Fylkir


Fylkir - 23.12.1956, Síða 9

Fylkir - 23.12.1956, Síða 9
JÓLABLAÐ FYLKIS 1956: 9 Séra Haíldór Kolbeins: Tiœr upphafi lifs okkar og iakmarki Ræða við innsetningu séra Jóhanns Hlíðar í Vestmanna eyjaprestakali, 2. sd. e. trini., 10. júní 1956. Jakobsbréf, 4, 8. Nálægið yður Guði og þá mun hann nálgast yður. Ainen. Kirkjumálaráðherrann, Stein- grímur Steinþórsson, hefur liinh 23. maí 1956 gefið út veit- ingarbréf iianda séra Jóhanni Hlíðar fyrir Vestmannaeyja- prestakall í Kjalarness-jirófasts- dæmi, er svo hljóðar: Kirkju- málaráðherrann gjörir kunnugt: Að ég samkvæmt kosningu hlut- Séra Halldór Kolbeins, aðeigandi safnaðar skijia séra Jó- hann Hlíðar til þess að vera sóknarprestur í Vestmannaeyja- prestakalli í Kjalarnessprófasts- dæmi frá 1. júní 1956 að telja. ' Hann skal því vera yfirmönnum sínum trúr og hlýðinn, halda stjórnarskipulagslög- ríkisins og gegna embættisskyldum sínum nieð árgekni og trúmennsku, allt samkvæmt eiði þeim, er honum að því ber að vinna. Samkvæmt lielgisiðareglum þjóðkirkjunnar skal prófastur, er presti er veitt jrrestakall, setja hann itni í það hið fyrsta, er hann la r við komið, eða fela það öðrum jiresti fyrir sína liönd. En prófasturinn liefur hins vegar umboð sitt til þessarar {ijónustu frá biskupi. Nú hefur prófasturinn í Kjal- arnessprófastsdæmi, séra Garðar Þorsteinsson, í bréfi dagsettu í Hafnarfirði 29. maí 1956 falið mér þetta prófastsverk. og nokk ur kafii bréfsins hljóðar svo: Til staðfestingar á símtali okkar nú fyrir nokkrum dögum, fel ég þér hér með, kæri bróðir, að setja séra Jóhann Hlíð'ar inn í embætti til starfa sem sóknar- jrrest í QfanleitisprestakaÍH, við fyrstu hentugleika eftir 1 júní, en hann hefur nú þegar fengið veitingu frá þeim degi að telja. Fyrstu hentugleikar voru að vissu leyti seinastliðinn sunnu- dag, 3. júní, 1. sunnudag eftir trinitatis. En með því, að þá var sjómannadagur og heppilegia þótti af hlutaðeigendum, að guðsþjónustan yrði úti þann dag, var innsetningunni frestað til þessa dags. Vil ég því nú í umboði jiró- fasts og biskups setja séra Jó- hann Hlíðar inn í embætti til að starfa sem sóknarprestur í Of- anleitisprestakalli. Til leiðbeiningar um hugleið ingarefni við þetta tækifæri, vel ég mér ásamt textanum og sem skýringu hans þessi orð biskups- ins yfir íslartdi Ásmundar Guð- mundssonar í endir prédikunar, er hann nefnir: Nær Kristi: — ,.Enn eitt að síðustu: Léiðin nær Kristi er í dýpstum og sönnust- um skilningi eina leiðin, sem liggur ti! lífsins. Að vísu benda vitringar jiessa heims á aðrar leiðir, sem séu jafn góðar eða betri, en það er villa. JESÚS ER VF.GURINN. Og af hverju hann einn? Af því að hann er fullkomna Guðs opinberunin, sem miðast við allt, það sem bezt er og göfugast í mannssálinni. Ha.nn snertir það allt og .vekur ril lífsins Énginn kemst til föð- urins nema fyrir hann. Stefn- um til hans, þá hvílum við að lokutn í faðmi Guðs. Það er eins víst og þegar við sjáúm fyrst bjarma af degi og roða af skýj- um ineir og in’eir, þá cr sólarinn ar að léita að geisla baki. Nær Jesú, nær sólunni. Nær upjrhafi lífs okkar og takmarki. Nær Guði í Jesú nafniT Það eina, sem í helgisiðabók- inni er sagt, að brýna skuli fyr- ir söfnuðinum við þetta tækifæri er, að hann taki á móti presti sínum með kærleika. Séra Jó- hann Hlíðar hefur starfað hér sem aðstoðarþrestur síðan í mar/. 1954, en er nú ekki leng- ur fyrst og frernst aðstoðarprest- ur eða hjálparmaður skipaðs sóknarprests, en skipaður sókn- arprestur. Og nú bið ég yður, kristinn söfnuður Landakirkju að taka á móti lionum með kær- leika Og starfa með honum t kærleika. Við viljutri báðir starfa saman í kærleika óg verá eitt með yður ölium í kærleika. Hvað á ég við? Gagnkvæma vin- semd, hjálpsemi og velvild í lífs- baráttunni, að greiða götuna í veraldlegum efnum öllum og hvers konar aðstoð til Jress að lifa lífinu. — Vissulega er þess að vænta og til þess mælzt. — En það stóra og mikla, það sem brennur í brjósti sem lieilög hugsjón, er þetta að taka á móti honum í kærleika Krists.