Mjölnir


Mjölnir - 23.03.1965, Side 4

Mjölnir - 23.03.1965, Side 4
iilii nalgast nu urslitastigið Er alúminhringnum, hernámsliðinu og alþjóðabankanum ætlað að sf-jórna íslenzkum fjármálum og menningar-m°*um ‘ íramf‘Sinni? Margt bendir til þess, að makk ríkisstjórnar- inna og Framsóknarflokksins við aluminhring- inn Swiss Aluminium sé nú að komast á úrslita- stig, og raunar flest, sem bendir til þess, að stjórn- arflokkarnir og Framsókn séu búnir að afráða að afhenda auðhringnum til langs tíma, 50 ára eða meira, yfirráð yfir meginhluta raforkunnar frá stórvirkjunum við stærstu fallvötn landsins, Þjórsá og Jökulsá á Fjöllum. Hringurinn hefur óskað eftir samningi um að mega á stutlu árabili koma upp alumínbrœðslu með 220 þúsund tonna afkastagetu árlega, allt að 160 þúsund tonna brœðslu við Straum og 60 þúsund tonna brœðslu norðanlands. Yrði síðar- nefnda brœðslan reist á nœsta áratug, að Detti- fossi virkjuðum. — Ýmislegt bendir þó til þess, að tilboðið um virkjunina norðanlands sé aðeins • sett jram sem beita fyrir Framsóknarflokkinn, en án stuðnings hans eða hluta af honum telur ríkis- stjórnin ekki fœrt að berja samninginn við auð- hringinn í gegn. — Gœti svo farið, eftir 5—10 ár, þegar bygging brœðslu norðanlands kœmi á dagskrá, að hringurinn gœti bent á það með sterkum rökum, að hagkvœmara vœri að stœkka brœðsluna sunnanlands og leiða þangað raf- magnið að norðan, — eða frá nýrri stórvirkjun sunnanlands. Og þá kynni svo að vera komið, að hann vœri búinn að fá þá aðstöðu í íslenzku efna- hagslífi, að hann gœti knúið sitt sjónarmið fram, hvað sem eldri samningum liði. s Verið að drepa innlendan iðnað Að undanförnu hefur ríkisstjórnin gert ráð- stafanir, sem miða að því að drepa ýmsar grein- ar innlends iðnaðar. Hefur blaðið það eftir all- góðum lieimildum, að í ráði sé að drepa hús- gagnaiðnaðinn á nœstu mánuðum, í því skyni að fá á vinnumarkaðinn nœgan fjölda iðnaðar- manna til bygginga á verksmiðjum og mann- virkjum aluminhringsins. Og ekki mun það vekja harm stóriðjupostulanna, þótt straumurinn utan af Landsbyggðinni tiL Suðurlands aukist eitthvað nœstu mánuðina. Vesæl borgarastétt Komist áform stjórnarflokkanna og stóriðju- postula Framsóknar í framkvœmd, verður hlut- deild aLuminhringsins í íslenzku efnahagslífi meiri en hlutdeiLd erlends fjármagns í nokkru öðru þróuðu landi. Fjárjesting hans og umráð yf ir framleiðsLu og fjármunum verða á stuttu ára- biLi meiri en lsLerulinga sjáLfra samanLagt, — og vaLd hans í fjármálum og atvinnulífi landsins í réttu IdutfaUi við það. Vanmetakennd og rœfildómur oddvita borgara- stéttarinnar á lsLandi er heLzta orsök þess, að nú virðist stefnt að tortímingu efnaliagsLegs og menningarLegs sjáLfstœðis þjóðarinnar. llin ís- Lenzka borgarastétt jinnur hjá sér vanmátt tiL að stjórna Landi sínu og þjóð af eigin hugviti, þekk- ingu og framsýni. Þessvegna eru oddvitar hennar sífeLlt betLandi og sníkjandi í offramleiðsluhaug- um Bandaríkjanna, í sjóðum þeim, sem œtlaðir eru þjóðum, sem eru að farast úr hungri, og fórna heLgum þjóðréltindum fyrir gýLigjafir. Ef svo heldur fram sem horfir, verður þess ekki langt að bíða, að forystuhLutverkinu verði af henni létt, hvort sem henni Líkar betur eða verr. Þá mun aLuminhringurinn og alþjóðabankinn banda- ríski taka að sér forustuldutverkið í efnaliagsmál- um þjóðarinnar, og vitanLega með eigin hags- rnuni fyrir augum, og hernámsliðið og banda- ríska upplýsingaþjónustan taka að sér þá forystu í menningarmálum hennar, sem stefnt hejur verið að markvisst og með talsverðum árangri síðustu árin. Bæjaryfirvöld i fastasvefni Framh. af 6. síðu. saka jarðhitasvæðið í kringum Sauðárkrók, fá síðan Norður- landsborinn og ef vísindamenn telja álitlegt, að láta þá bora í bæjarlandinu. Annar stærsti