Fylkir - 09.03.1962, Side 4
ÍYLKIR — Föstudaginn 9. marz 1962.
Landakirkja:
Guðsþjónusta n. k. sunnudag
kl. 2. Séra Jóhann Hlíðar pré-
dikar. Sálmar: 26 - 370 - 413 -
225. Föstuguðsþjónustur kl. 8,30
á fimmtudögum.
K. F. U. M. og K.:
Samkoma kl. 8,30 n. k. sunnu
dag. Barnaguðsþjónustur kl. 11
f. h. á sunnudögum.
Betel:
Samkoma á sunnud. kl. 4,30.
Aðventkirkjan:
Samkoma n. k. sunnudag kl.
20,30. Sunnudagaskóli fyrir
börn kl. 2 e. h.
Dónarfregn.
Aðfararnótt 5. þ. m. lézt Ól-
afur St. Ólaísson að heimili
sínu, Gilsbakka. Ólafur var einn
af stofnendum Vélsmiðjunnar
Magna og forstjóri hennar. Var
Ólafur á 62 aldursári, er hann
lézt. Ólafur var þekktur borgari
og vel látinn af öllum.
Jarðarför:
í dag fer fram jarðarför Ást-
rósar Þórðardóttur, ekkju Ing-
vars heitins Jónssonar frá Man-
dal. Ástrós lézt í Reykjavík s. 1.
laugardag af völdum bifreiðar-
slyss, 57 ára að aldri.
Ný lögfræðiskrifstofa.
Bragi Björnsson, lögfræðing-
ur Útvegsbankans liefur opnað
skrifstofu í Kaupangi, Vest-
mannabraut 31. Er skrifstofa
Braga opin frá kl. 5,30—7 e. h.
daglega.
Nýtf fiskvinnslufyrirtæki.
I síðasta lögbirtingarblaði er
skýrt frá nýju sameignarfélagi
til verkunar og útflutnings sjáv
arafurða hér.
Heitir fyrirtæki þetta Eyja-
ver og eru stofnendur Ingólfur
Arnarson, Austurvegi 7, Áki Jak
obsson og Jón Hjálmarsson frá
Reykjavík. En Ingólfur keypti
svokölluð „Rúnar-hús“ fyrir
nokkru. Hafa þau nú verið
stækkuð til muna og sett upp
]:>ar fiskveikunarstöð.
Fjórsöfnunin.
F.ins og skýrt var frá í síðasta
blaði fóru skátar um bæinn um
helgina til fjáröflunar fyrir söfn
un þá, sem hafin er um land
allt vegna sjóslysanna.
Samtals söfnuðust um 50
þúsund krónur og verður söfn-
uninni haldið áfram. Er bæjar-
búum bent á, að Þráinn Ein-
arsson, skátaforingi, senr starfar
hjá Skipaafgreiðslunni, veitir
Athugasemd við
hugleiðingu
Vegna rætinnar og villandi greinar í Eyjablaðinu 7. þ. m.
vill stjórn Samkomuhússins taka eftirfarandi fram:
1. Samkomuhúsið er byggt fyrir 25 árum sérstakiega sem kvik-
myndahús eins og tilhögun byggingarinnar ber með sér. Hefur
því aðbúnaður til annarrar starfsemi mótazt af því.
2. Vegna skorts á geymslurými, er ekki unnt að hafa kaífiveit-
ingar í leikhléum, þar sem nota verður „litla salinn“ fyrir borða-
og stólageymslu, þegar rýma þarf leiksviðið og „stóra salinn“ eins
og nauðsynlegt er við leiksýningar og þessháttar.
3. Þar sem sérstaklega er minnzt á samsöng Karlakórsins í fyrr-
nefndri grein, þykir rétt að geta þess, að stjórnendum kórsins var
boðið að velja um, hvort skemmtunin skyldi haldin kl. 8 eða 10,
völdu þeir seinni tímann, enda oft reynzt betur sem og kom á
daginn. Einnig má geta þess í sambandi við starfsemi Leikfélags-
ins, að forráðamenn þess voru búnir að tryggja sér Samkomuhúsið
hinn 22. febrúar, en óskuðu síðar eftir Iresti, sem þeim var veitt-
ur.
4. Samkomuhúsið er bundið af samningi Vestmannaeyja Bíós
og Bæjarsjóðs um kvikmyndasýningareksturinn og mótast húslán
og notkun af þvi.
I þessu sambandi má geta þess, að með samningi þessum hef-
ur Samkomuhúsið greitt í húsbyggingarsjóð sjúkrahússins 1,5
milljónir króna á síðustu 5 árum. Ekki er kunnugt um viðleitni
Eyjablaðsmanna í þessa átt, þrátt fyrir þátttöku þeirra í samkomu-
húsrekstri í bænum (Alþýðuhúsið), enda þótt enginn efist um á-
huga þeirra á byggingu nýs sjúkrahúss.
Hvaða tilgangi það þjónar hjá Eyjablaðinu að krefjast þess,
að Samkomuhúsið geti ávallt og öllum staðið opið, er ekki full-
ljóst, en öllu sanngjörnu fólki mun finnast nokkuð mikils til
mælzt, þar sem hér er um sjálfstætt fyrirtæki að ræða.
