Fylkir


Fylkir - 23.12.1955, Qupperneq 10

Fylkir - 23.12.1955, Qupperneq 10
10 JOLABLAÐ FYLKIS 1955. björninn drægi úr ferðirmi. Áfram upp að efstu brún með feikna hraða. En þar féll hann, og nú steyptist hann niður, hraðar, hraðar, og stefndi á steininn, sem Nansen stóð á.. Loksins steyptist hann koll- hnýs og féll að fótum hans. Á þessu bjarndýri lifðu þeir í 6 vikur. Áðrir birnir, sem gerðu vart við sig, voru fæld- ir brott með skotum, svo að þeir kæmu ekki of nærri kof- anum og forðabúrinu. „VÉR HÉLDUM HEIM.“ Nú unnu þeir af kappi við undirbúning heimferðarinnar, og brottfarartíminn nálgaðist óðfluga. Nansen ritaði stutta leiðarlýsingu og bréf til Evu, setti hvort tveggja í kopar- hólk og hengdi upp í rjáfrið. Hinn 19. maí höfðu þeir bund ið farangurinn rammlega á sleðana, og í síðasta sinn skriðu þeir úr híði sínu. Þegar Nansen var síðar að því spurður, hvernig þeir hefðu getað haldizt við allan vetur- inn, yppti hann öxlum, eins og hann gerði svo oft, og sagði brosandi: ,,Nú, víst var það fábreytt." Vöðvarnar höfðu stirnað við alla kyrrsetuna, og sleðarnir voru þungir í drætti,. svo að dagleiðirnar urðu stuttar í fyrstu. Þeir voru nokkra daga á leiðinni að nesinu, sem þeir sáu frá kofanum. Um vetur- inn var það hvítt og samlitt himninum, svo að ekki var unnt að greina, hvort þar var um ský að ræða eða land. En um vorið komu í ljós stöku dílar í hvítri auðninni, og þá töldu þeir víst, að þarna væri fjall. - Nesið kölluðu þeir ,,Góðravonahöfða,“ af því að þeir vonuðu, að leiðin yrði greiðfærari, er þangað kæmi. Sú von brást heldur ekki. — Ofan af fjallsbrúninni sáu þeir ófrosinn sjó og handan við hann tvö snævi þakin svæði. ísinn var götóttur, og Nan- sen fór á undan til að kanna leiðina. Skyndilega brotnaði undan honum, og hann fór á kaf. Hann var á skíðum, og dráttarólm var bundin í sleð- ann. Johnsen var langt á eftir og var að binda föggurnar á sleðanum sínum. Hann heyrði ekki neyðarópin. Nansen sökk æ dýpra, og sjórinn náði hon- um nú undir hendur. Hann hélt, að nú væri komið að ævilokum. Hann brauzt um og reyndi að halda sér uppi og hrópaði og hrópaði. Loksins heyrði hann kallað ,,hó“ að baki sér. Johansen kom más- andi. Seinna mátti það ekki vera. Oðru sinni var einnig um lífið að tefla. Þeir höfðu ver- ið allan daginn á siglingu og gengu upp á ísbrúnina til að liðka sig eftir kyrrsetuna og kanna svæðið fyrir vestan. Þeir stóðu uppi á háu bjargi, og Johansen kallaði allt í einu: „Nei, sjáðu, bátana rekur burtu.“ Þeir stukku niður í skyndi. En bátarnir voru þegar konm- ir langt frá ísbrúninni og bár- ust burtu með straumnum. „Hana, taktu við klukk- unni,“ sagði Nansen, kastaði af sér ytri klæðunum og lagði til sunds í jökulköldum sjón- um. Vindurinn stóð af landi, og léttbyggðir húðbátarnir með háfermi tóku á sig mik- inn vind. Það var líka erfitt að synda í fötum, og fjarlægð- in jókst. Um stund virtist öll von um að komast áfram úti. Þegar hann fór að þreytast, synti liann á bakmu. Þá sá hann, hvar félagi hans öslaði fram og aftur inni á ísnum. Johansen sagði síðar, að aldrei hefði hann á ævi sinni lifað jafn ömurlegar stundir. Með ítrustu áreynslu náði Nansen bátunum, en þegar hann ætlaði að lyfta sér upp í, neitaði líkaminn að hlýða. Hann hélt, að hann hefði kom ið of seint. Hann nísti tönn- um og tókst með herkjubrögð um að koma öðrum fætinum yfir borðstokk bátsins og velta sér þannig upp í hann. „Þarna var ég þá kominn, en svo stirður af kulda, að ég átti erfitt með að róa. Það var heldur ekki auðvelt, því að bátarnir voru bundmr sam an. Enginn tími var til að leysa þá, því að ég hefði krókn að úr kulda, áður en því hefði verið lokið.