Fylkir


Fylkir - 23.12.1955, Síða 12

Fylkir - 23.12.1955, Síða 12
12 JÓLABLAÐ FYLKIS 1955. Ee vil ekki skrökva. Lítill drengur hafði einu sinni fengið öxi að gjöf. Hann varð mjög glaður við og reyndi hana, hvar sem hann gat náð í spýtu. En stundum hjó hann henni í hluti, sem hann hefði betur sneitt hjá. Svo var það einn dag, að drengurinn gekk út í garðinn með öxina um öxl sér og sagði við sjálfan sig: „Nú ætla ég að vera duglegur að höggva í eldinn.“ Daginn eftir kom faðir hans út í garðinn, og þegar hann sá, að fallegasta tréð lá allt sundurhöggvið á jörðunni, varð hann bæði hryggur og reiður. „Sá, sem hefur gert þetta, verður að bæta fyrir það.“ En enginn vissi, hver hafði valdið þessum spjöllum, — nema sá, sem stóð bak við limgirðinguna og blóðroðnaði af blygð- un, er hann heyrði orð föður síns. „Þetta var leiðinlegt, en eí eg þegi, skrökva ég, og ég get ekki skrökvað.“ Hann gekk hratt inn 1 garðinn og sagði: „Pabbi, — ég hefi höggvið tréð niður. Það var heimskulegt af mér að gera það.“ Faðirinn leit með þungum svip á drenginn, en nú var hann ekki lengur reiður. Hann faðmaði drenginn að sér og sagði: „Þú hefur sagt sannleikann, góði drengurinn berar illdeilur við útlenda þegna. Til þess að forða frá borgarastyrjöld í landinu, framseldi Pilatus Jósúa, fanga sinn, að lokum, en hann sýndi mikla sdllingu og fyrirgaf öll- um þeim, sem hötuðu hann. Hann var krossfestur við ösk- ur og hlátra lýðsins í Jerúsal- ern. Þetta sagði Jósef mér, með- an tárin streymdu niður kinn- ar hans. Eg rétti honum gull- pening, um leið og ég fór, en hann hafnaði honum og bað mig að gefa einhverjum, sem ætti við enn meiri fátækt að stríða en hann sjálfur. Eg spurði hann einnig nokkuð um vin þinn, Pál. Hann hafði ekki kynnzt honum mikið. Helzt lítur út fyrir, að hann hafi verið tjaldasmiður, sem lagði störf sín niður til að út- breiða keaninguna um hinn ástríka, milda guð, sem var allt iiðru vísi en Jehóva, sá er Gyð- ingar eru sífellt að tala um. Síðar mun Páll hafa ferðast mikið um Litlu-Asíu og Grikk land, þar sem hann flutti j iræl unum þennan boðskap, að þeir væru allir börn eins ást- ríks föður, og öllum þeim, jafnt ríkum sem fátækum, sem hefðu reynt að lifa, heiðar legu lífi, liefðu sýnt miskunn og kærleika öllum, sem þjáð- ust og liðu ,skort, væri fyrir- búin eilíf sæla. Eg vona, að mér hafi tek- izt að svara fyrirspurnum yðar á fullnægjandi hátt. Mér virð ist, að sagan, eins og hún var mér sögð, sýni, að öryggi ríkis íns hafi ekki verið nein hætta búin. En hafi svo verið, þá höfum við Rómverjar aldrei öðlast réttan skilning á eðli í- búanna í þessum skattlönd- um. Eg harma, að vinur þinn, Páll, skyldi hafa verið tekinn af lífa. Eg vildi óska, að ég væri kominn heim aftur, en ég ég er þinn skuldbundinn bróður- son, Gladius Ensa. minn, og það er betra en þúsund tré, þó að allir ávextir þeirra væru gull og silfur.