Mjölnir - 27.04.1962, Síða 1
Listi Alþýðubandalagsins
1. Benedikt Sigurðsson, kennari
2. Hannes Baldvinsson, verkamaður
3. Tryggvi Sigurbjarnarson, rafveitustjóri
4. Einar M. Albertsson, póstmaður
5. Valey Jónasdóttir, húsfrú
6. Guðrún Álbertsdóttir, húsfrú
7. Þórir Konróðsson, verkstjóri
8. Ármann Jakobsson, lögfræðingur
9. Þóroddur Guðmundsson, framkvæmdastjóri
10. Óskar Garibaldason, verkamaður
11. Tómas Sigurðsson, vélstjóri
12. Póll Ásgrímsson, verzlunarmaður
13. Halldór Pétursson, sjómaður
14. Arnór Sigurðsson, umsjónarmaður
15. Hinrik Aðalsteinsson, stöðvarstjóri
16. Valgerður Jóhannesdóttir, húsfrú
17. Kristjón Sigtryggsson, trésmiður
18. Gunnar Jóhannsson, alþingismaður
Listi Alþýðubandalagsins er að
þessu sinni eins og jafnan áður
skipaður úrvalsmönnum. Þótt á
engan hátt skuli gert lítið úr þeim
ágætu mönnum, sem skipa hina
listana, og margt sé þar ágætra
manna, þá er það eins og jDeir
eigi það allir sameiginlegt, að
beztu mönnunum hafi verið kom-
ið fyrir neðarlega á listunum, en
þröngsýnustu afturhaldsmönnun-
um hafi verið troðið í efstu sætin.
Efst á lista Alþýðubandalagsins
hefur hins vegar verið skipað
dugmiklum ungum mönnum, sem
tvímælalaust má mikils af vænta
í framtíðinni.
Efsti maður listans, Benedikt
Sigurðsson, er fæddur 14. apríl
1918 að Hofteigi á Jökuldal. For-
eldrar hans voru Sigurður Bene-
diktsson og Olöf Öladóttir og
standa að honum þingeyskar- og
austfirzkar bændaættir. Benedikt
fór ungur að heiman og mennt-
aðist innanlands og utan. Kenn-
araprófi lauk hann 1943 eftir eins
vetrar setu í Kennaraskóla ís-
lands. Hann fluttist til Siglufjarð-
ar 1944 og hefur kennt hér við
barnaskólann síðan. — Benedikt
nýtur óskoraðs trausts allra, sem
til þekkja sem afburðaglöggur og
Benedikt Sigurðsson.
duglegur starfsmaður. Hann hef-
ur verði ritstjóri Mjölnis á annan
áratug og ritað þar margt merkra
greina um siglfirzk atvinnumál.
Benedikt er að eðlisfari hlédræg-
ur, en skorast aldrei undan að
vinna Jiau störf, sem hann telur
horfa til heilla.
Annar maður listans, Hannes
Baldvinsson, er fæddur í Siglu-
firði 10. apríl 1931. Foreldrar
hans voru hinn kunni skipstjóri
Baldvin Þorsteinsson frá Há-
mundarstöðum og seinni kona
hans Oddný Þorsteinsdóttir, ætt-
uð úr Suðursveit. Hannes lauk
gagnfræðaprófi hér í Siglufirði,
en fjárhagurinn leyfði ekki lengri
námsferil. Hannes hefir síðan
lengst af stundað sjómennsku og
Hanncs Baldvinsson.
almenna verkamannavinnu og
þekkir mörgum betur kjör stéttar
sinnar og hefur jafnan verið ötull
og óragur baráttumaður í sinni
stétt. Hannes er ágætum gáfum
gæddur eins og hann á kyn til í
báðar ættir, og má fullyrða, að
sjómenn og verkamenn muni vart
eiga harðari og öruggari máls-
svara en Ilannes.
