Fylkir - 03.09.1977, Blaðsíða 4
FYLKIR
Botnvarpan: svo sem venja
er um þetta leyti árs, er það
botnvarpan, sem er punkturinn
yfir i-ið hvað aflamagn áhrær-
ir. Tíðin hefur verið alveg skap-
leg og óvenju margir að, ef
mið er tekið af árstíma. Afla-
brögð hafa verið alveg sæmi-
leg svona hjá velflestum og sum
ir fá bara þokkalega túra. Til
að mynda var Andvari inni í
að frétta af loðnuskipunum
okkar, Gullbergkiu, „Huginn",
ísleifi og Kap. Gullbergið mun
vera einna skarpast með afla,
komið með um 4400 tonn.
Þó nokkuð er komið heim
af loðnu til bræðslu, um níu
þúsund tonn. Hefði það ein-
hverntíma þótt fyrirsögn, að
loðnubræðsla væri komin vel
í gang í ágústmánuði. Af þeim
loðnuafla sem heim er kominn
munar mest um aflaskipið „Sig
urður". Það hefur komið heim
með fullfermi, tvisvar ef ekki
þrisvar.
Saltfiskurinn: Það gengur
hægt og sígandi að afskipa salt-
fiskinum. Talið er, að það síð-
asta sem saltað var frá vertíð-
inni muni fara núna seint í
þessum mánuði. Þá er það „til
baka“, sem saltað var í sumar.
Það er að vísu ekki nein ósköp,
en hvert og eitt hár gerir
skugga.
Portúgalir, þessi góða við-
skiptaþjóð okkar, á í efnahags-
erfiðleikum, og er það mikið
áhyggjuefni, ef að ekki úr ræt-
ist. —
f viðgerð: Bátar. þeirra Hilm-
árs Rósmundssonar og Kristins
Pálssonar, er hafa verið í við-
gerð í Esbjerg í Danmörku,
munu að öllum líkindum verða
eitthvað lengur ytra en upphaf-
lega stóð til. Aðalorsökin mun
vera sú, að fyrirtæki það, er
viðgerðina tók að sér, lenti í
fjárhagsörðugleikum og gafst
upp. Nú hefur þessu verkefni
verið beint í annan farvg og
allt komið í „full swing“ að
nýju. —
★
Ljósm.: Guðm. Slgfúss.
Aðalfundur Herjólfs hf.
Skýrsla formanns félagsstjórnar, Guðlaugs Gíslasonar,
alþingismanns
vikunni með um 28 tonn.
Spærlingurinn: Mikil hreyf-
ing er á mönnum í spærling-
inn. Ég hef heyrt, að þegar
upp verði staðið í haust, að þá
verði komnir allt að 20 bátar
á þessar veiðar. Nokkrir bátar
eru þegar byrjaðir, en hafa feng
ið lítinn afla. —
Togararnir: Það er bara nokk
uð gott fiskirí á togurum upp
á síðkastið. Sindri kom t. d. í
fyrradag með um 130 tonn af
góðum fiski og Vestmannaey
var fyrr í vikunni með svipað-
an afla. Af Klakk er það að
segja, að hann hefur undan-
farið verið í slipp í Reykjavík,
þar sem togarinn var „tekinn
út". Er von til þess að hann
losni núna um helgina. —
Reknetin: Þann 20. fyrri mán-
aðar var veitt leyfi til rekneta-
veiða. Ég hef það ekki alveg í
kollinum, hve margir bátar héð
an fengu leyfi til þessara veiða,
en eitthvað verða þeir fleiri en
í fyrra. Ég man eftir Hraunaey,
Dala-Rafni, Danska Pétri og
Árna í Görðum. Dala-Rafn er
byrjaður og reyndi fyrir sér
hérna í kringum Eyjar. 'rð
lítið var. —
Kaup og sala: Alltaf eru ein-
hverjar breytingar á bátaflot-
anum. Menn eru að kaupa og
selja. Ég veit, að þó nokkrir
bátar eru á söluskrá, líklega
vel yfir tíu. Nú — og menn
eru alltaf að kaupa. Má þar
meðal annars til nefna, að Guð-
jón Rögnvaldsson og Guðni Ól-
afsson hafa nýlega komið heim
með bát, er þeir keyptu úr
Þorlákshöfn, 250—260 tonn, bát-
inn hafa þeir nefnt Gjafar VE
600.
