Fylkir - 25.02.1966, Side 4
-----------------------------
Neðan frá sjó.
v__________ ________J
Gæftir: VeSráttan er ennþá við
það sama, sami austan- og norð-
austan þræsingurinn dag eftir dag.
Aldrei almennilegt sjóveður, nema
þá helzt á grunnslóðina, en þar er
ekki beln að fá. Margur var nú að
vona, að það myndi breyta til með
Góu, en sú raunin virðist ekki ætla
að verða á.
Línubátarnir: Hjá þeim er í raun
inni gæftaleysi, þar sem þeir kom-
ast aldrei á þá staði, þar sem helzt
er fiskvon. Sannleikurinn er sá, að
hefðu verið sæmilegar gæftir, þá
væri búið að kroppa upp þó dá-
lítið. Fjórir línubátar eru komnir
með alveg um 100 tonn ,eru það
Björg, Skálaberg, Júlía og Sæbjörg.
Botnvarpan: Þar er veðrátt-
an, sem fer með það. Alltaf rok
hérna austur um. Þó er bátur og
bátur að fá sæmilegt og þá helzt
yfir daginn. Leó var inni um helg-
ina með um 25 tonn af góðri ýsu.
Aflahæstu bátarnir á trollinu eru
Lundi, og Leó, með liðlega 60 tonn,
og næst eru Eyjaberg og Hafrún
með um 50 tonn.
Netin: Þar er alveg dautt, eins og
er. Enginn þorskur hefur gengið
með loðnunni. Ufsinn, sem spilaði
svo stóran þátt í netaveiðinni í
fyrra, sést nú ekki.
Loðnan: Óhemjuveiði hefur verið
hjá loðnubátunum og það svo að
takmarka varð að nokkru það, er
hver bátur mátti koma með að
landi; hver smuga orðin full, a. m.
k. hjá annarri verksmiðjunni. Held-
ur hefúr dregið úr aflanum núna
seinustu dagana, en það stafar ekki
af minna magni í sjónum, heldur er
loðnan styggari og stendur dýpra.
Verksmiðjurnar höfðu í dag tekið
á móti 219 þús. tunnum, en heild-
ar loðnuaflinn á vertíð í fyrra var
96 þús tunnur. Af þessu má bezt
marka að alldeilis fjörkippur hefur
komið í þessar veiðar.
Aflinn: Það er þá ekki alveg
sömu sögu að segja um bolfiskveið-
arnar. Þann 15. febrúar voru komn
ar á land hér 1585 lestir, en í fyrra
3383. Það munar með öðrum orð-
um yfir 50% á aflamagninu, hvað
það er minna í ár. Munar þarna að
sjálfsögðu mest um ufsann.
Fiskimjölsverksmiðjan h. f.: Þró-
in stóra hjá Fiskimjölsverksmiðj-
unni er nú um það bil að komast
í fulla notkun J gær var tekin í
notkun við þróna afkastamikill
lyftari, og með tilkomu hans verð-
ur hægt að fullnýta þrærnar og
auðvelda á allan hátt að koma í
þær síld eða loðnu. Er þróarbygg-
ing þessi í held mikið mannvirki,
og þarft.
Skrif stof a
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
í VINNSLUSTÖÐVARHÚSINU
cr opin alla virka daga fró kl. 5 — 7.
Þakka öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug með heimsókn-
um, gjöfum og skeytum á 85 ára afmælisdaginn, 4. febrúar.
Guð blessi ykkur öll.
Magnús Magnússon.
ENSKIR HERRAFRAKKAR
Ný sending.
Dríf andi h. f.
Sími 1128.
Framhald af 1. síðu.
Skv. upplýsingum bifreiðarstjóra,
sem annast vatnsflutninga um bæ-
inn, kemur of oft fyrir, að pantað
sé vatn, þar sem nokkrar vatns-
birgðir eru fyrir hendi. Það eru því
vinsamleg tilmæli meðan núver-
andi ástand rikir, að fólk reyni að
sjá svo um, að þeir, sem verzt eru
settir fái fyrst úrlausn.
Jóhann FriSfinnsson.
TAUNUS 17 M
V-394
Upplýsingar í síma 2009
eftir kl. 7 á kvölin.
RULLUKRAGAPEYSUR
— 3 litir —. Gott verð — kr. 395,00
og 495.
GÓÐAR VÖRUR! GOTT VERÐ!
Markaðurinn
Sími 1491
DÚKKUFÖT
á
TRESSY,
LINDU
Þef+a er skyrtan.
Markaðurinn
Sími 1491.
og
BARBIE
verð kr. 50,00 — 85,00 —
115,00 og 195,00.
Björn Guðmundss.
Sími 2273
KVENHÚFURNAR
Maraeftirsourðu
teknar udd
á mánudaa.
SKEMMAN
Sími 2080
Þjóðkirkjan: Messað n. k. sunnu-
dag kl. 2 e. h. Séra Jóhann Hlíðar
prédikar.
Betel: Samkoma á sunnudaginn
kl. 4,30. Barnasamkoma kl. 1.
Aðventkirkjan: Sjómannasam-
koma í kvöld (25. febr.) kl. 8,30.
Sjómenn og vertíðarfólk sérstak-
lega velkomið.
Jarðarför: Útför Oddgeirs heitins
Kristjánssonar fer fram á morgun
frá Landakirkju og hefst kl. 2 e. h.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja mun
kosta og sjá um útförina í þakklæt-
is- og virðingarskyni við hinn látna
Útvarpað verður frá athöfninni á
212 metra bylgjulengd, 1412 kílórið
um.
Afmæli: Engilbert Jónasson,
Bárustíg 9 verður 60 ára 28. febr.
n. k. Kristján Sigfússon, Urðavegi
43, verður 85 ára, 26. febr. n. k.
Blaðið óskar afmælisbörnunum
heilla.
Hjónaefni: Nýlega hafa opinber-
að' trúlofun sína Hulda Þorsteins-
dóttir, Skólavegi 29 Ingvi Guðna-
son, vélvirki, Víðimel 50, Reykja-
vík.
Til sölu!
q Glæsileg einbýlishús við Bröttu
götu og Helgafellsbraut. Einstakt
tækifæri fyrir þá, sem vilja eignast
góða og varanlega eign.
Of langt mál er að lýsa eignun-
um í stuttri auglýsingu, en allar
upplýsingar veittar fúslega.
BRAGI BJÖRNSSON
lögfræðiskrifstofa
Vestmannabraut 31, Kaupangi.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Sími 1878. — Heima 2178.
filmur beztar.
KULDAJAKKAR
fjórar gerðir frá 870 kr.
Alföt h, f.
Sími 1816.