Fylkir - 06.12.1963, Page 6
Neðanfrásjó.
N____ ________>
Afli og gæftir: Það, sem af er
þessari viku er ekki annað hægt
að segja; heldur en að gæftir
hafi verið allsæmilegar, einkum
þegar tillit er tekið til órstíma.
Og um aflann er það að segja,
að hann hefur oft verið verri,
stundum að vísu sáratregur, eins
og í gær hjá línubátunum, en
svo komið góðir dagar, svo sem
hjá Jóni Stefánssyni, er hann
fékk um 9 tonn einn daginn.
Aflinn var að vísu talsvert keilu
borinn, en sama er það, þetta
var yndælis dagur. Trollbátarnir
hafa verið að fá gott og sumir
alveg ágætt; eins og t. d. Binni
í Gröf, fékk alveg um 30 tonn;
mest ýsu, á örskömmum tíma.
Þá var Farsæll með góðan afla
eftir stuttan tíma.
Trillurnar: Fimm trillur hafa
róið að staðaldri í haust og yfir-
leitt fengið ágætis afla. Leggja
þær upp í Hraðfrystistöðina og
hefur þar drjúgum munað um
þeirra afla, þar sem ekki þarf
mikið til að hafa dagsverk
handa því fáa fólki ,er nú er
við flökun og fiskvinnslu í stöðv-
unum.
Sölur: Þrír Eyjabátar hafa ný-
lega selt afla sinn erlendis, og
fengið gott verð. Eyjaberg seldi
í Grimsby rétt um 30 tonn fyrir
aðeins rúm 4 þús. sterlingspund.
Er það alveg lúxussala. Þá seldi
Leó í Bremenhaven liðlega 30
tonn fyrir 40200 mörk og Frigg
einnig í Bremenhaven 28. f. m.
21 tonn og fékk fyrir aflann 24
þús mörk.
Höfnin: Eg hringdi í Sigga á
Löndum eitt kvöldið, mikill ind-
ælis piltur. Sagði, að nú væri
heldur rólegt við höfnina, lítið
um skipakomur, en að sjálfsögðu
alltaf nóg að gera við að Iíta
eftir bátunum; og svo að sjálf-
sögðu ýmislegt í sambandi við
viðhald hafnarmannvirkja. Þá
væri verið að vinna af krafti við
að steypa kanta og festingar á
„dokkina" í Friðarhöfn. Væri
lokið við að steypa vestúrkant-
inn og nokkuð komið áleiðis með
norðurkantinn.
Ártimis
Eftirsóttu undirfötin fyrirliggj
andi í öllum litum og stærðum.
%.,'y -i' 7 ,
Einnig nýtt snið af náttfötum.
Verzl. Framtíðin
Öllum hinum mörug vinum og frændum, nær og fjær, þökkum
við af hrærðu hjarta fyrir þá margvíslegu virðingu og ein.lægan vin-
arhug, er sýndur var við andlát og útför elskaðs eiginmanns míns
ÁSMUNDAR FRIÐRlKSSCNAR,
skipstjóra.
— föður okkar, bróður og sonar.
Þórhalla Friðriksdóttir,
Ása Ásmundsdóttir, Árni Ásmundsson,
Harpa Þorvaldsdóttir, Birgir Guðnason,
Friðrik Ásmundsson, Erla V. Óskarsdóttir,
Elín H„ Ásmundsdóttir, Carl H. Johnson,
Sigríður Friðriksdóttir, Elín Þorsteinsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
Jónínu Sigurbjargar Jónsdóttur, Brekastig 7 C
Vandamenn.
ICátt er um jólin!
Jólagjafir fyrir alla, unga, gamla, konur og karla. — Bæjarins
bezta og fjölbreyttasta úrval:
Föt,
Frokkor,
Nóttföt,
Nóttsloppar, stuttir ,siðir.
Skyrtur, straufríar, hinar heims-
frægu „ANGLI", sem allir
lóta svo vel af, hvítar og
mislitar .
Manchettskyrtur ,venjulegar.
Bindi, glæsilegt úrval.
Sokkar,
Manchetthnappar, sérstakir og
sett.
Bindisnælur,
Treflar,
Hanzkar,
Undirföt,
Undirpils,
Nóttkjólar,
Nóttföt,
Peysur,
Borðdúkar,
llmvötn,
Baðsett,
Gaskveikjarar,
Borðkveikjarar,
Gjafakassar,
Skartgripir, — góðmólmar,
Silfurvörur,
Myndavélar, ótal tegundir.
