Fylkir - 17.11.1967, Qupperneq 4
Veðráttan: Það hefur sannarlega
verið erfið veðrátta til sjávarins
þessa vikuna. Segja má að vikan
hafi verið eitt samfellt rok. Fyrst
á norðan, en svo á suðvestan. Sjó-
sókn var því eðlilega mjög lítil t.
d. komust línubátarnir aðeins tvisv
ar á sjó í vikunni.
Botnvörpubátarnir: Það er dauft
yfir hjá togbátunum þessa dagana.
Fyrir það fyrsta er það ótíðin, er
hamlar og í annan staðinn er, að
þegar eitthvað útskot er, þá er
ekki „bein” að fá. Það eina sem
ég hefi heyrt talað um, og eitthvað
kveður að er hjá Andvara, land-
aði um 20 tonnum núna í vikunni.
Línubátarnir: Á sjó komust línu-
bátarnir aðeins tvisvar í þessari
viku. Og ekki höfðu þeir erindi
sem erfiði, þar sem aflinn var sára
tregur. Rétt um 2 tonn hjá flest-
um. Eins og nú horfir virðist línu-
útgerðin í haust ætla að misheppn-
ast með öllu. Fiska bátarnir rétt
fyrir mannakaupinu, en hafa þá
ekkert upp í allan annan kostnað,
olíu, beitu, tryggingar, og veiðar-
færi„ svo að einhverjir af helztu
kostnaðarliðunum séu nefndir. Erf-
iðleikar línuútgerðar á þessu
hausti stafa fyrst og fremst af
tvennu, aflatregðu og erfiðu tíðar-
fari. Aflinn í haust er t.d. mun
minni heldur en hann var í fyrra-
haust. Er útlit fyrir að það verði
ekki margir, er gera út á línu að
hausti. Er það mjög slæmt, þar sem
að línuútgerð er í atvinnulegu til-
liti um margt fremri annarri út-
gerð, línufiskur er bezta hráefnið
til vinnslu og svo mætti lengi telja.
Síldin: Aðeins er að færast líf í
síldarverkunina i bænum. Núna í
vikunni bárust hingað um 1100
lestir og má segja að það sé það
fyrsta er hingað berst af síld er
eitthvað um munar. Þessi síld er
veidd nær eingöngu í Breiðamerk-
urdýpinu. Er síldin misjöfn að
stærð, en nokkuð jöfn að gæðum.
Reynt er að verka eins mikið eins
og hægt er, og fer síldin í söltun,
flökun og heilfrystingu. Ekki er
vitað hve há meðalnýting er en
tæpast er það mikið yfir 60%.
Tvær „stöðvar” eru byrjaðar á
síldarsöltun, ísfélagið og Fiskiðjan.
Nemur söltunin hjá þessum tveim
fyrirtækjum um 1000 tunnum. Gert
er ráð fyrir að Vinnslustöðin og
Hraðfrystistöðin hefji söltun núna
eftir helgina.
Útlit og horfur: Ekki horfir væn
lega fyrir útgerð og fiskverkun
núna á þessum seinustu mánuðum
ársins og allt er í óvissu um hvort
hægt verður að hefja rekstur með
eðlilegum hætti í þessum atvinnu-
greinum um áramótin. Bæði innan
Aðalfundur Þórs
Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs
var haldinn sunnudaginn 12. nóv. s.
1. í Akóges-húsinu.
Fundinn setti fráfarandi formað-
ur Þórs, Alexander Guðmundsson
og flutti hann síðan skýrslu stjórn-
ar og ræddi félagsmálin og í. B. V.
vítt og breytt. Fram kom í skýrsl-
unni að starfið hafði gefið góðan
árangur á ýmsum sviðum t.d. fór
knattspyrnuflokkur frá félaginu í
keppnisför til Danmerkur, síðast-
liðið sumar og varð ferðin félag-
inu og drengjunum sjálfum til mik
ils sóma. Kolbrún Kolbeinsdóttir,
tók þátt í þríþrautarkeppni á veg-
um F. R. í. Þetta var landskeppni
og sigraði hún í sínum aldursflokki
og hlaut í verðlaun flugferð til
Grænlands með F. í. Handknatt-
leiksstúlkur Þórs stóðu sig mjög
vel á liðnu ári. Þær kepptu á ís-
landsmóti innanhúss í 2. fl. vetur-
inn 1967 og gerðu tvö jafntefli og
unnu tvo leiki. í sumar stóðu þær
sig enn betur og komust í úrslit í
2. flokki kv. utanhúss, en töpuðu
þeim leik fyrir Val, einnig mætti
minnast á allmikill kraftur kom
í glímuna og vonandi að hún eigi
enn eftir að dafna.
Þá las gjaldkeri upp endurskoð-
aða reikninga félagsins og sýndu
þeir allsæmilegan fjárhag. Að því
loknu voru skýrslur formanns og
gjaldkera samþykktar athuga-
semdalaust.
Síðan fór fram stjórnarkosning
og voru þessir menn kjörnir í
stjórn:
Formaður: Jón Kr. Óskarsson,
vara-form.: Jóhann Guðmundsson,
ritari: Birgir Jóhannsson,
gjaldkeri: Gísli Valtýsson,
meðstjórnendur: Kristmann Karls-
son og Sigursteinn Marinósson.