Hinsvegar er það sérstakt ánægjuefni, að jafnvel Eyjablaðið
viðurkennir, að bæjarbúar vilji hvergi frekar hittast og skemmta-
sér en í Samkomuhúsinu og sýnir það bezt vinsældir þess, hvað
sem öllu hugarangri blaðsins líður.
gjöfum til söfnunarinnar við-
töku.
Sinubruni.
Síðustu daga hefur víða mátt
sjá elda á jörðu. En drengir
hafa nú verið óvenju atlialna-
samir við að brenna sinu um
alla Eyjuna. Auk þess, sem hér
er um stórhættulegan leik að
ræða, er þetta til mikils tjóns,
þar sem frekar má búast við
kali í jörðu eftir bruna á þess-
um árstíma.
Hjálpræðisherinn.
Fulltrúar frá Hjálpræðishern-
um voru á lerð hér í vikunni í
sambandi við húsbyggingu
templara við Heiðarveg. Var
ferð þeirra í sambandi við at-
hugun á kaupum á hluta bygg-
ingarinnar.
Fiskiþing.
Nýlokið er í Reykjavík fiski-
þingi, en fulltrúar héðan voru
Ársæll Sveinsson og Helgi Benó-
nýsson.
Hlutavelta.
Slysavarnadeildin Eykyndill
vill minna félagskonur og aðra
velunnara félagsins á hlutavelt-
una, sem verður 15. marz n. k.
Blandaðir óvextir.
Að þessu sinni hafa komið í
verið nokkrir Spánverjar og
Hollendingar. Ekki er kunnugt
hvort Spánarljóð Ása og Sig-
urðar eiga heiðurinn af þessu.
En hinsvegar er greinilegt, að
hinum suðrænu kempum þykir
ekki mikið til um kuldann hér
norður frá, þar sem sumir þeirra
hafa látið krúnuraka sig.
„Atomöldin".
Belgiskur togari, að nafni
„Graf van Flanderen“, lauslega
þýtt, Greifinn frá Flandern,
varð fyrir vélarbilun SA af ís-
landi fyrir nokkrum dögum.
Var skipið dregið til hafnar í
Eyjuin.
Það mál til tíðinda telja, að
2 klukkustundum eftir að skip-
ið kom hingað, var mættur hér
viðgerðarmaður frá Belgíu, sem
lagt hafði af stað að heiman
eftir að fréttin barst um vélbil-
Vertíðin
Undanfarið hafa gæftir verið
góðar og alltaf róið nema í gær,
en afli verið rýr hjá fjöldanum.
Einstaka línubátur hefur þó
fengið upp í 12—14 lestir suma
dagana.
NA stormur hefur verið við
Eyjarnar þessa viku, og hefur
það dregið úr aflabrögðum.
Afli netabáta er tregur, en
Kristbjörg kom með um 5000
fiska, mest ufsa, í fyrradag úr
netunum, en ekki hafði þeirra
verið vitjað þá í 3 daga. í gær
var Kristbjörg einskipa á sjó og
fékk um 2000 fiska.
I dag eru allmargir bátar í
landi og búa sig til netaveiða.
Loðnuveiði hefur verið ó-
venju mikil, og veiðzt í lengri
tíma nú en nokkru sinni fyrr.
Merkilegl starf
Framhald af 1. síðu
ar og Jón, hafi rannsakað fáan-
legar heimildir um aflamagn
annarra fisktegunda hér við
land, en því miður hafi þær
ekki reynzt eins árciðanlcgar og
heimildirnar um þorskinn, þó
sé árangurinn ekki algerlega
neikvæður.
Magn veiddrar síldar, miðað
við meðaltal á hvern bát var í
hámarki árin 1923, 1933 og
1944, en þessi ár eru sólblettir í
lágmarki. Sama varð uppi á ten
ingnum með laxinn en hinsveg-
ar virðist, eftir fáanlegum gögn-
um að dæma, hrognkelsaveiði
vera í hámarki þau ár, sem sól-
blettir eru í hámarki.
Loks segir, að umræður um
mögulegar orsakir fyrir hinu
meinta sambandi milli sólbletta
og líffræðilegi'a fyrirbrigða séu
utan við ranuna greinarinnar
og höfundarnir segjast gera sér
grein fyrir því, að það orsaka-
samband, scm virðist vera rnilli
sólbletta og líffærilegra fyrir-
brigða sé tilviljun, en sveiflurn-
ar í (jölda einstaklinga hinna
ýmsu tegunda eigi rætur sínar
að rekja til einhvers annars.
3?2*2*2S2*e*c,^2S2S2*2*2JÍ2S2S2S2S2*2*2S2*2RS*2*2»2*2a
VESTMANNEYJA BÍÓ
Kvöldsýning á sunnudginn:
Hrífandi fögur amerísk chyne-
mascop-litkvikmynd.
„ÆÐSTU GÆÐIN"
un skipsins. Frá Be.lgíu flaug
hann til Englands og þaðan á-
fram til Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja.
Hafði Belginn meðferðis
stykki í vélina, svo strax var
hægt að koma henni í lag.