Mjölnir


Mjölnir - 10.02.1967, Síða 7

Mjölnir - 10.02.1967, Síða 7
! Óskar Garibaldas. Viðtal við Framhald af 1. síðu. togveiða- og línubáta, miðað við slægðan fisk. Þá verður nú gerð tilraun til að örva útgerð smá- báta frá Sauðárkroki með sér- stakri aðstoð, og útgerð neta- báts, sem mun leggja upp á Hofsósi. Sá bátur fær svipaða fyrirgreiðslu og togbátarnir. Þá var samþykkt lítilsháttar aðstoð í sambandi við rækjuvinnslu á Drangsnesi. — Geturðu sagt mér eittlwað um, hver þátttakan verður í út- gerð hér norðanlands í vetur? ■ — Ekki nákvæmlega. Við ger- um okkur þó vonir um, að hún verði meiri en í fyrra. T. d. munu togbátar verða sex nú, móti þrem í fyrra, frá Siglufiröi, Ól- afsfirði, Hrísey og Akureyri, einn frá hveíjum stað, og tveir frá Dalvík. — Hvað um árangur af starfi nefndarinnar sl. ár? — Eins og ég sagði, verður skýrsla hennar væntanlega birt innan skamms, og tel ég ekki rétt að gera efni hennar að blaða- mat nú. En við stöndum í þeirri meiningu, að okkur hafi tekizt að hafa nokkur áhrif með verð- uppbótunum á fisk og ýmislegri annarri fyrirgreiðslu. Afli tog- og iínubáta, sem lagður var á land á Siglufirði, Dalvík og Ól- afsfiröi, varð miklu meiri eftir að uppbæturnar komu til en ár- ið á undan, og hafði því'veruleg áhrif á landvinnuna. — Þú sagðir, að nefndin hœtti störfum 1. júní í vor. — Eins og flestir vita, sem á annaÖ borð vita um tilveru þess- arar nefndar, var hún stofnuö sumarið 1965 með samkomulagi sem gert var milli verkalýðsfé- laganna og ríkisstjórnarinnar. Þá var ákveðið, að starfstími hennar yrði tvö ár. Sá tími renn- ur út í vor. -— Það hefur stundum verið sagt, að verkalýðsfélögin hafi keypt ríkisstjórnina til að gera sjálfsagðar ráðstafanir í atvinnu málum Norðurlands, með því að slá af almennum kröfurn um kaup og kjör. — Það er rétt, að við slógum af kröfum okkar 1965 gegu lof- orði um ráðstafanir í atvinnu- málum, og sættum okkur við lægra kaup en Sunnlendingar fengu. Þetta héfur þó jafnast nokkuð síðan, t. d. er lægsti taxti okkar nú kr. 46.76, en Dags brúnar 45.62. Dagsbrúnarmenn fá hins vegar hækkun upp í kr. 47.90 á lægsta taxta sínum eftir tveggja ára starf, en við fáum ekki slíka hækkun. Sjálfsagt má deila um það, hvort við höfum gert rétt, þegar við sömdum 1965 og sjálfsagt eru einhverjir, sem segja, að við höfum samið af okkur, bæði þá og síöan. En hvað sem um það er, þá lít ég svo á, að starfsemi atvinnumála- nefndarinnar hafi orðið til gagns og að samningurinn við ríkis- stjórnina hafi fært okkur það, sem við gerðum okkur vonir um. —- Svo nefndin verður þá lögð niður í vor? — Samningstíminn rennur út í vor. Það er vonandi, að at- vinnuástandið hér norðanlands táki fljótlega þeim breytingum, að ekki verði þörf fyrir nefnd eins og þessa. En að óbreyttum aðstæðum held ég að það væri skaði að leggja hana niður, sagði Óskar að lokum. Ólafsfjörður fær sjólf- virkan síma Sjálfvirkur sími var tekinn í notkun í Ólafsfirði þann 13. jan. sl. Stöðin er gerð fyrir 300 númer alls, en nú voru tekin í notkun 175 númer. Ólafsfjörður tilheyrir svæði 96 og byrja núm- er þar á 