Þannig honum í kærleika Krists. Þann- ig að lifa lífinu,, með því að ganga með honum leiðina, ganga alla lífsbrautina nær Kristi .Því að eina leiðin, senr liggur til lífsins, eina kærleiks- leiðin er að nálgast Krist. Það sem ég á við, er þetta: Hinn sanni kærleikur í kristnum söfn- tiði. er kærleikur vígður, vígður Kristi Þannig, að ljósið frá hæstu liæðum, ]iar sem er ujrjr- haf lífs vors og takmark, verði líf anda vors, að vér lifum í því kenndarlíti, þeim vilja, þeirri lhigsun, sem lýst: er svo vel í sálminum, er ortur var á opnu þilfari á skijri á At.lantshafinu: „Hærra minn Guð til þín. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól, ujjp yfir stund og stað, stjörn- ur og sól, Hærra minn Guð til þín.“ Hér er ekki átt við bók- stafsviðhorf stundar og staðar, heldur það að vígjast þannig Guðs eilífa kærleika í Kristi, að lífið verður óumræðilega un- aðssælt, óumræðilega sterkt; og óumræðilega ljósríkt, en þó um- vafið kærteika sársaukans, af því að krossinn og fórnin er eina upphefðin. Og nákegð Krists knýr til elsku. Knýr til lífs, sem er-þess vert að lifa. Og fyrir mér er lífið þetta: Vígsla til kærleika Krists og til að njóta kærleika Krists. Takið á móti þeim jiresti, sem nit er settur hér inn í em- bætti, í kærleika KrisLs. Iðkið kirkjurækni, hverskonar trú- rækni, gangið götu lífsins eftir Krists fordæmi. F.n umfram allt Hfið í kærleika Krists, náð hans, fyrirgefningu, friðþægingú, óum ræðilegri sælu og starfshvöt heil- agrar nálægðar hans Kæri embættisbróðir, ég býð þig velkominn í embættið, ég þakka þér kærleika þinn í starf- inu og alla hjálp mér til handa. Eg býð þig velkominn og heilsa þér . í kærleika og á enga betri ósk þdr til handa, en að Jrað verði þér í starfinu dýpri og dýjjri lífsvissa, að Kristur er ná- Iægur, að lífsvegur þinn sé veg- urinn til að nálgast Krist. Hver og einn er smærri en smár, „en Kristur er hærri en hár“. Og þó getur hvert einasta lífsins auga- bragð vcrið vegur til þess að nálgast hann. Guð faðir blessi Jrig í starfinu fyrir kærleika sinn, Guð sonur helgi þig í starf inu fyrir Kross sinn. Guð heil- agur andi lyfti þér í starfinu fyr- ir lífsins innstu óumræðilegu blessunarrök. Þeim, sem elska Guð, samverkar allt til góðs. Sérn Jóhann Hlíðar Nálægið yður Guði, þá mun hann nálgast yður. í því er eilíft lif fölgið, í því er kærleikurinn fólginn að Jjekkja hinn eina sanna Guð og þann, sem hann sendi Jesúm Krist. Það er að nálgast Guð fyrir bæn og til- beiðslu og reyna að breyta sam- kvæmt vilja lians. Vér skulum láta alveg víkja frá oss allar á- hyggjur, allan kvíða og hvíía í Guði. Og þá kemur Guð til vor. Ekki skulu nú nánar raktir þætt ir kristinnar kenningar um þessi efni. En sjáum Krist ganga um kring, gjöra gott og lækna. Og sjáum hann breiða faðm sinn móti mannkyninu í kvöldroða langafrjádags og sjáum hann upprisinn segja: Friður sé með yður. Og lifum alla æfi vora í fögnuði hvítasunnunnar. Og fel- um svo játniiigu vora og bæn í jiessum orðum: Við þennan brunninn þyrstur dvel ég, þar mun ég nýja krafta fá. Verum öll eitt í kærleika Krists. Amen. Almáttugi, algóði, eilífi Guð. Helga þú líf og starf þessa safn- aðar. Gef oss öllum að lifa og starfa saman í kærleika þínum. Og gef oss að vera eitt fyrir þínu augliti. Lyft þú faðir lífi vor allra hér í Vestmannaeyjum til Framhald d 10. siðu.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.