kaup- staður Norðurlands — Eruð þið ekki bjartsýnjr á framtíð Sauðárkróks? — Jú, ekki er ástæða til ann- ars. Þessi staður hefur öll skil- yrði til að verða annar stærsti kaupstaður Norðurlands, ef vit og vilji er fyrir hendi. Bærinn er vel staðsettur og samgörígur góðar. Hér er dugmikið fólk og . blómleg sveit að baki. Og þó að fiskimiðin við Skagafjörð séu ekki mjög gjöful um þessar mundir, er aðstaðan við þenn- an stóra fjörð og þau miklu vötn sem í hann falla svo sér- staklega ákjósanleg til fiskirækt- ar, að hér munu vafalaust skap- azt miklir möguleikar, þegar fiskirækt verður orðin almenn. Skagafjörðurinn er glæsilegt landbúnaðarhérað. Nú eru margir svartsýnir á landbúnað- inn og telja jafnvel, að hann eigi ekki rétt á sér. En það væri íurðuleg giámskyggni að láta landbúnaðinn dragast saman. Þjóðinni fjölgar ört, og eftir nokkra áratugi getur orðið erf- itt að fullnægja eftirspurn eftir landbúnaðarvörum. En auðvit- að þarf að skipuleggja landbún- aðinn betur. Sauðárkrókur verð- ur með tímanum öfiug miðstöð matvælaiðnaðar, sem fær hrá- efni jöfnum höndum frá land- búnaði og sj ávarútvegi. — Og nú dregur að bæjar- stjórnarkosningum, segir blaða- maðurinn að lokum. — Já. Það geta orðið örlaga- ríkar kosningar fyrir Sauðár- krók. Því að frumskilyrði þess, að málefni bæjarins komist á heilbrigðan grundvöll er að nú- verandi íhaldsmeirihluta verði hnekkt. Við munum leggja okk- ar skerf af mörkum, svo að því marki verði náð, með því að taka til umræðu ýmis mikilvæg hagsmunamál staðarins í bæj- armálaráði Alþýðubandalags- ins. Ef yður vantar gott radióviðtæki, þá RADION ETTE Norskt úrvals viðtæki með fimm bylgjulengdum, þar á meðal bátabylgju og FM.— 10 gerðir frá kr. 4.400.00 til 17.500.00. Get útvegað Radionett viðtæki og segulbönd með stuttum fyrirvara. Myndasýnishorn á radióvinnustofu minni, Aðalgötu 30, Siglufirði. Kristinn Guðmundsson, útvarpsvirki. LÖGTAK Eftir kröfu innheimtumanns opinberra gjalda, og að undan- gengnum úrskurði, uppkveðnum í fógetarétti Siglufjarðar, hinn 30. desember 1964, verða lögtök látin fram fara, án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldénda en ábyrgð ríkissjóðs, að liðnum átta dögum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum, ógreiddum, en gjaldföllnum árið 1964. Tekjuskatti Eignaskatti Pcrsónuiðgjaldi til almannatrygginga Slysatryggingariðgjaldi . Lífeyristryggingariðgjaldi til almannatrygginga Atvinnulcysistryggingariðgjaldi Nómsbókagjaldi Kirkjugarðsgjaldi Sóknargjaldi Lesta- og vitagjaldi Gjaldi af innlendum tollvörutegundum Rafmognseftirlitsgjaldi Vélaeftirlitsgjaldi Skipaskoðunargjaldi Utflutningsgjaldi Hlutatryggingosjóðsgjaldi Iðnlónasjóðsgjaldi Skipulagsgjaldi Skoðunargjaldi ökutækja Bifreiðaskatti Skemmtanaskatti Launaskatti Söluskatti Bæjarfógetinn í Siglufirði, 11. febrúar 1964. Pétur Gautur Kristjónsson settur Ógreldd bornsmeðlög Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur nú sótt um aðstöðu til að setja í senn 1—2 menn, sem vangreidd eiga barnsmeðlög, á refsi- heimilið Kvíabryggju. Jafnframt verði dráttarvextir reikn- aðir á ógreidd barnsmeðlög og lögtökum beitt, þ,ar sem því verður við komið. Þetta er hér með birt til viðvörunar þeim, sem forðast vildu framangreind viðurlög. Siglufirði, 17/3 1965. Bæjarstjóri. Drdttarvextir á ónreidd bsjargjöld Að gefnu tilefni tilkynnist, að bæjarstjórn hefur ákveðið að dráttarvextir verði reiknaðar á ógreidd bæjargjöld fyrri ára, frá og með s.l. áramótum, og að lögtökum verði beitt við inn- heimtu, þar sem ástæða þykir tii. Þessi samþykkt tilkynnist hér með til viðvörunar þeim, sem forðast vilja áfallandi aukakostnað við innheimtu ógreiddra gjalda sinna. Siglufirði, 17/3 1965. Bæjarstjóri. 4

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.