Fylkir - 15.01.1971, Blaðsíða 2
o
Fylkir
oooooooooooooooooooooooooooooo
Ritnefnd:
Steingrímur Arnai (áb.)
Ármann Eyjólfsson
Helgi Bernódus
Jóhann Friðfinnsson
Ingibjörg Johnsen
Hörður Bjarnason
Guðmundur Karlsson
Málgagn
Sjálfstæðisflokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfélag
Vestmannaeyja
Frentsmiðjan Eyrún h.f.
Auglýsingar:
Steingrímur Arnar
Sími 1620
Við afgreiðslu fjárlaga rík-
isins var á 6 gr. þeirra sam-
þykkt tillaga frá þeim Guð-
laugi Gíslasyni og Jóni Árna-
syni, um heimild til handa
ríkisstjórninni, að selja raf-
veitu Vestmannaeyja orku-
flutningamannvirki Rafmagns
veitna ríkisins frá Hvolsvelli
og út til Eyja, það vill segja
sæstrenginn milli lands og
Eyja og raflínuna frá Hvols-
velli og niður í Landeyja-
sand, ásamt tilheyrandi út-
búnaði og skal kaupverð um-
ræddra mannvirkja vera
kostnaðarverð þeirra að frá-
dregnum eðlilegum afskrift-
um. Samskonar heimild var
samþykkt varðandi sölu á raf
línustrengnum frá aðveitu-
stöð við Eiliðaár til Akraness
yfir Hvalfjörð og yrði þá ann
aðhvort Andkilsvirkjun eða
Rafveita Akraness kaupandi
þeirrar línu.
Á fundi bæjarstjórnar 5. þ.
m. samþykkti bæjarstjórnin
einróma að fara fram á við
ríkisstjórnina, að hún notaði
framangreinda heimild og var
kosin þriggja manna nefnd á-
samt rafveitustjóra og bæj-
arstjóra til samninga við við-
komandi stjórnvöld. Ástæðan
fyrir tilmælum Rafveitu Vest
mannaeyja um að fá umrædd
mannvirki keypt, eru ákvæði
2. gr. laga um Landsvirkjun.
En þar segir að tilgangur
Landsvirkjunar sé meðal ann-
ars „að selja raforku í heild-
sölu til rafmagnsveitna sveit-
arfélaga".
Ekki verður annað sagt, en
að Vestmannaeyingar hafi bú
ið við nokkuð örugga aðstöðu
í sambandi við raforkumálin.
Sennilega öruggari en nokk-
urt annað sveitarfélag hér á
landi, þar sem bæði hefur ver
ið um að ræða sæstrenginn
frá landi og einnig er fyrir
hendi í rafveitunni nægilegt
vélaafl til að grípa inn, ef
um truflanir er að ræða frá
Sogsvirkjuninni, þannig, að
Vestmannaeyingar hafa vart
orðið varir við þótt slíkt hafi
borið að höndum. Sá einn
ljóður hefur verið á þessum
málum, að Vestmannaeyingar
hafa allt frá því að strengur-
inn var lagður búið við raf-
magnsskömmtun frá hendi
Rafmagnsveitna ríkisins, þar
sem flutningsgeta línunnar frá
Soginu austur að Hvolsvelli
hefur ekki verið nægjanlega
mikil til þess að Vestmanna-
eyingar gætu gert nokkrar
áætlanir um upphitun húsa
með rafmagni.
Verði hinsvegar af framan-
greindum samningum um
kaup á sæstrengnum og lín-
unni upp að Hvolsvelli, verð-
ur á þessu gjörbreyting, þar
sem Rafveita Vestmannaeyja
getur þá sjálf samið um hvað
mikla raforku hún kaupir af
Landsvirkjun. En hitun húsa
með rafmagni er ábyggilega
eitt af stærri hagsmunamál-
um þeirra, sem hér búa. Þeg-
ar svo er komið að nægjanleg
raforka er fyrir hendi til upp
hitunar með rafmagni, erum
við ekki lengur háð síbreyti-
legu markaðsverði á olíu, sem
af mörgum ástæðum hefur
farið mjög hækkandi á undan
förnum árum, en getum sjálf
eða sú bæjarstjórn sem hér
fer með völd hverju sinni, á-
kveðið verð á raímagni til
upphitunar, og ef rétt verður
á málum haldið má án efa
lækka hitunarkostnað húsa
hér miðað við verð á olíu
eins og það er í dag, og væri
óvarlegt að reikna með að
breyting verði þar á til lækk
unar nema síður sé.
VHgfús ýónsson. - THinning
oooooooooooooooooooooooooooooo
'Bœiarsiiórn samfnjkkir $yr-
ir siil lcyli kaupin á
sœstrcngnum
Framhald af 1. siðu.
