Fylkir - 10.11.1967, Blaðsíða 2
2
FYLKIR
'Si
Málgagn
Sjálfstæðisflokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Sigurgeir Jónsson
Sími 1920
Auglý singast j óri:
Bragi Ólafsson, sími 2009
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
Umdeildir
verzlunarhæt tir
Fátt hefur vakið meiri athygli
manna undanfarið, en málavafstur
sá, er spunnizt hefur upp vegna
aðgerða verzlunarinnar Hagkaups
í Reykjavík. Sem kunnugt er hef-
ur úlfúð ríkt milli smásölukaup-
manna í Reykjavík og þessa fyrir-
tækis, síðan það komst á laggirnar.
Ástæðan er sú, að fyrirtækið hef-
ur selt sinn varning út á mun
lægra verði en aðrar verzlanir, og
hefur því mörgum þótt akkur í að
verz.a við það. Hefur það því að
sjálfsögðu dregið úr verzlun við
önnur fyrirtæki, sem verzla með
ámóta varning og Hagkaup hefur
að mestu höndlað með.
Nú fyrir skömmu hugðist fyr-
irtækið færa út kvíarnar í rekstr-
inum með matvöruverzlun, en þá
settu kaupmenn heildsölum stólinn
fyrir dyrnar og sögðust ekki mundu
eiga fleiri viðskipti við þá heild-
sala, sem seldu Hagkaupum vöru
sína, heldur snúa sér annað. Af
þessu spannst það, að heildsalar
sáu sig til neydda að synja Hag-
kaupum um aðstoð við vöruinn-
flutning. ,Mun fyrirtækið nú hafa
í hyggju að hefja einnig innflutn-
ing jafnframt því, sem smásalan
mun halda áfram, til að koma þess
um áformum sínum áfram. Hefur
forstjórinn jafnvel látið í það skína
að hann hygðist leita til almenn-
ings með fjársöfnun vegna þessa.
Að sjálfsögðu eru til tvær hlið-
ar á máli þessu eins og öðrum. Til
þessa hefur fyrirtækið getað selt
sínar vörur lægra verði, vegna
þess að minna hefur verið hugsað
um að vanda aðbúnað í verzlunum
en yfirleitt tíðkast. Einnig hefur
það komið til greina að innkaup
hafa verið gerð í ríkari mæli en
yfirleitt hjá verzlunum, þannig að
hagstæðari kjör hafa verið til boða
og þá mun álagning hafa verið
Almenn stjórnmdlaólyktun i II. S. - þings
* Ungir Sjálfstæðismenn telja, að nú sem fyrr sé það grundvallar-
atriði í íslenzkum stjórnmálum, að einstaklingarnir og samtök þeirra,
hafi eðlilegt svigrúm til athafna, svo að framtak og þróttur borgaranna
lái sem bezt notið sín heildinni til heilla. Þjóðinni hefur jafnan vegnað
hezt og atvinnulíf hennar, menning og framkvæmdir allar verið með
mestum blóma, þegar borgararnir sjálfir hafa haft sem mest frelsi til
orða og athafna.
* Þessa grundvallarstefnu verður jafnan að hafa að Ieiðarljósi,
þegar glímt er við vandamál líðandi stundar.
* Lýst er yfir stuðningi við stjórnarsamstarfið og stjórnarstefnuna,
en hún hefur á starfstímabili núverandi stjórnar leitt af sér örari fram-
farir og uppbyggingu, samfara betri lífskjörum en nokkru sinni fyrr.
Öðrum verður ekki betur treyst til þess að leysa þann vanda, sem nú
steðjar að efnahag landsins.
* Stjórnarsamstarfið má þó ekki verða til þess, að gengið sé í ber-
liögg við grundvallaratriði Sjálfstæðisstefnunnar.
1. TRAUSTARI GRUNDVÖLLUR
EFNAHAGSLÍFSINS.
Ungir Sjálfstæðismenn minna á:
— sjávarútvegur verður um langa
framtíð megin atvinnuvegur þjóð
arinnar.
— verðfall sjávarafurða og lokun
markaða fyrir útflutningsvörur
— hættur þær, sem stafa af ein-
hæfum avinnuvegum,
— sala raforku til álbræðslu gerði
stórvirkjun við Búrfell fram-
kvæmanlega,
— miklar orkulindir landsins eru
enn ónýttar.
og álykta:
minni hjá kaupmanninum sjálfum
en hjá kollegum hans, þannig að
vöruverðið hefur haldizt niðri af
þeim sökum.