“ Hann beit saman tönnun- um nötraði og skalf af kulda, svo að við lá, að hann félli í ómegin. En samt náði hann í árarnar, og seint og um síðir náðu bátarnir að skörinni. Þar kom hann auga á tvær álkur rétt við bóginn. Freistingin var of mikil. Glænýtt fuglakjöt í kvöldmatinn í öllu matarleys inu! Hann þreif byssuna og hæfði báðar í einu skoti. Johansen óð í áttina til hans, og þegar hann sá Nansen róa brott og tína upp fugla, hélt hann, að hann væri geng- inn af vitinu. En nú voru kraft arnir líka á þrotum. Johansen dreif hann úr blautum fötun- um og klæddi hann í þurr föt. Svo breiddi hann svefnpok- ann á ísinn, tróð Nansen nið- ur í hann og hrúgaði seglum og tjöldum og öllu, sem hendi var næst, ofan á hann. Þar lá hann, skjálfandi og hikstandi, en smám saman tók honum að hlýna. Meðan Johansen mat- reiddi álkurnar til kvöldverð- ar, sofnaði hann vært. Með landinu var sterkur straumur, svo að þeir urðu að gefa gætur að sjávarföllum. í sjpnum úði og grúði af rost- ungum, og þeir þorðu ekki lengur að hætta á að róa hvor í sínu lagi. Þar sem kjötbirgð- írnar voru á þrotum, ætluðu þeir að nota tækifærið og skjóta nokkra rostungsunga. Fyrsta tilraunin misheppnað- ist. Mæðurnar vildu með engu móti yfirgefa ungana sína dauðu. Þær ýlfruðu og vein- uðu, eins og særðir menn, og ýttu börnunum sínum dauð- um á undan sér og hurfu svo með þau í djúpið. Nansen rakst á annan hóp, — og minn- ugur fyrir reynslu skaut hann móðurina líka. Til að komast hraðar yfir, voru þeir aftur farnir að róa hvor í sína lagi, en ferðalagið innan um þessa rostunga var hvorki auðvelt né hættulaust. Allt í einu rak digurt ,,naut“ hausinn upp úr sjónum við hliðina á bát Nansens. Það otaði gildum vígtönnum sín- um að bátnum og reyndi að hvolfa honum. Nansen lamdi það í hausinn með árinni, án þess að það hefði nokkur minnstu áhrif á það. Nú komst það í færi við bátinn, og hann var nærri því kominn á hlið- ina. Nansen ætlaði einmitt að fara að ná í byssuna, þá hvarf kvikyndið jafn skyndilega og það kom. Og það var mikil heppni. Sjórinn streymdi ínn í bátinn, og Nansen náði með naumindum ísbrúninni, áður en hann sökk. í MANNHEIMUM Á NÝ. 17. júní voru þeir komnir að nýjum, ókunnum strönd- um, og Nansen fór einn morg- uninn í könnunarferð. Stórir álkuhópar flugu yfir höfði háns, og innan frá landi barst ómur af fuglagargi. Eyðilegt land, með jöklum og snæbreið um, „sem enginn mannsfótur hafði nokkru sinni stigið á, hvíldi í jökulskykkju sinm í hátignarlegri heimskautafeg- urð.“ En innan um allan háværa fuglakliðinn heyrði hann ann- að hljóð. Það var eins og hund gá. Nú hvarf það aftur, og hann hélt, að sér hefði misheýrzt. Hann gekk spöl- korn áfram. Nú heyrði hann það aftur. Fyrst einstaka gelt, síðan samfellt spangól. Nú var engmn vafi lengur, og hann kallaði til Johansens, sem lá í svefnpokanum. Hundar? Hérna? — Nei, nú var Nansen að skrökva. Johansen mátti hafa sína skoðun á málinu. Nansen ætl- aði að fara, strax og hann hefði gleypt í sig matarbita. Hann heyrði ekkert nema vælið í álkunum og skrækina í ritunum, þegar hann lagði upp að loknum málsverði. Ef til vill hafði þetta verið mis- heyrn. Þeir töldu sig vera á Giles - landi, og svo norðar- lega gat ekki verið um neina menn að ræða. En þarna! Þarna voru ný spor í fönninni. Urn refi eða úlfa var ekki að ræða, svo mikið er víst. Hann hélt áfrani: Nú heyrði hann hundgána aftur, enn greinileg- ar en áður, og nú var hann sannfærður. Skyndilega fannst honum hann heyra mannamál líka. Hjartað fór að slá örar. „Bak við þetta eina orð var heimilið og allt, sem það geymdi.“ Hann brauzt yfir íshrönglið og brunaði svo hratt sem skíð- in gátu borið hann, nam stað- ar öðru hvoru til að hlusta. í fjarska kom hann auga á dökkan díl, sem fór hægt yfir. Hundur! Og spölkorn fyrir framan hann var annar dökk- ur díll. Hann hreyfðist líka, en dálítið hægar. Maður! Hann hlustaði aftur, og nú heyrði hann sundurlausar setningar á ensku, þegar mað- urinn talaði við hundinn. Gat þetta verið M. Jackson, sem hann hafði einu sinni kynnzt lítillega og vissi um, að bjóst til að stjórna leiðangri á íshafs- slóðum. Nú færðist hann nær, og nú bar hann kennsl á manninn. Það var M. Jackson. Nansen lyfti húfunni. Gleðileg jól.

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.