Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Blaðsíða 18

Fylkir - 23.12.1965, Blaðsíða 18
18 JÖLABLAÐ FYLKIS 1965 HARALDUR GUÐNASON: Ferðaþættir frá Missouri Fimm daga dvöl í Washington D C var lokið. Þetta er fyrsta borgin í veröldinni, sem hefur verið reist með það fyrir augum að verða höf- uðborg. Og þetta er fögur borg með nokkrum austurlandasvip, mörgum görðum og stórbyggingum með hvolfþökum, en fáum nýtízku kassahúsum. Þessir fimm dagar liðu fyrr en varði, einn í Library of Congress (Þingbókasafninu), með 38. millj. eintök af bókum, bæklingum, filmum o. fl. Og ekki veitir af öðrum degi í Smithsonian- safninu, sem er raunar mörg söfn og sum furðuleg. Undarlegur Eng- lendingur, James Smithson, sem uppi var 1765—1829, gaf stofninn í þessu safni. Var ráðandi mönnum í fyrstu drumbs um að þiggja þessa miklu gjöf af útlendingi. í ár, á 200 ára afmæli Smithson’s, er hans minnst með virðingu og stórri þökk. í þessari borg er sem sagt margt að leiða augum; við heimsækjum Hvíta húsið, komum á þingfund í Capitol, í Arlington-garðinn, þar sem gröf Kennedys forseta dregur fólkið að sér eins og segull; en þetta er of langt upp að telja. — Þá verður okkur hjónunum jafnan minnisstætt kvöldverðarboð hjá sendiherrahjónunum í íslenzka sendiráðinu 17. júní. Þar voru nokkrir tugir íslendinga — sumir frá Eyjum — og fleiri gestir. Borð voru hlaðin íslenzkum réttum og menn voru í huganum heima á ís- landi. Allir fundu það, að þeir voru velkomnir á þetta ágæta íslenzka heimili í fjarri álfu.---- En nú kveðjum við Washington- borg og höldum til Missöuri, sem er nær miðju landi. Við förum með þotu frá TWA, sem útleggst Trans World Airlines. Það átti að leggja upp frá Friendship Airport kl. 11 árd. Surtur einn í afgreiðslunni sagði okkur að koma tveim stundum fyrir brottför Fólksmergðin veldur því, að hér þarf að hafa tímann fyrir sér. Leiðin á Flugvöll vinátt- unnar er alllöng, en loks kom þar að við gengum upp í þotuna. Eg var ekki fyrr kominn inn í ferlíkið en ég rak augun í litla málmplötu hvar á var letrað: Bo- eing 707. Ójá, var það ekki þessi Boeing, sem stundum tók upp á því að springa af málmþreytu í háloft- unum? Ekki hafði ég orð á þessari uppgötvun minni; hélt að hún hefði ekki góð áhrif á ferðagleði konunn- ar, og hitt, að sá serrí nefnir spreng ingu í amerískri flugvél er óðara rekinn út. Loft var skýjað, eða öllu heldur fullt af mistri. Þotan hóf sig upp, mjög bratt að mér fannst. Eg sá hreyflana hristast og skakast, eins og þessi fákur loftsins vildi hrista þá af sér. En svo hætti þotan að klifra, flaug í jafnri hæð. Þótti mér þetta hinn bezti farkostur. í þotunni voru þrjár langleggjað- ar þokkadísir. Ein á hæð við mig, og brosti sú blítt til mín. Óku þær nú fram vagni með hinum fjöl- breyttustu guðaveigum í glitfögr- um umbúðum. Lyftist þá brún á mörgum. Konan bað um ávaxtasafa, en hvað þóknaðist herranum? — Skota og sódavatn. Þokkadísin brosti, virti mig íyrir sér eins og hún væri að meta og vega hvort ég kynni að verða að- gæzluverður hérna uppi í háloftun- um, ef ég fengi minn skammt. En