Fylkir


Fylkir - 31.07.1964, Page 2

Fylkir - 31.07.1964, Page 2
2 .£Eas F Y L K I R 17. ÞING S. U. S. 17. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna var haldið í Reykjavík nú fyrir skömmu. Mikill áhugi var ríkjandi um starfsemi sambands- ins, sem hefur verið mjög blómlegt s. 1. ár. Formaður var kjörinn Árni Grétar Finnsson og varaformaður Sigfús J. Johnsen. Ýmsar ályktanir voru gerðar. I almennri stjórn- málayfirlýsingu segir svo: 17. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna leggur áherzlu á það meginatriði Sjálfstæðis- stefnunnar, að andlegt frelsi og athafnafrelsi einstaklinganna sé grundvallar skilyrði þess, að hæfileikar og starfsþróttur sér- livers manns fái notið sín til fulls. Frjálst framtak, heilbrigð samkeppni og eignarréttur ein- staklinganna eru traustustu stoðir allra framfara. Þingið telur ,að efla beri und ! irstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveg, landbúnað, iðnað og verzlun og fagnar þeim fram kvæmdum og framförum, sem orðið liafa að undanförnu hjá þessum bjargræðisvegum, fyrir forystu viðreisnarstjrónarinnar. Þá bendir þingið á þýðingu at- vinnugreina ,eins og siglinga og flugs fyrir þjóðina. Stöðugt er nýrra átaka þörf, eigi þjóðin á- fram að halda á braut vaxandi velmegunar og bættra lífskjara. Bendir þingið sérstaklega á nauð syn þess að aukin verði hagnýt- ing nýjustu tækni og vísinda í þágu atvinnulífsins og lýsir fylgi við fram komnar hug- myndir um stóriðju í landinu, sem skapa mun nýja möguleika og auka á fjölbreyttni atvinnu- hátta íslendinga. Þingið leggur áherzlu á mik- ilvægi frjálsrar verzlunar, jafnt í innanlands- sem utanríkisvið- skiptum, og mælir gegn við- skiptahöftum og bönnum opin- berra aðila. Fagnar þingið þeim mikilsverðu áföngum, sem náðst hafa í þessum efnum undir for- ystu núverandi ríkisstjórnar, en leggur jafnframt áherzlu á gildi þess, að frjáls samkeppni sé far- sælasta leiðin til að tryggja lieil brigða verzlun og hagstæðasta og vörugæði fyrir neytendur. Þingið telur nauðsynlegt, að sérhverjum æskumanni séu bú- in þau uppeldis- og menntunar skilyrði, sem megi gera hann að þroskuðum einstaklingi og nýt- um þjóðfélagsborgara. Ungir Sjálfstæðismenn álíta nauðsynlegt, að sérhverri fjöl- skyldu, sem þess óskar, sé gert kleift að eignast eigin íbúð og telja sérstaka þörf á að auka stuðning við ungt fólk á þessu sviði. Þingið lýsir stuðningi sínum við félagslegar umbætur, sem miða að því, að þeir, sem erfið- ast hlutskipti hafa hlotið, fái styrk af afli heildarinnar. Þingið bendir á nauðsyn þess, að gott samstarf og náinn skiln- ingur ríki á milli allra stétta þjóðfélagsins og milli fólks í sveit og við sjó. Ungir Sjálfstæðismenn leggja nú sem fyrr áherzlu á, að íslend- ingar eigi vinsamleg samskipti við allar þjóðir.. Jafnframt minna þeir sérstaklega á nauð- syn samstöðu okkar og annarra vestrænna þjóða. Þingið fagnar sigrum í landhelgismálinu og minnir á, að 11. marz n. k. renn ur út tími sá, sem erlendir tog- arar hafa undanþágu til veiða innan 12 mílna markanna. Þingið fagnar þeim sigri, sem Sjálfstæðisflokkurinn vann í Al- þingiskosningunum á s. 1. ári og traustsyfirlýsingu |)jóðarinnar á viðreisnarstefnunni. Sýndu þau úrslit, að þjóðin vill, að áfram verði haldið á braut viðreisnar- stefnunnar. Ungir Sjálfstæðismenn skora á þjóðina að sameinast til nýrra átaka. í stað sundrungar um launamál þarf að koma samvinna um raunhæfar kjarabætur, þar á meðal styttingar vinnutíma án skerðingar launa. Þingið ítrekar fyrri samþykktir um þörf endur- skoðunar á vinnulöggjöfinni. íslenzka þjóðin býr nú við betri lífskjör og meiri mögu- leika, en nokkur önnur kynslóð sem í landinu hefur lifað. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hef- ur hvert skrefið öðru stærra ver ið stigið til framfara og þjóðin unnið sína mestu sigra. Hinnar upprennandi kynslóðar bíður því glæst framtíð. Sjálfstæðismenn setja fyrst og fremst traust sitt á æsku lands- ins, sem sækja mun fram til vaxandi velmegunar og hagsæld- ar, í landi fjölþættra möguleika, með frelsi og framtak einstakl- ings að leiðarljósi. Húsmæður Erum ávallt vel birgir af alls- kyns mat- og nýlenduvörum. AT HUGIÐ ! Enskt kex, margar tegundir kemur í búðina á þriðjudag. Hangikjöt — Svið — Svínakjöt. Munið okkar Ijúffenga nýmal- aða KAFFI! Sendið pantanir tímanlega fyrir þjóðhátíðina. SPARIÐ TÍMANN! NOTIÐ SÍMANN! SENDUM HEIM! V erzlun Guðjóns Scheving Njarðarstíg 1, — sími 1775. Skólavegi 1, — sími 1783. !

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.