Fylkir - 21.10.1966, Blaðsíða 4
Sjónvarp,
Framhald af 1. síðu.
ur á erlendum áhrifum, sem
streyma yfir land og þjóð. Af
hverju stöðvuðu þeir ekki sýning-
ar á erlendum kvikmyndum og létu
okkur nægja að horfa á Síðasta
bæinn í dalnum og 79 af stöðinni?
Af hverju reyndu þeir ekki að
stemma stigu við öllum þeim inn-
flutningi erlendra bóka og blaða,
sem inn eru flutt? Af hverju
reyndu þeir ekki að stöðva ferða-
mannastraum til og frá landinu,
þar sem sú hætta var á, að íslend-
ingar kynntust erlendum hugsun-
arhætti. Af hverju yfirsáust þeim
allir þessir þættir, og reyndar
miklu fleiri, sem varpað gætu
skugga á íslenzka menningu? Fyrst
farið er að ganga í berhögg við
einn óvin, því þá ekki að ganga í
skrokk á hinum líka?
Allir, sem hafa sæmilega og
skýra hugsun, hljóta að sjá, hvílík
firra það er, að ætla að loka fyrir
erlend áhrif til íslands eða stemma
stigu við þeim, eins og sjónvarps-
andstæðingar voru að burðast við
sællar minningar. Það þýðir ekki
að ætla sér að stöðva þá þróun og
væri raunar spor í öfuga átt. Auð-
vitað eigum við að læra af reynslu
annarra þjóða og notfæra okkur þá
reynslu eins og við getum. Slíkt
flokkast undir framfarir.
Svo var það heldur hlálegt, þeg-
ar íslenzka sjónvarpið byrjaði, að
strax fyrsta kvöldið skyldi vera
sýnd kvikmynd áþekk þeim, sem
Keflavíkursjónvarpið sýnir, að því
undanskildu, að með henni var ís-
lenzkur texti. Trúlega hafa Kefla-
víkursjónvarpsandstæðingar rokið
upp og slökkt á sínum tækjum til
þess að hleypa ekki slíkum ósóma
inn á sín heimili, eða að minnsta
kosti rekið börnin í rúmið.
Auðvitað gátu andstæðingar am-
eríska sjónvarpsins ekki verið
þekktir fyrir að hafa sjónvarp á
sínum heimilum, fyrr en hið ís-
lenzka tók til starfa. Þá tóku þeir
hins vegar viðbragð og fengu sér
tæki og loftnet.
Og nú segja „illar tungur“, að
þeir sitji þau kvöld, sem íslenzka
sjónvarpið útvarpar ekki, og „stel-
ist“ til að horfa á það ameríska. Og
það sem meira er, að þeir hafa af
því ágæta skemmtun, þótt þeir
megi auðvitað ekki láta það upp-
skátt, svo að aðrir heyri til.
Þá sjá menn, hver heilindin eru.
S. J.
Herbergi lil leigu
Óska eftir reglusamri stúlku eða
pilti. — Herberginu fylgir aðgang-
ur að baði og að þvottaliúsi, ef ósk-
að er.
Upplýsingar í síma 1453.
Eiginkona mín, móðir og systir okkar
RAKEL GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 22. okt. kl. 2 e. h.
Jón R. Guðjónsson, Bylgja Tryggvadóttir,
Björn Guðmundsson, Tryggvi Guðmundsson.
Hjartans þakkir til allra nær og fjær, sem glöddu okkur á
ýmsan hátt á 75 ára afmæli okkar, 9—10 þ. m.
Lifið öll heil.
Tvíburasystkinin
Sólrún og Einar Ingvarsson.
Osæmileg skrií bæjarsljóra.
Framhald af 1. síðu.
stofnun ríkisins í sambandi við ið-
gjald til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs. Honum ætti að vera það
ljóst, að þetta er algerlega þýðing-
arlaust. Hvorttveggja þetta liggur
alveg ljóst fyrir og óvéfengjanlegt
Y itamálaskrif stof an:
Úttekið:
Andvirði járnþils og annar kostnaður við fram-
kvæmdir í Friðarhöfn ...................................kr- 4.458.00,00
Greiðslur:
Inneign hafnarsjóðs 1/1 1966 ............ Kr. 1458.000,00
Beint framlag til hafnarsjóðs skv. fjárl.
ríkisins ............................... — 700.000,00
Aukaframlag til hafnarsjóðs samkvæmt
fjárlögum .............................. — 880.000,00
----------------- — 3058.000,00
í bókum þeirra stofnana, sem hér
eiga hlut að máli.
