Fylkir - 01.11.1968, Side 4
Hjartkær dóttir mín
KIRSTEN ANNA SIGFÚSSON
Vestmannabraut 24, Vestmannaeyjum
er látin. Jarðarförin hefur farið fram.
Aase Sigfússon.
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur
vinarhug og samúð við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS PÉTURSSONAR
Sigurlaug Jónsdóttir,
Jóna Guðjónsdóttir, Grétar Þórarinsson.
Sigurlaug Grétarsdóttir, Guðjón Grétarsson.
flejtom tiörnum.... Otsala
Aflabrögð: Afli hefur ver-
ið ósköp rýr í seinustu viku,
alt niður í rúmlega tonri eft-
ir vikuna, hjá þeim bátum,
er lélegast hafa aflað. Aðrir
hafa verið heppnari 5 til 6
tonn eftir sólarhringinn, en
það telst nú til undantekn-
inga, og í heild hefur aflinn
verið svo sem fyrr er sagt,
mjög rýr. Veðrið á eins og
svo oft áður sinn þátt. Stólpa
rok bæði austan og vestan
við og hvergi næði nema
hérna í kring. Furðu margir
bátar eru enn að, en gera
má ráð fyrir að þ'eún fari
fækkand'i úr þessu.
Síldin: Á föstudag og laug-
ardag, komu á land 185 tonn
af síld. Gjafar var með 60
tonn, Kristbjörg 35 og Hug-
inn 00. Síld þessi var mjög
góð og fór öll í vinnslu,
mestallt flakað. Síld þessa
fengu bátarnir austur vió
Hrollaugseyjar og Tvísker.
Seioustu dagana hefur ekki
neinnar síldar orðið vart á
þessum slóðum enda veður
óhagstætt, austm og norð-
austan strekkingur og á
stundum rok.
Lín^n: Lélegt hefur verið
á línuna að undanförnu. Öðl
ingur og Stígandi voru á sjó
á mánudag og fengu 2 tonn
hvor, og ekki var aflinn
betri í fyrradag, innan við
tonn. Aftur hafa trillurnar
verið að kroppa á línuna.
Handfæri: Enginn Eyja-
bátur er ,,á færum” þessa
stundina. Alltaf er þó slang-
ur af færabátum úr öðrum
verstöðvum hér í kringum
Eyjarnar. Afli hefur verið
sáratregur hjá þeim að und-
anförnu, alveg steindautt. En
ef til vill er eitthvað að glæð
ast. Má til að mynda geta
þess, að Sjóli úr Reykjavík,
landaði hér í fyrradag 15
tonnum af fallegum ufsa.
Afla þennan fékk Sjóli aust-
an við Eyjar, og það mest
á einum degi.
Net: Ekki heppnaðist neta
útgerðin hjá Ófeig III. og er
báturinn nú búin að taka
upp netin. Leitað var víða
fyrir sér, austan og vestan
Eyja á Sevogsbankanum og
víðar og hvergi „stikk” á
mæli, enda enginn afli,
nokkiúr fiskar. Er illt til þess
að vita, að þessi tilraun
skyldi ekki heppnast.
Síldarsala: Tveir Eyjabát-
ar, Gideon og Halkion seldu
síldarafla í Þýzkalandi í vik
unni. Síld þessa veiddu bát-
arnir í Norðursjó. Halkion
landaði 48 tonnum er seld
voru fyrir 26300 mörk, en
Gideon var með 42 tonn og
fékk 25600 marka sölu. Er
þetta allgott verð, liðlega 8
krónur fyrir kílóið.
í fyrra og nú: Aflinn á
sumarvertíðinni í ár, eða
nánar tiltekið frá miðjum
maí til septemberloka, var
11397 tonn af slægðum fiski
með haus. Humaraflinn var
105 tonn af slitnum humar.
Þar að auk lögðu aðkomu-
bátar hér á land, 1160 lestir,
og 220 tonnum var landað
og selt erlendis. Afli þessi
fékkst á 65 báta. Bátarnir
voru mislangan tíma „að”,
flestir í júlí 65 en fæstir 55.
Á sumarvertíð í fyrra
voru 40 til 55 bátar að veið-
um. Þá varð aflinn 8435 smá
lestir og 108 tonn af slitnum
humar. Þá lönduðu aðkomu-
bátar 548 tonnum og siglt
var með 300 lestir. Af þessu
má sjá að aflinn í ár er í
heild nokkru meiri heldur en
í fyrra, en taka verður með
í reikninginn að bátarnir er
veiðar stunduðu í sumar eru
nokkru fleiri en í fyrrasum-
ar.
Landhelgisbrot: Á þriðju-
daginn í þessari viku var lið
lega tugur báta héðan úr Eyj
um tekin að meintum ólög-
legum veiðum inn á Ál. Að-
dragandi þessara tíðinda
mun hafa verið að forsvars-
mönnum Raf- og Vatnsveitu
hér í Eyjum munu hafa ótt-
ast að bátarnir, er þarna
voru að veiðum væru of ná-
lægt rafstrengnum og vatns-
leiðslunni, og kynnu að
valda skemmdum á fyrr-
greindum leiðslum. Af þess-
um sökum munu þeir hafa
kært til viðkomandi aðilja.
