Mjölnir


Mjölnir - 10.02.1967, Síða 6

Mjölnir - 10.02.1967, Síða 6
Hvað er mest aðkallandi I íþróttamálum Siglufjarðar Endurbætur á gamla íþróttavellinum, — æfinga- brautir fyrir skíðastökk inni í bænum, — raflýsing skíðabrekkna, — meira fé til ráðstöfunar fyrir í- þróttasamtök bæjarins. — Á öðrum stað í blaðinu er sagt jrá þinghaldi íþróttabandalags Siglufjarðar. Hér jara á eftir samþykktir, sem þingið gerði varðandi þau mál, sem mest eru aðkallandi í svipinn fyrir íþróttalífið í bœnum: 1. Þing íþróttábandalags Siglu fjarðar samþykkir að skora á bæjarstjórn að láta strax á vori komanda fara fram gagngerða endurbót á íþróttavellinum við Túngötu, svo hann verði í keppn isfæru ástandi þegar knattspyrnu mót Islands hefst, því fyrirsjáan legt er að fyrirhugað íþrótta- svæði á Langeyrinni verður ekki tilbúið. Jafnframt skorar þing- ið á bæjarstjórn að hraða svo sem unnt er framkvæmdum við íþróttasvæðið á Langeyri. 2. íþróttabandalag Siglufjarð- ar beitir sér fyrir eftirfarandi: a. Alhugun á byggingu æfinga- brautar fyrir skíðastökk inni í bænum, í samræmi við sam þykkt síðasta ársþings ÍBS. b. Að komið verði upp raflýs- ingu við minnsta kosti tvær skíðábrekkur til viðbótar þeirri sem fyrir er, og valdir verði staðir þar sem snjóa- lög eru heppileg og gott að koma fyrir skíðalyftum. Hlýviðrið hagsfætt Rafveitunni Hlýviðri undanfarinna vikna hefur orðið mörgum hagkvæmt, liægt hefur verið að vinna ýmsa útivinnu, svolítið sparast í upp- liitun húsa og allt hefur þetta blíðviðri verkað vel á mann- skepnuna á þeim stöðum, sem engrar sólar hefur notið um tveggja mánaða skeið. Það er eins og mildi veðursins stytti skammdegisstundirnar. Hlýviðrið hefur þó mest að segja fyrir fyrirtæki eins og Rafveituna. í desemberbyrjun var vatnsborðið við Skeiðsfoss orðið ískyggilega lágt og var því farið að nota díselstöðina seinni hluta desember. Vegna hlýindanna í janúar hefur vatns borðið við Skeiðsfoss hækkað verulega og hefur díselstöðin því verið stöðvuð og er gott út- lit fyrir að Skeiðsfoss geti ann- að raforkuþörfinni næstil vikur. Af óviðráðanlegum ástœðum seinkaði útkomu þessa tölublaðs Mjölnis um 3 daga. 6) Mjölnir c. Að framkvæmd verði raun- hæf athugun í samráði við skíðafélagið á því, livar heppilegast er að byggja í Siglufirði stærri mannvirki til skíðaiðkana, svo sem stóra stökkbraut (50 m), skíða- lyftu og skíðaskála. d. Að stóraukið verði framlag bæjarins til íþróttamála, til samræmis við það, sem nú á sér stað hjá öðrum bæjar- og sveitarfélögum. . Þar var rætt um starfið á liðnu ári, sagðar fréttir af lands fundi Alþýðubandalágsins, sem haldinn var í Reykjavík á sl. hausti og rætt um starfið á næstu mánuðum til undirbúnings Al- þingiskosningunum í vor. Ragnar Arnalds, alþm., var mættur á fundnium. 1 aðalstjórn félagsins fyrir narfsta starfsár voru þessi kosin: Einar M. Albertsson, formaður, Kolbeinn Friðbjarnars., ritari, Hinrik Aðalsteinsson, gjaldkeri, Valey Jónasdóttir, meðstjórn., Os'kar Garibaldason, meðstj. e. Vegarlagningu að Skíðafelli í sambandi við væntanlegar hitaveituframkvæmdir. 