Fylkir - 30.04.1971, Blaðsíða 2
Fylkir
oooooooooooooooooooooooooooooo
Málgagn
Sjálfstæðisflokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfélag
Vestmannaeyja
Prentsmiðjan Eyrún h.f.
Ritnefnd:
Steingrímur Arna: (áb.)
Ármann Eyjólfsson
He!gi Bernódus
Jóhann Friðfinnsson
Ingibjörg Johnsen
Hörður Bjarnason
Guomundur Karlsson
Auglýsin“ar:
Steingrímur Arnar
Sími 1620
oooooooooooooooooooooooooooooo
‘Uvað cr að gcrasí
á miðunum?
V'etrarvertíð er nú að ljúka. |
Sennilega þeirri lélegustu.
sem nokkurntíma hefur ver-
ið hér, ef miðað er við allar
aðstæður.
Tíðarfar hefur ekki verið
verra en við mátti búast, en
afli mun minni, en menn
höfðu búist við, sérstaklega
cftir yfirlýsingar fiskifræð-
inga um ,að afli myndi fara
vaxandi á vetrarvertíð hér
við Suðvrland fram til ársins
1972, vegna sterkra árganga,
scm væru á farðinni. Að
sjálfsögðu má alltaf búast við
því, að afli á vetrarvertíðum
verði mismunandi mikil frá
ári til árs og aflabrest geti
borið að garði.
En því er ekki að neita, að
nokkur uggur er bæði í sjó
mönnum og útgerðarmönnum
um að hér sé annað og meira
á ferðinni.
Allir vita að fiskur sótti
iengi vel í verulegu magni tii
hrygningar á miðin milli Vest
mannaeyja og Reykjaness.
Fékkst lengi vel skaplegur
afii með netaveiðum utan
sjálfra hrygningarsvæðanna,
enda ekki aðstaða til veiða
með net upp á háhraununum
fyrr en nylonið og önnur
gerviefni komu til sögunnar.
Hin síðari ár hefur þetta
í æ ríkara mæli breytzt í
þá átt að netin eru iögð á há-
hraunhryggina. Er þetlo
mjög eðlilegt, þar sem þar
cr helzt aflavon og reikna
verður með, að þessu haldi 1
vaxandi mæli áfram, ef ekk
crt verður að gert.
Er rétt í þessu sambandi að
rifja það upp, að þegar fyr-
ir 15 árum voru sjómenn og
útgerðarmenn hér í Vest-
mannaeyjum orðnir það ugg-
andi um ofveiði á hrygningar
svæðunum hér við Eyjar. að
þeir sendu stjórnvöldum
landsins einróma tilmæli um
friðunaraðgerðir þann tjma,
sem hrygningin stæði yfir.
Ber að hafa það í huga, að
þarna var um aö ræð r friðun
veiðisvæða, sem þeir einir
stunduðu. Bátar frá oðrum
verstöðvum sóttu þi ekki á
þcssi mið á vetrarvertíð
Vissu sjómenn vel, að þeir
voru að skerða sína eigin
veiðimöguleika. En sýndu
þann þegnskap að vilja það
til vinna, cf það mætti verða
! til nð vcrnda þessi mið fyr-
| ir ofveiði.
Þcssi hugmynd fékk engan
| hljómgrunn hjá þáverandi
stjórnvöldum Hún var síðar
] flutt inn á Alþingi í tillögu-
| formi, en álit fiskifræðinga
varð henni þar að aldurtila.
Töldu þcir enga ástæðu til
að óttast ofveiði með netvm
á hrygningarsvæðunum. Allt
væri undir því komið að klak
ið heppnaðist, þá væri öllu
borgið, töidu þeir einnig að
erfitt væri r.ð koma friðun
hrygningarsvæðanna við,
vegna ýmissa annmarka. Erf
itt kann að vera fyrir ólærða
menn að dæma um þetta.
Hitt iiggur alveg Ijóst fyrir
að hvorki sjómenn né útgerð
armenn munu una því leng-
ur, hvað sem útfærzlu land-
helginnar líður, að fyrri hug
mynd þeirra um friðun hrygn
ingarsvæðanna hér við suður
ströndina verði ekki tekin til
athugunar á ný og að jafn-
framt, verði tekin til athug-
unar, án tafar, friðun uppeld-
issvæða fyrir Norður og Norð
Austurlandi, þar sem vitað er
að sá fiskur, sem elzt þar
upp, er veiddur hér við suð-
urströndina á vetrarvertíð,
þegar hann hefur náð vissu
þrcskastigi.
Hvorugt þetta atriði þolir
bið eftir óljósri hugmynd um
lifærsiu landhelginnar eftir
eitt eða tvö ár, en krefst af
gerandi niðurstöðu þegar fyr-
ir næstu vertíð.
SKRÍPALEIKUR MEÐ „BITLINGABITA"
„Hann var börö sjMur“
Það hefur gengið fremur
illa að halda sátt í sæng nú-
verandi bæjarstjórnarmeiri-
hluta og vægest sagt hafa
farið þar fram skrípaleikir
sem lítil sæmd er fyrir stjórn
bæjarins að hafa staðið fyrir.
Það síðasta er afgreiðsla
bæjarstjórnarmeirihlutans á
ráðningu æskulýðsfulltrúa
bæjarins. Hefur það mál vax
ið svo úr brók bæjarstjórnar-
meirihlutans, að margir
standa á blístri og ekki er út
séð fyrir endann á rifrildi
þeirrar brókar, sem útlit er
fyrir að erfitt verði að bæta.
Kemur þar til að vindur
i meirihlutans blæs úr þremur
| áttum og hver á móti öðrum.
