Mjölnir - 05.01.1995, Page 3
Enn af fjárveitingum
Framhald af baksíöu
Ur bæjarlífinu!
En ekki er ein báran stök.
Þegar litið er til fjárveitinga í
vcgagerð er sama uppi á
teningnum. Allir hafa fy lgst með
lagningu bundins slitlags í
kjördæminu, en samkvæmt
áætlun mun vegurinn frá
Siglufirði upp í Varmahlíð ekki
vera kominnmeðbundið slitlag
fy rr en í fyrsta lagi í árslok 1998.
Á sama tíma verður búið að
leggja bundið slitlag á fáfama
sveitavegi víða í kjördæminu.
Þá er einnig athyglisvert að
fylgjast með umræðum um
vegalagningu til austurs frá
Siglufirði. Þarhafaveriðraxldir
tveir möguleikar, þ.e.
uppbygging heilsárs vegar yfir
Lágheiði, eða jarðgangagerð í
gegnum Héðinsfjörð til
Ólafsfjarðar. Siglfirðingar hafa
viljað láta skoða þessa valkosti
og í gangi er vinnuhópur sem á
að skoða málið. En h vemig hafa
þingmennimir “okkar” tekið í
málið ? Jú 4 af 5 þingmönnum
hafa lýst því yfir að vegur yfir
Þverárfjall komi á undan
vegabótum yfir Lágheiði. Þeir
Pálmi, Páll, Vilhjálmur og
Stefán hafa lýst því yfir að hér
skuli Siglfirðingar bíða enn um
sinn, vegalagning um
Þverárfjall hafi forgang fram
yfir Lágheiði.
Sigurður Hlöðvesson
Siglfiröingar munið forval
Alþýöubandalagsins um rööun á
framboðslista flokksins til
Alþingiskosninga
Framhaldsdeild
Ákveðið er að starfrækja
framhaldsdeild hér á vorönn.
Inritun stendur nú yfir og líkur
em á að um svipaðan fjölda
nemenda verði að ræða og á
haustönn.
Verslunarmannafélag
Siglufjaröar deild í
Vöku
Verslunarmannafélag Siglu-
fjarðar hefur verið lagt niður
sem sjálfstætt félag og hafa
félagsmenn þess stofnað deild
verslunarmanna innan verka-
lýðsfélagsins V öku. Á lokafundi
félagsins var ákveðið að færa
orgelsjóði kirkjunnar eitt
hundrað þúsund krónur og
Síldarminjasafninu sömu upp-
hæð. Núverandi stjóm skipa
Ólöf Markúsdóttir, Stefán G.
Aðalsteinsson og Víola
Pálsdóttir.
ÓSKIPTAR Á EINN MIÐA 12. JANÚAR
HVAMMSTANGI:
Róberta Gunnþórsdóttir,
Lækjargötu 6, sími 95-12468
BLÖNDUÓS:
Kaupfélag Húnvetninga,
sími 95-24200
SKAGASTRÖND:
Guðrún Pálsdóttir,
Bogabraut 27, sími 95-22772
SAUÐÁRKRÓKUR:
Friðrik A. Jónsson,
Háuhlíð 14, sími 95-35115
HOFSÓS:
Ásdís Garðarsdóttir,
Kirkjugötu 19, sími 95-37305
SIGLUFJÖRÐUR:
Birgir Steindórsson,
Aðalgötu 26, sími 96-71301
GRÍMSEY:
OLAFSFJORÐUR:
Valberg hf., sími 96-62208
HRÍSEY:
Erla Sigurðardóttir. sími 96-61733
DALVÍK:
Sólveig Antonsdóttir.
Verslunin Sogn. sími 96-61300
AKUREYRI:
Björg Kristjánsdóttir.
Strandgötu 17, sími 96-23265
SVALBARÐSSTRÖND:
Sigríður Guðmundsdóttir.
Svalbarði, sími 96-23964
GRENIVÍK:
Brynhildur Friðbjörnsdóttir,
Túngötu 13B, sími 96-33227
LAUGAR REYKDÆLAHREPPI:
Rannveig H. Ólafsdóttir,
sími 96-43181
MYVATNSSVEIT:
Hólmfríður Pétursdóttir.
Víðihlíð. sími 96-44145
HÚSAVÍK:
Jónas Egilsson.
Arholti. sími 96-41405
AÐALDALUR:
Kristjana Helgadottir.
Hraungerði. simi 96-43587
KÓPASKER:
Oli Gunnarsson. simi 96-52118|
RAUFARHÖFN:
ísabella Bjarkadottir
Ásgötu 16. sími 96- 51313
ÞÓRSHÖFN:
Sparisjóður Þórshafnar og
nágrennis, sími 96-81117
Kristjana Bjarnadóttir,
Sæborg, sími 96-73111
Fáðu þér áskrift í tœka tíð.
Nýtt áskriftarár er að hefjast. Dregið 12. janúar.
Uþplýsingar iim nœsta umboðsmann í sínia 91-22150 og 23130
Skörö í
sjóvarnargarö
Tvö skörð komu í sjóvamar-
garðinn norðan við athafna-
svæði olíufélaganna í stór-
briminu sem gekk yfir
sunnudaginn 18. des. s.l. Ljóst
er að viðgerð getur orðið
kostnaðarsöm, m .a. þar sem ekki
hefur verið lokið við uppfy llingu
sunnan garðsins.
Góö kirkjusókn
Kirkjan okkar var þétt setin
á aðventukvöldi 4. des. s.l. Þar
gafst tækifæri til að hlýða á
hljómsveitir og kóra og
Fílapenslamir sýndu að þeim er
fleira til lista lagt en að grínast
því þeir fluttu hugljúf jólalög.
Um hátíðimar setti tónhstarfólk
svip sinn á messuhald, bæði
nemendahljómsveit Tónlistar-
skólans, trompetleikararnir
Daníel Pétur Daníelsson og
Sigurður Hlöðvesson að
ógleymdum Lazlov Hevesi sem
lék á saxafón.
Aöalfundur
sjómannadeildar
Á aðalfundi sjómanna-
deildar verkalýðsfélagsins
Vöku sem haldinn var milli jóla
og nýárs var m.a. ákveðið að
afla heimildar til verkfalls-
boðunar auk þess sem settar voru
upp kjarakröfur sjómanna vegna
komandi samninga. Nýjastjóm
deildarinnar skipa þeir: Þórir
Stefánsson, Guðbrandur
Sigþórsson og Siguröur öm
Baldvinsson.
Guðný Pálsdóltir.
^ima
viðskiptavinum ojj
öðrum Sifjífirðingum
farsczídar á níjju ári
með þökýfyrir
viðsújptin
Ólafur Kárason
byggingameistari
s. 71833
5. jan. 1995
M.IOLNIR 3