Fylkir - 28.01.1966, Síða 2
2.
FYLKIR
Frá liðnum dögum:
urheims; en varla munu menn
þola ójöfnuð í verzlunarefnum til
lengdar, án þess að reyna að bera
hönd fyrir höfuð sér.
Úr Vestmannaeyjabréfi 1892
Hinn 7. þ.m. gjörðist hér æði
nýstárlegur atburður. Tvö fiski-
gufuskip, annað frá Hull hitt frá
Grimsby, komu gufandi og ætluðu
inn á höfn, og mundu bæði hafa
flotið inn, því sjór var í háflóði,
en annað fór of norðarlega og stóð
á Hörgaeyri. Hitt ætlaði að varast
víti hins, en fór sunnan við Leið-
ina og stóð fast milli tveggja
skerja. Þarna lágu þau heilan sól-
arhring, og mundu bæði hafa orð-
ið að strandi, hefði sjó brimað eða
hvesst á austan. Daginn eftir kl.
um 4 em. losnuðu bæði, og var
annað skipið, það er sunnar lá, orð-
íð býsna lekt og lamað, því það
hafði við hverja báru barizt með
hliðina við skerið, sem það lá á, og
mun nú hafa haldið beint til Skot-
lands til aðgjörðar.
Fólksflutningar til Vesturheims
eru héðan í ár með mesta móti.
Um 30 eru þegar farnir eða fara
síðar í sumar, flestir til Utah,
nokkrir til Canada, og fleiri langar
að komazt. Ættingjar og vinir
vestra fýsa menn að koma, og
hjálpa mörgum drjúgt með far-
gjald, bæði láns og gefins; er ekki
ólíklegt, að þessi vesturfara straum
ur héðan haldi áfram framvegis.
Menn eru óánægðir með hagi sína
hér, ætla allt svo dýrðlegt og æski-
legt vestan hafs, og fýsir til vina
og vandamanna í hinu veðursæla
Gósenlandi, hinni víðáttumiklu
hvilft í Klettafjöllunum, sem
kennd er við Saltvatnið mikla.
Af verzluninni er varla annað en
illt að segja, afarlágt verð á innl.
vörum en afarhátt á útlendri nauð-
synjavöru, og svo bætist þar við,
að mönnum virðist rúgurinn lítil-
fjörlegur og kjarnasmár, og mjöl-
'ið eigi sem bezt (sumt t.d. bland-
að maísmjöli). Af landi hefur verzl
un verið sótt hingað með minnsta
móti. Mönnum finnst eigi til um
að verzla, þar sem engin verzlun-
arkeppni er, þegar þeir eiga ann-
ars kosti. Aftur hefur Bryde haft
allfjöruga verzlun og mikil vöru-
skipti austur í Vík, hefur sent
þangað skip fimm sinnum, með
meira og minna af vörum í hvert
skipti.
Verðlag hér er þannig hingað til:
Saltfiskur skippund - 160 kg. nr.
1 á 32 kr., nr. 2 á 22 kr., langa
27 kr., smáfiskur 30 kr., ýsa
28 kr., hrogn 8 kr., sundmagi
0,40, harðfiskur nr. 1 65 kr., nr. 2
á 50 kr., lambskinn 0,50, hrálýsi
1,50 kúturinn, soðlýsi 1 kr., rúgur
tunnan 24 kr. mjöl 200 pd. með
sekk 27 kr. bankabygg tunnan
31 kr., kaffi 1,05, kandís 0,36, melis
0,35 og kaffispillir 0,40 - 0,50.
Nú er J.P.T. Bryde orðinn hér
einn um hituna. Þrír aðalverzlun-
arstaðar eru hér, Garðaverzlun sem
J.P.T. Bryde á, Juliushaabsverzlun,
er yngri Bryde hefur fengið að
gjöf frá föður sínum, og Godthaabs-
verzlun, sem Bryde nú stjórnar
samkv. þinglesinni umboðsskrá frá
eigandanum N.H. Thomsen, sem nú
er orðinn smjör og ostasali í Höfn.
Segir mönnum þungt hugur um
þessa þrenningu, og hvetur frem-
ur en letur hina óánægðari til Vest-
Pöntunarfélag hefur verið hér
nokkur ár, undir forystu Gísla
kaupmanns Stefánssonar og hafa
hinir efnaðri notað það að mun, og
sætt þar miklu betri kostum en
kaupm. geta boðið, enda er það
eðlilegt, þar sem fastir kaupm.
hafa miklu meiri kostnað við að
reka verzlun sína og lána vörur út.