Þá er aldeilis ekki uppgjaf-
artónn í Helga Bergvins, búinn
að fá sér annað skip, Hamra-
borg úr Reykjavík, 150—160
tonn. Sá bátur kemur hingað
heim núna alveg á næstunni,
hefur verið uppi á Akransi í
svona almnnri „skveringu" eins
og við köllum það, svo gott sem
það nú er.
Richarður Sighvatsson frá Ási
er líka alveg á næstunni heima
með bát, Sæfara frá Akranesi,
160 tonn eða þar um bil.
Loðnuskipin: Það er allt gott
Þann 25. ágúst sl. var hald-
inn aðalfundur í hlutafélaginu
Herjólfur fyrir árið 1976.
Á fundinum urðu nokkrar um
ræður um málefni félagsins og
fjárhagsstöðu Fer hér á eftir
skýrsla félagsstjómar um starfs
sem félagsins 1976 svo og það
sem af er yfirstandandi ári.
Góðir fundarmenn-
Síðasti aðalfundur félagsins
var haldinn 27. nóv. sl. og hafa
síðan verið haldnir 36 stjórnar-
fundir.
Á aðalfundi félagsins 27. nóv.
sl. var gerð ítarleg grein fyrir
framkvæmdum og kostnaði við
byggingu ms. Herjólfs og rekstri
skipsins, og er því ekki ástæða
til sérstakrar greinargerðar um
gang mála fram að þeim tíma.
En greinilega hefur komið í
ljós, að allt fyrirkomulag við
rekstur skipsins, að því er varð-
ar flutninga á bifreiðum og
vörum, hefur orðið mun hand-
hægara og léttara í meðförum,
eftir að ferjuaðstaðan var tek-
in í notkun í Þorlákshöfn í
byrjun nóvember síðasta ár og
núverandi vöruflutningakerfi
komið á.
Heildarflutningar með skipinu
voru samkvæmt bókum skips-
ins og farmskrám seem hér
segir árið 1976:
Farþegar samtals 21.271.
Bifreiðar samtals 3.359.
Vörur samtals 3.870 tonn.
Þetta er nokkru meira en
stjórn félagsins hafði gert ráð
fyrir í áætlunum sísum um
rekstur skipsins.
Nýting á svefnplássum skip-
ins og farmskrám sem hér
og 60%, og er það svipað og
ráð hafði verið fyrir gert.
Á fjárlög ríkisins fyrir þttta
ár voru teknar inn 30 millj.
króna sem rekstrarstyrkur til
ms.Herjólfs og 1.7000 kr. fram-
lag vegna mjólkurflutninga. —
Halli varð á rekstri skipsins á
síðasta ári, eins og reikningar
íelagsins bera með sér, 24millj.
391 þúsund 976 krónur — auk
vaxta af föstum lánum, sem
greiddir voru af ríkisábyrgðar-
sjóði 15 millj. 644 þúsund 762
krónur eða samtals 40 millj. 36
úsund 738 krónur.
Fyrrverandi framkvæmda-
stjóri félagsins og starfslið
hans byrjaði að færa bókhald
fyrir rekstur skipsins á skrif-
stofum félagsins, en stjómin
tók þá ákvörðun, að fá endur-
skoðunarskrifstofu Sigurðar
Stefánssonar, löggilts endur-
skoðanda í Reykjavík, til þeess
að færa upp það, sem ófært
var af reikningum fyrir árið
1976 og gera upp reikninga fé-
lagsins fyrir það ár, en fyrr-
verandi framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Friðrik Óskarsson, hafði
þá fyrir nokkru sagt upp starfi
sínu.
Sami háttur hefur verið á
hafður um reikninga félagsins
fyrir þetta ár. — Núverandi for
stjóri, Ólafur Runólfsson, sem-
ur greinargerð um öll útgjöld
félagsins og tekjur og sendir
það til hinnar löggiltu endur-
skoðunarskrifstofu í Reykjavík
ásamt fylgiskjölum, en engir
reikningar eru greiddir nema
með ávísun á viðskiptabanka
félagsins, Útvegsbankann eða
Sparissjóðinn. Hin löggilta end
urskoðunarskrifstofa félagsins
gerir síðan upp reikninga, þeg-
ar árinu er lokið,
Framh, á 3. síðu.