svo lét hún tvær litlar flöskur á bakkann minn og vatnið. — Ekki held ég, að konan hafi verið hrif- in af viðskiptum mínum við loft- meyna, en lét þó kyrrt liggja, enda komst ég brátt í gott skap. Nokkru síðar voru fram bornar rjúkandi kjúklingar, sem Ameríkanar hafa sérstakt lag á að tilreiða lystilega. Okkur bar hratt vestur yfir slétt- urnar. Stöku sinnum sást niður á búgarða og akra gegnum mistrið, frjósöm jörð og þrautræktuð. — Eftir rúmlega tveggja stunda flug, nálgumst við óðum áfangastaðinn. Stórá liðast eins og silfurband um landið. „Þar Missisippi megindjúp fram brunar/ í myrkum skógi og vek- ur straumanið,/ þar aftangeisli í aldingulli funar/ og undarlegan hefja fuglar klið . . . “ orti Kristján Fjallaskáld. Nafn þessa stórfljóts er tekið úr Indíánamáli. Missi þýðir stór og sippi er fljót. Er þetta réttnefni, því Missisippi er lengsta á í heimi ef Missouri er talin með, 6792 km., en Amazon er vatnsmeiri. Mörg ævintýri hafa gerzt á þessu stór- fljóti. Um þau hafa margir lesið í sögum Mark Tvains. En hér gerast líka válegir atburðir. Stórflóðin koma öðru hvoru, sópa burt jarð- veginum af stórum svæðum, færa landið í kaf og margir týna lífinu í þessum hamförum. Þessi miklu flóð stafa af snjóbráð í Klettafjöll- um. Annar vágestur er of mikill þurrkur, þá skrælnar landið og uppskeran eyðileggst. Svo mikill er kraftur þessa stórfljóts, að það hef- ur grafið sér göng gegnum 360 metra hátt granitfjall. Víða er fljót ið 1200 metra breitt, og 1800 metra við ósana. Á fljótinu var mikið líf í tuskunum í gamla daga. Fyrir rúmri öld voru 60 gufuskip í stöðugum ferðum um ána, en við komu járnbrautanna fækkaði þeim mjög. Á vetrin botnfrusu árnar, því frosthörkur eru oft miklar í miðríkjunum. Missisippi er að austanverðu fylkjamörk milli Missouri og fylkj- anna Illinois, Kentucky og Tennes- se. Nálægt vesturbakka fljótsins er stórborgin St. Louis og þar lendum við nú eftir tveggja og hálfrar stundar flug. Fyrir um það bil hundrað árum voru útflytjendur frá Vestmannaeyjum, Landeyjum og víðar, hvorki meira né miiyia en 8 daga með lest frá New Yörk til St. Louis. í einum slíkum hóp var sveitungi minn, Þórður Dirðiks- son frá Hólminum, er síðar varð Mormónabiskup í Utah. Þeir félag- ar fengu vinnu nokkrar vikur í St. Louis, en þoldu illa hitann. Mikil varð því gleði þeirra, er þeir skyldu fara upp Missouri með fljótabát, 800 mílna leið til Omaha, en þaðan fótgangandi með handkerr ur yfir eyðimörkina til Salt Lake City. Flugstöðin í St. Louis er firna- stór og umferð mikil. Hér eru vega mót, einskonar umferðarmiðstöð, enda er St. Louis-borg stundum nefnd „Hliðið til vestursins“. Hún hefur líka verið nefnd fæðingarborg flugsins, því þar var haldið fyrsta þing um flugmál árið 1910 og fimm fyrstu flugmennirnir vestanhafs voru frá St. Louis. Því var það, að Lindberg skirði flugvél sína, er hann flaug fyrstur manna yfir At- lantshaf 1927 á 33 og hálfum tíma, „The Spirit of St. Louis“ (Andinn frá St. Louis). Þá er ég skoðaði þennan farkost á safni í Washing-

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.