Fylkir


Fylkir - 23.12.1955, Side 11

Fylkir - 23.12.1955, Side 11
JÓLABLAÐ FYLKIS 1955. 1 1 Hendrik Willem van Loon: Jesús frá Nazareth. (Eftirtarandi tvö bréf cru tekin úr bók H. W. van I.oon, „The Story of Mankind," eða Saga mannkynsins. Bók þessi kom fyrst út i Bandaríkjunum árið 1921 og hlaut þá )ohn Newberry verðlaunin, sem Ameríska liókasafnsfélagið útlilutar árlega. Höfundurinn er hoilenzkur að ætt, cn átti lengst af heima í Bandaríkjunum. Hann liefur ritað margar bækur sagnfræðilegs efnis, og liafa nokkrar þeirra komið út á islenzku, m. a. Frelsis- barátta mannsandans, Símon Bolívar, Johan Sebastin Bach o. fl. Bækur hans eru víðlesnar, enda skrifar höf. mjög skemmtilegan stíl, lesandanum finnst hann hafa tyllt sér á skákina hjá honum og rabbi við hann, eins og maður talar við mann um landsins gagn og nauðsynjar. Kafli sa, sem hér birtist í íslenzkri þýðingu, sýnir mjög greini- lega, að höf. treður ekki fornar slóðir í framsetningu efnisins, en fer sínar eigin götur í því efni.) Haustið 815 a. u. c.*), en 62 árum eftir Krists burð að okk- ar tali, ritaði Æsculapius Cult- cllus, rómverskur lækmr, bróð ursyni sínum, sem gegndi her þjónustu í Sýrlandi, eftit'far- andi bréf: Ástkæri bróðursonur minn! Fyrir fáum dögum var ég kvaddur til að veita sjúkum manni, Páli að nafni, læknis- hjálp. Svo var að sjá sem hann væri rómverskur borgari af Gyðinga-ættum, vel menntað- ur og þægilegur viðtals. Mér hafði verið sagt, að hann væri hingað kominn ttl að mæta fyrir rétti vegna dómsfrýjunar frá Cæareu eða einhverjum öðrum skattlandsdómstóli. Honurn var lýst sem ,,ofsa- fengnum manni og óðum,“ er hefði flutt ræður gegn lýðn- um og lögum ríkisins. Að mínu áliti var maðurinn stór- gáfaður og fágætlega heiðar- legur. Einn vina minna, sem áður dvaldi langdvölum í het'búð- um í Litlu-Asíu, hefur skýrt mér svo frá, að hann hafi heyrt hans getið í Efesus, þar sem hann prédikaði um annarleg- an, nýjan guð. Eg spurði sjúkl ing minn, hvort þetta væri satt, og hvort hann hefði æst lýðinn upp til uppreisnar gegn boðum okkar ástkæra keisara. Páll svaraði því til, að það ríki, sem hann hefði boðað, væri ekki af þessum heirni, og hann talaði alls kyns annar- legum hugtökum, sem ég *) a. u. c.: ab urbe condita, eða frá stofnun borgarinnar. Rómverjar miðuðu tímatal sitt við stofnun Rómaborgar árið 153 f. Kr. skyldi ekki, en voru án efa hitasóttarhjal. Framkoma hans hafði djúp áhrif.á mig, og mér féll þungt, er ég frétti, að hann hefði ver- ið tekinn af lífi á leiðinni til Ostia fyrir fáum dögum. Því sendi ég þér þetta bréf, að næst, þegar þú kemur til Jerúsalem, vil ég biðja þig að afla upplýsinga um Pál, vm minn, og þennan furðulega spámann Gyðinga, sem sýnist hafa verið kennari hans. Þrælarnir okkar eru orðnir ákafir áhangendur þessa svo- nefnda Messíasar, og nokkrir þeirra, sem talað hafa opin- skátt um hið nýja ríki, hvað sem það nú er, hafa verið kross festir. Eg hefi hug á að kom- ast að hinu sanna í öllum þess um orðrómi. Þinn einlœgur föðurbróðir. Æ. Cultellus. Sex vikum síðar barst svar- bréf frá Gladius Ensa, bróður- syni bréfritarans, höfuðsmanni í 7. gallversku fótgönguliðs- sveitinni. Astkæri föðurbróður minn! Bréf þitt barst mér í hend- ur með góðum skilurn, og ég hefi uppfyllt óskir yðar. Fyrir tveim vikum var her- deild okkar send til Jerú- salem. Þar liafa verið tíðar upp reisnir síðastliðna öld, og lítið stendur nú uppi af gömlu borg inni. Við höfum verið hér mánaðartíma, en á morgun eigum við að halda för okkar áfram til Petra, en þar hafa brotizt út óeirðir meðal ara- biskra þjóðflokka. Eg ætla því að nota þessa kvöldstund til að svara spurningum yðar, en í guðanna bænum, væntið þér ekki nákvæmrar skýrslu. Eg hefi rætt við fjölmarga hinna eldri manna í þessari borg, en fáir þeirra hafa get- að gefið mér npplýsingar að gagni. Fyrir nokkrum dögum kom farandsali nokkur til her- búðanna. Eg keypti olífur af honum, og ég innti hann eftir því, hvort hann hefði nokkru sinni heyrt