Fylkir - 25.02.1966, Blaðsíða 1
18. árgangur.
Vestmanaeyjum, 25. febrúar 1966.
8. tölublað.
Málgagn
Sjatftfsðn.*
fiokksms
;
Oddgeir Kristjdnsson
Minning
„En sárast var að sjá á bak
Þeim sanna, góða dreng.“
Með kvíða var mér það fullljóst,
að Odgeir gekk sárþjáður að starfi
síðustu dagana, þó að mig grunaði
ekki, að burtför hans mundi verða
með svo sviplegum hætti.
Það hæfði Oddgeiri vel að standa
til hinztu stundar á þeirri varðstöð,
sem stóð hjarta hans næst. Öll störf
sín vann Oddgeir af frábærri skyldu
rækni og samvizkusemi, en engum
duldist að tónlistin var, öllu öðru
fremur, hans hjartans mál, ekki
aðeins þannig, að hún væri hans
nautn, heldur var hún svo samof-
in drenglyndi hans, að hann varð
að miðla öðrum af þekkingu sinni,
gera aðra hluttakandi í þeim gæð-
um, sem voru honum svo dýrmæt.
Afburða kennari varð hann vegna
þess að frá honum streymdi ekki
aðeins gnægð þekkingar, heldur
einnig ylur frá þeim eldi, sem
brann í hjarta hans.
Þess vegna þraut aldrei þolin-
mæði hans og umburðarlyndi við
fákunnandi og viljalitla nemendur,
og þess vegna var líka fögnuður
hans svo heill og óblandinn, þegar
hann mætti skilningi og góðum
vilja. En auk þess, sem Oddgeir
var brennandi áhugamaður í sínu
MEIRI VATNSFLUTN-
INGAR FYRIRHUGAÐIR
Vegna langvarandi frosta og úr-
komuleysis eru margir bæjarbúar
vatnslausir um þessar mundir, en
neyzluvatn í vatnsbólum er mjög
af skornum skammti.
Herjólfur flytur að staðaldri vatn
hingað, en það reynist ekki nægi-
legt til að anna eftirspurn.
Nú hafa verið gerðar ráðstafanir
til, að fleiri skip losi hér vatn, hafa
forráðamenn skipafélaganna heitið
að láta skip, sem eiga leið hér um,
losa vatn, sem þau hafa umfram eig
in þarfir, jafnframt því að auka
birgðirnar eftir því, sem við verð-
ur komið. Þá er einnig verið að
leita eftir að fá flutningaskip til
vatnsflutninga. Til álita kemur, að
takmarka vatn til síldarverksmiðj-
tnna meðan núverandi ástand ríkir
eða stöðva það alveg.
Til að leiðrétta misskilning, þykir
rétt að upplýsa, að bæjarsjóður
verður eins og er að greiða Skipa-
útgerðinni fyrir vatnsflutningaha
með Herjólfi. Gjald það, sem út-
gerð skipsins reiknaði kr. 100,00 á
tonn, var samþykkt af sjávarútvegs
málaráðherra, sem er yfirmaður út-
gerðarinnar, — og auk þess er 20
kr. vatnsskattur til Reykjavíkur-
hafnar fyrir tonnið.
Þessu háa flutningsgjaldi hefur
verið mótmælt, en leiðrétting ekki
fengizt ennþá.
Framhald á 4. síðu.
fagi og skyldurækinn í öllu, sem
honum var falið, var hann afburða
góður samstarfsmaður og vinur.
Eg veit, að ég mæli þar fyrir munn
allra okkar, samkennara hans, en
ég vil sérstaklega undirstrika þetta
að því er sjálfan mig snertir.
Ekki fóru skoðanir okkar ævin-
lega saman, en hann átti fulla djörf
ung til að setja skoðanir sínar
fram, varpa nýju ljósi á viðfangs-
efnið og auðvelda þannig lausn
þess.
Og traustari mann í því að fylgja
viðteknum reglum og hafa þær í
heiðri, gæti ég ekki kosið mér.
Það er mikið lán að eiga slíka
vini.
S. K. er önugur yfir því, að launa
mál bæjarstjóranna varð bomba,
sem sprakk í höndum hans, þar sem
mál þetta hefur svo rækilega ver-
ið skýrt, að engu þarf þar við að
bæta.
Það, sem mest fer í taugarnar á
framsóknarmanninum er, að formi
uppstillingar bæjarreikninganna
var einmitt breytt, er þeirra full-
trúi hafði oddaaðstöðu í bæjar-
stjórn. Þá var látið nægja, að hinn
ábyrgi meirihluti kynnti sér laun
bæjarstjóra annarsstaðar á landinu
svo þau yrðu hliðstæð hér, og al-
veg sama gerðist nú.
veg sama gerðist nú. Sagði mér
fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsókn
ar, að send hefðu verið skeyti til
annarra kaupstaða til að fá saman-
burð launa hjá bæjarstjórum þar.
Þannig er venjan til orðin.
Vill núverandi bæjarfulltrúi Fram
sóknarflokksins standa við það, að
hinn mæti fyrirrennari hans í.bæj-
arstjórn, hafi á sínum tíma ekki
mátt samþykkja þetta á klíkufundi
eins og hann kallar svo?
Eg er þess vegna einn af þeim,
sem bera sáran söknuð og harm í
huga við brottför Oddgeirs.
En hvað þá nánustu ástvinir
hans? Þar sem heimilið hans og
hið undurfagra umhverfi þess held-
ur áfram að minna á listelska
hjartað hans og vinnufúsu höndina,
sem allt vildi fegra og bæta.
Miskunnsamur Guð huggi og
styrki ykkur, harmi lostnu vinir, og
blessi ykkur og okkur öllum, skól-
anum og byggðarlaginu hans, minn
inguna um góða drenginn, sem svo
sárt var að sjá á bak.
Eg held t. d. að þó samþykkt hafi
verið á s. 1. sumri ,þegar varðstjóra
stöðurnar voru ákveðnar í bæjar-
stjórn, að greiða sambærileg laun
sem annars staðar gerðist, að aldrei
verði gerð athugasemd við, þótt
síðan launaflokkurinn hafi verið
endanlega ákveðinn á „klíkufundi“
í skrifstofu bæjarstjóra.
En til fróðleiks og skemmtunar
fyrir suma má geta þess, að S. K.
var í síðasta mánuði launahæstur í
lögreglu kaupstaðarins, en það
er að sjálfsögðu ekki nema sá hluti
launa S. K., sem hann fær greitt hjá
bæjarsjóði, en ýmsum öðrum em-
bættum gegnir hann, eins og vitað
er.
Jóhann Friðfinnsson.
Hin leiðin.
Ábyrgðarmaður Framsóknarblaðs
ins, J. B., hefur nú tekið upp þá ný-
breytni að skrifa nafnlausar grein-
ar í blaðið. Reynslan sker úr, hvort
þetta reynist honum haldbetra, en
kannske er þarna bara um „hina
leiðina“ að ræða.
Steingrímur Benediktsson.
Vor fordœmi Framsóhnar
1954 (hhi til eftirbreytni?