Fylkir - 22.09.1967, Síða 3
FYLKIR
3
Samningar undirritaðir
Framhald af 1. síðu.
í aprílmánuði 1966 var málið
komið á það stig að hið danska fyr
irtæki óskaði eftir að fulltrúar frá
bæjarstjórn ásamt ráðunautum
kæmu út til Danmerkur til við-
ræðna og athugunar á fyrirliggj-
andi sýnishorni af leiðslunni, fram
leiðslu hennar og möguleika á
flutningi leiðslunnar til Vestmanna
eyja með kapalskipi fyrirtækisins,
sem þá var staðsett í Kaupmanna-
höfn.
Var í þessari ferð endanlega af-
ráðið að N.K.T. réðist í framleiðslu
á umræddri leiðslu, en fyrirtæk-
ið taldi sig þá ekki tilbúið til að
gera bindandi samning, þar sem
enn væru nokkur tæknileg atr. er
það taldi sig þurfa að ráða fram
úr áður en slíkt væri gert.
Eftir að núverandi bæjarstjórn
tók við héldu viðræður áfram við
N.K.T. og komst málið eins og fyrr
segir á lokastig hinn 16. f.m., er
samningar um leiðsluna voru und-
irritaðir á skrifstofu bæjarstjóra
með skilyrði um afhendingu næsta
sumar.
Samningsverð leiðslunnar varð
endanlega danskar krónur 2.970.
000.00 og jafnframt haldið opnum
möguleika fyrir samningi á annarri
samskonar leiðslu, en d. kr. 400
þúsund ódýrari miðað við aðstæð-
ur í dag miðað við að samningar
um þá leiðslu yrðu gerðir ekki síð
ar en árið 1970.
Er þetta d. kr. 270 þúsund
hærra verð en upphaflega var um
talað og byggist að minnsta kosti
að nokkru leyti á frekari kröfum
sem gerðar hafa verið um stykleika
leiðslunnar og er að því leyti ekk-
ert við því að segja, þar sem grund
vallaratriði er, að leiðslan verði
eins sterk og varanleg og frekast
er kostur á.
Þegar eftir að núverandi meiri-
hluti tók við völdum lýstu fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn því yfir, að þeir myndu eft-
ir beztu getu veita þessu máli á-
framhaldandi stuðning og halda
því utan við dægurþras bæjarmál-
ana svo fremi að meirihlutinn héldi
eðlilega á málinu og misnotaði
ekki aðstöðu sína í því sambandi.
Eg held að ekki verði annað sagt
en að við höfum við þetta staðið,
þrátt fyrir að verulega hafi reynt
á þolrifin, þegar í upphafi er meiri
hlutinn varð sér til minnkunar í
viðræðunum við eigendur jarðar-
innar Syðstu-Merkur, er pexað var
dögum og vikum saman um mjög
sanngjarna kröfu þeirra fyrir af-
sali á vatnsréttindum í landi jarð-
arinnar, sem að sjálfsögðu er und-
irstöðuatriði og gerir vatnsveitu-
framkvæmdirnar mögulegar. Á-
ætlaður heildarkostnaður verksins
er talinn vera um 100 milljónir kr.
en rifrildið stóð um einar 25 þús-
und krónur, og fór sú upphæð og
meira til síðar í málskostnað er
sætzt var á málið.
En þetta er liðin saga og tjáir
ekki um að tala.
Aðalatriðið er að leiðslan verði
lögð næsta sumar og reynist var-
anleg svo hér í Vestmannaeyjum
geti að þessu leyti talizt lífvænlegt
ekki síður en annarsstaðar.
Guðl. Gíslason.
Bifreið lil sölu.
Volkswagen bifreið til sölu.
Upplýsingar í Skóvinnustofunni,
Kirkjuvegi 15.
Afhugið:
Málningarvinna og
bílasprautingar.
Valgeir Sveinbjörnson.
Simi 2083.
Til sölu.
3 stk. milliveggjaplötur með eikar-
spæni.
Stærð, 1,22x3,50 m.
Upplýsingar i síma 1200.
TILKYNNIKG
frá Bygginganefnd Vestmannaeyja:
Samkvæmt nýrri byggingasamþykkt fyrir Vest-
mannacyjar skulu meistarar, sem sjá um byggingafram-
kvæmdir (húsasmiða- og múrarameistarar) hér eftir vera
Iöggiltir af Bygginganefnd.
Umsóknir um löggildingu skulu sendast Bygg-
inganefnd fyrir 15. október 1967.
Auglýsiug um löglaksúrskurð,
Hinn 2. ágúst s.l. var af bæjarfógetanum í Vest-
mannaeyjum kveðinn upp almennur lögtaksúrskurður fyr-
ir ógreiddum útsvörum og aðstöðugjöldum fyrir árið 1967 til
bæjarsjóðs Vestmannaeyja.
Lögtök mega fara fram að liðnum átta dögum
frá fyrstu birtingu þessarar auglýsingar.
Útsvarsinnheimtan
V estmannaey jum.
Útgerðarmenn og netaverkstæði,
Vestmannaeyjum.
Sölumaður
á bofnvörpum og botnvörpustykkjum
og öðrum framleiðsluvörum Hampiðjunnar í Vestmannaeyj-
um er Runólfur Runólfsson, útgerðarmaður, Bræðratungu.
Vinsamlegast reynið viðskiptin.
Sýnishorn á staðnum.
Hf. HAMPIÐJAN
Reykjavík.
Atvinna!
Stúlkur vantar á sjúkrahúsið.
Upplýsingar gefur matráðskonan.
HMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGH.MGHMGHMGHMG
,n u«
1
x
o
2
IS/I
Húsgagna- og gólfleppaverzlun
Nnrinós Guðmundssondr
Brimhólabraut 1. —- Sími 1200.
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT:
Nýjar gerðir af svefnherbergissettum.
TEAK — EIK — GULLÁLMUR.
Mjög glæsileg og falleg vara.
Munið okkar hagkvæmu greiðsluskilmála.
19
5
X
19
S
X
19
X
19
2
X
HMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMGHMG
I
X
I
X
£
O
X
I
X
£
Gí
X
67