Málið er annars mjög ein-
I falt í upphafi, eins og vera
ber. Starf æskulýðsfulltrúa
| var auglýst laust til umsókn-
í ar og um þr.ð sóttu nokkrir
ágætir menn. Umsóknir voru
I scndar æskulýðsráði til at-
| hugunar og umsagnar. Einn
J umsækjendanna. Gísli Eyjólfs
son stýrimaður fékk flest at-
kvæði í æskulýðsráði eða alls
fjögur, þcgar aðrir umsækj-
endur fengu aitt og tvö.
Skyldi mnður nú ætla, að
málið hefði verið leyst, því
elcki verður sagt að pólitík
hafi ráðið gerðum þess meiri
hluta, scm varð um þetta mál
í æskulýðsráði, enda Gísli
kunnur að drengskap, dugn-
I aði og góðum félagsþroska.
Svo var þó ekki, því mik-
iil skjálfti hljóp í hina ó-
samtaka þrenningu bæjar-
stjórnarmeirihlutans. Ástæð-
an var sú, að flokkunum
þrem bar ekki saman um það
hver „fugl“ skyldi verða æsku
lýðsfulltrúi. Sem sagt, makk-
ið var komið inn í málið, því
síðan eftir síðustu bæjarstjórn
arkosningar hafa leiðtogar
vinstri samkrullsins streytzt
við að sjá til þass, að allir
armarnir þrír fengju sinn póli
tíska bita ,og hafa leiðtogar
þá gjarnan gleymt því, að
j þeir eiga að stjórna til heilla
bæjarfélaginu, en ekki vera
að eltast við tittlingaskít eig
in hugmyndaheims.
Upphófst því mikil þemba
um það, hver ætti að fá æsku
lýðsfulltrúann og þar með var
búið að gera afgreiðslu æsku
lýðsráðs að skrípaleik. Er það
í rauninni ekki fyrsta af-
greiðslan í þá átt á málum
æskulýðsráðs og er skemmst
að minnast þess, er Hermann
Einarsson sagði sig úr æsku-
lýðsráðf, þar sem hann gegndi
formannsstarfi s. 1. ár og á-
stæðan var sinnuleysi bæjar-
stjóra við tillögum æskulýðs
ráðs.
Ekki kann ég að segja frá
þeim krítum, sem gengu á
milli krata, komma og fram-
sóknar um veitingu æskulýðs
fulltrúastarfsins enda býst ég
við, að fólk sam vill framgang
mála, hafi lítinn áhuga á því
klístri.
Niðuistaðan varð hinsvegar
sú hjá meirihlutanum, að
kökubiti framsóknar hefði orð
ið útundan, enda ekki gróið
það sár, sem þeirra lið hlaut
í síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum „vegna áróðurs krata“,
eins og einn framsóknarmað-
ur mun hafa sagt.
í framhaldi af þessari nið-
urstöðu bar bæjarstjórinn
fram þá tillögu ,að æskulýðs-
fulltrúi framsóknar fengi
starfið (væntanlega sárabót
íyrir framsóknarflokkinn)
Kom sú tillaga reyndar ekki á
óvart, því mikið hafði verið
um það rætt í herbúðum
krata að sá sem æskulýðsráð
mælti með væri bara sjó-
maður og hvernig væri hægt
að nota slíkan mann sem
æskulýðsfulltrúa. Var „lausn-
!
i
i
in“ samþykkt með 5 atkvæð-
um bæjarstjórnarmeirihlut-
ans á móti 4 atkvæðum sjálf-
stæðismanna, sem vildu láta
mat æskulýðsráðs standa.
Þess má geta, að þeir, sem
stóðu að því mati voru m. a.
fulltrúar framsóknarmanna,
sjálfstæðismanna og kommún
ista, sem kusu fremvr að mál
ið hlyti eðlilega og drengi-
lega afgreiðslu fremur en
þann ódrengskap, sem meiri
hluti bæjarstjórnar hefur nú
sýnt.
Engan umsækjanda er hægt
að áfellast fyrir að sækja um
auglýsta stöðu, cn afgreiðsla
þesa máls er með svo mikilli
skömm ,að ekki er hægt að
sitja bara og brosa í kamp-
inn eins og að sumu öðru hja
meirihlutanum. Skipsstjórn,
sem þarf að standa i slíkum
kriíum cr ekki traustvekjandi
og ckki hefu.r hún drengskap
c.ð kjörorði.
Hitt get ég svo sagt meiri-
hlutsnum til liugarfróunar, að
undirritaður var vitni að því,
cð það var „bara sjómaður",
ssm stakk upp á því að Gísli
sækti um æskulýðsfulltrúa-
starfið. En það skyldi þó al-
drei einhverjum detta í hug
að sjómennska kunni að vera
ígildi handrita eða geirfugls-
máls?
Árni Johnsen.
ADIDAS Fótboltaskór á möl og' gras, 4 gerðir.
ROMIKA æfingaskór (TRIMM)
ROMIKA fótboitaskór úr striga, stærðir: 31 til 47
Sumarskór, sportskór og sandalar frá ROMIKA á
alla fjölskylduna.
Reimuðu gummístígvélin grænu komin aftur.
Strigaskór í öllum stæi'ðum og í ölium gæða-
flokkum.
REIÐSTÍGVÉL úr leðri og gúmmí.
Sumartöflur á kvenfólk, margar gerðir.
Væntanlegir eftir helgi: Mjög ódýrir karlmanna-
skór, enskir, uppháir og lágir.
VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST.
axelQ. ^arusspn