geta skilið að er óbærilegt, heimskulegt og til
skaða fyrir allan verkalýð í landinu. Auðvaldið og verkalýður-
inn eiga enga samleið, heldur em hagsmunir þess og hans alger-
lega andstæðir og verða aldrei annað.
Það er ekki starfsgrandvölliir fyrir fleiri- en einn verkalýðs-
flokk, því verkalýðurinn á ekki nema eitt takmark, að ná sífellt
stærri hluta og síðast öllum arðinum af striti sínu í eigin hendnr.
Þangað á hann að renna og ekkert annað. Arðræningjar em
réttlaust sníkjudýr á bökum hins vinnandi fólks.
Þegar flokkarnir aftur á móti em orðnir tveir, þá er annar
falskur, og hann má þekkja á því, að auðvaldið styður hann
ávallt.
Hér á íslandi em tveir flokkar, sem báðir segjast vera
verkalýðsflokkar. Auðvaldið styður verkalýðsbaráttu annars af
alefli, en hamast gegn hinum af jafnmiklu ofstæki. Af þeirri
staðreynd getur hver andlega heilbrigður verkamaður dregið
réttar ályktanir um eðli hvors þessara flokka fyrir sig.
Ef heppnin er með
getið þér eignast gagnlegt
heimilstæki.
★
í happdrætti Þjóðviljans eru
ýmiskonar heimilstæld. Rejmið
heppnina og kaupið miða strax.
Dregið verður 1. desember.