Fylkir


Fylkir - 23.12.1955, Side 9

Fylkir - 23.12.1955, Side 9
JÓLABLAÐ FYLKIS 1955. 9 J norðurvegi (í fyrra kom út í Noregi bók eftir frú Lis Nansen Höyer, (lóttur heimskautafarans alkunná, Fridthjof Nansen, sem allir kannast við. Bókin, sem lieitir „Eva og Fridthjof Nanscn,“ fjallar um einkalíf þeirra Nansen hjónanna, og verður lesandi bókarinnar vísari, að ekki var síður í frú Nansen spunnið en mann hennar, sem ineð sanni má segja um, að ekkert mannlegt lét sér óviðkom- andi. Árið 1893 lagði Nansen upp í sína frægú heimskautsför með skipinu „FRAM," sem var smíðað gagngert til þess að þola ísinn á norðurslóðum. Nansen komst ásamt félaga sínum, Johansen að nafni, á 86.° 14“ norður breiddar þann 8. apríl 1894, en Þegar þangað var komið, „ákvað ég," segir Nansen í dagbók sinni, „að nema staðar og snúa við í átl til Kap l'ligely." Þetta var þung- bært fyrir Nansen, en „hann þekkti takmörk mannlegs máttar," eins og Björnstjerne Björnsson sagði um hann Hér fer á eftir stuttur kafli úr bókinni um Evu og Fridtjof Nansen. Hefst hann á dagbókarbroti Nansens í desmeber mán- uði 1894.) „1. desember." „Dásamlega fagurt veður síð ustu daga. Aldrei þreytist ég á að ganga um úti á hlaðinu, þegar tunglið varpar sínum ævintýraljóma á þessa klaka- veröld. Þarna stendur kofinn í skugga fjallsins, sem grúfir sig yfir hann, ógnþrungið og myrkt, en birtan frá tunglinu leggst eins og silfurslæða yfir ísinn og fjörðinn og endurkast ast frá öllum sköflum og ís- veggjum. Ólýsanleg ægifegurð í auðninni, svo sem væri hún úr skínandi marmara.“ Allt er afstætt, emnig hug- takið ,,hlýja.“ Hitinn komst aldrei mikið yfir frostmark inni í kofanum. Gólfið var ís, og vatnið úr lofti og veggjum draup ofan í svefnpokana þeirra. „Einhvern tíma kemur vor- ið hingað líka.“ Verst var að hafa ekkert að lesa. Þær fáu töflur, sem þeir höfðu meðferðis, og litla al- manakið höfðu þeir fyrir löngu lært ulan að. Lásu þær líka spjaldanna milli aftur og aftur. Þetta var þó prentað mál! En því meiri tími var til að hugsa, og það var ekki ætíð auðvelt að bæla heimþrána. Bezt var að láta ekkert á henni bera, en trúa dagbókinni fyrir henni. ,,.... Á vetrarkvöldum sit- ur hún og saumar við birtuna frá lampanum. Við hliðina á henni stendur lítill telpu- hnokki með blá augu og gló- bjart hár og gælir við brúð- una sína. Hún horfir blítt á barnið og strýkur hárið á því. Henni vöknar um augun, og höfug tár falla á dúkinn.--- Við hliðina á mér liggur Johan sen sofandi. Hann brosir í svefninum. -Elsku drengurinn. Nú er hann víst í jólafagnaði heima hjá ástvinum sínum. Sofðu bara, sofðu, dreymi þig vel. Veturinn líður, og svo kemur vorið, vor lífsins.