íslenzkir kaupmenn verða að
gera sér það ljóst, að þeir eru til
orðnir neytandans vegna, en ekki
neytandinn þeirra vegna. Ef einn
kaupmaður sér sér hagkvæmd í
því að halda vöruverði lægra en
annar þá hann um það. Slíkt er
í þágu þeirra, sem við hann eiga
viðskipti, auk þess sem það kemur
kaupmanninum sjálfum til góða,
eins og hefur sýnt sig.
Erlendis eru þessir viðskiptahætt
ir mjög tíðkaðir, og sér enginn
neitt athugavert við þá, nema síður
sé.
Á hinn bóginn er ekkert athuga-
vert við það, þótt einstaka verzl-
anir, sem hafa sérhæft sig í sölu
ákveðins varnings stilli vöruverði
sínu hærra en mun tíðkast, enda
mun þar oftast um vandaða vöru
óg jáfnvel í sérflokki að ræða, svo
að eðlilegt verður að teljast, að
þar sé hærra vöruverð.
En þegar kaupmaður og neytend
ur sjá sér báðir hag í því að hafa
vöruverðið sem lægst, hlýtur um
rétt m'ál að vera að ræða.
S. J.
— að forðast beri þær sveiflur, sem
einkennt hafa íslenzkt efnhags-
líf vegna stopuls sjávarafla og
örðugra markaðsstöðu, t.d. með
myndun varasjóðs í góðæri til
þess að jafna afkomuna frá ári
til árs.
— að vinna beri að aukinni fram-
leiðni og hagræðingu m.a. með
stækkun rekstrareininga.
— að treysta beri efnahagsgrund-
völlinn með frekari uppbyggingu
stóriðju í landinu í samvinnu við
erlent fjármagn, enda verði þess
gætt að það verði með þeim kjör
ur, sem aðgengileg eru fyrir ís-
lendinga.
2. ÍSLENZKUR IÐNAÐUR.
Ungir Sjálfstæðismenn minna á:
— aukningu innflutnings iðnaðar-
vara, sem hefur þrengt hag ís-
lenzks iðnaðar,
— lækkun tolla á vélum og hráefni
til iðnaðar,
— stórfellda útlánaukningu Iðnlána
sjóðs og rýmkun á starfssviði
sjóðsins,
og álykta:
— að enda þótt heilbrigð samkeppni
íslenzks iðnaðar við innfluttar
iðnaðarvörur sé sjálfsögð, verði
að tryggja það að kjör þau, sem
íslenzkum iðnaði eru búin, veiti
honum samkeppnisaðstöðu,
— að hagræðing innan iðnaðarins
og framleiðni verði aukin,
— að mat á innlendum og erlend-
um tilboðum í iðnaðarvörur eða
iðnaðarverk kæmi til greina að
settar verði fastar reglur um, að
íslenzk tilboð, sem gengið er að,
geti verið nokkru hærri en er-
lend.
3. LANDBÚNAÐUR.
Ungir Sjálfstæðismenn minna á:
— miklar framfarir í landbúnaði
undanfarin ár,
— nauðsyn þess að í landinu verði
framleiddar sem flestar landbún-
aðarvörur fyrir innanlandsmark-
að,
og álykta:
— að stefna beri að því að landbún
aður geti orðið sem arðvænlegust
atvinnugrein, m.a. með stækkun
búa,
— að varasamt sé að framleiða þær
landbúnaðarvörur til útflutnings,
sem greiða þarf niður af al-
mannafé,
— að reynt verði að gera landbún-
aðarframleiðsluna sem fjölbreytt
asta til að mæta óskum neytenda
m.a með blöndun erlendra bú-
fjárstofna við innlenda til bættr-
ar kjötframleiðslu,
—að spornað verði gegn offram-
leiðslu á einstökum landbúnaðar
vörum,
— að dregið verði úr einokunar-
sölu á ýmsum landbúnaðarvör-
um.
Framhald síðar.
Einbýlishús
fil leigu.
Upplýsingar í síma 1865 eða 1824.
~ i iiiim »
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmariuabraut 31, Kaupangi.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Sími 1878. — Heima 2178.
JÓN HJALTASON. hrl.
Skrifstofa: Drífanda við Bárugötu,
Viðtalstími: kl. 4,30 — 6 virka daga
nema Iaugardaga kl. 11 — 12 f.h.
Sími 1847.
vw»>wwi>w\wa
Álþýðuhúsið!
Dansleikiur á laugardags-
kvöld kl. 9.
Logar leika.
Borðapantanir milli kl. 3 og 5
Síminn er 1537.
TÝR