Mjölnir - 05.01.1995, Page 2

Mjölnir - 05.01.1995, Page 2
Mjölnir Útgefandi: Alþýðubandalagið í _____________________Siglufirði. Ritnefnd: Hinrik Aðalsteinsson ábm., Signý Jóhannesdóttir auglýs., Sigurður Hlöðvesson setn. og umbrot. Hvers viröi er vörn fyrir börn Um hveráramótferfram mikil fjáröflun hjáýmsum félagasamtökum, svo sem íþróttafélögum, umgtemplurum og ekki hvaö síst hjá hjálparsveitum og slysavarnarfélögum. Landsmenn kaupaflugelda og blys fyrir hundruö milljóna króna. Menn vilja jú alltaf leggja góöu málefni liö. Gamla áriö kveöur og þaö nýja gengur í garö og hartnær hálfum milljaröi er skotiö á loft og allir eru glaöir og reifir. Hættunni boöiö heim. Þá kemur aö hinni hliö þessa máls. Þaö veröa of margir sárir og reifaðir, eftir þessa hættulegu fjáröflun. Þeir eru sem betur fer víst óvenju fáir eftir þessi áramót, aö sögn fjölmiðla. Eitt slasaö barn er samt einu barni of mikiö. Milli jóla og nýárs ár hvert eru fjölmiðlar fullir af aðvörunum og áróöri vegna þessarar herferðar. Inn á milli eru því miöur jafnan fréttir af voðaatburðum sem orðið hafa vegna þess aö einhverjir voru aö fikta viö hluti sem þeir kunna ekki meö aö fara. Lög og reglur segja aö ekki megi selja börnum yngri en 16 ára hættumeiri skotelda en börnum yngri en 12 ára hættuminni vöru. Þetta er skiigre'ningin sem ég fékk hjá lögreglumanni hér í bæ og ég verö aö játa eö mér þykir hún óljós. En ég spyr hvern sem svara vill: Hvaö hafa börn aö gera viö sprengiefni? Er þaö sæmandi samtökum, sem kenna sig viö slysavarnir og björgun mannslífa aö selja smábörnum sprengiefni. Ég segi smábörnum því mér er fullkunnugt um aö reglur um aldurstakmörk eru ekki virtar. Þaö væri fróðlegt aö fá upplýsingar um þaö t.d. hjáBjörgunarsveitinniStrákum.hverágóðinnvaraf sölu smáhlutanna t.d. kínverjanna og púöurkerlinganna, eöa hvaö þetta nú heitir sem sprengtvart.d. ígosflöskum íhúsasundumíbænum, síðustu daga ársins. Hvaö þyrftu foreldrar aö greiöa fyrir aö losna viö þennan ófögnuö. Ég gæti trúaö aö flestir strákar eyddu aö jafnaöi 500, jafnvel 1.000 Kr. í þetta rusl (einkennilegt hvaö þetta er kynbundið). Ég tel aö þeir peningar væru betur komnir óbrunnir í sjóöi “Stráka”. Mér fyndist aö menn ættu alvarlega aö skoöa hug sinn í þessu máli og taka upp nýja og betri siði. Hvernig væri t.d. aö hafa flugeldasöluna einungis opna einn eöa tvo daga fyrir áramót og selja fullorönum, 16 ára, eðasem væri enn betra, einungis 18 ára og eldri. Þannig væri átakinu “Vörn fyrir börn” sýnd viröing í verki. Signý Jóhannesdóttir. Prófkjörsraunir framsóknar "Aðförin að Páli” Töluverðar stimpingar hafa átt sér stað hjá framsóknar- mönnum í tengslum við prófkjör flokksins. StefánGuðmundsson alþingismaður á Sauðárkróki hefur lýst því yfir að hann vilji taka fyrsta sæti á framboðslista framsóknar við næstu kosningar. En Páll Pétursson sem skipað hefur sætið í nokkur kjörtímabil er ekki á þeim buxunum að gefa sætið eftir til Stefáns. Svo virðist sem Stefán og Elín Líndal varaþingmaður hafi gert með sér kosninga- bandalag þar sem Stefáni sé ætlað 1. sætið en Elínu 2. sætið og Páll komist jafnvel ekki á blað. Mikill titringur er meðal framsóknarmanna og óvíst hvemig fer. Heyrst hefur að Páll Pétursson hafi verið í liðskönnun á Siglufirði og í uppsiglingu sé bandalag Páls og S verris.En Sverrir Sveinsson veitustjóri hefur skipað 4. sæti listans og mun óttast að færast neðar á listann. Talið er líklegt að þeir Páll og Sverrir muni snúa bökum saman og reyna að spyma við fótum. Þá vaknar sú spuming h vort siglfírskir framsóknarmenn séu ginkeyptir fyrir því að hampa Páli, en hann hefur verið 1. þingmaður Norðurlands- kjördæmisins vestra. Ekki hafa farið sögur af því að Páll hafi verið sérstaklega hliðhollur Siglfirðingum frekaren Stefán. Páll er reyndar ásamt Pálma Jónssyni aðalstuðningsmaður hafnarframkvæmda á Blöndu- ósi og hefur barist hart fyrir fjáraustri í vonlausa höfn. Fjárveitingartil Blönduóshafnar á ámnum frá 1992 - 1995 em um 119 milljónir og er verkið þá um það bil hálfnað. 8 MILLJONIR Heppnin bíðurþín hér Eina stórhappdrættið þar sem liæsti vinningurinn gengur örugglega út. Ef hann gengur ekki út í einum mánuði leggst hann við þ; hæsta næst... og svo koll af kolli. Enginn veit þess vegna hversu hár hann getur orðið. Stórglcesilegir aukavinningar: Listaverk eftir marga af þekktustu listamönnum okkar, í hverjum mánuði. Tryggðu þér möguleika ... fyrir lífið sjái j ,,, V/SA Samkort Verð mióa er aðeins 600 kr. 5. jan. 1995 MJOLNIR 2

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.