Fylkir - 23.12.1955, Page 6
6
JÓLABLAÐ FYLKIS 1955.
Varðskipið SÆBJÖRG byggt í Danmörku úr
tré, sem björgunarskúta jyrir Slysavarnarjélag ís-
lands og er ennþá í eign þess, en gert út á kostn-
að landltelgisgcezhinnar. Skipið umbyggt 1947-48
og þá lengt um 4,5 metra. Stœrð: Fyrst 64 rúm-
lestir, nú 101 rúmlest. Gangur: 10 sjómílur. Vopn:
37 mm. fallbyssa.
NYTT VARÐSKIP. Sem stendur hefir Land-
helgisgcezlan nýtt björgunar- og varðskip í smíð-
um í Reykjavík, og leggur Björgunarskútusjóður
Norðurlands jram 1 milj. kr. til smíðarinnar. Skij)
þetta er nú til-búið til að hlaupa af stokkunum og
verður vcentanlega tekið í notkun á ncesta ári. —
Slcerð skipsins eru rúmar 200 rúmlestir brúttó,
gangur 12-13 sjóm. á klst.
Varðskipið MARÍA-JÚLÍA var byggt í Dan-
mörku áirið 1950. Skipið er að nokkru leyti byggt
með styrk úr Björgunarskútusjóði Vestfjarða og
ennfremur útbúið til fiski- og hafrannsókna hér
við land. Stœrð 138 rúmlestir brúttó, gangur 11,5
sjómílur á klst. Vopn: Ein 47 mm. fallbyssa.
FLUGBÁTUR. Eins og kunnugt er hefir
Landhelgisgæzlan á undanförnum árum noiað
flugvélar töluvert til gæzlustarfa og oft með á-
gætum árangri. Hingað til hafa einungis verið not-
aðar venjulegar farþegaflugvélar, sem hafa verið
leigðar í hvert skipti, en nú hefir Landhelgissjóður
keypt sérstaklega útbúinn Catalína-flugbát af gerð
inni PBY-6A, sem er nýjasta gerð þessarar þeklitu
vélategundar.
Vél þessi var upprunalega í eigu bandaríska
setuliðsins í Keflavík og notuð til eftirlits- og
björgunarflugs hér við land, en laskaðist lítillega
fyrir norðan og var þá keypt og sett í lag af ísl.
flugmálastjórninni, sem nú hefir selt gæzlunni vél-
ina. ji : f •; f ;
Flugbáturinn mun verða staðsettur á Reykja-
víkurflugvelli og verður föst 5-6 manna áhöfn við
hann.