Saltlaust var hér í búðum um
lok marzmánaðar. Ungi Bryde
keypti salt vestan frá Dýrafirði
(400 tunnur) sem loks kom hingað
20. maí. Var þá verðið fært upp í
5,50 úr 4,75 fyrir tunnuna, og við
það stendur enn. Þykir þetta kenna
einokunar, og telja sumir það með
syndaregistri etazráðsins.
H. G.
Búsáhöld
Mikið úrval af nýjum og skemmtilegum
búsáhöldum.
Þvottagrindur í baðherbergi.
Straubretti, ermabretti.
Mikið úrval af plastvörum.
Málaðir barnadiskar og mál.
Ný gerð af hitakönnum.
Úrval af kökudiskum.
Matar og kaffistell - stakir bollar og diskar
Eldhúsvogir - Borðplattar.
Matardiskar — Bitakassar
Alltaf eitthvað nýtt - lítið inn og
GERIÐ GÓÐ KAUP.
Búsáhaldadeild
V erzlun
Guðjóns Scheving
Skólavegi 1.
Náttúrugripasafnið...
Framhald af 1. síðu.
upplýsinga erlendis frá. Dvaldi
Friðrik Jesson nokkurn tíma sum-
arið 1964 í Kaupmannahöfn en þó
aðallega í Bergen til að kynna sér
þetta mál. Safnið í Bergen, sem er
mjög nýlegt og er ekki einasta
stærsta safn á Norðurlöndum, held
ur talið einna fullkomnasta safn
lifandi fiska, sem til er og for-
stjóri þess, Rollefsen, talinn einn
allra færasti maður í sinni grein.
Dvaldi Fr. J. hjá honum nokkurn
tíma og fékk hjá honum upplýsing
ar í sambandi við uppbyggingu og
rekstur fyrirhugaðs safns okkar,
þegar til kemur. Taldi hann, eftir
að hafa fengið upplýsingar um að-
stöðu hér í Eyjum, ekkert sjá því
til fyrirstöðu að hægt væri að
koma upp slíku safni í Vestmanna-
eyjum. Hefur hann ætíð síðan að
Fr. J. dvaldi hjá honum mjög góð-
fúslega veitt allar upplýsingar, sem
um hefur verið beðið. Til að fyrir-
byggja misskilning skal ég taka
það fram í sambandi við hina
frægu rúðu, sem sprakk í fiskabúr
inu inn í Magna h.f. að hún var
ekki sett í eftir fyrirmælum Roll-
efsens, heldur var styrkleiki henn-
ar reiknaður út af aðila í Reykja-
vík, sem taldi að gler af þeirri
þykkt, sem þar var um að ræða
myndi duga, en sem bara reyndist
ekki rétt; það sýndi sig í þessu til-
felli eins og oft áður að of mikill
sparnaður borgar sig sjaldnast.
Eg hefi að undanförnu skoðað
fiskasöfn erlendis eftir því, sem
ég hefi haft aðstöðu til. Er þar um
að ræða söfnin í París, Bergen og
Washington. Ber safnið í Bergen
alveg af hinum söfnunum tveim-
ur, enda mun það vera eins og áð-
ur er sagt eitt stærsta safn lifandi
fiska, sem til er.
Er það alveg áberandi hvað slík
söfn eru meira sótt en önnur söfn,
jafnvel þó fræg séu, og ekki ein-
asta af ferðamönnum heldur ekki
síður af unglingum og borgarbúum
almennt. Enda mjög eðlilegt þar
sem mun lifrænna er að skoða
þau, en önnur söfn yfirleitt. Vona
ég því að vel takist til með þetta
safn hér og að bæjarbúar þurfi
ekki að sjá eftir þeim fjármunum,
sem til þess hefur verið varið. Vil
ég að lokum geta þess, að innrétt-
ingu húsnæðis fyrir safnið og ann-
ar undirbúningur er það langt kom
ið að vonir standa til að hægt
verði að opna það almenningi til
sýnis þegar líða fer á veturinn.
Gúðlaugur Gíslason.
Orgel óskast til kaups.
Vinsamlega hringið í síma 1167.