3. Leggjum til í sambandi við litla æfingastökkbraut inni í bænum, að ÍBS láti fara fram athugun á svæði nyrzt á svo- nefndu Jónstúni, milli Hverfis- götu og Hávegs, sunnan Hávegs 14, og ef sá staður reynist heppi- legur, sem við álítum, þá verði þess óskað við bæjarstjórn að íþróttasamtökunum verði afhent ur þessi staður til fyrrnefndra nota. 4. Áfsþing ÍBS 1967 skorar á bæjarstjórn Siglufjarðar að hækka fjárframlag sitt til íþrótta bandalags- Siglufjarðar allveru- lega, til samræmis við framlög annarra bæjar- og sveitarfélaga, í a. m. k. kr. 250.000.00. Mikill á'liugi ríkti á fundinum fyrir því að gera kosningabar- áttuna sigursæla, og samkvæmt urslitum bæjarstjórnarkosninga á sl. ári, hefur Alþýðubandalag- ið mikla sigurmöguleika hér í kjördæminu, þ. e. að fá Ragnar Arnalds kjördæmakosinn á Al- þing. Lúðrasveitar-bingó Lúðrasveit Siglufjarðar ráð- gerir á næstunni skemmtanir í fjáröflunarskyni, — þar verður spilað á lúðra og bingó, en allt verður þetta auglýst nánar síðar. IfrirframgrcMo ðtsviri 1967 Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur samþykkt að nota heimild í lögum nr. 51/1964 um fyrirframgreiðslu útsvara. Samkvæmt því ber öllum útsvarsgjaldendum Siglufjarðar- kaupstaðar að greiða fyrirfram upphæð, er nemur helmingi útsvars sl. árs. Fyrsta gréiðsla átti að fara fram 1. febr. sl. og þessum greiðslum skal lokið fyrir 1. júní.' Atvinnurekendum ber að halda eftir að kaupi starfsmanna sinna, skv. kröfum frá bæjargjaldkcra, upp í nefnda fyrirfram- greiðslu, og bera ábyrgð á greiðslum þessum, sem eigin út- svari. Siglufirði, 2. febrúar 1967. Bæjargjaldkerinn, Siglufirði. Aðalíundur Alþýðubandalagsins á Siglnfirði var nýlega haldinn --------------------f---------------------------- Þökkum innilega auðsýndo samúð og vinóttu við andlót og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS BJÖRNSSONAR, skipstjóra. Börn, tengdobörn og barnabörn. Húiseig:n til söla Húseignin Aðaigata 21, Siglufirði, ásamt lóð, er til sölu. Á neðri hæð 'hússins er verzlunarpláss og ca. 100 fermetra lagerpláss, en íbúð á efri hæð. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum. Símar 71180 á dag- inn, heimasími 71165. Jónas Ásgeirsson. FJáreigrendnr, athngrið! Utborgun á uppbót á kindakjöti, framl. 1965, verður í Suðurgötu 22 (útibúi KBS) á miðvikudögum og föstudög- um kl. 20—22 e. h. næstu vikur. Kjötbúð Siglufjarðar. Arðmiðar if viðskiptum ársins 1966 skilist á skrifstofu okkar fyrir 15. febrúar n.k. Kaupfélag Siglfirðinga. Samkvæmt lögum um vinnumiðlun og atvinnuleysistrygg- ingar, fer fram almenn atvinnulevsisskráning dagana 7., 8. og 9. febrúar n.k. Skráningin fer fram á bæjarskrifstofunni á venjulegum skrifstofutím'a, frá kl. 9—12 árdegis og 1—5 síðdegis greinda daga. Siglufirði, 2. febrúar 1967. Bæjarstjórinn. TILKYNNING um gjalddaga persónuiðgjalda almannatrygg- inga í Siglufjarðarkaupstað 1967 Fyrri gjalddagi persónuiðgjalda til almannatrygginga 1967 er nú í janúarmánuði. Ber gjaldendum þá að greiða iðgjöld sem hér segir: Hjón og karlar, ókvæntir, kr. 2000.00, ógiftar konur kr. 1400.00. Eftirstöðvar gjaldanna falla í gjalddaga í júnímánuði n.k. Sé sá hluti gjaldanna, sem greiðast á í janúar, eigi greidd- ur á réttum gjalddaga, er allt gjaldið í eindaga fallið, auk þess sem slí'kt getur haft skerðingu bótaréttar í för með sér. Bæjarfógetinn í Siglúfjarðatkaupstað, 14. jan. 1967. Elías I. Elíasson.

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.