Afstaða þessara manna er
skiljanleg. Ef spjöll eru unn
in á þessum mannvirkjum,
kann það að valda milljóna
króna tjóni, fyrir utan þau
feikna óþægindi, er slíkt
kynni að valda í byggðarlag-
inu. Þetta verða skipstjórn-
armenn að hafa í huga. All-
ir skilja nauðsyn þess að
afli komi á land, en það
verður að fara að öllu með
gát. Gæzla landhelginnar hef
ur að undanförnu ekki ver-
ið ýkja ströng, svo ekki sé
meira sagt. Af þeim sökum
ætti að vera hægt að láta
þennan tiltölulega litla blett
í friði, lofa smáýsunm, sem
þarna fæst vaxa ögn, hún
skríður „út á” seinna og
kemur þá í gagnið.
Bj. Guðm.
Ný sending
Hettukápur,
einnig vetrarkápur.
MIöSTRÆTI 5A (Hóli)
Framhald af 1. síðu.
Nú spyr ég Sigurfinn,
hvort hann haldi að krakk-
ar hafi gott af þessu. Hvort
þeim væri ekki nær að gera
eitthvað annað.
Sigurfinnur setur upp fyr-
irlitningarsvip og svarar:
— Hverjum unglingi er
nauðsynlegt að geta unnið
að sínu áhugamáli. Það er
nauðsynlegt að gefa börnum
kost á því að nota frístundir
sínar á heilbrigðan hátl. Því
tel ég nauðs-yn á að Mynd-
listarskólinn sé starfræktur.
Sérstaklega á þetta við í bæ
eins og Vm., þar sem ekki
er tómstundaheimili.
_ Ætti að kenna börnum
fyrr að teikna?
— Sú nýbreytni hefur ver
ið tekin upp í Barnaskóian-
um að kenna teikningu í 9
ára deildum. Flestum börn-
um þykir gaman að teikr.a.
Við höfum áhuga á að taka
yngri börn, 6 — 8 ára. Því
miður eyfa ástæðurnar það
ekki. Vonandi verður það
hægt síðar.
_ En hvað er að frétta af
þér. Alltaf að mála?
s _ í sumar hef ég málað
mjög mikið. Aðallega hef ég
notað kol til þess að teikna
með. Einnig hef ég málað
nokkuð á striga.
— Er þá ekki að væma
sýningar?
— Eg ér búínn að fá Akó-
ges laugardaginn 16. nóv.
Stendur sýningin fram á
miðvikudag og- verður opin
frá 14 — 22 alla daga. Mun
ég sýna þar 29 myndir, þar
af 26 til sölu.
Nú er klukkan farin að
ganga átta, svo ég kveð Sig-
urfinn og þakka fyrir snjall-
ið
S.
okkar í Víðidal heldur áfram
Bezta útsala ársins. Nærföt
á nær engu verði.
Fólk á að nota sé þau kjara-
kaup, sem þarna er hægt að
gera.
Á mánudaginn kemur fram
örlítið af barnanáttfötum.
Opið daglega kl. 3— 7 e.h,
Lítið inn þegar þér komið úr
vinnu.
Verzl
BJÖRN
GUÐMUNDSSON
MARKAÐURINN
Bifreíð fil sölu
Volkswagen ‘56 til sölu.
Upplýsingar að Faxastíg 27
Verzlunin
Geysir
auglýsir!
Nýr lundi, svið, hangikjöt,
saltkjöt, hjörtu, nýru og lifur
Ávextir, nýir, þurrkaðir og
niðursoðnir.
Allar nýlenduvörur og hrein
lætisvörur.
Sendum heun
SÍMI 2220
Verzlunin
Geyslr
Skólaveg 21
Þjóðkirkjan: Messað n. k.
sunnudag kl. 2 e.h. Séra Jó-
hann Hlíðar predikar. Barna
guðsþjónusta í Landakirkju
kl. 11 i.h.
Dánarfregn: Síðastliðinn
mánudag andaðist að heimili
sínu, Hólagötu 22, Júlíus
Magnússon, útgerðarmaður.
Július heitin var aðeins tæp-
lega þrítugur að aldri er
hann lézt.
Betel: Samkoma á sunnu-
daginn kl. 4,30 e.h. Barna-
guðsþjónusta kl. 1 e.h.
Skotfélag: Nýlega var
stofnað hér í bænum skot-
félag er hlaut nafnið Skot-
félag Vestmannaeyja. Stofn-
endur voru 20. Stjórn félags-
ins skipa: Jón R.xSigurðsson,
formaður og meðstjórnend-
ur Bjarni Rögnvaldsson og
Jóhannes Skaftason.
Lagattúdentar: Væntan-
legir eru hingað á morgun í
kynnisferð 25 stúdentar úr
Félagi laganema við Háskóla
íslands. Hópurinn mun
dvelja hér til sunnudags.
Jarðarför; Útför Júlíusar
Magnússonar, fer fram á
morgun kl. 2 e.h. Þeir sem
vildu minnast hans er vin-
samlega bent á Minningar-
sjóð Bergs Magnússonar, en
afgreiðsla sjóðsins er í Verzl.
Reyni við Bárugötu.
Afmæli: 85 ára er í dag
frú Elínborg Gísladóttir,
Laufási.
Blaðið óskar henni allra
heilla í tilefni afmælisins.
AHiugið:
Tökum að okkur að spila í
allslags hófum.
Verð eftir samkomulagi.
Upplýsingar i símum
1814 eða 1114
LEIGJUM út fundarsali.
SMURT brauð.
SENDUM' heim.
MATST0FAN
DRÍFANDA.
BÁRUGÖTU 2, sími 1181
FAST fæði.
LAUSAR máltíðir.
GISTING.
MATST0FAN
DRÍFANDA.
BÁRUGÖTU 2, sími 1181