Snýingarvélar fyrir 35 mm.
Sýningartjöld.
Ljósmælar og allskonar Ijós-
myndavörur.
Ljósmyndaalbúm.
Jólakort, yfir 100 tegundir.
Jólaspjöld,
Jólapappír, í örkum og rúllum.
Jólaserviettur,
Jóladúkar,
Jólalöberar,
Jólabönd,
Jólapakkaskraut,
og svo eru það auðvitað
LEIKFÖNGIN, sem eru í bæjar-
ins langbezta úrvali og
verðið hefur aldrei verið
lægra.
Dúkkur, næstum holdi kiæddar.
Jórnbrautir, rafmagns,
Brunabílar,
Eldavélar,
Modelbótar,
Strípalingar,
Jarðýtur,
Kranabilar,
Bollastell,
Kubbakassar,
Byssur,
Bangsar,
og einhver ósköp annað. —
Mikið af þessu er difið fyr-
ir rafmagnsbatteríum.
Og þó mó ekki gleyma því, sem
við höfum af allskonar
MODELUM, —-
sem eru beztu leikföngin fyrir
þ'j. sem eru hættir að hafa gam
an af leikföngum, stróka á aldr-
inum 12—18 óra og jafnvel
eldri. —
Kuldaúlpur,
Ytrabyrði,
Værðarvoðir,
Sængur,
Kuldaskór.
Bæjarfréttir.
v-_______ ________J
Afmæli: i aag verður sjötug-
ur Arni Firinbogason i Hvammi.
Arnar blaöiö honum ailra heiíia
á þessum timamotum í ævi hans.
Messao: A sunnudaginn kem-
ur verður messað kl. 2 e. h.
Séra Þorsteinn L. Jónsson pré-
dikar.
Mannsfát: Þann 28. nóvember
lézt í Sjúkrahúsinu hér Jón
Bjarnason trá Sigtúni, eftir langa
vanheilsu, 82 ára að aldri. Verð-
j ur Jón heitinn jarðsunginn á
j morgun kl. 1,30 e. h.
Jarðarför: S .1. laugardag var
gerð frá Landakirkju útför Ág-
ústs Ingvarssonar, vélstjóra. Ág-
úst var 73 ára er hann lézt.
Bíó Samkomuhússins: N. k.
sunnudag snýir bióið stórmynd-
ina Biily Budd. Er myndin í cin-
emascope, gerð eftir hinni frægu
skáldsögu eftir Herman Mel-
villes, er gerist á dögum Nelsons
flotaforingja og greinir frá átök
um huga og handar, og er í
heild hrífandi og um leið spenn-
andi og áhrifamikil.
Landsíminn: Mikið er að snú-
ast þessa dagana hjá Landsím-
anum. Er verið að reka smiðs-
höggið á tengingu bæjarsímans
við sjálfvirku símstöðina hér og
í Reykjavík. Er fyrirhugað að
klippt verði í sundur um helg-
ina þann 14. þ. m. eða eftir
rúma viku. Verður rækilega til-
kynnt í útvarpi um nánari tilhög
un.
Goifklúbburinn: Á laugardag-
inn var hélt Golfklúbbur Vest-
mannaeyja upp á 25 ára afmæli
með myndarlegu hófi í Sam-
komuhúsinu. Var þar að venju
fjölmennt og létt yfir mann-
skapnum. Voru verðlaunagripir
sumarsins afhentir og það sem
meira var að nú voru í fyrsta
sinn afhent heiðursmerki félags
ins úr skíra gulli. Þeir; sem
hlutu heiðursmerkin voru: for-
seti Golfsambands íslands,
Sveinn Snorrason, Reykjavík, og
af heimamönnum: Lárus Ársæls-
son, Axel Halldórsson, Ásmund
ur Guðjónsson, Karl Sigurhans-
son og Júlíus Snorrason.
*** * *’ * * **1 ■ * ■ ii* i r*n«—>ni^ii n
Umboðsmaður:
Finnbogi Friðfinnsson.
Símar 450 og 485.
Vörurnar eru góðar ,verðið er hagstætt. GLEÐILEG JÓL!
sx
V E R Z L U N
BJÖRN GUÐMUNDSSON. — MARKAÐURINN