62. Stöðvarstjóri pósts og síma í Ólafsfirði er Brynjólf- ur Sveinsson. MAÐUR DRUKKNÁR Þann 17. jan. sl. varð það slys, að maður féll fyrir borð á vélbátnum Stíganda frá Skaga- strönd, er hann var í róðri. — Maðurinn náðist ekki og var hans leitað lengi árangurslaust. Hann hét Ingólfur Bjarnason, Bjargi, Skagaströnd, 28 ára gam all og lætur eftir sig tvö börn. Firmakeppni Tennis- og badmintoniélags Sigluijarðar Fyrir skömmu fór fram firma keppni Tennis- og badminton- félags Siglufjarðar. Urslit urðu þau, að 1. verðlaun hlaut blaðið Mjölnir, en keppandi fyrir það var Haraldur Erlendsson, í- þróttakennari. 2. verðlaun hlaut Trésmíðaverkstæðið Aðalgötu 1, en keppandi fyrir það var Gunn- ar Blöndal. Þátttaka í þessari firmakeppni var mjög góð bæði af hálfu keppenda og fyrirtækja. Starfsemi Tennis- og badmin- tonfélagsins hefur staðið með miklum blóma, en þrengsli í fimleikahúsinu há þá starfsem- inni nokkuð, þar sem salurinn er í stöðugri notkun frá því snemma á morgnana og allt fram til miðnættis. Hyggja þeir TBS- menn og fleiri frj álsíþróttamenn gott til glóðarinnar, ef sundhall- arsalurinn kemst einhvern tínia í notkun sem íþróttasalur. saltað, nýtfr og reykt nýtt, reykt og súrsað ogr TÍnarpyknr Vörur fró Slóturfélagi Suður- lands eru gæðafæða GESTUR FANNDAL Hý tegund bifreiðatrygginga Samvinnutryggingar hófu bif- reiðatryggingar í janúar 1947 og eru því um þessar mundir liðin 20 ár, síöan sú starfsemi félagsins hófst. A þessu tímabili hafa Sam- vinnutryggingar beytt sér fyrir margvíslegum nýjungum og breytingum á bifreiöatrygging- um, sem allar hafa verið gerðar með tilliti til hags hinna fjöl- mörgu viðskiptamanna. Hálf-Kasko Nú hafa Samvinnutryggingar þá ánægju að kynna nýja tegund bifreiðatryggingar, sem nefnd Einkabifreiðir Fólksbifreiðir, gegn borgun Jeppabifreiðir Vörubifreiðir, einka Vörubifreiðir, atvinnu Vörubifreiðir, gegn borgun Sendiferðabifreiðir Reiðhjól með hjálparvél Dráttarvélar Við undirbúning þessara trygg inga, hefur verið leitazt við að koma til móts við þá mörgu bif- reiðaeigendur, sem ekki telja sér hag í því að hafa bifreiöir sínar í fullri kaskotryggingu. hefur verið HÁLF-KASKO, og er nýjung hér á landi. Trygging þessi er hentug fyrir allar teg- undir og geröir bifreiða. Tryggingin bætir skemmdir, sem verða á ökutækinu sjálfu af völdum BRUNA, ÞJÓFNAÐAR, VELTU og/eða HRAPS og auk þess RÚÐUBROT af hvaða or- sökum, sem þau veröa. ISgjöld fyrir þessa nýju trygg ingu eru sérlega lág, og um veru- lega iðgjaldalækkun á bruna- tryggingu bifreiða er t. d. að ræða. Ársiðgjald nokkurra bif- reiðagerða eru sem hér segir: ársiðgjald frá kr. 850.00 ársiðgjald frá kr. 1.200.00 ársiðgjald frá kr. 850.00 ársiögjald frá kr. 850.00 ársiögjald frá kr. 1.000.00 ársiðgjald frá kr. 1.050.00 ársiðgjald frá kr. 950.00 ársiðgjald frá kr. 150.00 ársiðgjald frá kr. 450.00 Upphafið í ársbyrjun 1947 voru hér mun færri tryggingafélög en nú, og höfðu þau flest starfað í ára- tugi og því lítið um samkeppni að ræða milli þeirra. Forráða- menn Samvinnutrygginga voru í upphafi ákveðnir að gefa bif- reiðaeigendum kost á