getið um þennan fræga Messías, sem tekinn var af lífi á unga aldri. Hann sagðist muna greini- lega eftir þessu, því að faðir hans hefði leitt hann upp á Golgatha, hæð eina utan við borgina, til að horfa á aftök- una, að hann sæi eigin aug- um, hver yrðu örlög þeirra, er brytu niður lög Judeu- manna. Kaupmaðurinn gaf mér upp heimilisfang Jósefs nokkurs, sem verið hafði náinn vinur Messíasar. Sagði hann mér, að ég skyldi fara og finna hann, ef ég vildi afla mér frekari vit- neskju. í morgun gekk ég á fund Jósefs. Hami e; háaldraður maður. Hann hafði áður verið fiskimaður á stöðuvatni einu í landinu. Minni hans var lítt skert, og af frásögn hans varð mér loksins ljóst, hvaða atburð ir það voru, sem gerðust á þessum ót'ólegu tímum, áður en ég fæddist. Það var á stjórnarárum Tí- beríusar, hins mikla og ágæta keisara vors, að Pontius nokk- ur Pilatus var settur landstjóri í Judeu og Samariu. Jósef vissi lítið um þennan Pílatus. Svo cr að sjá sem hann hafi verið hinn -heiðarlegasti starfsmaður og getið sér góðan orðstír í embætti landstj. í þessn skatt- landi. Árið 783 eða 784, Jósef mundi ekki, hvort heldnr var, hafði Pilatus verið kvaddur til Jerúsalem vegna uppþots þar. Ungur maður, sonur trésmiðs í borginni Nazareth, var sagð- ur undirbúa byltingu gegn rómversku ríkisstjórninni. Undarlegt má það heita, að leyniþjónusta okkar, sem venjulega þefar uppi hvers konar oi'ðróm, virðist ekki hafa haft hið minnsta veður af þessu, og þegar hún fór að rannsaka málið, lét hún uppi það álit sitt, að smiðssonurinn væri hinn ágætasti borgari og engin ástæða til að hefja máls- sókn gegn honum. En hinir íhaldssömu forvígismenn Gyð- ingatrúarinnar voru, að sögn Jósefs, mjög æstir. Vinsældir hans meðal hinna fátækari Hebrea voru þeim þyrnir í augum. Þeir tjáðu Pílatusi, að Nazareinn hefði opinberlega haldið því fram, að Grikki, Rómverji eða jafnvel Fílistei, sem reyndi að lifa sómasam- legu og heiðarlegu lífi, væri jafngóður Gyðingnum, sem eyddi deginum við lestur hinna fornu Móse - lögmála. Pílatus virðist hafa látið þessar ákærur sem vind um eyru þjóta, en þegar mannfjöldinn umhverfis musterið hótaði að taka Jesús af lífi án dórns og laga og drepa alla áhangendur hans, ákvað hann að setja tré- smiðinn í gæzluvarðhald til að bjarga lífi hans. Hann sýndist ekki hafa gert sér grein fyrir hinum raunveru legu orsökum uppþotsins. í hvert sinn sem hann bað Gyð- ingaprestana að gera grein fyrir ákærum sínum, hrópuðu þeir „villutrú" og „drottins- svik,“ og espuðust um allan helming. Loksins, sagði Jósef, lét Pílatus senda eftir Jósúa, (svo hét Nazareinn, en Grikk- ir, sem búa á þessum slóðum, nefna hann ávalt Jesús) til að yfirheyra hann sjálfur. Hann spurði um „hinar hættlegu kenningar,“ sem hann var sagð ur hafa boðað á bökkurn Gene- saretvatns. En Jesús svaraði því til, að hann hefði aldrei rætt stjórnmál. Hann léti sér ekki eins annt um mannslíkamann sem um mannssálina. Hann vildi, að allir menn litu á ná- unga sína sem bræður og elsk uðu einn sannan guð, sem væri faðir alls þess, er lífsanda dreg ur. Pilatus virtist hafa verið vel heima í Stóu-speki og kenn- ingum annarra grískra heim- spekinga, og svo er einnig að sjá sem hann hafi ekki fund- ið neitt glæpsamlegt í fari Jesús. Að sögn sögumanns míns gerði hann aðra tilraun til að bjarga lífi hins ljúfa spá- manns. Hann sló aftöku hans á frest hvað eftir annað. En á meðan gerðust Gyðingarnir óð- ir af reiði, æstir upp af prest- unum. Mörg uppþot höfðu átt sér stað í Jerúsalem, þegar hér var komið, og aðeins örfáir rómverskir hermenn voru í kallfæri. Boð voru send ríkis- umboðsmanninum í Cæsareu um, að Pílatus „hefði orðið kenningum Nazareans að bráð.“ Safnað var undirskrift- um um gervalla borgina undir bænaskrá þess efnis, að Píla- tusi yrði vikið úr stöðu sinni, sökum Jæss að hann væri óvin- ur keisarans. Þú veizt, að land- stjórum vorum eru sett ströng fyrirmæli um að forðast opin-

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.