Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Blaðsíða 17

Fylkir - 23.12.1965, Blaðsíða 17
JOLABLAÐ FYLKIS 1965 17 SIGFÚS M. JOHNSEN, fyrrverandi bæjarfógeti: Jólaminniiigar í Vestmannaeyjum var reist kirkja þegar árið 1000, sjálft kristniárið, en þó áður en kristni var lögtekin hér á landi á Alþingi hið sama ár. Tvær kirkjur voru hér lengi, hvor með sinn máldaga, þar sem tilgreindir voru kirkjumunir og aðrar eignir kirknanna. J^irkjurnar á kirkjustöðunum, Ofanleiti og Kirkjubæ, voru lagð- ar niður á 16. öld, en samt haldið við; lengi sem bænhúsum. Ein kirkja fyrir báðar sóknirnar var byggð, en sóknarprestar voru tveir fram á nítjándu öld eða til ársins 1837, og nú aftur eftir rúm 100 ár eru tveir þjónandi prestar þjóð- kirkjunnar í Eyjum. Kirkjan, sem reist var 1573 stóð á Fornu-Löndum. Fornu-Lönd voru skammt sunnan við Lönd, og skilur núverandi Landagata þar á milli. Þessi kirkja, er var timbur- kirkja stór og vegleg og vel búin kirkjugripum, stóð fram að Tyrkja ráni. Hana brenndu ræningjarnir til kaldra kola 17. júlí 1627; höfðu þeir áður rænt hana öllum sínum skrúða. Samt virðist sem kirkju- klukkunum hafi verið komið und- an, sbr. sögnina um Skrúðabyrgi í Neðri-Kleifum. Kirkjan á klukku, sem ber ártalið 1619 og mun það eiga við árið, er klukkan var smíð- uð. Aðra eldri klukku átti kirkjan, en það var kirkjuklukka sú úr gömlu Landakirkju, sem kom upp um sjóræningjana, er rændu Landa- kirkju 1614. Klukkuna buðu þeir til sölu í Englandi, en á henni mun hafa staðið, að hún tilheyrði Landa- kirkju í Vestmannaeyjum. Var klukkan send til Vestmannaeyja að boði Englandskonungs, en ræningj- arnir voru dregnir fyrir lög og dóm og teknir af lífi. Þessari gömlu klukku var seinna fargað frá kirkjunni og mun hafa lent í Kaupmannahöfn, og ef til vill er hana að finna meðal forn- gripa á söfnum í Danmörku. Þar lentu einnig postulastylturnar 12 úr Landakirkju, er teknar voru þaðan um miðja 19. öld. Eftir kirkjubrunann 1627 var ný kirkja reist, þar sem nú kallast gamli kirkjugarður í núverandi kirkjugarði Eyjanna. Núverandi Landakirkja er 5. kirkjan með því nafni. Hún er nokkru yngri en Hólakirkja, en eldri en Bessastaðakirkja, og ein af veglegustu kirkjum landsins og bet ur búin kirkjugripum en flestar aðrar kirkjur hérlendis. Lengi hvíldi sú kvöð á, að Landa- kirkju skyldi goldinn vænsti fisk- urinn af hverju skipi, er aflaðist í hverjum róðri. Eyjamenn voru stoltir af kirkju sinni og ræktu að jafnaði vel skyldu sína við kirkju og prest. Kirkjan var vel sótt, þótt eigi væri á venju- legum messudögum sá troðfyllir sem á jólunum. Á Þorláksmessudag — heilags Þorláks — var lögð síðasta höndin á undirbúning sjálfrar jólahátíðar- innar. Meðhjálparinn var með sínu hjálparliði að Ijúka við að fægja allt og fága í kirkjunni. Stóru ljósahjálmarnir glóðu eins og gull og kertastjakarnir. Búið var að setja kertin í hjálmana og stjak ana og raða þeim á bogann mikla, er var þvert yfir kirkjuskipið milli svalann svonefndu uppi, en þar voru mestu viðhafnarsætin. Bændur sátu í kór eftir gamalli venju og bændakonur eftir virðing- um í innstu sætunum framan við kórinn. Húsmæðurnar höfðu í mörgu að sýsla og stóðu í miklu erfiði og amstri fyrir jólin, þar sem mann- mörg heimili voru, og má sá, er þetta ritar, minnast þess frá upp- vaxtarárunum á mannmörgu út- vegsbóndaheimili í Vestmanaeyj- um. Húsmóðirin í Frydendal, sem misst hafði mann sinn löngu fyrir aldur fram, hélt uppi merki hans og stjórnaði mannmörgu heimili og ól upp börn þeirra hjóna, en það yngsta var á fyrsta ári, er faðirinn féll frá. Frá veturnóttum og framundir jólaföstu var setið við tóskap og í vefstólnum öllum stundum, er tóm gafst. Einnig saumaði hún sjálf að mestu upp á mannskapinn á sínu heimili, þær löggiltu flíkur, er fól- ust í umsömdu kaupi vinnufólksins. Reynt var að koma sem mestu í verk fyrir jól. Allir urðu að fá eitt- hvað fatakyns, enginn mátti fara í jólaköttinn. Úteyjafæri hafði verið gott og jólaærnar sóttar, en þeir voru samt fáir, sem töldu sig hafa ráð á að slátra kind á þessum árstíma, og þannig var það heima. Fugla- steik af skotfugli, skörfum, lómum og fiskiendum var talin nægja og ekki eytt af sauðkindum, sem Eyja- bændur áttu ekki ofmargt af, því stórt varð ekki búið vegna land- þrengslanna. En gagnsamur var eyjabúskapurinn engu að síður. — Þetta var á þeim árum, þegar gamla öldin var í þann veginn að kveðja, og nú var liðið að jólum. Á eynni okkar hér í Norður-Atlants hafinu var hugurinn sterkt bund- inn við jólin. Jólahelgin og viðbún- aður fyrir jólahátíðina var sízt minni hér að sínu leyti en annars- staðar í hinum kristna heimi. Eft- irvæntingin gagntók hugi manna, sem urðu börn í annað sinn við tilhugsunina um fæðingarhátíð Sigfús M. Johnsen. frelsarans. Hjá börnunum ríkti fögnuður og gleði, sem orð fá naum ast lýst. Á kvöldsöngnum í Landakirkju var hvert sæti skipað á aðfanga- dagskvöldið. Kirkjufólkið streymdi að úr öllum áttum, neðan úr Sandi, austan af bæjum og ofan fyrir Hraun, og lýsti fyrir sér í myrkrinu með heimagerðum ljóskerum með kertaljósi í. Samskonar ljós og síð- ar voru notuð í gömlu beituskúr- unum. Til hátíðabrigða voru opnaðar norðurdyrnar á kirkjunni, kórdyrn- ar, sem aldrei var gengið um nema á stórhátíðum kirkjunnar. Þegar eim kom frá kirkju var kveikt á jólatrénu, sem var heima- Framh. á bls. 21. v Frá Eyjum laust eftir aldamót.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.