Fylkir - 01.09.1950, Blaðsíða 3
FYL KIR
3
I Árnasafni
Pramhald a( 3. síðu.
hælt, á hverju sem gcngur á
venjulegum lriðarlíimun og
jjó eitthvað bjáti á uniiram
jjað. Og um leið virðuleg
húsakynni sem haía upp á
starfsskilyrði að bjóða, varð-
andi umhirðu salnsins og
notkun.
El ekki í'æst úr bætt á ann-
an hátt vildi ég sem Iítill
liðsmaður er stendur álengd-
ar l’jarri stinga upp á |)\ í að
íslendingar byggi sómasam-
lega yfir Árnasafn í Kaup-
mannahöfn. Og er til of mik-
ils mælt jjótt bókum Árna
Magnússonar verði safnað
saman og þær varðveittar
með Árnasafni en ekki faldar
innan inn tugþúsundir ann-
arra bóka.
Hlustendur góðir. Eg hef
liætt mér út á þá braut að
ræða mál sem ég hef enga sér-
jjekkingu á og aðeins augna-
bliks kynni af, ef glöggt er
reiknað. En ég vona að ekk-
ert sé ofsagt, og ég finn að
hér horfir öðru vísi við, en
allur fjöldi íslenzkra manna
og kvenna hyggur að vera
muni. Fleirum mun fara sem
mér að þeir eiga ekki á slíku
von. Þeir voru sem ég oi fá-
Iróðir og of iítið kunnugir við
Eyrarsund til þess.
Hversu sem fer um Árna-
safn, alltaf verða bóklellin
gömlu hluti ai íslenzku þjóð-
inni, lífskjörum hennar í
sæld og eymd. Þar eru stuðla-
bferg og lossaiöll vorrar
iungu.
,,Hvar scm rg flelti, við eyru
mér ólguðu og sungu —
Uppsprettulindir og niðandi
vötn minnar tungu“
segir Jón Helgason og með
sanni.
Á. G. E.
Gjafir til Minnismerkis-
sjóðs.
Fyrir nokkr ubárust sjóðnum
Ivær peningagjafir.
Frá S. Fiermansen, Ásbyrgi kr.
300,00 til minningar um son
hans, Aubert, er hrapaði í Flug-
um árið 1939.
Frá Rósu Fljartardóttur, Nýja-
húsi, kr. 200,00 til minningar
um föður hennar, Hjört Aust-
mann, er hrapaði í Hellisey 23.
ágúst 1883.
Með beztu þökkum móttekið.
F. h. sjóðsstjórnarinnar.
Runolfur Johannsson
45% ostur
Mysuostur
Egg
Tómatar.
Neytendafélagið.
Áskorun
Hérmeð cr aivarleqa slcorað á þá, sem eiga opnar
safnþrær á Heimaey að sjá um að op þeirra verði
byrgð hrð allra fyrsta, þannig að ekki sé hætta á að
börn cða aðrii geti fallið í þær.
Bæjarfógetinn í Vestmannaevjum, 30. ágúst 1950.
TILKYNNING
tll skaltgreiðenda í Veslmannaeyjum.
Hérmeð eru skattgreiðendur í Vcstmannaeyjum árið 1950 minntir
á að greiða skatta sína til hæjarfógetaskrifstofunnar að Tindastóli
þegar í stað. Eftir mánaðamótin ágúst-september verður úrskurð-
oð að lögtök fari fram til tryggingar ógreiddum sköttum og enn-
fremur verður þá farið að krcfjactvinnurekendur um að halda eftir
að kaupi starfsmanna upp í skattana.
Bæjarfógeti.
AUGLÝSING
nr 18/1950
frá skömmtunarsf-jóra.
Ákveðið hefur verið að reiturinn „Skammtur 16." (fjólublár)
af núgildandi „Þriðja skömmtunarseðli 1950" skuli gilda sem við-
bófarskammtur fyrir einu kílógrammi af sykri vegna hagnýtingar
á berjum, á tímabilinu frá og með 30. ágúst til og með 30. septem-
ber 1950.
Reykjavík, 29. ágúst 1950.
Skömmtunarstjóri..
Skuldabréf
Hafnarsjóðs
Athygli almennings er vakin á skuldabréfum hafnarsjóðs. Bréfin
eru tryggð með ábyrgð rikissjóðs og bera 6% ársvexti. Lánstími
er 15 ár. Stærð bréfanna er 1000 og 5000 krónur.
ATVIN
Styðjið nauðsynlegar framkvæmdir við höfnina og kaupið þessi
bréf með fé yðar, sem þér ætlíð ekki að nota á næstu árum.
Bréfin fást á skrifstofu bæjarins.
Athygli er vakin á ákvæðum laga, um skyldur atvinnurekenda að
halda eftir af kaupi starfsmanna sinna til grciðslu útsvara.
Bæjarstjóri.
Bæjarstjóri.