Fylkir - 16.06.1967, Síða 3
FYLKI R
3
j
\
Sundlaugin verður opin fyrir baðgesti á
þessum tímum:
Kl. 8—9 almennur tími.
KI. 2—4 stúlkur.
KI. 4—5 konur.
Kl. 5—7 drengir.
Kl. 8—10 almennur tími.
Sunnudögum kl. 9—12, almennur tími.
Almennir tímar eru miðaðir við 13 óra
og eldri.
Á mónudögum verður laugin lokuð.
SUNDLAUGARNEFND.
Vinsældir
TAUSCHER
sokkanna
eru stöðugt að aukast.
Fylgist með fjöldanum
og notið
TAUSCHER
sokka.
Atvinna!
Stúlka óskast til afleysinga 2 daga í viku.
HAFNARBÚÐIN — sími 1770.
Béfagreiðslur
Vegna sumarleyfa hefst útborgun bóta fyrir júní-
mánuð, mánudaginn 19. júní n.k. kl. 11. Útborgun fjöl-
skyldubóta hefst fimmtudaginn 22. júní og lýkur 27. júní.
Greiðslur bóta fyrir júlí hefjast föstudaginn 28.
júlí.
Umboð almannatrygginga
Vestmannaeyjum.
Kjósendur votti.
framhald af 1. síðu.
var dauft hljóðið í Eysteini í sjón-
varpinu, þegar talningu var end-
anlega lokið, og sýnt var að Fram-
sóknarflokkurinn hafði tapað fylgi,
en ekki bætt við sig, eins og var þó
almennt haldið í þeim herbúðum
fyrir kosningarnar. Það sýnir bezt
að frægðarsól Framsóknar er nú
á niðurleið, þótt hún hafi skinið
nokkuð skært um tíma, enda er sú
yfirleitt sagan um afturhaldsflokka,
að þeir eiga ekki upp á pallborðið
hjá fólki.
Og einna verstu útreiðina fékk
hann í Suðurlandskjördæmi, þar
sem það kom fram, sem búið var
að spá, að Helgi Bergs náð: ekkí
kjöri. Þetta var mikið áfall fynr
Framsóknarflokkinn, en ekki nema
það, sem við mátti búast. Fram-
sóknarflokkunna hefur rénandi
vinsældir á tíuðurlandi, ekki sízt
í Vestmannaeviurr..
Persónulegt fylgi Karls Guðjóns-
sonar olli aukningu atkvæða hjá
Alþýðubandalaginu, fremur en það
að menn hafi kosið það fyrir mál-
staðinn. Er alls óvíst, að kosning-
in hefði farið á þann veg, hefði
einhver annar skipað fyrsta sæti
listans.
íbúð óskast
Ung, barnlaus hjón óska eftir að
taka á leigu 1 til 2ja herbergja í-
búð nú þegar.
Upplýsingar í síma 1477.
Barnavagn
með tözku til sölu að
Strembugötu 16.
Bifreið til sölu.
Bifreiðin V-218 er til sölu.
Upplýsingar í síma 1378.
Alþýðuflokkurinn náði nokkurri
fylgisaukningu um landið, nema í
Suðurlandskjördæmi, þar sem fylg
ið minnkaði. Mun það stafa af ó-
heppilegu vali í efsta sæti listans,
ásamt því, að menn hafa takmark-
að álit á Alþýðuflokknum, að
minnsta kosti í Vestmannaeyjum.
í Suðurlandskjördæmi getur
Sjálfstæðisflokkurinn hrósað sigri
með nokkurri fylgisaukn., er sýnir
traust það, sem kjósendur bera til
þeirra manna, sem í framboði voru
fyrir flokkinn. Sjálfstæðisflokkur-
inn nálgast það að eiga helming
atkvæða á Suðurlandi, og sýnir
það bezt, hvert álit kjósenda þar
er á honum.
En það sem mest er um vert
eftir þessar kosningar er það, að á-
fram skuli þjóðin eiga styrka og
ábyrga stjórn undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins, sem ekki hleypur
frá vandanum, þótt eitthvað kunni
á að bjáta, eins og sumir gerðu
fyrir nokkrum árum, heldur reyn-
ir ótrauð að finna ráð til lausnar
honum. Slík stjórn er það, sem
ríkja þarf í landinu.
S. J.
JÓN HJALTASON. hrl.
Skrifstofa: Drífanda við Bárugötu.
Viðtalstími: kl. 4,30 — 6 virka daga
nema laugardaga kl. 11 — 12 f. h.
Simi 1847.
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmannabraut 31, Kaupangl.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Sími 1878. — Heima 2178.
Herbergi óskasl
1 eða 2 herbergi óskast til leigu.
Upplýsingar í síma 1959.
fMaw
*
liygli auglýsenda skal vakin á því, að næsta blaðr er síðasta blað Fylkis.
sem út kemur, þar til í haust.