Samkvæmt bókum þessara aðila
stóðu reikningar kaupstaðarins við
þá þegar bæjarstjórnarskiptin urðu
sem hér segir:
Skuld við Vitamálaskrifstofuna kr. 1.400.000,00
Hafi bæjarstjóri síðar greitt af vegafé upp í skuld þessa, þá auðvitað
lækkar hún en hækkar ekki, eins og hann telur í blaði sínu, Brautinni,
12. þ. m. og bein fölsun að halda því fram, að hún hafi verið 3,5 milljónir
króna, eins og fram kemur í skýrslu hans-
Tryggingastofnun ríkisins:
Iðgjald vegna Atvinnul.tryggingasjóðs 1965 ............ kr. 990.128,00
Greitt í Reykjavík 25/3 1966 .......... kr. 500.000,00
Greitt bæjarfógetaembættinu hér 20/5 1966 — 490.128,00
---------------- — 990.128,00
Kvittanir fyrir þessum greiðslum liggja fyrir og koma fram í bók-
haldi bæjarins. Er því hér um beina tölufölsun að ræða hjá bæjarstjóra,
sem engum tilgangi þjónar öðrum, en að ómerkja hann sjálfan.
Hver er tilgangurinn?
Eg hef orðið þess var, að menn
eru að velta því fyrir sér, hvaða á-
stæða liggi því til grundvallar, að
Brautin og Framsóknarblaðið hafa
verið að reyna að ófrægja bæjarfé-
lagið og vera með óhróður um efna
hag þess.
Önnur skýring er vart fyrir hendi
en sú, að núverandi meirihluti sé
sjálfur hræddur við, að hann ráði
ekki við rekstur bæjarfélagsins og
lendi þar í ógöngum, og haldi í fá-
fræði sinni, að hann geti kennt
fyrrv. bæjarstjóra um, ef svo fer.
Eg tel þetta vonlaust verk fyrir
MUNIÐ
að tilkynna bústaðarskipt-i um leið og
þau gerast.
BÆJARRITARI
Landakirkja: Messað n. k. sunnu-
dag kl. 2. Séra Jóhann S. Hlíðar
prédikar.
Betel: Sunnudagaskóli kl. 1. —
Alm. samkoma kl. 4,30-
Frá Leikfélaginu: Þar sem upp-
selt var á síðustu sýningu Leikfé-
lagsins á Pabba, verður ein sýning
ennþá hér í Vestmannaeyjum og
verður auglýst nánar.
Um síðustu helgi var farið í sýn-
ingarför til Hornafjarðar og þar
haldnar þrjár sýningar við af-
bragðsgóðar undirtektir áhorfenda.
Eru meðlimir Leikfélagsins mjög á-
nægðir með förina og ekki má
gleyma móttökum og öllum aðbún-
aði, sem var Hornfirðingum í hví-
vetna til mikils sóma.
Á næstunni hefur Leikfélagið
hugsað sér að gera víðreist út á
land með leikritið, en ekki er enn
til fullnustu ákveðið um tíma eða
skipulag þeirrar ferðar.
Spilakvöld: Næstk. fimmtudags-
kvöld hefjast á ný hin vinsælu
spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna. —
Mun mörgum þykja að því hinn
mesti fengur, að sá þáttur skemmt
analífs skuli vera endurvakinn, en
spilakvöldin nutu hinna mestu vin
sælda, meðan þau voru.
Árshátíðin: Eins og áður hefur
verið auglýst verður árshátíð Sjálf
stæðisfélaganna haldin í Samkomu
húsinu annað kvöld. Hefur verið
vandað mjög til dagskrárinnar og
margir góðir skemmtikraftar fengn
ir til að skemmta gestum.
Happdrættið: Þeir, sem hafa feng
ið senda miða frá Happdrætti Sjálf
stæðisflokksins og ekki hafa enn
gert skil, eru vinsamlega beðnir að
gera það sem fyrst. Skrifstofan í
Vinnslustöðvarhúsinu við Strand-
veg er opin alla virka daga frá kl.
4—6.
Hljómleikar: Martin Hunger gekkst
fyrir hljómleikahaldi í Landakirkju
um síðustu helgi og var um ógleym
anlega stund að ræða að sögn
þeirra, sem hljómleika þessa sóttu.
Aðsókn var sæmileg á fyrri hljóm-
leikana en góð á þá síðari. Vess-
mannaeyingar mega vissulega vera
þakklátir þessum unga athafna-
manni, sem reynir eftir megni að
veita nýjum straumum inn í bæj-
arlífið.
hann, þar sem reikningar kaupstað
arins í árslok 1965 sýna allt annað
og öllum bæjarbúum og öðrum,
sem viðskipti áttu við bæjarfélagið
er kunnugt um, að hagur þess var
sem betur fer mjög góður og hefur
aldrei frá fyrstu tíð verið betri, en
þegar fyrrverandi bæjarstjórn skil-
aði af sér.
Guðl. Gíslason.