Þriðji maður listans, Tryggvi
Sigurbjarnarson, er fæddur 9.
júlí 1935 að Þingborg í Flóa.
Foreldrar hans eru Sigurbjörn
Ketilsson skólastjóri og kona
hans Hlíf Tryggvadóttir kennari.
Standa að honum kjarnmiklar
bænda og sjómannaættir. Tryggvi
lauk verkfræðiprófi í Dresden í
Tryggvi Sigurbjarnarson.
Megur drangur sjglfinhru
shíðamdnno d Shjðdldndsmótí
blonds 1961
Landsmótið, hið 24. í röðinni,
hófst á Akureyri Jiriðjudaginn 17.
apríl sl. 114 keppendur frá 9 hér-
aðs- og kaupstaðasamböndum
voru skráðir til keppni. Héðan frá
Siglufirði fóru 27 keppendur og
tóku þeir þátt í öllum greinum
mótsins.
Frammistaða þeirra var með
miklum ágætum og að loknum
fjórum dögum höfðu þeir unnið
Þýzkalandi í byrjun árs 1961.
Tryggvi gerðist rafveitustjóri hér
í Siglufirði strax að námi loknu
og hefur á stuttum tíma unnið sér
almennt traust og viðurkenningu
allra, sem til þekkja. Hin stað-
góða þekking og traustu gáfur
Tryggva eiga eflaust eftir að
verða til mikilla heilla fyrir Siglu-
fjörð, og því meiri, sem aðstaða
hans í bæjarstjórn verður sterk-
ari. Tryggvi er óvenju fljótur að
átta sig á hverju máli, og starfs-
maður er hann með afbrigðum
mikill.
Fjórði maður listans Einar Al-
bertsson er fæddur í Súðavík 12.
júlí 1923. Foreldrar hans voru
Albert Einarsson verkamaður og
kona hans Þórdís Magnúsdóttir,
hin mestu merkishjón. Einar
Einar M. Albcrtsson.
fluttist til Siglufjarðar 1943 og
hefur átt hér heima síðan. Einar
lauk skósmíðanámi hjá Guðlaugi
Sigurðssyni á Hellissandi og
stundaði þá iðn um nokkurt
skeið, annars hefur hann stundað
ýmsa vinnu og um nokkur ár ver-
ið starfsmaður Sósíalistafélags
Siglufjarðar og stöðvarstjóri bíl-
stöðvarinnar hér og er nú póst-
maður. Hvar sem Einar hefur
unnið hefur hann notið svo ó-
skoraðs trausts, að andstæðingar
okkar hafa ekki einu sinni reynt
að sverta hann.
allar greinar mótsins að undan-
skilinni 15 km. göngu í karla-
flokki og að mótinu loknu höfðu
þeir sigrað í 14 af 20 greinum
mótsins.
Meistarastigin skiptast jrannig:
(Framhald á 3. síðu)
Valey Jónasdóttir.
Fimmti maður listans, Valey
Jónasdóttir, er fædd í Siglufirði
21. nóv. 1930. Valey er dóttir hins
vinsæla og vel þekkta verkalýðs-
foringja Jónasar Jónassonar frá
Nefsstöðum og konu hans Jó-
hönnu Jónsdóttur. Valey lauk
kennaraprófi 1956 og hefur síðan
stundað lítið eitt tímakennslu við
barnaskólann og lengst af haft
smábarnaskóla í heimahúsum.
Hún hefur verið varafulltrúi í
bæjarstjórn og hvarvetna hlotið
lof og viðurkenningu bæði sem
ágætur kennari og traustur félags-
maður og góður starfskraftur.
Sjötti maður listans, Guðrún
Albertsdóttir, er fædd í Súðavík
18. ágúst 1929. Hún er alsystir
Einars Albertssonar. Guðrún
fluttist til Siglufjarðar 1945 og
lauk hér gagnfræðaprófi. Guðrún
(Framhald á 2. síðu)
Guðrún Albertsdóttir