Fylkir - 28.10.1966, Blaðsíða 4
Hjartanlega þakka ég öllum mínum góðu vinum og
vandamönnum, sem glöddum mig með heimsóknum, gjöfum
og skeitum á 70 ára afmæli mínu 21. október síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll af ríkdómi náðar sinnar.
Nikólína Halldórsdóttir Scheving, Vilborgarstöðum
Þó seint sé sendi ég ættingjum mínum, vinum og vandamönnum
hjartans þakkir fyrir góðar og miklar gjafir á 80 ára afmæli mínu
hinn 19. júlí s. 1. — Einnig þakka ég forstöðukonu Elliheimilis-
ins, sem tók á móti gestum mínum.
Beztu kveðjur og blessunaróskir til ykkar allra.
Júlíana Sigurðardóttir.
Alúðar þakkir fyxár auðsýnda samúð og vináttu við frá-
fall og jarðarför
RAKELAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Miðbæ
Jón R. Guðjónsson — Bylgja Tryggvadóttir
Björn Guðmundsson — Tryggvi Guðmundsson
HUGLEIÐINGAR UM SAMGÖNGUMÁL
/ N
Neðan frá sjó.
v_________ ________)
Veðráttan: Nú er vetur í bæ. Ekki
er nú hægt að segja annað, en að
vetur heilsi vel, norðankul og hæg-
viðri. Var að vísu vel hvass á norð
an um helgina, en lægði á mánu-
dag og síðan blíða og sjólaust. Er
þess að vænta að þessi vetur verði
okkur hagstæður, bæði um afla-
brögð og tíðarfar.
Afiabrögð: Botnvörpubátarnir hafa
flesta dagana getað verið úti, en
hafa því miður ekki haft erindi,
sem erfiði því að afli hefur alveg
verið sáratregur, má segja að alveg
sé dauður sjór. Aflinn hefur verið
þetta 1-2 tonn eftir daginn og jafn
vel þaðan af minna. Er það ekki
álitlegt. Hin góða tíð gerir þó það
að verkum að dálítill afli skrapast
upp hjá þeim, sem aðsætnir eru og
sitja um hverja stund t.d. er Emil
Andersen á Júlíu búin að fá um 40
tonn það sem af er þessum mán-
uði.
Höfnin: Goðafoss var hér á þriðju
daginn og lestaði talsvert magn af
sjávarafurðum, síld, flatfisk, hum-
ar, þorskflök og skreið, alls um
400 tonn. Danskt skip var hér í
vikunni og losaði steypustyrktar-
járn og timbur. Hafði verið timbur
laust um nokkurn tíma og var
margur orðin langeygður eftir
timbri.
Hafnarframkvæmdir: Lokið er nú
viðgerð á norður- hafnargarðinum,
hefur verkið gengið vel eftir atvik-
um. Þá er byrjað á að að vinna að
undirbúningi að áframhaldandi
„römmun” járnþils í Friðarhafnar-
bryggjunni. Er þar mikið verk
framunan og óvíst með öllu hve-
nær því verður lokið, þar dagur
styttist óðum og allra veðra von á
þessum árstíma. Full þörf væri þó
á því að klára það mikið af verk-
inu að þessi hluti bryggjunnar kæm
ist í gagnið fyrir mesta annatíma
vertíðarinnar.
Síldin. Ekki sést bi-anda af síld
hér sunnanlands ennþá. Um þetta
leyti í fyrra fóru þó bátarnir að
byrja að fá hana austur í bugtum.
Hinsvegar komu hér á þriðjudag-
inn af Austurlandsmiðum Gjafar
með 1500 tunnur og Ófeigur III.
með um 400 tunnur. Síld þessi fór
öll í vinnslu í frystihúsunum og
var yfirborðið af henni flakað og
fryst. Frystihúsin hafa nú orðið
síldarflökunarvélar og með tilkomu
þeirra er auðveldara um nýtingu
síldarinnar til vinnslu og gera
hana í vissum skilningi verðmæt-
ari vöru.
Aflasölur erlendis. Sl. þriðjudag
seldi í Grimsby, Sæunn, tæp 30
tonn af fiski fyrir 3950 sterlings-
pund. Er þetta alveg ljómandi sala.
Sæunn er, svo sem fyrr hefur ver-
Framhald af 1. síðu.
og hér, er því ekki fjarstæða að
hefjast handa um athuganir á þeim.
Gæti ég áætlað að skipið SR N6
hentaði hér, en það flytur 35 far-
þega eða 3 tonn og er talið taka 7
mínútur að ferma og afferma það,
það gengur 40 hnúta í 1,5 til 2 m.
öldum, en mikið meira á sléttum
sjó, það hefur eldsneyti fyrir 370
km. vegalengd, minnka mætti elds-
neytisgeyma fyrir 50 km. vega-
lengd og við það auka burðarþol
og rými. Tel ég að skipið gæti þá
flutt þrjá bíla og áhafnir þeirra á
15 til 30 mínútum til lands, þann-
ig að maður gæti farið héðan að
morgni, á bíl sínum og ekið til
Reykjavíkur, sinnt þar sínum erind
um, og verið komin heim með bíl
sinn að kvöldi, eða jafnvel fyrr.