Ungur að árum flutti Vig-
fús til Eyja og má segja að
hann hafi verið einn styrkasti
stofninn í sveit þeirra mörgu
Eyfellinga, er fyrr og síðar
hafa hazlað sér völl í Vest-
mannaeyjum og vissulega
eiga þeir stóran þátt í því
að samfélag okkar Vestmanna
eyinga má telja stórveldi í
hinu íslenzka þjóðfélagi. Fljót
lega eftir að Vigfús kom til
Eyja gerðist hann nemandi í
vélvirkjun hjá nýstofnuðu
fyrirtæki, Vélsmiðjunni
Magna, en það fyrirtæki hef-
ur að mínu viti markað heilla
drýgri spor í framfarasögu
Vestmannaeyja, en margan
grunar. Stofnendur Magna
voru heiðursmennirnir Guð-
jón Jónsson, hálfbróðir Vig-
fúsar, Ólafur St. Ólafsson, en
hann andaðist fyrir nokkrum
árum og Óskar Sigurhansson,
en þessir menn voru á sínum
tíma taldir einhverjir færustu
vélsmiðir og járniðna.ðarmenn
landsins. Það var því góð sam
fylgd sem Vigfús fékk í byrj-
un vélsmíðanámsins og það
ásamt óvenju góðum hæfileik
um hans til vélsmíða og véla
viðgerða hefur orðið til þess,
að skipa honum á bekk með
beztu vélaviðgerðarmönnum
á íslandi. Eg átti þess kost
um margra ára skeið að starfa
í Vélsmiðjunni Magna með
Vigfúsi og undir hans stjórn
Mun ég ávallt minnast þess
tíma með þakklæti í huga því
vissulega var ánægjulegt
þótt lítið væri, af m.inni hálfu
að mega vera þátttakandi í
ýmsum afrekum er Vigfús
vann á starfsviði sínu. En leið
ir okkar lágu saman á fieiri
sviðum. í þrettán ár sátum
við saman í skólanefnd Iðn-
skóla Vestm-eyja og er mér
sérstaklega ljúft að minnast
samstarfsins við hann þar.
Hann var sívakandi um vel-
ferðarmál skólans, tillögugóð-
ur og fórnfús. En mest mun
gleði hans, varðandi málefni
skólans, hafa orðið, er tókst
að koma upp hinu glæsilega
skólahúsi við Heiðarveg.
Fáir kunna að meta störf
manna eins og Vigfúsar á
borð við útvegsmenn og sjó-
menn. Eða hver getur ekki
sett sig í spor útvegsmanna og
sjómanna, sem verða fyrir
þeim óhöppum að vél báts-
ins bilar í miðjum önnum og
afkoman öll í húfi. Þá var
gott að eiga menn að eins og
Vigfús, og vissulega eru þeir
| margir útvegsbændurnir, sem
standa í þakkarskuld við Vig
fús Jónsson.
í nafni Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja og sjálfs mín
sendi ég eftirlifantíi konu Vig
fúsar, Salome Gísladóttur,
Gísla syni þeirra og öllum
öðrum vandamönnum innileg
ar samúðarkveðjui'. Minning-
in um góðan dreng mun lifa
og verða hvatning til aukinn-
ar baráttu um betra mannlíf.
í nafni Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja,
Ingólfur Arnarson (form)
Vigfús Jónson í Magna, eins
og hann var jafnan kenndur
til, var aðeins rúmlega 57 ára
er hann lézt svo skyndilega.
Á mælikvarða nútímans er
þetta ekki hár aldur, og er
því verulegur sjónarsviptir
að slíkum manni, sem Vigfús
sálugi var. Hann var einn
hinna traustu Eyfellinga, sem
flutzt hafa til bæjarins og
sett svip á umhverfi sitt. Þeir
nutu trausts samborgara sinna
í ríkum mæli vegna sinna eig
in mannkosta, enda reyndust
þeir í öllum störfum sínum
vissulega traustsins verðir.
Vigfús í Magna stóð framar-
lega í þessari góðu fylkingu.
í öllum störfum sínum, hvort
sem var á sínu faglega sviði
eða í félagsmálum almennt
naut hann virðingar fyrir frá-
bæra samvizkusemi, útsjónar-
semi í starfi og vilja til að
láta gott af sér leiða. Margur
á því á bak að sjá traustum
vini og tryggum félaga.
Öllum aðstandendum Vig-
fúsar sáluga Jónssonar sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Einar II. Eiríksson.
Y estmannaeyingar
Þeir, sem óska eftir vinnu hjá
okkur í vetur, eru vinsamlega beðn
ir að tala við verkstjórana strax,
FíSKIÐJÁN H. F.
þarf góðar og
TRYGGINGAR.
Tryggið bifreið yðar
hjá stóru og traustu
fyrirtæki- g (Y)[j=^
Tryggið hjá okkur. x r Ss
m,
M
Æ
S?
/oíð - 1<)1V
SAMVHXNUTRYGGINGAll
ARMULA 3 - SIMI 38500
Umboðskrifstofa í Vestmannaeyjum er að Vestmannabraut 25.
Sími 2344.