ýmsum nýjungum í bifreiðatryggingum, sem þá höfðu rutt sér braut er- lendis, svo sem hinu svonefnda afsláttarkerfi (bónus), sem Sam- vinnutryggingar tóku strax upp og valdiÖ hefur byltingu í þess- ari tryggingagrein hér á landi. Flest önnur tryggingafélög hafa síöan tekið upp þetta kerfi, sem eins og flestum er kunnugt, bygg ist á því, að menn fá verulegan afslátt af iðgjaldinu, ef þeir valda ekki tjóni, og er mönnum þannig mismunað eftir hæfni þeirra í akstri. Afsláttur þessi nemur nú stórum upphæðum, sem varkárir ökumenn og bif- reiðaeigendur hafa sparað á þennan hátt. Bónuskerfið hefur nýlega verið tekið til endurskoö- unar, og fá nú gætnir ökumenn allt að 60% afslátt af iðgjaldi ábyrgðartrygginga bifreiða. Heiðursviðurkenningar og ÖF-trygging Ökumenn hafa verið heiðrað- ir fyrir góðan akstur og hafa 4655 hlotið viöurkenningu fé- lagsins fyrir 5 ára öruggan akst- ur og 1648 viöurkenningu og verðlaun fyrir 10 ára öruggan akstur, en verðlaunin eru fólgin í því, að ellefta tryggingarárið er iðgj aldsfrítt. Stofnaðir hafa verið klúbbarnir „Öruggur akst- ur“ víðs vegar um landið fyrir frumkvæði Samvinnutrygginga, en þessir klúbbar hafa það mark- mið að auka . umferðaröryggi, fyrst og fremst í heimahögum og almennt í samráði við aðra aðila. í byrjun árs 1966 var tek- in upp ný ökumanns- og farþega- trygging, sem var algjör ný- lunda hér á landi. Alvarleg slys hentu á sl. ári, þar sem bætur voru greiddar úr tryggingu þess- ari, og hefur hún því þegar sýnt hversu nauðsynleg hún er. Umferðarmál Allir vita, að umferö hér á landi er óeðlilega hættuleg, þar sem talið er, að nærri þriðja hverja bifreiÖ, að meðaltali, lendi í tjóni á ári hverju. Þetta er hærra hlutfall en í öðrum löndum, þar sem umferð er mun meiri, og ber að gera allt, sem hægt er, til að ráða bót á ástand- inu. Meðan bifreiöum og bifreiða- stjórum fjölgar jafn mikið og verið hefur nú hin síðari ár, má ljóst vera, að hér stefnir í óefni, ef ekki er að gert í tæka tíð. Verður þar að koma til forystu allra ábyrgra aðila, í þeim mál- um, sem um umferð og um- ferðaröryggi fjalla og vakandi áhugi og samvinnuvilji allra veg- farenda. Allt frá upphafi liafa Sam- vinnutryggingar lagt áherzlu á hvers konar fræðslustarfsemi í umferðarmálum, og reynt eftir föngum að aðstoöa þá, sem starf að hafa að slysavörnum og um- ferðarumbótum. — Má þar til nefna, að félagið hafði forystu ásamt öðrum bifreiðatrygginga- félögum um stofnun samtakanna VARÚÐ Á VEGUM á sl. ári. Meðan hin háa hlutfallstala umferðarslysa hefur ekki verið lækkuð, er enn meira áríðandi en ella fyrir bifreiðaeigendur og aðra forráðamenn bifreiða, að geta fengið fyrir sannvirði margs konar tryggingar, sem firra þá fjárhagslegu tjóni og öðrum ó- þægindum, ef illa tekst til. Á þessu sviði sem öðrurn bjóða Samvinnutryggingar mikla og fjölbreytta þjónustu, og sýnir hinn mikli fjöldi trygg- ingartaka hjá félaginu á þeim tveim áratugum, sem liðnir eru frá stofnun þess, að þessi við- leitni hefur verið metin að verð- leikum. ( Fréttatilkynning) Mjölnir — (7

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.