Tveggja manna áhöfn mun vera á
skipinu. Skipið mun kosta 14,2
milljónir og um tvær milljónir í
vai’ahluti. Sést á þessu að kaupverð
ið er ekki óyfirstíganlegur þrándur
Þáttur ríkisins:
Vestmannaeyingar borga sín
gjöld til nýbygginga og viðhalds
ið getið í blaðinu, bátur, er Sigurð
ur Gunnarsson, skipstjóri, og fleiri
hafa nýlega keypt hingað. Þá seldi
ísleifur III- á miðvikudaginn rúm-
lega 16 tonn fyrir 1842 pund. Er
það einnig mjög góð sala. — M/b
Leó hefur að undanförnu verið að
fiska „fyrir siglingu" og er nýlagð-
ur af stað áleiðis til Englands.
Bj. Guðm.
vega á landinu og eiga því heimt-
ingu á að þeim sé gert jafn hátt
undir höfði og öðrum landsmönn-
um. Ríkið lætur leggja vegi og
byggja dýrar brýr fram í afskekkta
dali, fyrir einn eða fáa sveitabæi.
Það leggur milljónir í vegi til að
stytta samgönguleiðir fyrir fámenn
byggðarlög, t.d. Múlaveg og Stráka
göng. Það lætur moka snjó af veg-
um, fyrir geysilegar upphæðir, til
að halda vegum opnum, þó ekki
sé nema í fáa daga eða jafnvel
nokkrar klukkustundir, skiptir þá
ekki máli þó fyrir sé góður flug-
völlur svo sem á Akureyri. Skipa-
útgerð ríkisins er rekinn með millj-
óna tapi. Allt er þetta þjónusta við
fólkið og ekki nema gott eitt um
það að segja. En þjónusta þessi á
að koma jafnt niður á þá lands-
menn, sem eiga við samgönguerfið-
leika að etja, hvort heldur á sjó
eða landi, tel ég að Vestmannaeyja
kaupstaður sé þarna mjög afskipt-
ur, þó að hann sé einn með stærstu
kaupstöðum landsins og leggi drjúg
an skilding til þjóðarbúskapsins.
Þegar á þetta er litið, tel ég það
sanngirniskröfu að ríkið standi
straum af útgjöldum við væntan-
legar samgöngubætur þessa byggð-
ai-lags. Ef loftpúðaskip væri lausn
á vandamálinu, bæri ríkinu að
bera kostnað af því og gæti það þá
fallið undir Ríkisskip.
Þáttur bæjarins:
Óþarft tel ég að fá hingað lánað
loftpúðaskip til reynslu, ekkert er
þó á móti því, heldur láta þrjá til
fimm valda menn fara út, þeir
skoðuðu skipin, hefðu tal af fram-
Messað kl. 2 n. k. sunnudag. Séra
Jóhann Hlíðar messar.
Betel.
Sunnudagaskóli kl. 1. Almenn
samkoma kl. 4.
Spilakvöld.
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna
hófust í gærkvöldi. Aðsókn var all-
góð, og er áætlað að halda spila-
kvöldunum áfram.
Verður spilað í litla salnum n. k.
fimmtudagskvöld, en áætlað er að
dansað verði í stóra salnum á eft-
ir. Það skal tekið fram, að allir
eru velkomnir til þátttöku í spila-
kvöldunum.
Dansskóli.
Dansskóli Heiðars Ástvaldsson-
ar er nú með námskeið í bænum.
Það ber að fagna því, að þetta er
nú orðinn hvað árlegur viðburður,
að damsnámskeið séu haldin, hin-
um eldri og yngri til yndis og á-
nægju.
leiðendum, fengju að reyna þau
við svipaðar aðstæður og hér eru,
einnig hefðu þeir tal af þeim mönn-
um sem nú þegar hefðu reynslu af
skipunum. Að þessu búnu semdu
menn þessir greinargerð og legðu
hana fyrir og þá yrði tekin ákvörð-
un um hvert stefna skuli. Bærinn
ætti að hafa forgöngu um að senda
menina, til að skriður kæmist á
málið að sjálfsögðu hefði ríkið þar
sína fulltrúa.
Vöruflutningar aukast stöðugt á
landi og er þá meðal annars ekið
frá Reykjavík um Norðurland og
allt til Austfjarða, virðist þá ekki
skipta máli þó flugvellir séu í nánd
eða strandferðaskip gangi í hafnir,
t. d. Austfirðir og Egilsstaðar. Álít
ég að rekstur loftpúðaskips gæti
borið sig fjárhagslega þó flutnings-
gjöldum væri stillt í hóf. Að sjálf-
sögðu þyrftu að rísa vöruskemm-
ur við endastöðvar, en sennilega
ekki önnur mannvirki, þannig að
skipið hefði alltaf nægan flutning
allt árið um kring.
Á þessu stigi málsins er ekki
hægt að segja um hvort loftpúða-
skipin eru lausnin á málinu, en ef
ekki fer fram athugun á því, er það
hreint sinnuleysi.
Vestmannaeyjar hafa upp á
margt og mikið að bjóða, meðal
annars mikla náttúrufegurð og
blómlegt athafnalíf. Samgöngurnar
og vatnsmálið hafa verið hér vanda
mál. Annað vandamálið er að leys-
ast því ekki að snúa sér af einurð
að hinu.
Gúðm. Gúðmundsson.
yf irlögregluþ j ónn