“ JÓLIN KOMU. ....og heimþráin jókst um allan helming. „Þriðjudagur 24. desember klukkan 2 eftir hádegi: Frost 24°, ský cumulus 2, vindur austan, sjö metrar. Þetta er þá aðfangadags- kvöld jóla. Úti er kuldagjóst- ur, inni er kalt og hráslaga- legt. Hvílík auðn! Nú er verið að hringja hátíð ina/ inn heima. — Eg heyri klukknahljóminn í loftinu. En hvað hann er unaðslegur. ......Nú eru ljósin kveikt á jólatrénu. Barnahópurinn rná nú korna inn og dansa kringum það af ínnilegum fögnuði. Eg verð að halda börnunum jólahátíð, þegar ég kem heim. Eri við höldum líka hátíð á okkar fátæklegu vísu. Johan- sen helur snúið skyrtunni sinni við, og er nú kominn í yztu skyrtuna innst klæða. Eg gerði eins, en ég hef líka haft nærbuxnaskipti, farið í buxur, sem ég vatt upp úr volgu vatni.. Og svo hef ég þvegið á mér skrokkinn upp úr l/j bolla af vatni og notaði ó- hreinu nærbuxurnar fyrir þvottapoka og handklæði. Mér finnst ég vera allur annar mað ur, nú festast fötin ekki leng- ur við líkamann eins og áður. Tíl kvöldverðar höfðum við hlaup úr fiskimauki og mais- grjónum með lýsi í stað smjörs. Og á eftir fengum vð brauð, steikt í lýsi.“ A stóiháiíðum einum, jól- u.m og nýári, leyfðu þeir sér að taka af forðanum. A gaml- árskvöld ritar Nansen aftur í dagbókina: ,,...... Nú er verið að hringja út gamla árið heima. Kirkjuklukkan okkar er níst- andi vindurinn, sem æðir ískr- andi yfir fannbreiðurnar, væl- ir í hamförum sínum og þyrl- ar upp hverju snjóskýinu á fætur öðru. Tunglið í fyllingu líður hljóðlega og hægt úr gamla ár- inu inn í hið nýja.“ BARÁTTA VIÐ KULDA OG HUNGUR: N ú var komið nístandi frost, köldustu dagarnir fram til þessa. Nansen lét það verða síðasta verk sitt á gamla árinu að kæla á sér alla fingurgóm- ana. En eigi var ein báran stök. Á öllum líkamanum voru núningssár eftir fötin. Sárin á fótunum voru verst. Á innan- verðum lærunum höfðu þeir nuddað og klórað sig til blóðs. Þeir böðuðu sárin upp úr sápuvatni, sem þeir yljuðu yfir grútartýrunni. Það var erfitt að fá þau til að gróa. ,,Nú sé ég fyrst, hvílík dá- semdaruppfinning sápan er í raun og veru.“ Að öðru leyti leið þeim nú betur en nokkru sinni áður, og ekki bilaði þrekið. Nansen hafði engar áhyggjur af ,Fram‘ í höndunum á Sverdrup, og hann var sannfærður um, að þeir1 myndu komast heim. Skv. áætlun var „Fram“ væntanleg heim í ágústmánuði, og fyrir þann tíma urðu þeir að vera komnir heim. Að áliðnum febrúarmánuði fóru þeir að hugsa til heim- ferðar. Fötin þurfti að bæta, og Nansen þóttist hafa himin höndum tekið, þegar hann komst að raun um, að úr ein- um snærisspotta gat haun náð 12 þráðum. Nú skyldu fötin þó halda vindi! En nú var farið að ganga á kjöt- og spikforðann. Þeir urðu að spara lýsið og borða heitan mat einu sinni á dag. Og bjarndýrið kom, eins og það hefði verið kallað. Það stóð fyrir framan kofadyrnar. Merki þess, að vorið var í nánd. Himnesk gjöf. „Hann er víst að hugsa um að koma inn fyrir,“ sagði johansen, og hleypti af skoti út um dyragættina. Björninn rak upp öskur, og lagði á flótta, en Nansen elti. Sporin hurfu á harðfenninu, og hann leitaði þeirra án árangurs. — Johansen kom nú hlaupandi og stóð á því fastara en fót- unum, að hann hefði hitt björninn með tveim kúlum. En er Nansen kom þangað, sem hann átti að vera, sá hann, hvar hann rann í átt- ina að stórri jökulborg. Aldrei hafði hann séð dauðvona bjarndýr hlaupa með slíkum hraða. Hann elti og kom á hann fleiri skotum, án þess að EVA OG FRIDTHJOF NANSEN.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.