Fylkir - 02.06.1967, Side 4
4
FYLKIR
Af kvtrju gafst vinslri
sijórnin upp ?
Vestmannaeyingar
munu ekki aftur láta
blekkjast af áróðri
vinstri flokkanna.
Þcir vit-a að loforðum þeirra er ekki að treysta.
Kjósendum í Vestmannaeyjum
mun enn í fersku minni áróður
vinstri flokkanna og loforð þeirra
í sambandi við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar síðastliðið vor.
Þá var ekkert til sparað.
Allt, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hafði gert var á annan veg en þeir
töldu að rétt væri. Nýja stefnu
átti að taka upp í bæjarmálunum
og nýtt framfaratímabil að rísa.
Samhliða átti að lækka útsvörin
á öllum almenningi með því að láta
vinnslustöðvarnar greiða meira en
þær höfðu áður gert. í sjálfu sér
skal þeim kjósendum ekkert láð,
sem létu blekkjast af þessum fag-
urgala og áróðri vinstri flokkana.
Kosningar eru til þess að kjós-
endur geti með atkvæði sínu mark
að þá stefnu, sem það telur affar-
arsælast fyrir sig. Og það er ekki
nema mannlegt að treysta því að
flokkar, sem gulli og grænum
skógum lofa, í þessu tilfelli meiri
framkvæmdum og lægri útsvörum
standi við það.
Nú er nær ár liðið síðan að bæj-
arstjórnarkosningarnar fóru fram
og vinstri flokkarnir tóku við for-
ystu bæjarmálanna og hafa kjós-
endur því þegar öðlast nokkra
reynslu í sambandi við loforð
þeirra. Spurningin er því fyrir kjós
endur hvort reynslan hafi leitt í
ljós að loforðum þeirra væri treyst
andi.
Vel má vera að einhverjir treysti
sér til að svara þesari spurningu
játandi. En sennilega eru það fáir
kjósendur, sem telja sig geta und-
ir það tekið.
Allir bæjarbúar vita að útsvör
hafa verið stórhækkuð alveg að á-
stæðulausu og auknar framkvæmd-
ir blasa hvergi við. Aðeins verið
að basla við að halda áfram þeim
framkvæmdum, sem byrjað var á
eða undirbúnar höfðu verið. Ná-
kvæmlega það sama er að segja um
fjármál kaupstaðarins, þar hefur
hvergi nærri verið haldið í horf-
inu og hinn ópólitízki frelsari bæj
armálanna, sem Framsóknarflokk-
urinn boðaði að settur myndi verða
í sæti bæjarstjóra mætti aldrei, en
stöðu bæjarstjóra skipar eins og
allir vita venjulega holdi klæddur
maður, hápólitízkari en flestir aðr-
ir.
Að fenginni þessari reynslu og
standandi frammi fyrir þeirri stað
reynd, að vinstri flokkarnir hafa
þegar eftir aðeins tæpt eitt ár,
brugðist öllum loforðum, sem þeir
gáfu fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar, hljóta kjósendur að
hugsa sig vel um áður en þeir
greiða atkvæði við kosningarnar
nú.
Enn koma þessir sömu flokkar
fram með nákvæmlega sama áróð-
urinn og nákvæmlega sömu loforð-
in um lægri skatta til ríkissjóðs og
meiri framkvæmdir á hans vegum,
en verið hefur.
Eðlileg notkun kosningaréttar-
ins í lýðfrjálsu landi, er að láta þá
flokka, sem staðnir eru að því að
bregðast loforðum sínum, finna
það við fyrsta tækifæri, að slíkt
verður ekki þolað.
Til þess hafa kjósendur tækifæri
nú við kjörborðið hinn 11. júní.
Það, sem á-
unnist heíur
HÚSNÆÐISMÁL:
Alltaf er talsverður húsnæðis-
skortur, þótt mikið sé byggt. Á
síðustu 6 árum hafa verið byggðar
um 10.000 íbúðir. Svarar það til
að byggt hafi verið yfir 40-50 þús-
und manns. Og er það langt fram
yfir fólksfjölgunina. Á tveim síð-
ustu árum hafa verið byggðar um
500 íbúðir fram yfir það, sem á-
ætlað var.
Síðustu 6 árin hefur fjárfesting
í íbúðum numið 23% af heildar-
fjárfestingu landsmanna.
Á viðreisnartímanum hafa lán-
veitingar Húsnæðismálastjórnar
verið stórauknar. Hámarkslán nú
nema kr. 340.000,00 og er þó mik-
ið til hægt að fullnægja eftirspurn
miðað við það, sem gerðist á vinstri
stjórnartímanum, þegar hámarks-
lánin voru 100.000,00 á hverja í-
búð.
Til viðbótar þessu fá meðlimir
verkalýðsfélaganna allt að kr.