“ Þessi litli drengur, sem sagan segir frá, átti heima í Ameríku. Hann varð síðar dugandi maður og ágætur hershöfðingi, og hann varð fyrsti forseti þjóðar sinnar. Hann hét Georg Washington. Varnarræðan. Jón var fátækur bóndi. Hann átti tvo syni, Björn og Daníel. Þeir voru ungir, þegar þessi saga gerðist, og hjálpuðu föður sínum á búgarðinum, eins og þeir gátu. Dag einn lagði Björn gildru úti í matjurtargarð- inum til að veiða múrmeldýr, sem hvað eftir annað hafði valdið spjöllum í garðinum. Eftir nokkra daga náðist dýrið í gildruna. „Þú ert búinn að valda okkur nógu miklu tjóni,“ sagði Björn, „og nú skalt þú deyja.“ Daníel var þarna nærstaddur og heyrði, hvað bróðir hans sagði. Hann kenndi í brjósti um vesalings dýrið og bað bróður sinn að lofa því að lifa og sleppa því út í skóg. En það mátti Björn ekki heyra nefnt. Loks kom þeim saman um að fara með dýrið til föður þeirra og leita ráða hjá honum, hvað gera skyldi.' „Nú, nú, drengir mínir, þarna komið þið með fanga,“ sagði Jón gamli. „Það er bezt að rannsaka mál hans. Þú, Björn, skalt nú vera málfærslumaður og sækja dýrið til sektar, en þú, Daníel, skalt líka vera málfærslu maður og halda uppi vörnum fyrir það. Eg ætla svo að vera dómari. Svona, nú megið þið byrja.“ Björn hóf nú fyrr mál sitt og gerði grein fyrir því tjóni, sem dýrið hafði valdið í garðinum, og fyrirhöfn- inni við að reyna að ná því. Hann kvaðst vera sann- færður um, að dýrið mundi byrja á nýjan leik að gera skaða, ef því yrði sleppt lausu. Hann lauk máli sínu með þessum orðum: „Múrmeldýrið á að deyja, og með feldi sínum skal það bæta fyrir það tjón, sem það hefur valdið.“ Daníel var nú hræddur um, að bróðir hans hefði unnið málið. Honum varð því orðfall um stund, en þeg- ar hann leit á fangann, sem skalf og nötraði af hræðslu, fann hann til sárrar meðaumkunar. Hann leit einarð- lega á dómarann og hóf ræðu sína: „Múrmeldýrið hefur rétt til að lifa, rétt til að eta, rétt til að njóta frelsis, Guð skapaði það, til þess að það nyti yls sólarinnar, bæði úti á víðavangi og inni í skóg- inum. Það er ekki blóðþryst og drepur enga skepnu. Eða hefur það gert nokkuð annað en að taka jarðar- ávöxt til að seðja hungur sitt? Er ekki eitt byggkorn eins ljúffengt í munni þess og maturinn, sem mamma ber á borð, er í okkar munni ? Þú getur sagt, að múrmel- dýrið hafi brotið lög, en það þekkti þau ekki. Það hefur einungis aðhafzt það, sem er samkvæmt eðli þess. Hvernig er þá hægt að dæma það til dauða? Líttu á þennan aumingja, titrandi af ótta, og svaraðu mér: Þor- ir þú að taka það líf, sem þú getur aldrei gefið aftur?“ Daníel þagnaði. Tárin komu fram í augu gamla mannsins, föður drengjanna. Þau runnu hvert af öðru niður hrukkótt og veðurbitið andlitið. Varnarræðan hafði hrifið hann að innstu rótum hjartans. Hann gleymdi því, að hann var virðulegur dómari, en spratt úr sæti sínu og hrópaði: „Slepptu múrmeldýrinu, Björn.“ Þessi Daníel, sem flutti varnarræðuna, var einnig amerískur og varð síðar einn af mestu ræðuskörungum síns tíma. Fullu nafni hét hann Daniel Webster^ Hann gerðist stjórnmálamaður, og orð hans voru ávalt mikils metin.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.