Að lokinni stjórnarkosningu var
orðið gefið laust, og urðu miklar
umræður um mál félagsins og í-
þróttabandalagsins. Þá kom og
fram eftirfarandi tillaga, sem sam-
þykkt var í einu hljóði:
Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs,
sem haldinn var sunnudaginn 12.
nóvember 1967, fer fram á við Bæj
arstjórn Vestmannaeyja, að hún
vinni ötullega að því að flóðlýsingu
verði komið fyrir á íþróttasvæðinu
við Löngulág, og jafnframt að hún
vinni að því, að íþróttasvæðin verði
afgirt sem allra fyrst, þar sem fund
urinn telur núverandi ástand í
þeim málum algjörlega óviðunandi.
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálf
stæðismanna í Suðurlandskjör-
dæmi var haldinn s.l. sunnudag 12.
þ.m. í Vík í Mýrdal. Formaður
Kjördæmisráðs, Jón Þorgilsson,
Hellu, setti fundinn og tilnefndi
sem fundarstjóra, Einar Oddsson,
sýslumann í Vík, en fundarritara,
Hálfdán Guðmundsson, verzlunar-
stjóra, Vík.
Formaður Kjördæmisráðs gaf
fundinum skýrslu um starf ráðsins
á s.l. starfsári. Hófust síðan um-
ræður um skýrsluna og flokksmál
yfirleitt. Var meðal annars rætt
um blað flokksins í Suðurlands-
kjördæmi, Suðurland. Þá var og
rætt um húskaup flokksins í kjör-
samtaka fiskverkanda og útgerðar-
manna, eru starfandi nefndir er
hafa það hlutverk að ræða við rík-
isstjórnina um vandann og reyna
að finna á honum lausn. Viðræður
þessar eru rétt komnar af byrjun-
arstigi og er því á þessu stigi máls
ekki unnt að segja um hvern ár-
angur þær bera. En ekki er því
að leyna að þunglega horfir og
mörgum manninum finnst að nokk
uð skorti á að nægilegur skilning-
ur sé fyTÍr hendi hjá valdhöfunum
á þeim erfiðleikum er útgerð og
fiskverkun á við að stríða.
Bj. Guðm.
dæminu. Tóku margir fundarmenn
til máls um þessi mál yfirleitt. Að
loknum 1 þessum umræðum flutti
Ingólfur Jónsson, samgöngumála-
ráðherra ræðu um viðhorf ríkis ■
stórnarinnar til hinna ýmsu vanda
mála á sviðum efnahagslifsins.
í stórn Kjördæmisráðsins voru
kosnir, Jón Þorgilsson, Hellu for-
maður og meðstjórnendur:
Björn Guðmundsson, Vestmanna-
eyjum; Siggeir Björnsson, Hoiti,
Síðu; Óli Þ. Guðbjartsson, Selfossi:
og Lárus Ág. Gíslason, Miðhúsum,
Rang.
Til sölu!
vel með farin RAFHA-eldavél,
einnig barna rimlarúm.
Upplýsingar í síma 1648.
Landakirkja.
Messað næstkomandi sunnudag,
klukkan 2 eftir hádegi. Séra Jó-
hann Hlíðar, predikar.
Barnaguðsþjónusta klukkan 11
fyrir hádegi.
Betel.
Almenn samkoma klukkan 4,30,
næstkomandi sunnudag. Sunnu-
dagaskóli klukkan 1 eftir hádegi.
BAZAR.
Systrafélagið „Alfa” verður með
bazar n.k. sunnudag kl. 15,30, í
Barnaskóla Aðventista við Breka-
stíg. Margt eigulegt mun verða þar
á boðstólum að venju.
Kvikmyndasýning.
Kvikmyndasýning verður í Al-
þýðuhúsinu í dag kl. 6. Sýndar
verða m.a. myndir úr ensku deild-
arkeppninni. Aðgangur er ókeypis.
Hálka
Bæjarstjórnin okkar er bless-
unarlega spör á fé til flestra
þarfa. Til dæmis mun það
hafa þótt of mikill kostnaður
sem fylgdi því að dreifa sandi
á gangstéttir til að draga úr
hálku. Að minnsta kosti urðu
menn ekki varir við slikar
framkvæmdir nú á dögunum,
enda þótt ærin ástæða hefði
verið. En þetta heyrir ef til
vill undir eftirvinnu og þá
þarf víst ekki frekar að
spyrja. Annars hafa orðið tvö
alvarleg slys nú í hálkunni
með stuttu millibili, hverju
sem það má um kenna.
Sennilega þarf það þriðja,
til að stugga við bæjarstjórn-
inni.
Suðaustan fjórtún
í Lesbók Morgunblaðsins 12. nóv.
s.l. er prentaður upp kafli úr bók
Jökuls Jakobssonar „Suðaustan
fjórtán”. Undirritaður hefir ekki
lesið bókina, en hann kemur mikið
við sögu í því sem endurprentað
er í lesbókinni. Verulegar rang-
færslur eru í kaflanum og sumar
meinlegar. Tvær skipta öllu máli
og þurfa leiðréttinga við:
Árásin á Fróða gerðist ekki ár-
ið 1942 heldur 1941.
Páll Þorbjörnsson var ekki skip-
stjóri á Skaftfelling, þegar þeir
mættu Fróða. Skipstjóri var Ás-
geir Ásgeirsson. Stýrimaður var
Páll Þorbjörnsson.
Vestmannaeyjum 15. nóv. 1967.
Páll Þorbjörnsson.