75.000,00 viðbótarlán hjá Húsnæð-
Þegar viðreisnarstjórnin tók við
völdum eftir skipbrot vinstri stjórn
arinnar var ófagurt um að litast.
Þrátt fyrir met aflaár 1958 miðað
við það, sem þá þekktist, höfðu er-
lendar skuldasúpur safnast upp og
traust landsins út á við fyrirfannst
hvergi hvorki í austri né vestri.
Ábyrgðarleysi stjórnvalda var
svo áberandi að aðrar þjóðir virtu
íslendinga naumast viðræðna. ís-
lenzkur gjaldmiðill var hvergi
skráður, en slíkt er ein mesta smán
sem hægt er að gera sjálfstæðri
þjóð.
Það er táknrænt, að vinstri stjórn-
in sprakk endanlega á óðaverð-
bólgu, sem aldrei hefur magnast
meira en á dögum hennar og því
að ekki var samstaða um nein úr-
ræði svo notuð séu orð Hermanns
Jónassonar forsætisráðherra, er
hann tilkynnti uppgjöfina fyrir aL
þjóð.
Þá var eitt meðal fálmkenndra
ismálastjórn.
Framkvæmdanefnd byggingar-
áætlunarinnar, sem er nýleg stofn-
un vinnur nú að byggingu 1250 í-
búða fyrir láglaunafólk.
í sambandi við þessar framkvæmd-
ir, sem staðsettar eru í höfuðstað
landsins, hlýtur að koma að því að
sambærilegar framkvæmdir verði
gerðar út um land.
TRYGGINGAMÁL:
Bætur lífeyristrygginga 1959
voru rúmar 150 miljónir króna: Á
þessu ári verða þessar bætur yfir
1000 milljónir króna.
Á sama tima og vísitala hefur
hækkað um 95% hafa bætur al-
mannatrygginga hækkað um mörg
hundruð prósent og allt yfir 1000%.
Á þessu ári munu greiðslur al-
mannatrygginga nema samtals kr.
1500 milljónum.
Fjölskyldubætur eru yfirgrips-
meiri en nokkru sinni fyrr. Elli og
örorkulifeyrir fæst nú þótt menn
hafi jafnframt aðrar tekjur. Al-
mennur lífeyrir fæst nú, þótt menn
fái líka greiðslur úr sérstökum líf-
eyrissjóðum. Ekknalífeyrir hefur
verið stórlega aukin. Sömuleiðis
mæðralaun. Slysa- og sjúkradags-
peningar eru nú greiddir í heilt ár
í stað hálfs árs áður.
Unnið er að stofnun lífeyrissjóðs
fyrir alla landsmenn.
Eru hér aðeins talin fá af þeim
velgerðarmálum, sem núverandi
ríkisstjórn hefur komið til fram-
kvæmda.
úrræða stjórnvalda að fara fram á
mikla kauplækkun hjá launafólki,
smbr. beiðni þeirra til Alþýðusam-
bandsþings.
Síðasta von þessara ráðviltu
manna var að ráðast á garðinn, þar
sem hann var lægstur og fór sem
fór.
Er það nokkur furða þót fyrver-
andi vinstri kjósendur hugsi sig
um tvisvar áður en þeir kalla aftur
yfir sig ráðleysingja og uppgjafar-
menn vinstri stjórnarinnar sálugu?
Til sölu!
íbúð neðri hæðar á Kirkjuvegi 39A
Hvamms, 3 herbergi og eldhús í
vönduðu og vel staðsettu húsi á
rúmgóðri lóð. Á sama stað ýmsir
lausamunir til sölu.
Hús í smíðum, tilbúið undir tré-
verk við Nýjabæjarbraut — 150
fermetrar á hæð, 40 í kjallara.
Húseignin Brekastígur 20. Ein-
býlishús af steini. Útborgun aðeins
kr. 200 þús.
Kúseignin Skálanes, Vesturvegur
12 A. Lítið einbýlishús ásamt 2
steinsteyptum útihúsum kjörnum
undir bílskúr eða léttan iðnað.
Húseignin Vesturvegur 2. Horn
hús við Bárugötu. Ein verðmætasta
lóð bæjarins.
íbúð, 3 herbergi og eldhús á
neðri hæð í góðu steinhúsi við
Heiðarveg.
Margt fleira er á markaðnum:
Einbýlishús, íbúðir, bátar, bifreið-
ar, veiðarfæra- verzlunar og at-
vinnuhúsnæði.
Kaupið fyrir kosningar.
JÓN HJALTASON, Krl.
Skrifstofa: Drífanda við Bárugötu.
Viðtalstími: kl. 4,30 — 6 virka daga
ncma laugardaga kl. 11 — 12 f. h.
Sími 1847.
- -*■ - * - — *— -- -
Loflpressan s, f.
Síminn er 2343
Loflpressan s. í.